Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2009, Síða 38
Umsjón: Kjartan GUnnar Kjartansson, kgk@dv.is
Ólafur F. Mixa
yfirlæknir
Ólafur fæddist í Graz í Austurríki.
Hann lauk stúdentsprófi frá MR
1959, stundaði nám í læknisfræði
við háskólann í München 1959-
62 og lauk embættisprófi í læknis-
fræði frá HÍ 1967, stundaði fram-
haldsnám í heimilislækningum
við Calgary General Hospital í Al-
berta í Kanada og lauk þaðan sér-
fræðiprófi 1971. Á námstímanum
var Ólafur héraðslæknir í Nes-
héraði 1966, námskandidat við
Landspítalann, St. Jósepsspítala
í Hafnarfirði og Slysavarðstofuna
í Reykjavík og aðstoðarlæknir við
Kleppsspítalann. Hann sótti fjölda
námskeiða í heimilislækningum,
einkum í Kanada og kynnti sér
rekstur og hönnun heilsugæslu-
stöðva í Kanada, Bandaríkjunum,
Noregi og Hollandi.
Ólafur var heimilislæknir við
göngudeild heilbrigðisstétta við
háskólann í Calgary 1971-72 og við
heimilislækningadeild Foothills
General Hospital í Calgary, heilsu-
gæslulæknir indíána í Morleyþorpi
í Alberta með reglubundnum
heimsóknum og hefur verið heim-
ilislæknir í Reykjavík frá 1972, var
yfirlæknir heilsugæslunnar í Álfta-
mýri 1986-94 og heilsugæslunn-
ar í Lágmúla 1997-99 og yfirlækn-
ir Skjóls frá stofnun 1987. Hann
var skipslæknir hjá Royal Caribb-
ean skipafélaginu 1999, læknir við
Heilsustofnun NLFÍ 1999-2000,
hefur verið trúnaðarlæknir Leikfé-
lags Reykjavíkur, þýska sendiráðs-
ins og kanadíska konsúlatsins.
Ólafur vann að undirbúningi og
skipulagningu starfs á heilsugæslu-
stöð í Morleyþorpi í Alberta, veitti
ráðgjöf við skipulagningu og hönn-
un heilsugæslustöðvar á Akureyri
1971 og var ráðunautur Sjúkra-
samlags Reykjavíkur við undirbún-
ing og skipulag heilsugæslustöðvar
í Breiðholti 1972. Hann var lektor í
heimilislækningum við háskólann
í Calgary 1971-72, stundakennari
við HÍ og aðjúnkt í heimilislækn-
ingum þar 1998-99.
Ólafur var formaður Herranæt-
ur í MR 1958-59, sat í ritstjórn Leik-
húsmála 1964 og 1965 og lék nokk-
ur hlutverk í Þjóðleikhúsinu, hjá
Leikfélagi Hafnarfjarðar, Grímu og
í Herranótt. Hann sat í aðalstjórn
Rauða kross Íslands frá 1973, var
gjaldkeri og formaður fjárhags-
nefndar Rauða krossins 1975-77
og formaður Rauða kross Íslands
1977-82, sat í nefndum á vegum
læknadeildar HÍ og Læknafélags
Reykjavíkur um kennslu og fram-
haldsnám í heimilislækningum og
um hlutverk heilsugæslustöðva í
læknakennslu, sat í samninganefnd
Félags heimilislækna frá 1974, var
einn af stofnendum Félags íslenskra
heimilislækna 1978, varaformaður
þess 1978-82, formaður 1983-87,
áheyrnarfulltrúi félagsins í stjórn
SIMG, Alþjóðafélags heimilislækna
í Evrópu 1985-89, sat í gæðaþróun-
arnefnd félagsins og fulltrúi þess í
vinnuhópi Evrópudeildar Alþjóða-
sambands heimilislæknafélaga
um gæðaþróun 1993-99, formaður
skólanefndar Nýja hjúkrunarskól-
ans 1982-83, stofnandi og stjórnar-
maður í Hugbúnaðarfélagi Íslands
frá 1990 og ráðunautur hjá Gagna-
landi ehf. 1995-98.
Ólafur hefur skrifað greinar um
heimilislækningar og heilsugæslu-
stöðvar í íslensk og erlend tímarit
og var fyrsti íslenski ritstjóri tíma-
ritsins Scandinavian Journal of
Primary Health Care, 1984-87.
Fjölskylda
Börn Ólafs frá fyrra hjónabandi
eru Már Wolfgang, f. 6.2. 1965, fjár-
málafræðingur í Reykjavík, kvænt-
ur Kristínu Loftsdóttur, prófess-
or í mannfræði við HÍ og eiga þau
þrjú börn; Halla Guðrún, f. 27.7.
1968, hönnuður í Vínarborg. Móð-
ir þeirra er Ásthildur Gísladóttir, f.
23.7. 1943, d. 14.9. 2008.
Kona Ólafs er Kristín Þor-
steinsdóttir, f. 12.8. 1943, grunn-
skólakennari, dóttir Þorsteins Er-
lingssonar, vélvirkjameistara í
Reykjavík, og Júlíönu Sigurjóns-
dóttur húsmóður.
Dóttir Ólafs og Kristínar er Katr-
ín Júlía, f. 6.1. 1980, BA í heimspeki
og læknaritari í Reykjavík og á hún
eina dóttur..
Foreldrar Ólafs eru Franz Mixa,
f. 3.6. 1902, d. 16.1. 1994, prófessor
og dr. phil, tónskáld og tónlistar-
kennari í Reykjavík og síðar í Graz
í Austurríki, og Katrín Ólafsdóttir, f.
3.3. 1916, BA í íslensku, kennari og
rithöfundur..
Ætt
Móðursystkini Ólafs: Björn kons-
ertmeistari, Pétur, hagfræðing-
ur og bókaútgefandi, og Elísabet,
móðir Ólafs B. Thors.
Katrín er dóttir Ólafs, ritstjóra
í Reykjavík, bróður Sveins Björns-
sonar forseta. Faðir Ólafs var
Björn, ráðherra og ritstjóri Ísa-
fóldar í Reykjavík Jónsson, sem
var þremenningur við Ara Arn-
alds alþm., afa Ragnars Arnalds,
formann Heimsýnar. Móðir Ólafs
ritstjóra var Elísabet Guðný, dóttir
Sveins, prófasts á Staðastað Níels-
sonar. Hálfsystir Elísabetar, sam-
feðra, var Sigríður, móðir Har-
alds Níelssonar prófessors, föður
Jónasar Haralz bankastjóra og afa
Leifs Sveinssonar lögfræðings.
Bróðir Haralds var Hallgrímur á
Grímsstöðum, afi Sigurðar Helga-
sonar, fyrrv. stjórnarformanns
Flugleiða og Hallgríms Helgason-
ar tónskálds, en systir Haralds Ní-
elssonar var Sesselja, móðir Sveins
Valfells forstjóra.
Móðir Katrínar var Borghildur,
dóttir Péturs Thorsteinssonar, út-
gerðarmanns á Bíldudal, en Borg-
hildur var systir Katrínar, móður
Péturs J. Thorsteinssonar sendi-
herra og Eggerts Briem rafmagns-
veitustjóra.
70 ára á föstudag 60 ára á föstudag
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir
forseti Alþingis
Ásta fæddist í Reykjavik og ólst þar
upp og á Reykjum í Mosfellssveit.
Hún lauk stúdentsprófi frá MR 1969,
stundaði þýskunám í Þýskalandi
1967, nám í félagsvísindum og ensku
við HÍ 1969-73, leiðsögumannanám
1979 og stjórnunarnám við Endur-
menntunarstofnun HÍ og Iðntækni-
stofnun 1987, 1990 og 1993-94.
Ásta var flugfreyja hjá Loftleið-
um 1969-72, plötusnúður í Glaum-
bæ, Tónabæ og víðar 1969-74, kenn-
ari við Gagnfræðaskólann á Hellu
1974-76 og við Fiskvinnsluskólann
í Hafnarfirði 1976-79, starfsmaður
barnaársnefndar á Barnaári Sþ 1979,
starfsmaður Ferðamiðstöðvarinnar
Veraldar 1989-90, dagskrárgerðar-
maður hjá RÚV, útvarpi og sjónvarpi,
1971-90 og var þá umsjónarmaður
fjölmargra fastra útvarps- og sjón-
varpsþátta og umsjónarmaður þátt-
arins Reykjavík síðdegis á Bylgjunni
1983, fararstjóri Íslendinga erlendis
fyrir ýmsar ferðaskrifstofur
1980-94 og deildarstjóri félags-
mála- og upplýsingadeildar Trygg-
ingastofnunar ríkisins 1990-95.
Ásta var alþm. Reykjavíkurkjör-
dæmis 1995-2003 og er alþm. Reykja-
víkurkjördæmis suður frá 2003. Hún
var alþm. fyrir Þjóðvaka 1995-99, sat
í þingflokki jafnarðamanna og síð-
ar Samfylkingarinnar og hefur verið
alþm. fyrir Samfylkinguna frá 1999.
Hún var fyrsti varaforseti Alþingis
2007-2009, félags- og tryggingamála-
ráðherra 1.2. 2009-10.5. 2009 og er
nú forseti Alþingis frá 11.5. 2009.
Ásta sat í stjórn Landssambands
framsóknarkvenna 1983-89, í stjórn
Framsóknarfélags Reykjavíkur 1983-
94, í miðstjórn Framsóknarflokksins
1984-95 og framkvæmdastjórn
(landsstjórn) flokksins 1986-95, í
stjórn Friðarhreyfingar kvenna 1985-
88, í útvarpsráði 1987-95, í starfs-
hópi um endurskoðun íslenskrar
heilbrigðislöggjafar 1988, í nefnd
um eflingu heimilisiðnaðar 1991-
93, í undirbúningsnefnd fyrir al-
þjóðlegu kvennaráðstefnuna „Glo-
bal Forum for Women“ í Dublin
1992, í fulltrúaráði Sólheima 1993-
99, í stjórn Heilsugæslustöðvar Vest-
urbæjar, Miðbæjar og Hlíðahverfis
1994-2003, í stjórn Regnbogans, fé-
lags um Reykjavíkurlista, 1994-96, í
nefnd um endurskoðun almanna-
tryggingalaga 1995, í nefnd um for-
gangsröðun í heilbrigðisþjónustu
1995-98, sat í stýrihópi geðræktar-
verkefnis landlæknisembættisins,
Geðjálpar og Landspítala-Háskóla-
sjúkrahúss 2000-2003, í ráðgjafar-
hópi samgönguráðherra um stefnu-
mótun í ferðamálum 2003-2004, í
verkefnisstjórn um heilsufar kvenna
á vegum heilbrigðisráðuneytisins
2001-2007, var formaður verkefnis-
stjórnar Straumhvarfa, átaksverk-
efnis fyrir geðfatlaða, á vegum fé-
lagsmálaráðuneytisins 2007-2009,
var varaformaður nefndar á vegum
heilbrigðisráðherra um greiðsluþátt-
töku almennings í heilbrigðiskerfinu
2007-2009 og átti sæti í framkvæmda-
nefnd hennar, í stjórn Alþýðuflokks-
félags Reykjavíkur frá 1999 og í stjórn
kvennahreyfingar Samfylkingarinn-
ar frá 2007.
Ásta sat í heilbrigðis- og trygg-
inganefnd Alþingis 1995-2003 og
2004-2007, í samgöngunefnd 1995-
99 og 2003-2004, iðnaðarnefnd 1999-
2000 og 2003-2005, félagsmálanefnd
2000-2003 og frá 2007, félags- og
tryggingamálanefnd 2007-2009, um-
hverfisnefnd 2005-2007, kjörbréfa-
nefnd frá 2007, utanríkismálanefnd
2007-2009, í Íslandsdeild Vestnor-
ræna ráðsins 1995-99, Íslandsdeild
ÖSE-þingsins 1999-2003, Íslands-
deild Norðurlandaráðs 2003-2007 og
Íslandsdeild NATO-þingsins 2007-
2009 og hefur verið varaformaður
nefndar þingmannasamtaka NATO
um málefni Miðjarðarhafsríkja og
Miðausturlanda 2008-2009.
Fjölskylda
Ásta Ragnheiður giftist 29.12. 1973
Einari Erni Stefánssyni f. 24.7.1949,
sérfæðingi hjá Íbúðalánasjóði. For-
eldrar hans: Stefán Þórður Guð-
johnsen, f. 29.11.1926, d. 24.9.1969,
lögfræðingur og k.h., Guðrún Gréta
Runólfsdóttir, f. 5.12. 1928, fyrrv.
skrifstofumaður hjá Þjóðhagsstofn-
un.
Börn Ástu Ragnheiðar og Ein-
ars Arnar eru Ragna Björt, f. 11.12.
1972, skrifstofustjóri í Amsterdam
en maður hennar er Erwan Le Roux
og er dóttir þeirra Sóley Le Roux, f.
20.2. 2008; Ingvi Snær, f. 10.3. 1976,
hdl. í Lausanne í Sviss en kona hans
er Hildur Ýr Ottósdóttir og eru börn
þeirra Ásta Rún, f. 25.2. 2002, og Ottó
Snær, f. 16.4. 2006.
Systkini Ástu eru Guðrún f. 22.12.
1950, umhverfisfræðingur hjá Al-
mannavörnum í Reykjavík; Ragn-
ar, f. 9.10. 1956, efnaverkfræðingur í
Reykjavík; Bjarni, f. 9.12. 1960, við-
skiptafræðingur hjá Íslandsbanka.
Foreldrar Ástu Ragnheiðar: Jó-
hannes Bjarnason. f. 18.7. 1920, d.
8.6. 1995, verkfræðingur og k.h.,
Margrét Sigrún Ragnarsdóttir, f.
7.11.1924, húsmóðir í Reykjavík.
Ætt
Jóhannes var sonur Bjarna, alþm.
og ráðherra á Reykjum í Mosfells-
bæ, bróður Þórdísar, móður Gunn-
ars Bjarnasonar ráðunautar. Bjarni
var sonur Ásgeirs, b. í Knarrarnesi
Bjarnasonar, b. þar Benediktssonar.
Móðir Bjarna ráðherra var Ragnheið-
ur, systir Sigríðar, ömmu Hallgríms
Helgasonar tónskálds. Ragnheið-
ur var dóttir Helga, b. á Vogi, bróð-
ur Ingibjargar, langömmu Kristj-
áns Eldjárn forseta. Helgi var sonur
Helga, alþm. á Vogi Helgasonar.
Móðir Jóhannesar var Ásta, systir
Láru, ömmu Láru Margrétar Ragn-
arsdóttur, fyrrv. alþm. Ásta var dótt-
ir Jóns, skipstjóra í Reykjavík Þórð-
arsonar, skipasmiðs í Engey og
vitavarðar í Gróttu Jónssonar. Móðir
Jóns var Guðrún Guðmundsdóttir,
frá Hlíðarhúsum í Reykjavík. Móðir
Ástu var Vigdís, systir Þóru, ömmu
Bergs Jónssonar rafmagnseftirlits-
stjóra.
Vigdís var dóttir Magnúsar, b. í
Miðseli í Reykjavík Vigfússonar, b.
á Grund í Skorradal Gunnarssonar,
bróður Jóns á Eyri, afa Jóns Baldvins-
sonar, alþm. og forseta ASÍ, og afa
Jóns Auðuns alþm., afa Auðar Auð-
uns, fyrrv. ráðherra og borgarstjóra.
Móðir Magnúsar var Vigdís Auðuns-
dóttir, pr. á Stóru-Völlum Jónssonar,
bróður Arnórs í Vatnsfirði, langafa
Hannibals Valdimarssonar ráðherra,
föður Jóns Baldvins, fyrrv. ráðherra
og formanns Alþýðuflokksins.
Margrét er dóttir Ragnars, bryta í
Hressingarskálanum Guðlaugsson-
ar en systir Guðlaugs var Jóhanna,
amma Harðar, fyrrv. forstjóra Eim-
skips og Ásgeirs framkvæmdastjóra
Sigurgestssona. Guðlaugur var sonur
Jóns, b. í Hreiðarskoti á Stokkseyri,
bróður Þorsteins, langafa Berthu,
móður Markúsar Arnar Antonsson-
ar sendiherra. Þorsteinn var einnig
langafi Harðar Ágústssonar listmál-
ara og Þorsteins, föður Víglundar
forstjóra.
Móðir Jóns í Hreiðarskoti var
Steinunn Jónsdóttir. Móðir Stein-
unnar var Halla Gísladóttir. Móðir
Höllu var Sigríður Ólafsdóttir. Sig-
ríður var dóttir Marínar Guðmunds-
dóttur, ættföður Kópsvatnsættar Þor-
steinssonar.
Móðir Margrétar var Guðrún,
systir Vilhjálms, skálds frá Skáholti,
og Sigurðar, föður Moritz, fyrrv. að-
stoðarbankastjóra í Búnaðarbank-
anum.
Guðrún var dóttir Guðmundar, í
Skáholti Guðmundssonar og Sigur-
veigar Einarsdóttur.
Kjartan Gunnar Kjartansson rekur
ættir þjóðþekktra Íslendinga sem hafa verið í
fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma
viðburði liðinna ára og minnist horfinna
merkra Íslendinga. Lesendur geta sent inn
tilkynningar um stórafmæli á netfangið
kgk@dv.is
38 föstudAgur 16. október 2009 ættfræði