Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2009, Blaðsíða 30
Það hefur eflaust komið mörg-
um á óvart þegar RÚV tilkynnti
fyrir helgi að sjálfur Bubbi Mort-
hens væri meðal lagahöfunda
í undankeppni Eurovision að
þessu sinni. Bubbi sagði á sín-
um tíma að hann væri alfarið á
móti keppni í tónlist og sagðist
aldrei ætla taka þátt í Eurovision.
Þrátt fyrir það var hann dóm-
ari í þættinum Idol-stjörnuleit
og stóð seinna fyrir þættinum
Bandið hans Bubba. Goðsögnin
er því eitthvað að linast á þeirri
skoðun sinni því núna er hann
kominn hringinn og semur lag
fyrir keppnina ásamt Óskari Páli
Sveinssyni. Hann samdi einmitt
lagið Is it True sem lenti í öðru
sæti í fyrra. Bubbi ætlar þó ekki
að syngja sjálfur.
Margir tengja
Hávar við Davíð
„Við fengum gott tilboð frá Stöð 2 og
ákváðum að taka því,“ segir grínist-
inn Steinþór H. Steinþórsson betur
þekktur sem Steindi Jr. Í haust var
greint frá því að Steindi yrði með
þátt á Skjá einum í upphafi næsta
árs en sá þáttur verður nú sýndur á
Stöð 2 í vor.
Steindi var með innslög í þáttun-
um Monitor sem sýndir voru á Skjá
einum og hann segist skilja við stöð-
ina í góðu. „Við töldum þetta bara
henta okkur betur að svo stöddu.
Það var frábært að vinna með Skjá
einum og þar er mikið af góðu og
hæfileikaríku fólki,“ segir Steindi
um ástæðu þess að hann ákvað að
fara með þáttinn yfir á Stöð 2.
Ásamt Steinda er Rottweiler-
hundurinn Ágúst Bent Sigberts-
son aðalsprautan á bak við þættina
sem munu að öllum líkindum bera
nafnið Steindinn okkar. „Við ger-
um þetta eiginlega allt sjálfir. Skrif-
um, leikum, tökum upp, klippum
og í raun allt þar á milli. Við verð-
um seint ríkir á þessu enda er það
ekki ástæðan fyrir því að við ákvað-
um að gera þáttinn. Við erum bara
að leggja okkar af mörkum í að gera
íslenskt grín betra.“
Ekki er búið að staðfesta hvenær
þátturinn fer í loftið en Steindi segir
það líklega í kringum apríl.
asgeir@dv.is
KoMinn á Stöð 2
SeMur en
Syngur
eKKi
Steindi Jr. Skiptir um SJónvarpSStöð:
sögupersónu svipar til fyrrverandi seðlabankastjóra:
Hrafn Gunnlaugsson var á
meðal þeirra sem skemmtu sér
konunglega á uppistandskvöldi
hópsins Mið-Íslands á Batterí-
inu á fimmtudaginn. Fullt var
útúr dyrum á staðnum og skellti
Hrafn oft vel upp úr meðan á
prógraminu stóð. Þeir sem stigu
á stokk voru Jóhann Alfreð, Ari
Eldjárn, Dóri DNA, Bergur Ebbi
og Hugleikur Dagsson en þetta
var hans fyrsta uppistand. Helgi
Seljan sá um að kynna á kvöld-
inu og hann skaut föstum skot-
um á uppistandarana og þeir
jafnóðum til baka.
SKeMMti Sér
á uppiStanDi
30 MánuDagur 2. nóvember 2009 fólKið
Steindi Jr. Verður
með þætti á Stöð 2.
Gera allt sjálfir Steindi og Bent vinna
hörðum höndum að því að koma efni
sínu á koppinn.
rithöfundurinn og teiknarinn, Þórarinn Leifsson, gaf á dögunum út barnabókina
Bókasafn ömmu Huldar. Í bókinni er vondi kallinn umsjónarmaður Gullbankans sem
er ansi líkur Davíð Oddssyni.
„Persónurnar í mínum bókum eru
aldrei byggðar beint á einhverri per-
sónu þó að vissulega séu oft einhver
áhrif héðan og þaðan,“ segir rithöf-
undurinn og teiknarinn, Þórarinn
Leifsson, um persónuna Hávar M.
Grímsson í nýjustu bók sinni, Bóka-
safn ömmu Huldar, en hann er slá-
andi líkur Davíð Oddssyni. Ekki nóg
með það heldur er Hávar einnig um-
sjónarmaður Gullbankans sem hæg-
lega gæti verið Seðlabankinn.
Blaðamaður var ekki sá fyrsti sem
færði þetta í tal við rithöfundinn.
„Það eru margir sem tengja Hávar
við Davíð Oddsson,“ segir Þórarinn.
„Þessi bók er táknsaga og er stútfull af
pólitík. Ég myndi samt aldrei nenna
að skrifa bók bara til þess að dissa
Davíð Oddsson. Fólk er oft að stríða
mér þegar það trúir ekki að Hávar sé
ekki Davíð en það er náttúrlega ekki
hægt að byggja karakter á einhverri
þráhyggju gegn einum manni. Það er
kannski fyndið í myndasögu en ekki í
bók,“ segir Þórarinn og hlær dátt.
Þórarinn bendir á að Hávar gæti
verið táknræn mynd fyrir nýtt stjórn-
arsamstarf. „Hávar er náttúrlega svo-
lítið „vinstri“ nafn, það verður bara
að segjast. Þannig gæti þessi per-
sóna í rauninni verið tákn um stjórn-
arsamstarf Samfylkingar og Sjálf-
stæðisflokksins,“ segir Þórarinn og
bætir við að Davíð yrði líklega bara
ánægður ef hann myndi lesa bókina.
„Svona í bókinni miðri verður vondi
gæinn góður þannig að kannski yrði
Davíð bara ánægður með þetta,“ seg-
ir Þórarinn og skellir upp úr.
Síðasta bók Þórarins, Leyndar-
málið hans pabba, fékk afar góða
dóma en nýja bókin kom út í síðustu
viku. Hann segir útlitið fínt. „Það lít-
ur bara allt rosalega vel út með bók-
ina miðað við allt og allt. Bókaver-
tíðin er ekkert hafin fyrir alvöru en
þetta lítur bara vel út með nýju bók-
ina,“ segir Þórarinn Leifsson.
tomas@dv.is
Hávar M. Grímsson Sláandi líkur
Davíð Oddsyni og starfar meira
að segja sem umsjónarmaður
Gullbankans. TEIKNING ÞÓRARINN LEIFSSON
Þórarinn Leifsson Segir Hávar jafnvel vera táknmynd um nýtt stjórnarsamstarf. MYND HEIÐA HELGADÓTTIR