Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2009, Qupperneq 46
46 föstudagur 16. október 2009
NafN og aldur?
„Ragnar Jónasson, 33 ára.“
atviNNa?
„Lögfræðingur, stundakennari í lögfræði og nú
spennubókarhöfundur.“
Hjúskaparstaða?
„Í sambúð með Maríu Margréti Jóhannsdóttur
blaðamanni.“
fjöldi barNa?
„Fyrsta barn á leiðinni í febrúar.“
Hefur þú átt gæludýr?
„Nei, en ég stefni á að eignast kött í framtíðinni.“
Hvaða tóNleika fórst þú á síðast?
„Sá loksins U2 í London í sumar eftir langa bið og
fór líka á marga frábæra tónleika á Innipúkanum.“
Hefur þú komist í kast við lögiN?
„Hef einu sinni fengið hraðasekt, en það er allt og
sumt.“
Hver er uppáHaldsflíkiN þíN og af Hverju?
„Dúnúlpan mín – byrja að nota hana strax á haust-
in til að klæða af mér íslenska kuldann.“
Hefur þú farið í megruN?
„Nei, reyni frekar að hreyfa mig reglulega.“
Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmæl-
um?
„Nei.“
trúir þú á framHaldslíf?
„Ég hugsa að flestir trúi á eitthvað, hver með sínu
lagi, hvort sem það er framhaldslíf eða bara trúin á
að breyta rétt og gera öðrum gott.“
Hvaða lag skammast þú þíN mest fyrir að
Hafa Haldið upp á?
„Ég hafði mjög gaman af allri popptónlist í kringum
1986, þegar ég var 10 ára – en ekkert af því þyk-
ir sennilega mjög spennandi í dag! Var til dæm-
is mikill aðdáandi dæmigerðs „eigthies“ rokklags,
The Moment of Truth með Survivor, úr Karate Kid-
myndinni.“
Hvaða lag kveikir í þér?
„Það er alltaf eitthvað rómantískt við tangó, svo
nú dettur mér helst í hug hið frábæra lag Libert-
ango eftir Piazzolla, en það er mér reyndar ofar-
lega í huga núna því það kemur við sögu í bókinni
minni.“
til Hvers Hlakkar þú NúNa?
„Ég hlakka afskaplega mikið til febrúarmánaðar,
þegar konan mín á von á fyrsta barninu okkar.“
Hvaða myNd getur þú Horft á aftur
og aftur?
„Die Hard 1 og 2 – horfi á þær fyrir hver einustu
jól, algjörlega klassískar myndir. Svo eru Seven og
Casablanca líka í miklu uppáhaldi.“
afrek vikuNNar?
„Að senda frá mér fyrstu skáldsöguna mína – það
hefur verið draumur í mörg ár og er ótrúleg upp-
lifun.“
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Nei.“
spilar þú á Hljóðfæri?
„Nei, en ég vildi óska þess að ég gerði það. Kannski
læri ég einhvern tímann á píanó.“
viltu að íslaNd gaNgi í evrópusambaNdið?
„Ég sé ekki ávinninginn af því.“
Hvað er mikilvægast í lífiNu?
„Fjölskyldan og heilsan.“
Hvaða ísleNska ráðamaNN muNdir þú vilja
Hella fullaN og fara á trúNó með?
„Ætli það væri ekki mest spennandi ef maður gæti
farið aftur í tímann og hitt Jón Sigurðsson forseta og
spurt hann ráða varðandi leiðir út úr kreppunni.“
Hvaða fræga eiNstakliNg myNdir þú Helst
vilja Hitta og af Hverju?
„Ég hefði auðvitað vilja hitta eftirlætis rithöfundinn
minn, Agöthu Christie, og fá mér „a nice cup of tea“
með henni, eins og Bretarnir segja. Af núlifandi
rithöfundum þætti mér mjög gaman að hitta P.D.
James, sem skapaði lögreglufulltrúann geðþekka
Adam Dalgliesh, og er farin að nálgast nírætt.“
Hefur þú ort ljóð?
„Já, hafði gaman af því þegar ég var töluvert yngri,
en þau verða seint birt.“
Nýlegt prakkarastrik?
„Ég sendi vinafólki mínu boð um að mæta í út-
gáfuteiti vegna Falskrar nótu en frétti það síðan að
þau hefðu haldið að ég væri að gera at í þeim, enda
hafði ég aldrei minnst á það við þau að ég væri með
bók í smíðum. Það kemst næst því að vera nýlegt
„prakkarastrik“.“
Ragnar Jónasson hefur sent frá sér sína fyrstu bók sem heitir
Fölsk nóta. Ragnar er þó ekki ókunnur bókaheiminum því
hann hefur þýtt á annan tug bóka eftir sjálfa Agöthu Christie.
Horfir alltaf
á die Hard um jóliN
Dalvegi 2, Kóp. | Dalshrauni 13 Hfj. | S: 577 3333 | www.castello.is
Höfum opnað nýjan stað á Dalshrauni 13, Hfj.
20 % afsláttur af sóttum pizzum
H
u
g
sa
s
é
r!
S. 562 2104
Varahlutaverslunin
Varahlutaverslunin Kistufell | Brautarholti 16 | Sími: 562 2104 | www.kistufell.is | kistufell@kistufell.is
Legur
Örugg og góð þjónusta í 25 ár.
MYND
Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði
S: 565 4207 - Gsm: 893 5950
www.ljosmynd.is
Vandaðar
skólamyndatökur
NICOLAI
Véla- og hjólastillingar
Tímareimar - Viðgerðir
BIFREIÐASTILLINGAR
Faxafeni 12 Sími 588-2455
Nýr kostur í DV eru
þjónustuauglýsingar.
Það borgar sig að
auglýsa í DV!
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR
Hringdu í síma 515 5550
og byrjaðu strax í dag!