Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2009, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2009, Qupperneq 14
14 mánudagur 2. nóvember 2009 fréttir „Það er ljóst, eins og við reiknum þetta út, að komi til þessa getur það haft mjög alvarlegar afleiðingar. Ef við þurfum að mæta þessum skatti þurfum við að skera niður kostn- að. Við höfum satt að segja stór- ar áhyggjur af þessu,“ segir Ágúst Hafberg, framkvæmdastjóri við- skiptaþróunar Norðuráls, um fyr- irhugaðan orku- og auðlindaskatt ríkisstjórnarinnar. Ríkistjórn Íslands hefur boðað endurskoðun á áformum hennar að leggja á nýjan orku-, auðlinda og umhverfisskatt. Útfærsla skatt- lagningarinnar var frá upphafi nokkuð óljós en átti þegar upp var staðið að skila þjóðarbúinu sextán milljörðum króna á næsta ári sam- kvæmt fjárlagafrumvarpi. Í staðinn er hugsanlegt að atvinnulífið taki á sig auknar byrðar þannig að áður- nefndum tekjum ríkisstjóðs verði náð með öðrum leiðum. Forsvars- menn stóriðjufyrirtækja mótmæla fyrirhuguðum skatti harðlega og hafa áhyggjur af rekstri og framtíð- aráformum fyrirtækjanna. Þeir eru sammála um að komi til skattlagn- ingarinnar þurfi að bregðast við með niðurskurði og hugsanlegum fjöldauppsögnum. Fjölmörg störf í hættu Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, hefur miklar áhyggjur af framhaldinu. Hann óttast mjög fjöldauppsagn- ir í umdæmi sínu. „Þetta er graf- alvarlegt mál. Nú eiga fyrirtækin allt í einu að fara greiða skatta sem eru jafnvel meiri en fyrirtækin hafa nokkru sinni skilað í hagnað. Með þessu er verið að færa rekstrarum- hverfi fyrirtækjanna í stórhættu og ég óttast mjög að fjöldamörg störf séu í stórhættu,“ segir Vilhjálmur. Ágúst segir ljóst að skatturinn, hvernig sem hann komi til með að útleggjast, komi þungt niður á fyrir- tækinu. Aðspurður segir hann stjórn- endur ekki farna að ræða mögu- legar uppsagnir starfsfólks. „Þetta gætu ver- ið ein- hverjir 5-6 milljarðar á ári sem við þurfum að greiða og auðvelt að ímynda sér hversu alvarlegt þetta er fyrir okkur. Við teljum okkur reynd- ar vera með þannig samning að ekki sé hægt að leggja svona skatta á okkur og því teljum við okkur í skjóli. Forsendan er sú að við vitum hvernig umhverfið er og að ekki sé hægt að koma svona aftan að fyrir- tækinu. Við teljum okkur í skjóli og bíðum eftir svörum ráðherra þess efnis,“ segir Ágúst. Niður á við Einar Þor- steinsson, forstjóri Elkem á Íslandi, deilir áhyggj- unum og telur að komi til skatt- lagningarinnar verði ekkert af nýrri sólarkísilverksmiðju fyrirtækisins á Grundartanga. Hann segir að með því tapist gífurlegur fjöldi starfa. „Ég tel að þetta slái okkur út af borðinu. Ef þessi skattlagning gengur eft- ir verður nær útilokað að staðsetja verksmiðjuna hér. Þegar allt er talið með gæti verið um að ræða þúsund varanleg störf hér á svæðinu,“ seg- ir Einar. Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins, lýsti því yfir í pistli á heimasíðu samtak- anna að fyrirhuguð skatt- lagning væri ekki til þess fallin að koma þjóð- inni upp úr kreppunni heldur aðeins að stefna henni neðar í öldudal atvinnuleys- is, niðurskurðar og samdráttar. „Fyrir- huguð skattlagning birtist fyrirvaralaust án nokkurrar um- ræðu eða samráðs við helstu þolendur skattlagningarinnar eða hagsmuna- samtök á vinnumarkaði. Þó að mér hafi orð- ið tíðrætt um hagsmuni stóriðju- fyrirtækja, ber ekki að skilja orð mín þannig að ég átti mig ekki á mikilvægi annars iðnaðar og ann- arra atvinnugreina. Það er ein- faldlega vegið að stóriðjunni nú á afar viðkvæmum tímum. Ef réttar ákvarðanir verða teknar í stað allt of margra rangra sem þjóðin hefur orðið vitni að í seinni tíð – verða Ís- lendingar fljótir upp úr öldudaln- um. Annars höldum við áfram nið- ur,“ sagði Helgi. TrausTi haFsTeiNssoN blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Skattar Skelfa orkuriSana stóriðja til staðar Verkefni: Staðsetning: Fyrirtæki: Orkuþörf: Álver Straumsvík Rio Tinto Alcan Kísiljárnsverksmiðja Grundartangi Elkem Álver Grundartangi Century/Norðurál Álver Reyðarfjörður Alcoa/Fjarðaál Aflþynnuverksmiðja Krossanes við Eyjafjörð Becromal Væntanleg stóriðja (samkomulag af einhverju tagi liggur fyrir) Verkefni: Staðsetning: Fyrirtæki: Orkuþörf: Álver Helguvík Century/Norðurál 600 MW Framleiðsluaukning álvers Straumsvík RioTintoAlcan 75 MW Framleiðsluaukning álvers Grundartanga Norðurál 50 MW Gagnaver Reykjanesbæ Verne Holding 25 MW Aflþynnuverksmiðja Akureyri Becromal 70 MW Kísilmálmframleiðsla Helguvík Tomahawk Development 60 MW Samtals: 880 MW hugsanleg stóriðja (verkefni í skoðun, fyrirtækin vilja koma) Álver / orkufrekur iðnaður Bakki Alcoa 600 MW Gagnaver Blönduós Greenstone Óljóst Koltrefjaverksmiðja Skagafjörður Kaupfélag Skagafjarðar, Gasfélagið og Sveitarfélagið Skagafjörður Hreinkísilframleiðsla Grundartangi Elkem 100 MW Hreinkísilframleiðsla Óljóst Strokkur Energy 100 MW Pappírsverksmiðja Hellisheiði Icelandic Paper Óljóst Samtals: 800 MW Fjöldauppsagnir og rekstarerfiðleikar eru eitt af því sem tals- menn stóriðjufyrirtækja óttast leggist fyrirhugaður orku- og auðlindaskattur á fyrirtækin. Sjálfir telja þeir sig í misgóðu skjóli gagnvart íslenska ríkinu. Vilhjálmur Birgisson, formað- ur Verkalýðsfélags Akraness, segir stöðuna grafalvarlega. Grafalvarlegt Vilhjálmur bendir á að skattlagningin sé í sumum tilvikum meiri en hagnaður einstakra fyrirtækja. engin vörn Ólafur Teitur óttast að fót- unum verði kippt undan fyrirtækinu þar sem það sé ekki eins vel varið og áður. „Við teljum okkur reyndar vera með þannig samning að ekki sé hægt að leggja svona skatta á okkur og því teljum við okkur í skjóli.“ Pappírsverksmiðja Álver Framleiðsluaukning álvers Gagnvaver Álver Kísilmálmaframleiðsla Kísiljárnsverksmiðja Álver Framleiðsluaukning álvers Hreinkísilframleiðsla

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.