Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2009, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2009, Síða 20
20 föstudagur 16. október 2009 fréttir „Ég er reið. Ég vil réttlæti í þessu þjóðfélagi. Það er það eina sem ég vil. Hvort sem það er fíkill eða mamma mín sem hefur aldrei reykt eða drukkið. Ég vil bara réttlæti. Ekkert annað,“ segir Jóhanna Jóns- dóttir. Dóttir hennar, Lísa Arnar- dóttir, hafði barist við fíkniefnadjöf- ulinn síðan hún var unglingur og hann varð henni loks að bana 15. september síðastliðinn. Lísa var að- eins 21 árs. Jóhanna stendur í þeirri trú að eitthvað grunsamlegt liggi á bak við dauðsfall Lísu. Þótt hún geti ekki fullyrt að um morð hafi verið að ræða telur hún dauða dóttur sinnar vera sakamál. Lenti í slæmum félagsskap Þegar Lísa var um það bil fjórtán ára var hún send á Stuðla vegna hegð- unarvandamála í skóla. Að sögn móður hennar var það þá sem Lísa byrjaði í fíkniefnaneyslu. „Þar kynntist hún náttúrlega öll- um pakkanum og komst í slæman félagsskap. Þá byrjaði boltinn að rúlla og hann hélt áfram að rúlla. Hún varð edrú 8. janúar árið 2006 og náði að halda sér edrú í tvö og hálft ár. Hún féll í ágúst í fyrra og var þá búin að fara í meðferð á Vogi, í Hlaðgerðarkot og svo aftur á Vog. Þetta er stelpa sem bjargar sér allt- af sjálf. Hún var með skap á við tvö hundruð manns. Það er í ættinni,“ segir Jóhanna. Lá í sautján tíma Lísa var tiltölulega nýbúin að vera inni á Vogi þegar hún lést. Hún neytti Contalgins í íbúð ásamt öðr- um 9. september en hafði fall- ið nokkrum dögum fyrr. Hún kom sjálf með efnið enda átti hún nægan pening að sögn móður hennar. Eftir miðnætti aðfaranótt 10. september fékk hún sér of stóran skammt en fé- lagar hennar hringdu ekki á sjúkra- bíl fyrr en að verða sex um kvöld næsta dag. Þá var hún búin að liggja í tæpa átján tíma á grúfu. „Lögreglan sagði við mig að þeg- ar fíkill er að taka fyrsta fixið sitt eft- ir Vog er það of sterkt. En hún var löngu fallin. Hún var látin liggja í sautján tíma áður en var hringt á sjúkrabíl. Hún var náttúrlega dáin þegar sjúkrabíllinn kom. Nýrun og allt voru hætt að starfa, hún var búin að liggja það lengi. Hún var bara með svo sterkt hjarta. Fólkið sem var með henni sagði að hún hefði legið í rúmi allan þennan tíma en ég er búin að fara á þennan stað. Hún lá ekki í neinu rúmi.“ Fékk taugaáfall Jóhanna segir þær Lísu hafa verið mjög nánar og þær hafi alltaf haldið sambandi þegar Lísa var í neyslu. „Hún lét mig alltaf vita af sér. Hún laug aldrei að mér. Hún sagði mér alltaf allt. Það var hrikaleg tilfinning að vita af henni í neyslu. Maður spyr sig bara hvenær kemur þetta símtal eins og símtalið sem ég fékk? Mað- ur getur ekki undirbúið sig fyrir sím- talið. Maður er bara alltaf á nálum,“ segir Jóhanna. Daginn sem hún fékk símtalið sem hún hafði kviðið svo fyrir að fá fann hún að það var ekki allt með felldu. „Ég og sambýlismaðurinn minn vorum að fara út á land og ég fann á mér áður en ég lagði af stað að ég ætti ekki að fara. Ég hélt að við myndum fara að rífast því við erum bæði meyjur og skaphundar. Við stoppuðum í Borgarnesi og ég fór út úr bílnum og ætlaði að taka rút- una heim. Ég ætlaði ekki norður en um ellefuleytið um kvöldið kom- um við á Kópasker. Tuttugu mín- útum seinna hringdi frændi minn og sagði að hún væri komin á gjör- gæslu. Ég hringdi upp á gjörgæslu- deild og spurði hvort þetta væri al- varlegt. Þá fékk ég bara taugaáfall.“ Datt í það eftir jarðarförina Jóhanna tók flug suður um hádegis- bilið næsta dag eftir svefnlausa nótt. Það hvarflaði ekki að henni að dótt- ir hennar ætti nokkra daga eftir ólif- aða. „Hún hafði fengið hjartastopp áður og var útskrifuð daginn eftir. Ég hélt að þetta væri svipað og hún myndi ná sér. Henni var haldið sof- andi og hún kæld niður og ég hélt að henni myndi batna. Þangað til læknirinn sagði að þetta væri búið. Það eina sem var eftir í heilanum hennar var hjartastöðin, öndun- arstöðin og heyrnin. Hitt var farið, búið. Heilaskemmd og köfnun.“ Bæði Jóhanna og faðir Lísu hafa barist við Bakkus um árabil. Dauðs- fall Lísu dró Jóhönnu aftur í fíknina. „Hún Lísa mín kemur aldrei til baka. Maður höndlar ekkert svona. Ég datt í það þegar hún dó en ég er edrú núna.“ „Þetta er bara sakamál“ Jóhanna og maður hennar eru með skjöl og myndir sem þau telja benda til þess að eitthvað grunsamlegt sé á bak við andlát Lísu. Þau hafa farið með þessi gögn til rannsóknardeild- ar lögreglunnar sem mun ekki rann- saka málið frekar. „Ég er með fleiri, fleiri blaðsíð- ur af smáskilaboðum úr farsíman- um hennar. Pabbi hennar fór með plögg til lögreglunnar af Facebook- síðunni hennar þar sem maður er að bjóða henni öll heimsins lyf. Ég er líka með myndir af athöfn sem er rosalega óhugnanleg. Þar er mað- ur sem tekur myndirnar og er með á myndunum. Það er sami maður og tilkynnir frænda mínum að hún sé á gjörgæslu. Sá maður og mað- urinn sem bauð henni lyfin voru heima hjá henni kvöldið áður. Þetta er rosalega óhuganlegt mál. Þetta er bara sakamál. Það er ekki eðlilegt að manneskja sé látin liggja í sautján klukkutíma á grúfu á gólfi og ekkert Dóttir Jóhönnu Jónsdóttur, Lísa Arnardóttir, lést 15. september síðastlið- inn. Hún hafði bar- ist við eiturlyfjafíkn frá því hún var fjór- tán ára. Jóhanna er handviss um að dauðsfall dóttur hennar sé sakamál og er ósátt við að lögreglan rannsaki það ekki einungis vegna þess að Lísa var fíkill. Jóhanna er reið og vill rétt- læti. LiLJA KAtrín GunnArsDóttir blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is Vill rannsókn á dauða dóttur sinnar Alltaf á nálum Jóhanna segir það hrikalegt að horfa upp á barnið sitt í neyslu. Hún beið sífellt eftir símtalinu sem hún fékk síðan 10. september síðastliðinn. MynD siGtryGGur Ari JóhAnnsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.