Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2009, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2009, Side 28
um helgina Vinjettuhátíð í hafnarfirði Vinj- ettuhátíð verður haldin í salnum Tónkvísl við hlið gamla Lækjarskóla í Hafnarfirði á laugardaginn klukkan 14 til 16. Ármann Reynisson les upp úr verkum sínum ásamt Ingibjörgu Einarsdóttur hjá skólaskrif- stofu Hafnarfjarðar, séra Gunnþóri Ingasyni og Önnu Borg Harðar- dóttur leikskólastjóra auk upplesturs frá fjórum verðlaunahöfum úr „Stóru upplestrarkeppninni“. Einnig verður tónlistaratriði á hátíðinni. hafdís á Café rósenberg Tónlistarkonan smágerða Hafdís Huld heldur útgáfutónleika á Café Rósenberg á sunnudaginn í til- efni af útgáfu nýjustu plötu sinnar, Synchronised Swimmers, sem kom út í vikunni. Miðasala er á midi.is og kostar miðinn 2.000 krónur. Haf- dís spilar reyndar einnig í Skífunni á Laugaveginum í dag, föstudag, klukkan 16 og á laugardaginn verður hún á Græna Hattinum á Akur- eyri. Kónguló, fyrsta smáskífan af Synchronised Swimmers, fékk frá- bærar viðtökur þegar lagið kom út í sumar og vermdi margan vinsælda- listann hér á landi. sjón skrifar um hrunið Sjón vinn- ur nú að leikritinu Ufsagrýlur í samvinnu við Rúnar Guðbrands- son leik- stjóra og leikhópinn Lab Loka. Leikritið fékk styrk upp á 6,5 milljónir króna frá menntamálaráðherra fyrr á árinu og hefur nú verið gert opinbert að það fjallar um hrunið. Þetta eru ekki einu tíðindin af Sjón því leikrit byggt á skáldsögu hans Skugga-Baldri var frumsýnt í Bas- el í Sviss í fyrradag. Þá má geta þess að á dögunum skrifaði Sjón undir samning við portúgalskt forlag um útgáfu á Skugga-Baldri sem færði höfundinum Bók- menntaverðlaun Norðurlanda- ráðs árið 2005. síðustu forVöð Nú fer hver að verða síðastur að sjá sýninguna Í fréttum var þetta helst ... í Gerðubergi þar sem gefur að líta skopteikningar Halldórs Baldurs- sonar. Myndir listamannsins hafa látið ófáa brosa og hlæja síðustu árin þar sem þær hafa birst í dagblöðum. Þær hafa prýtt síður Morgunblaðs- ins hátt í ár en áður teiknaði Halldór sínar pólitísku og þjóðfélagslegu þenkjandi myndir fyrir 24 stundir og þar áður Viðskiptablaðið. Á sýning- unni eru 64 myndir og eru þær að- allega teiknaðar á árunum 2007 og 2008. Halldór verður með leiðsögn fyrir sýningargesti á laugardaginn klukkan 15. Ókeypis aðgangur. Frumsýning á verki eftir Max Frisch á Stóra sviði Þjóðleikhússins: Brennuvargar á Hverfisgötu 28 föstudagur 16. október 2009 fókus Þjóðleikhúsið frumsýnir Brennu- vargana eftir Max Frisch á Stóra sviðinu í kvöld, föstudag. Brennu- vargarnir er eitt af frægustu leik- ritum 20. aldar, „bráðfyndin og óvægin þjóðfélagsádeila“, segir í tilkynningu. Með sínu einstaka skopskyni rannsaki höfundur- inn hugleysi manneskjunnar og græðgi „ ...og tilhneigingu okkar til að trúa því fyrst og fremst sem hentar okkur hverju sinni og af- neita því sem kemur okkur illa. Þessi beitta ádeila er einkar opin- berandi í kjölfar hremminga þar sem reynt hefur á mannlegt eðli. Enda hefur verkið víða verið sýnt í eftirmála hryðjuverkaógnar – og nú í miðri efnahagskreppu. Ein- hver orðaði það svo að leikritið væri nánast skrifað um hrun ís- lenska bankakerfisins.“ Í verkinu segir frá brennuvörg- um sem ganga lausir og allir góð- ir borgarar eru stranglega varaðir við því að hýsa ókunnuga. Gottlieb Biederman er sterkefnaður kaup- sýslumaður og hann liggur ekki á skoðunum sínum. Engu að síður tekur Biederman inn á heimili sitt ókunnugan mann og fyrr en varir er sá búinn að koma sér fyrir á háa- loftinu. Og stuttu síðar fylgir annar maður í kjölfarið. Vísbendingarnar um að gestirnir hafi óhreint mjöl í pokahorninu hrannast upp og kast- ar tólfunum þegar búið er að stafla upp fjölda bensíntunna á háaloft- inu. En herra Biederman neitar að horfast í augu við raunveruleikann. Reyndar segir annar brennuvarg- anna að sannleikurinn sé besta að- ferðin við að villa á sér heimildir. Leikstjóri sýningarinnar er Krist- ín Jóhannesdóttir og með helstu hlutverk fara Eggert Þorleifsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Björn Thors og Magnús Jónsson. Garðar Thór Cortes Syngur enn víða um heim. Þess á milli hlustar hann á Einar Bárðarson á Kananum. MYND Heiða HelGaDóTTir Er ekki einfaldur Nokkuð minna hefur farið fyrir Garðari Thór Cortes síðustu mánuði en árin sem hann var í samstarfi með einari Bárðarsyni. Hann er hins vegar með mörg járn í eldinum og syngur meðal annars aðalhlutverkið í gamanóperunni Ástardrykkurinn sem frumsýnd verður í Íslensku óp- erunni um næstu helgi. Garðar sagði blaðamanni DV frá undirbúningnum og nýlegum tónleikum í Hyde Park þar sem hann söng fyrir tugþúsundir manna og hitti goðsögnina Barry Manilow. Brennuvargarnir Eitt af frægustu leikritum 20. aldar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.