Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2009, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2009, Blaðsíða 17
fréttir 16. október 2009 föstudagur 17 sína yfir endurreisnaráætlun Íslands. Með því að stinga upp á að afþakka aðstoð AGS er Sjálfstæðisflokkurinn að búast til að bjóða umheiminum byrginn. Ætli það sé forleikurinn að því að reyna síðan að komast und- an erlendri rannsókn á tildrögum hrunsins?“ spyr Þorvaldur. „Land, sem þiggur efnahagsað- stoð erlendis frá, ætti einnig að réttu lagi að þiggja lögreglurannsóknarað- stoð. Í þessu ljósi þarf að skoða furðu- legt áhugaleysi sjálfstæðismanna á samstarfi við AGS. Í öðrum löndum eru borgaraflokkar eins og Sjálfstæð- isflokkurinn yfirleitt hlynntir nánu samstarfi við alþjóðastofnanir, þegar á þarf að halda, í samræmi við um- ferðarreglur alþjóðlegs efnahagslífs, en róttækir vinstri flokkar hafa hug- myndafræðilegar efasemdir um slíkt samstarf eða jafnvel beinlínis andúð á því, hvað sem á dynur, samanber nýhætta heilbrigðisráðherrann, sem hélt Alþingi í gíslingu í allt sumar vegna Icesave-málsins og þótti síðan tímabært að minna lesendur Morg- unblaðsins á, að hann væri hallur undir anarkisma. Gamalgróin vitl- eysa á vettvangi stjórnmálanna hér heima er ekki lengur einkamál Ís- lendinga, því að hrygg og reið augu umheimsins mæna á Ísland,“ segir Þorvaldur. Popúlismi og sjónhverfingar Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði, tekur undir með Þorvaldi og sakar sjálfstæðismenn um sjón- hverfingar og popúlisma. „Það er verið að tala um að í staðinn fyrir að skattleggja lífeyrisgreiðlurnar þegar þær eru borgaðar út séu þær skatt- lagðar þegar þær koma inn. Þá er verið að taka peninga sem ella hefðu farið í lífeyrissjóðina og settir til rík- issjóðs. Menn voru hins vegar búnir að gera stöðugleikasamning og ráð- stafa þessum peningum. Ef lífeyris- sjóðirnir hafa 35 milljörðum minna minnkar hlutur þeirra í stöðugleika- sáttmálanum og þá þarf að slátra því eða finna nýja fjármögnun. Þannig að það verða ekki til neinir peningar við þetta, Þetta er bara sjónhverfing,“ segir Þórólfur. Þórólfur gagnrýnir tillögur um að umhverfi atvinnurekstrar verði bætt og hindrunum fyrir erlenda ný- fjárfestingu rutt úr vegi. Þannig geti skapast allt að fimm þúsund störf á næsta ári. „Ef það á að bæta um- hverfi útflutnings eitthvað meira en að lækka gengi krónunnar um 50 prósent veit ég ekki í hverju það á að felast. Ég sé ekki að það sé umhverf- ið sem erlendir aðilar eru að óttast nema að þeir eru uggandi út af ís- lensku krónunni.“ Hann telur ennfremur óraunhæft að hækka enga skatta. „Þetta er það stór vandi sem við erum að glíma við. Það tekur mjög langan tíma að skera niður útgjöld, jafnvel þó dregið sé úr útgjöldum í framtíðinni, þá get- ur það kostað heilmikið. Það þarf að borga fólki biðlaun ef það á að fækka ríkisstofnunum. Það er ekki stoppað í svona rosalegt gat með því að skera niður. Ég tala nú ekki um að krepp- an skapar útgjaldatilefni í kringum atvinnuleysisbætur og ýmis félagsleg úrræði sem er óhjákvæmilegt að láta hafa forgang.“ Eina tryggingin er AGS Spurður um tillögur sjálfstæðis- manna um að lán Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins verði sett í bið, svarar Þór- ólfur: „Þetta er bara popúlismi. Við þurfum virkilega á því að halda að það sé gæðastimpill á því sem við erum að gera. Eina stofnunin sem getur gefið okkur þennan gæðasti- mipil sem erlendar lánastofnanir og aðrir sem við þurfum að eiga í sam- skiptum, taka trúanlega er AGS. Það þarf að endurfjármagna fjölda lána hjá Landsvirkjun, Orkuveitunni, bönkunum og í mörg önnur fyrirtæki þurfa á lánafyrirgreiðslu að halda. Erlendir aðilar þurfa að fá tryggingu fyrir því að það sem við erum að gera stefni okkur ekki í annað hrun. Þeir þurfa tryggingu fyrir því að hér sé ekki fullkomlega galið fólk sem geng- ur um og kveikir í hvert öðru. Eina tryggingin sem við getum fengið fyrir því er hjá AGS. Það er verið að segja okkur þetta út um allt og það er mjög kostnaðarsamt að ætla að fara að segja bless við AGS.“ VERÐUM AÐ VINNA MEÐ AGS 1. 5 prósenta sparnaður í mennta-, velferðar- og heilbrigðiskerfi en 10 prósenta sparnaður á öðrum sviðum. Forgangsraðað þannig að grundvallarþjónusta skerðist sem minnst. Sparar 35-40 millj- arða króna. Ekki skorið niður til framkvæmda. 2. Skattleggja lífeyrisgreiðslur þegar þær koma inn í sjóðina. Skilar 35 milljörðum í ríkissjóð. 3. Umhverfi atvinnurekstrar verði bætt og hindrunum fyrir erlenda nýfjárfestingu rutt úr vegi. Áætlað er að allt að 5.000 störf geti skap- ast á næsta ári og 15 milljarðar komi inn í ríkissjóð. 4. Endurskoða samstarf við AGS í ljósi breyttra aðstæðna. 5. Gefa út skulda- bréf í evrum með álagi á þýska ríkisbréfavexti og bjóða erlendum krónueigendum. 6. Gjaldeyrishöft verði afnumin og krónan sett á flot 7. Skapa skilyrði til stýrivaxtalækk- unar. 8. Lán Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins verði sett í bið en lánum Norðurlandanna breytt í lánalínur. 9. Mynda sérfræð- ingahóp til að fjalla um leiðréttingu á skuldsetningu heimilanna í land- inu. Hópurinn verði skipaður fulltrúum allra stjórnmálaflokka og aðila vinnumarkaðarins. 10. Stimpilgjöld verði afnumin til að bæta kjör við endurfjármögnun lána. 11. Taka sérstaklega á vanda verst stöddu heimil- anna. TIllöGUR SjálfSTæÐISflokkSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.