Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2009, Síða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2009, Síða 44
KróKódílamaðurinn Joseph „Joe“ Ball gekk undir mörgum nöfnum. Hann var bandarískur raðmorðingi og var stundum kallaður Krókó- dílamaðurinn, Slátrarinn frá Elmendorf og Bláskeggur Suður-Texas. Joe Ball var talinn hafa myrt að minnsta kosti tuttugu konur á fjórða áratug síðustu aldar. Lengi vel var tilvist hans talin uppspuni einn. Hvað sem því líður þá beindust sjónir lögreglunnar að Ball eftir að kvenfólk hvarf af yfirborði jarðar í grennd við híbýli hans í Texas. Lesið um Krókódílamanninn í næsta helgarblaði DV. Myrti og var sáttur við dauðadóM Rétt fyrir jólin 1987 ákvað Ronald Gene Simmons að losa sig við alla sem hann taldi vilja sér illt. Fimm dög- um síðar hafði hann myrt alla nánustu ættingja sína og tvo fyrrverandi starfsfélaga að auki. Að morðunum loknum lét hann hringja á lögreglu og beið rólegur komu hennar. 22. desember 1987 rann á Ron- ald Gene Simmons morðæði sem síðar yrði minnst sem einna verstu fjöldamorða í sögu Ark- ansas í Bandaríkjunum og eins alræmdasta glæps landsins sem tengdist einni fjölskyldu. Þegar bráði af Simmons, fimm dögum síðar, lágu fjórtán nánustu ættingj- ar hans í valnum og tveir fyrrver- andi samstarfsfélagar. Ronald Gene Simmons fæddist 15. júlí, 1940 í Chicago. Árið 1943 lést William, faðir hans, og ári síðar giftist Loretta, móðir hans, að nýju, William D. Griffen. Í september 1957 kastaði Ron- ald frekari menntun fyrir róða og gekk í sjóher Bandaríkjanna. Hann var í Bremerton-sjóherstöðinni í Washington og þar kynntist hann Bersabe Rebekku Ulibarri, sem hann kvæntist í Nýju-Mexíkó í júlí 1960. Á næstu átján árum eignuðust hjónin sjö börn, en árið 1963 hætti Ronald í sjóhernum og tveimur árum síðar gekk hann í flugherinn. Á tuttugu og tveggja ára ferli í her Bandaríkjanna voru honum veittar ýmsar viðurkenningar fyrir fram- göngu sína í hernum. Í nóvember 1979 settist Ronald Gene Simmons í helgan stein, liðþjálfi að tign. Grunur um sifjaspell Í apríl 1981 hófst í Nýju-Mexíkó rannsókn á meintu sifjaspelli af hálfu Ronalds, en grunur lék á að hann hefði eignast barn með Sheilu, sautján ára dóttur sinni. Af ótta við handtöku tók Ronald sig upp ásamt fjölskyldu sinni og lagði á flótta og sumarið 1983 settist fjölskyldan að á þrettán ekra landspildu, „Hermik- rákuhæð“, í Dover í Pope-sýslu. Heimilið var fátæklegt, tveir húsbíl- ar mynduðu eitt heimili, há girðing umlukti híbýlin þar sem hvorki var að finna síma né pípulagnir. Næstu árin vann Ronald Gene Simmons hin ýmsu störf. Hann hætti starfi hjá Woodline Mot- or Freight í kjölfar fjölda kvartana vegna óviðeigandi kynferðislegra tilburða af hans hálfu. Eftir að hafa unnið hjá Sinclair Mini Mart í eitt og hálft ár hætti hann þar 18. desember, 1987. Brátt myndi draga til tíðinda sem seint myndi fenna yfir í Arkansas-fylki í Bandaríkjunum. Eiginkonan, sonur og barnabarn Að morgni 22. desember 1987 ákvað Simmons að fyrirkoma fjöl- skyldu sinni. Rebekka, eiginkona hans sem hafði lengi glímt við veikindi, varð fyrsta fórnarlambið. Eftir að hafa barið hana með bar- efli skaut Ronald hana með 22 kal- ibera skambyssu. Ronald Gene Simmons yngri, 29 ára sonur Ronalds og Rebekku, féll næstur í valinn. Hann var skotinn til bana eftir að hafa sætt barsmíð- um. Síðan kyrkti Ronald þriggja ára sonardóttur sína, Barböru. Líkin fundust síðar í forarpytti sem Ronald hafði látið börn sín grafa nokkrum mánuðum fyrr, þar sem Ronald hugðist koma upp kamri. Að loknum morðunum beið Ronald þess að yngri börn hans kæmu heim með skólarútunni, en þetta var síðasti skóladagur fyrir jólafrí. Lokkuð með „jólagjöf“ Talið er að Ronald hafi kallað börn- in til sín eitt af öðru með fyrirheit- um um jólagjöf. Loretta, sautján ára, var fyrst til að fá „gjöfina“ sína, en Ronald herti að hálsi hennar og hélt höfði hennar undir vatni í regnvatnstunnu þar til hún dó. Hin börnin þrjú, Eddy, fjórtán ára, Marianne, ellefu ára, og Becky, átta ára, enduðu lífdaga sína með sama hætti og Loretta. Ronald fleygði líkunum á sama stað og hinum, í forarpyttinn. Nú tók við nokkurra daga bið hjá Ronald Gene Simmons því gesta var ekki að vænta fyrr en 26. desember. Biðin hafði greinilega ekki áhrif á staðfastan ásetning Ronalds og upp úr miðjum degi 26. desember beið hann ekki boðanna þegar gestina bar að garði. Fyrstu fórnarlömbin voru Willi- am „Billy“ H. Simmons II, sonur Ronalds, og Renata eiginkona hans og voru þau bæði skotin til bana. Ronald hafði ekki fyrir því að fjar- lægja lík þeirra og skildi þau eftir við matarborðið og huldi þau með yfirhöfnum þeirra. Síðan fór hann með Trae, son Williams og Renötu út fyrir og herti að hálsi hans jafn- framt því sem hann drekkti honum í regnvatnstunnunni. Sheila og Sylvía En enn var langt í land með að Ronald hefði lokið ætlunarverki sínu. Næst til hátíðarkvöldverðar mættu Sheila og eiginmaður henn- ar, Dennis Raymond McNulty, og börn þeirra tvö, Sylvía, sjö ára sem í raun var dóttir Ronalds, og Mich- ael, 21 mánaðar. Ronald skaut Sheilu til bana og lagði lík hennar á matarborð- ið. Síðan skaut Ronald Dennis og kyrkti Sylvíu. Eftir að hafa kyrkt Michael litla vafði hann líkinu í plast og henti í farangursgeymslu einnar bifreiðanna sem stóðu á hlaðinu. Slíkt hið sama hafði hann reyndar gert við lík Trae, sonar Williams og Renötu. Að öllu þessu loknu ók Ronald til Russellville þar sem hann kom við í verslun Sears og náði í jóla- gjafir sem höfðu verið pantaðar en ekki borist í tæka tíð fyrir jólin. Um kvöldið tyllti hann sér inn á klúbb í Russellville, en ók síðan heim og sat á strák sínum yfir helgina. Búinn að ná öllum Á mánudegi 28. desember tók Ronald bíl sonar síns traustataki og ók sem leið lá til Russellville. Hann keypti sér skammbyssu í Wal-Mart og fór svo á Peel, Eddy & Gibbons-lögfræðistofuna. Þar skaut hann til bana mót- tökudömuna Kathy Kendrick og lét þar við sitja. Næst á dagskrá var Taylor-olíufyrirtækið. Þar fann hann fyrir Russell Taylor, eiganda Sinclair Mini Mart. Tayl- or lifði tilræðið af en slökkviliðs- maðurinn og hlutastarfsmað- urinn Jim Chaffin átti ekki slíku láni að fagna og féll fyrir hendi Ronalds. Ronalds fór síðan í Sinc- lair Mini Mart og særði Róbertu Woolery og David Salyer og hvarf á braut. Síðasti viðkomustaður- inn var Woodline Motor Freight- fyrirtækið þar sem hann taldi sig eiga óuppgerðar sakir. Ronald fann Joyce Butts, fyrrverandi yf- irmann sinn, og særði hana á bringu og höfði. Þegar þar var komið sögu fannst Ronald sennilega nóg komið því hann neyddi starfs- konuna Vicky Jackson inn á eina skrifstofuna og skipaði henni að hringja á lögregluna. „Ég kom til að framkvæma það sem ég ætlaði mér. Því er nú lokið. Ég hef náð öllum sem vildu mér illt,“ sagði hann við Vicky. Þegar lögregluna bar að garði viðhafði Ronald engan mótþróa og gafst upp án málalenginga. Neitaði að áfrýja Ronald Gene Simmons var ákærður fyrir sextán morð, sak- felldur og dæmdur til dauða. Hann neitaði að nýta sér áfrýj- unarrétt sinn og undirstrikaði neitun sína með orðunum: „Fyr- ir þá sem eru á móti dauðarefs- ingu í máli mínu yrði allt annað en dauði grimmileg og óvenjuleg refsing.“ Aðskilja þurfti Ronald frá samföngum sínum á dauða- deild því lífi hans var stöðugt ógnað vegna andstöðu hans við að áfrýja dauðadómnum. Aðrir fangar töldu að með andstöðu sinni eyðilegði hann möguleika þeirra á náðun. 31. maí 1990 skrifaði þáver- andi ríkisstjóri Arkansas, Bill Clinton, síðar forseti Banda- ríkjanna, undir aftökuheimild vegna Ronalds Gene Simmons. Simmons var tekinn af lífi með banvænni sprautu 25. júní, 1990. Enginn eftirlifandi ættingja hans gerði tilkall til líksins og Simm- ons var að lokum grafinn sem þurftamaður. UmSJón: KoLBEinn þorSTEinSSon, kolbeinn@dv.is 44 föstudagur 16. október 2009 saKamál Vesturröst 36 gr. kr. 1600. pk. 42 gr. kr. 1950. pk. ÓDÝR HAGLASKOT allt fyrir skotveiðina S é r v e r s l u n v e i ð i m a n n a - L a u g a r v e g 1 7 8 - S í m i : 5 5 1 6 7 7 0 - w w w. v e s t u r r o s t . i s Fjöldamorðinginn efstur Hluti fórnarlamba, eftirlifandi ættingjar og lögreglan að störfum. Loretta, sautján ára, var fyrst til að fá „gjöf- ina“ sína, en Ronald herti að hálsi hennar og hélt höfði hennar undir vatni í regnvatnstunnu þar til hún dó. Ronald Gene Simmons Ábyrgur fyrir einum verstu fjöldamorðum í sögu Arkansas.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.