Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2010, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2010, Side 21
ÆTTFRÆÐI 15. febrúar 2010 MÁNUDAGUR 21 Margeir Pétursson STJÓRNARFORMAÐUR MP BANKA Margeir fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá MH 1979, embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1984, öðlaðist hdl.-réttindi 1987, stundaði nám í hagfræði við HÍ 1996-99 og hlaut löggildingu í verð- bréfamiðlun 1998. Margeir var lögfræðingur hjá Búnaðarbanka Íslands frá 1984 og forstöðumaður innheimtudeildar bankans 1985-88, stundaði atvinnu- mennsku í skák 1989-97, lagði stund á málflutningsstörf og stofnaði eig- ið fjárfestingarfyrirtæki 1995. Hann stofnaði MP Verðbréf hf, löggilt verð- bréfafyrirtæki, 1999 og var fram- kvæmdastjóri þess 1999-2000. Frá árinu 2000 hefur hann verið stjórnar- formaður fyrirtækisins, sem hét MP Fjárfestingarbanki frá árinu 2003, en frá 2008 nefnist það MP Banki hf. og rekur almenna bankastarfsemi. MP Banki hf. er með höfuðstöðvar að Ár- múla 13a, Reykjavík, þar sem áður voru höfuðstöðvar SPRON. Margeir hefur komið að stofnun og setið í stjórn fjölmargra fyrirtækja á Íslandi og erlendis. M.a. var hann stjórnarformaður Fjárfestingarfé- lagsins Atorku hf. frá 2002-2004, Lífs hf. frá 2001-2004 og í stjórn Jarðbor- ana hf. frá 1997-2004. Frá árinu 2004 hefur Margeir ekki átt sæti í stjórnum neinna félaga sem skráð hafa verið í kauphöll. Frá og með árunum 2004- 5 hefur hann að mestu leyti starfað að verkefnum í A-Evrópu auk þess sem hann hefur gegnt stjórnarfor- mennsku í MP Banka hf. Hann hefur átt sæti í stjórn Bank Lviv í Úkraínu frá árinu 2007. Margeir hefur gegnt trúnaðar- störfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn, var formaður Varðar - fulltrúaráðs sjálf- stæðisfélaganna í Reykjavík 2000- 2005 og sat í miðstjórn flokksins á sama tíma. Hann var varaforseti Skáksambands Íslands 1992-96. Margeir varð alþjóðlegur skák- meistari 1978, stórmeistari í skák 1986, Íslandsmeistari í skák 1986 og 1987, skákmeistari Norðurlanda 1987, hefur sigrað á fjölda alþjóða- móta, þ.á m. í Hastings á Englandi 1986, Lugano í Sviss 1989, og St. Martin í Vestur Indíum 1991. Hann tefldi fyrir Íslands hönd á öllum Ól- ympíumótum í skák á árunum 1976- 96. Margeir sá um skákþætti i Morg- unblaðið á árunum 1976-2000, er höfundur bókarinnar Kings Indian Defence, Averbakh Variation, útg. af Cadogan í London 1996, og hefur rit- að fjölda greina í innlend og erlend skáktímarit. Þá hefur hann skrifað fjölda greina um efnahagsmál og fjárfestingar i Morgunblaðið, í tíma- rit og á vefsíður. Fjölskylda Margeir kvæntist 25.8. 1984 Sigríði Indriðadóttur, f. 13.2. 1956, kennara. Hún er dóttir Indriða Pálssonar, f. 15.12. 1927, fyrrv. forstjóra, og Elísa- betar Hermannsdóttur, f. 16.6. 1928, húsmóður. Dóttir Margeirs og Sigriðar er Elísabet Margeirsdóttir, lífefnafræð- ingur, f. 31.1. 1985. Hún er í sambúð með Skúla Hrafni Harðarsyni, hag- fræðingi. Systkini Margeirs eru Sigríður Pétursdóttir, f. 2.10. 1953, kennari, gift sr. Hreini Hákonarsyni; Harald- ur Pétursson, f. 14.1. 1955, d. 2.12. 1972; Vigdís Pétursdóttir, f. 22.3. 1962, læknir, gift Ævari Aðalsteins- syni múrara. Foreldrar Margeirs: Pétur Har- aldsson, f. 3.7. 1925, d. 28.7. 1993, kaupmaður í Reykjavík, og Halldóra Hermannsdóttir, f. 23.2. 1929, hús- freyja og kaupkona. Ætt Pétur var sonur Haraldar Axels, b. i Borgarholti og fræðimanns og hús- varðar við Safnahúsið í Reykjavik, hálfbróður Péturs útvarpsþular, föð- ur Ragnheiðar Ástu útvarpsþular, móður Eyþórs Gunnarssonar tón- listarmanns. Haraldur Axel var auk þess hálfbróðir Jóns Axels, banka- stjóra Landsbankans, og Tryggva, bankastjóra í Hveragerði. Haraldur Axel var sonur Péturs, skólastjóra á Stokkseyri Guðmundssonar, b. í Langholtsparti í Flóa Sigurðssonar, bróður Guðlaugar, móður Sigurðar regluboða, föður Sigurgeirs biskups, föður Péturs biskups. Móðir Harald- ar Axels var Ólöf Jónsdóttir, b. á Upp- sölum í Flóa Guðmundssonar, og Guðfinnu Erlendsdóttur, b. í Holti á Álftanesi Jónssonar, og Þóru Rafns- dóttur, b. á Læk í Hraungerðishreppi Fjalla-Eyvindssonar Jónssonar. Móðir Péturs var Margrét Þor- móðsdóttir, b. í Holtakotum í Bisk- upstungum Þormóðssonar, b. þar Magnússonar. Móðir Margrétar var Vigdís Björnsdóttir, b. í Galtalæk í Biskupstungum Björnssonar. Halldóra er dóttir Hermanns, bif- reiðarstjóra og bæjarfulltrúa á Siglu- firði Einarssonar, b.á Lambanes- reykjum í Fljótum Hermannssonar. Móðir Hermanns var Kristín Gísla- dóttir. Móðir Halldóru var Anna Sigrið- ur, formaður verkakvennafélagsins Brynju á Siglufirði Þorleifsdóttir, b. í Siglunesi Þorleifssonar, b. þar Þor- leifssonar. Móðir Önnu Sigríðar var Valgerður Kristjánsdóttir, skipstjóra í Dalbæ Björnssonar, og Guðnýjar Pálsdóttur, útgerðarmanns í Dalbæ Þorvaldssonar. 30 ÁRA n Sigursveinn Már Sigurðsson Reynivöllum 5b, Selfossi n Daníel Páll Víkingsson Aðalgötu 30, Ólafsfirði n Hulda Jóhannsdóttir Keilusíðu 9i, Akureyri n Guðni Gestur Pálmason Kjarrmóa 11, Selfossi n Kristín Ósk Halldórsdóttir Grenigrund 24, Akranesi n Sveinn Haraldsson Lokastíg 2, Dalvík n Hjördís Sigurbjartsdóttir Hafravöllum 14, Hafnarfirði n Efemia Rún Sigurbjörnsdóttir Brennihlíð 4, Sauðárkróki n Rakel Ósk Eiríksdóttir Heiðarbraut 5d, Reykjanesbæ 40 ÁRA n Lilja Georgsdóttir Seftjörn 6, Selfossi n Stefán Benedikt Gunnarsson Dalhúsum 17, Reykjavík n Birgitta María Birgisdóttir Vörðugili 3, Akureyri n Rafn Ingi Rafnsson Raftahlíð 14, Sauðárkróki n Sonja Kristín Sverrisdóttir Faxabraut 61, Reykja- nesbæ n Sævar Guðjónsson Strandgötu 120, Eskifirði 50 ÁRA n Jonathan James Cutress Heiðargarði 6, Reykja- nesbæ n Wieslaw Tomasz Mazur Ásaskóla, Selfossi n Gréta Lind Sigurðardóttir Andrésbrunni 3, Reykjavík n Páll Sigvaldason Lagarfelli 11, Egilsstöðum n Guðni Þórólfsson Heiðarlundi 4a, Akureyri n Jóna Kristín Freysteinsdóttir Hlíðartúni 3, Höfn í Hornafirði n Steinþóra Þorsteinsdóttir Furuvöllum 32, Hafnarfirði n Ragnheiður Benjamínsdóttir Norðurbakka 11c, Hafnarfirði n Guðbjörg Lilja Hjartardóttir Drápuhlíð 47, Reykjavík n Birgir Ólafsson Melhaga 20, Reykjavík n Eiríkur Benediktsson Selsvöllum 3, Grindavík 60 ÁRA n Svandís Ingibjartsdóttir Hólabergi 20, Reykjavík n Jóhann Sverrisson Einholti 16g, Akureyri n Ármann Björnsson Hringbraut 1, Hafnarfirði n Ingimundur Hilmarsson Heiðarendi 8h, Reykja- nesbæ n Sigurður Sæmundsson Skeiðvöllum, Hellu n Rósmundur Matthías Guðnason Klettási 5a, Garðabæ n Þórunn Kristjónsdóttir Reynimel 65, Reykjavík n Ásthildur Hilmarsdóttir Veghúsum 31, Reykjavík n Svanur Halldórsson Bæjartúni 19, Kópavogi 75 ÁRA n Óskar Karlsson Reykjanesi, Selfossi n Vigdís Elín Ágústsdóttir Efstasundi 34, Reykjavík n Benedikt Vilhjálmsson Laugavegi 141, Reykjavík n Vigdís Daníelsdóttir Ásbraut 19, Kópavogi 80 ÁRA n Jóhanna I Birnir Kóngsbakka 2, Reykjavík 85 ÁRA n Jóhannes Sævar Magnússon Suðurvangi 23b, Hafnarfirði 90 ÁRA n Björg Sigurðardóttir Hrísmóum 1, Garðabæ 50 ÁRA Í DAG 30 ÁRA Natalía Lea Georgsdóttir Básbryggju 2, Reykjavík Valeria De Souza Coelho Bræðraborgarstíg 30, Reykjavík Jónas Haraldsson Vallarbraut 7, Seltjarnarnesi Kristín Laufey Steinadóttir Þrastarási 18, Hafnarfirði Bjarki Þór Pétursson Vesturgötu 158, Akranesi Ingunn Hallgrímsdóttir Klapparstíg 9, Hvammstanga Katarzyna Sweda Wantulok Furugrund 58, Kópavogi Piotr Karol Ruszel Hafnargötu 32, Reykjanesbæ Edyta Rogowska Kleppsvegi 138, Reykjavík Lanlan Pan Skipholti 20, Reykjavík 40 ÁRA Elena Guijarro Garcia Baldursgötu 11, Reykjavík Daniel Kwiecien Orrahólum 5, Reykjavík Jon-Carlos Mayes Vesturgötu 53b, Reykjavík Ingibjörg Valsdóttir Skeljatanga 18, Mosfellsbæ Þröstur Jónsson Jórsölum 10, Kópavogi William Howard Clark Naustabryggju 12, Reykjavík Berglind Þórisdóttir Gullteigi 4, Reykjavík Birna Mjöll Sigurðardóttir Grundartanga 10, Mos- fellsbæ Jón Egill Jóhannsson Skerðingsstöðum, Búðardal Jón Garðar Jónsson Suðurbraut 6, Hafnarfirði Logi Óttarsson Furulundi 10s, Akureyri Sigurður Haukur Olavsson Skeljatanga 40, Mosfellsbæ 50 ÁRA Brynjar Jónsson Kálfhólum 13, Selfossi Esther Eygló Ingibergsdóttir Suðurvangi 19a, Hafnarfirði Margrét Kristín Sigurðardóttir Skipastíg 20, Grindavík Ana Maria De Souza E. Furtado Njálsgötu 4b, Reykjavík Guðgeir Gunnarsson Klausturhólum, Selfossi Ari Guðni Hannesson Hólabrekku, Höfn í Hornafirði Hafsteinn Jónsson Lambhaga 34, Selfossi Gunnar Hrafn Jónsson Læk, Selfossi 60 ÁRA Páll Hjaltason Lindasmára 28, Kópavogi Margrét Hjaltadóttir Þórustöðum 6, Akureyri Jörundur Hilmar Ragnarsson Furuvöllum 5, Egils- stöðum Þorsteinn Kjartansson Klukkuholti 22, Álftanesi Sveinbjörn Ragnarsson Holtastíg 4, Bolungarvík Sigurður Hafsteinn Pálsson Hléskógum 21, Egils- stöðum Kristján E Kristjánsson Hlíðarhjalla 40, Kópavogi Viðar Eiríksson Túngötu 18, Húsavík Kolbrún Karlsdóttir Aflagranda 27, Reykjavík Þorgils Þorgilsson Skipalóni 4, Hafnarfirði 70 ÁRA Sigríður Sigurðardóttir Hraunbæ 178, Reykjavík Þorkell Kjartansson Presthúsabraut 30, Akranesi Elín Guðrún Þorsteinsdóttir Baldursgötu 12, Reykja- nesbæ 75 ÁRA Hólmfríður Guðrún Sveinsdóttir Sléttuvegi 19, Reykjavík Albert Halldórsson Gilsbakka 22, Hvolsvelli Kolbrún Sjöfn Árnadóttir Deildartungu 2, Reykholt í Borgarfirði Ingibjörg Guðmundsdóttir Hvassaleiti 56, Reykjavík 80 ÁRA Aðalheiður Aðalsteinsdóttir Mýrargötu 18, Nes- kaupstað Geir Örn Ingimarsson Tjarnartúni 1, Akureyri 90 ÁRA Gunnar Hjálmtýsson Hringbraut 50, Reykjavík TIL HAMINGJU INGJU AFMÆLI 15. FEBRÚAR TIL HAMINGJU AFMÆLI 16. FEBRÚAR Bolludagsafmæli Elísabetar: „NÚ ERTU SEXTÁN...“ Elísabet Guðrúnardóttir, tveggja barna móðir á Álftanesinu, sem er þrítug í dag, ætlar að eyða deginum með börnunum sínum, Guðrúnu Erlu Guðmundsdóttur sem er fimm ára, og Hilmi Snæ Guðmundssyni sem er fjögurra ára. Hún er harð- ákveðin í því að vera ekki að eyða í veisluföng og vinafagnað enda segist hún eiga svo fjölmennan og ósamstæðan vinahóp að það sé ekki til neins að reyna að hóa honum saman. Þar með er þó ekki sagt að ekkert verði gert í tilefni dagsins: „Afmæl- ið mitt ber upp á bolludag – einn af- mælisdaginn enn. Ég vakna því lík- lega upp við það að börnin „bolla“ mig. Þá er nú eins gott að vera bú- inn að birgja sig upp af bollum af öllu tagi. Svo baka ég köku í tilefni dags- ins, líklega peruköku sem er í uppá- haldi á þessum bæ. Að öðru leyti vonast ég svo bara eftir fallegum og sókríkum degi og ætla að hafa það náðugt með blessuðum börnunum.“ Ber afmælið þitt oft upp á bollu- dag? „Ó já. Minningar mínar um af- mælið eru yfirleitt tengdar bollum og bolluáti. Eftirminnilegasta afmæl- ið er þó líklega frá því ég varð sextán ára. Mamma hafði keypt handa mér sextán rauðar rósir og þegar ég kom heim úr skólanum hljómaði lagið Sextán týrur, með Engilbert Jensen, sem kom út 1992. Mig minnir að lag- ið byrji svona: „Nú ertu sextán...“ Þetta kom mér algjörlega í opna skjöldu. Furðulegt hvernig dægurlag, texti og rauðar rósir geta í réttu sam- hengi, myndað ógleymanlega minn- ingu.“ Hafðu samband í síma 515-5555 eða sendu tölvupóst á askrift@dv.is - inn í hlýjuna Fáðu DV heim í áskrift SÍMINN ER Hafðu samband í síma 515-5555 eða sendu tölvupóst á askrift@dv.is - inn í hlýjuna Fáðu DV heim í áskrift

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.