Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2009, Page 50
Flóamarkaður á NesiNu Spennandi flóamarkaður
verður haldinn laugardaginn 26. september þegar Ólöf Páls-
dóttir myndhöggvari lagar til í geymslunni. Um allt mögulegt
verður að velja, hvort sem þig vantar flottan kjól, hatt, blóma-
vasa, skó eða skartgripi, svo það er um að gera að láta þetta
tækifæri ekki fram hjá sér fara heldur kíkja inn og gera góð kaup.
Markaðurinn verður haldinn að Útsölum við Nesveg og byrja
herlegheitin klukkan 14.
„Það er mjög margt í gangi og mér
finnst að fólk ætti að skapa sinn
eigin stíl þótt maður fari auðvitað
alltaf ósjálfrátt að fíla það sem er í
tísku,“ segir Ásgerður Ottesen tísku-
bloggari á trend-land.blogspot.com
þegar hún er spurð út í haust- og
vetrartískuna. „Þröngar gallabux-
ur, leggings og pelsar er vinsælt
og einnig alls kyns keipar og ull-
arslár. Doc Martins-skórnir, þessir
gömlu pönkaraskór, eru mjög heit-
ir núna og líka alls kyns hermanna-
og hjólaklossar,“ segir Ása en bæt-
ir við að pallíettur séu líka inni og
þá á kjólum, leggings og á jökkum,
sem og kögur á töskum og jökk-
um. „Mér finnst ekki neinn ákveð-
inn litur í gangi nema haustlitirnir,
grænn, dökkfjólublár og vínrauður,
sem alltaf koma sterkir inn á þess-
um tíma, auk svarta og gráa litarins.
Tískan er svona „tie dye“, ’80-pönk-
araleður, blandað rokkabillítímabil-
inu, ásamt áhrifum frá 1940,“ segir
Ása og bætir brosandi við að tísk-
an sé því afar fjölbreytt. „Mér finnst
tískan skemmtilegust þegar það er
svona mikið í gangi því þá eru ekki
allir eins. Þú getur til dæmis farið í
Biker-skó við blómakjól og allir fá
að njóta sín.“
indiana@dv.is
Doc Martins-skórnir aftur komnir í tísku:
Pallíettur og PöNkaraskór
UMSjÓN: iNdíaNa áSa hreiNSdÓttir, indiana@dv.is
Hollir des-
ertar sollu
Allir sælkerar ættu að kíkja inn
á vefsíðuna hennar Sollu grænu,
himnesk.is, en Solla er með
námskeið í gerð hollra deserta.
Það væri ekki amalegt að læra
að gera gómsæta sjeika og syk-
urlausa eftirrétti sem eru ekki
aðeins hollir og góðir fyrir and-
ann heldur einnig sanngjarnir
fyrir budduna. Sjálf segist Solla
leggja áherslu á einfalda og
fljótlega rétti sem eru umfram
allt hollir og góðir og búnir til úr
úrvals hráefnum. Á námskeið-
inu Hollir desertar er fræðsla og
sýnikennsla auk þess sem nem-
endur borða saman í lokin. Um
að gera að skrá sig en námskeið-
ið verður haldið fljótlega.
Fyndin snuð
í leikskólann
Í vefversluninni kruttin.is fæst
mikið úrval af sniðugum og öðru-
vísi snuðum,
meðal annars
þessi fyndnu
snuð. Í vefversl-
uninni er einn-
ig hægt að fá
snuð með nafni
barnsins á sem eru tilvalin til að
nota hjá dagmömmunni eða á
leikskólanum þar sem mörg snuð
eru í umferð. Kruttin.is selur alls
kyns barnavörur hvort sem það
eru flott snuddubönd, leikföng,
náttföt, skálar, skór eða smekkir
og vörurnar eru sendar um land
allt. Tilvalið að kíkja í heimsókn í
þessa sniðugu verslun.
Forvarna- og fræðslusjóðurinn Þú getur! styður fólk, sem hefur átt við geðræn vandamál að
stríða, til náms. Sjóðurinn heldur styrktartónleika á miðvikudaginn en Ragnheiður Guðfinna,
skipuleggjandi tónleikanna, og Ólafur Þór Ævarsson, geðlæknir og stofnandi sjóðsins, eru agn-
dofa yfir viðbrögðum listafólksins sem er tilbúið að gefa vinnu sína til styrktar málefninu.
50 Föstudagur 25. september 2009 líFsstíll
Fjölbreytt og flott tíska „Mér finnst tískan skemmtilegust þegar það er svona mikið í
gangi því þá eru ekki allir eins. Þú getur til dæmis farið í Biker-skó við blómakjól og allir
fá að njóta sín,“ segir ásgerður Ottesen tískubloggari á trend-land.blogspot.com.
„Fólk þarf stundum svo ótrúlega lít-
inn stuðing til að komast inn í lífið
aftur og ná að dafna og eflast,“ seg-
ir Ólafur Þór Ævarsson, geðlæknir
og stofnandi forvarna- og fræðslu-
sjóðsins Þú getur! Sjóðurinn heldur
styrktartónleika miðvikudaginn 30.
september í Bústaðakirkju klukkan
20, en það er Ragnheiður Guðfinna
Guðnadóttir sem er skipuleggjandi
tónleikanna. Hún segir fjölda þjóð-
þekktra einstaklinga troða upp.
„Við höfum fengið nánast allt
landsliðið sem ætlar að koma fram
og skemmta fólki. Þarna verða með-
al annars Land og synir, Klaufarn-
ir, sjálfur Frank Sinatra Íslands Geir
Ólafs, Diddú, Egill Ólafs og Frið-
rik Ómar og Jóhanna Guðrún, auk
þess sem Edda Björgvinsdóttir ætl-
ar að stýra herlegheitunum ásamt
Björgvini Franz syni sínum,“ segir
Ragnheiður og Ólafur tekur undir:
„Við erum í raun alveg gáttuð á við-
brögðum þessa fallega og hæfileika-
ríka fólks sem var svo tilbúið að gefa
vinnu sína til styrktar þessu mikil-
væga málefni.“
Sjóðurinn Þú getur! var stofnaður
í fyrra og hefur, að sögn Ólafs, þrem-
ur markmiðum að gegna. „Við viljum
styðja fólk sem hefur átt við geðræn
veikindi að stríða til náms og í öðru
lagi viljum við efla þjónustu við geð-
sjúka á sviði fræðslu og forvarna. Í
þriðja lagi viljum við stuðla að um-
ræðu og aðgerðum sem draga úr for-
dómum í samfélaginu,“ segir Ólafur.
Á tónleikunum á miðvikudag-
inn verða afhentir styrkir en sjóður-
inn hefur valið þrjú ungmenni sem
fá styrki til menntunar á framhalds-
og háskólastigi. „Auk þess ætlum
við að gefa tvær tölvur til námsfólks
og verðlauna einn heilbrigðisstarfs-
mann fyrir nýjungar í geðheilbrigð-
isþjónustu en með því viljum við
hvetja fagfólk til að koma með nýj-
ungar í geiranum. Þetta eru erfiðir
tímar og því er mikilvægt að hvetja
starfsfólk áfram,“ segir Ólafur.
Varðandi framtíðarsýn sjóðsins
segist hann vonast til að sjóðurinn
verði áfram öflugur svo hann geti
stutt hóp af fólki til náms. „Einnig
viljum við eyða fordómum því þótt
þeir hafi vissulega minnkað eru þeir
enn til staðar,“ segir hann og bætir
við að fordómar í garð geðsjúkdóma
geti komið fram hjá almenningi, fag-
fólki og jafnvel sjúklingnum sjálfum
sem þá geti hindrað meðferð.
„Stundum er líka hætta á að
meðferðir geðsjúkra hverfi í skugga
glæsilegra hátæknimeðferða og að
mínu mati vantar skýrari línur um
þjónustu og meðferð þegar kemur
að geðsjúkdómum. Sjúklingar og að-
standendur þurfa oft að berjast fyr-
ir bestu mögulegri meðferð á með-
an til dæmis hjartasjúklingar ganga
beint inn í fyrir fram ákveðið ferli.“
Ólafur segir að samkvæmt Al-
þjóðaheilbrigðisstofnuninni séu al-
gengustu geðsjúkdómarnir, líkt og
þunglyndi og kvíði, dýrustu sjúkdóm-
ar sem mannkynið berst við. „Ef við
hugsum þetta út frá kreppu og pen-
ingum er það staðreynd að kostnaður
við meðferð við þessum sjúkdómum
er aðeins brot á við kostnaðinn við
endurhæfingu og vinnutap svo for-
varnir í málefnum geðsjúkdóma eru
ákaflega ábótasöm aðferð sem sparar
mikla fjármuni til lengri tíma litið.“
Hægt er að lesa meira um Þú get-
ur! og tónleikana á heimasíðunni
stress.is. indiana@dv.is
Þunglyndi og kvíði
dýrustu sjúkdómarnir
Vilja eyða fordómum ragnheiður Guðfinna
Guðnadóttir og Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir
hjá Forvarna- og fræðslusjóðnum Þú getur!
halda styrktartónleika fyrir fólk sem hefur átt við
geðræn vandamál að stríða. MYND Heiða HelGaDÓttiR
Sími: 421 5452
www.icebike.is
NICOLAI
Véla- og hjólastillingar
Tímareimar - Viðgerðir
BIFREIÐASTILLINGAR
Faxafeni 12 Sími 588-2455