Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2009, Blaðsíða 6
Sandkorn
n Hótel Barbró var lengi starf-
rækt við aðalgötuna á Akranesi
sem hótel og veitingastaður. Eftir
að staðurinn lognaðist út af fyrir
þremur árum hefur hann hins veg-
ar staðið auður að mestu. Þar til nú
að Skaga-
menn horfa
fram á að
bætist í fyr-
irtækjaflóru
bæjarins því
lappað hefur
verið upp
á húsið og
þar tekur til
starfa nýr veitinga- og skemmti-
staður. Þeim tímamótum fylgja
bæði böll og jólahlaðborð og hafa
André Bachmann og hljómsveitin
Hvar er Mjallhvít? verið ráðin til að
halda uppi fjörinu fyrir gesti. André
lætur ekki staðar numið því hann
skipuleggur einnig árlega jóla-
skemmtun fyrir fatlaða.
n Stjórnmálafræðingurinn og
kynferðisafbrotamaðurinn Bjarki
Már Magnússon virðist ekki eiga
sjö dagana sæla í skemmtanalífi
Reykjavíkurborgar. DV sagði frá því
fyrir stuttu að
honum hafi
verið meinað-
ur aðgangur
að Ölstofunni.
Um síðustu
helgi var hann
síðan beðinn
um að yfirgefa
skemmtistað-
inn Barböru en þangað sækja sam-
kynhneigðir gjarnan. Bjarki Már
var nýverið dæmdur í 8 ára fangelsi
fyrir ítrekaðar árásir og fimmtán
kynferðisbrot gegn fyrrverandi
sambýliskonu sinni. Hann áfrýjaði
dómi héraðsdóms og gengur því
laus þar til Hæstiréttur dæmir í
máli hans.
n Partípinninn Andrés Pétur
Rúnarsson var á miðvikudaginn
dæmdur í átta mánaða skilorðs-
bundið fangelsi í Héraðsdómi
Reykjavíkur fyrir skattsvik. Auk
þess var honum gert að greiða
tæpar tíu
milljónir í
sekt til ríkis-
sjóðs. Athygli
vekur að ef
Andrés greiðir
ekki sektina
þarf hann að
sitja 75 daga
í fangelsi. Ef
hann velur fangelsisvistina er ljóst
að launin hans verða nokkuð ríf-
leg eða 128 þúsund krónur á dag.
Það er svipað og atvinnulausir fá
á mánuði þegar þeir hafa borgað
gjöld af bótunum. Andrés Pétur er
þekktur fyrir að vera kosningasmali
fyrir Guðlaug Þór Þórðarson og er
auk þess góður vinur stjörnulög-
mannsins Sveins Andra Sveins-
sonar sem var að sjálfsögðu verj-
andi Andrésar Péturs í þessu máli.
6 föstudagur 16. október 2009 fréttir
„Ég lít á þetta sem vissan sigur. Ég er
að vonum rosalega ánægð með að við
höfum getað fengið réttarhöld þetta
snemma og ekki þurft að bíða fram
á næsta sumar eins og útlit var fyrir í
byrjun,“ segir Borghildur Guðmunds-
dóttir.
Borghildur átti að mæta fyrir rétt
á fimmtudag vegna kröfu barnsföður
hennar, Richards Colbys Busching,
um bráðabirgðaforræði en fallið var
frá þeirri kröfu. Málið verður tekið fyr-
ir 8. janúar á næsta ári og þá verður
úrskurðað hvort forræði fellur í hlut
Borghildar eða Colbys.
Lífið heldur sinni ró
Borghildur á synina Brian, sem er níu
ára, og Andy, fjögurra ára, með Colby.
Hún fór til Bandaríkjanna um miðjan
ágúst með syni sína tvo til að berjast
um forræði yfir þeim fyrir bandarísk-
um dómstólum. Hæstiréttur komst að
þessari niðurstöðu með vísan í Haag-
samninginn um afhendingu brott-
numinna barna.
Borghildur er himinlifandi yfir að
Colby hafi fallið frá kröfu sinni því þá
sé lífið aðeins bærilegra í Kentucky
þar sem hún býr núna.
„Lífið mun ganga sinn vanagang
þar til í janúar hjá okkur. Mesta breyt-
ingin er sú að núna getum við planað
allavega út árið hvernig við ætlum að
nýta tímann. Drengirnir halda sínu
striki í skólanum og því verða engar
stórbreytingar hjá þeim strax sem er
auðvitað gott.“
Mjög bjartsýn
Colby fékk að vera með strákana í
stuttan tíma eftir að hann féll frá kröf-
unni en ekki er ljóst hvort hann verji
meiri tíma með þeim áður en réttar-
höldin fara fram.
„Það hafa ekki verið planaðar nein-
ar heimsóknir frá honum en ég vona
allavega að hann geti heimsótt strák-
ana eitthvað fyrir jólin. Þessi uppá-
stunga um að sleppa bráðabirgða-
kröfunni kom upp í málamiðluninni
milli lögfræðinga okkar og var ég því
rosalega ánægð þegar ég fékk símtal-
ið um að faðir drengjanna hefði sam-
þykkt að falla frá kröfunni. Ég er mjög
bjartsýn á framhaldið.“
Óvissan verst
Söfnun fór í gang þegar fjallað var um
mál Borghildar á Íslandi fyrr á árinu.
Í gegnum hana fékk Bogga fé til að
borga lögfræðikostnað og uppihald
en peningurinn kláraðist fljótt. Nú
hefur Bogga það hins vegar gott og er
afar þakklát öllu góða fólkinu í kring-
um hana.
„Okkur drengjna langar auðvit-
að ennþá heim en það er miklu auð-
veldara að bíða núna þar sem við vit-
um hvenær málið verður útkljáð. Það
er alltaf óvissan sem er verst. Söfn-
unin gekk ágætlega og ég hef ekki
alltof miklar áhyggjur í augnablik-
inu. En maður veit aldrei. Þetta auð-
vitað kostar gríðarlega peninga og ég
er rosalega þakklát öllum sem leggja
okkur lið. Það eru engin orð nógu stór
til að geta sagt hvað ég er þakklát öll-
um fyrir aðstoðina sem ég hef fengið
og er enn að fá. Það hefur verið hreint
ótrúlegt að sjá og finna fyrir því hvað
fólk leggst á eitt og leggur manni lið á
svona erfiðum tímum.“
Barnsfaðir Borghildar Guðmundsdóttur féll frá kröfu sinni um bráðabirgðaforræði yfir
sonum þeirra tveimur. Réttað verður í forræðisdeilu Borghildar í janúar á næsta ári og
er hún bjartsýn. Hún segir sig og strákana samt sem áður ennþá þjökuð af heimþrá.
FYRSTI SIGUR
BORGHILDAR
„Það er alltaf óvissan
sem er verst.“
LiLja Katrín GunnarsdÓttir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
Með heimþrá í Kentucky
Bogga og strákarnir hafa
það gott í augnablikinu en
vilja helst af öllu koma aftur
heim til Íslands.
Lán til íbúðakaupa
Lán til endurbóta og viðbygginga
Aukalán vegna sérþarfa (skert starfsorka)
Úrræði í greiðsluvanda