Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Síða 47
... ekki hagsmuni fjórflokksins í Reykjavík
www.reykjavikurframbodid.is · Kosningamiðstöð í Glæsibæ – Álfheimum – Sími 566 7000 – Fax 588 9229
Kjóstu eigin hagsmuni
STEFNUMÁL Reykjavíkurframboðsins
1. REYKJAVÍKURFRAMBOÐIÐ ætlar að taka til baka allar skerðingar á
þjónustu, velferð og framkvæmdum sem fjórflokkurinn hefur staðið fyrir
á undanförnum misserum.
2. Borgin fái 7 milljarða á ári, næstu 4 árin, í aukið ráðstöfunarfé með
því að nýta eignina í Vatnsmýrinni. Þetta er um 12% aukning á
ráðstöfunarfé í reikningum borgarinnar á árinu 2009.
3. Með auknu ráðstöfunarfé verður ráðist gegn atvinnuleysi með
nýsköpun, auknum framkvæmdum og viðhaldsstörfum. Með þessu
fylgja sjálfvirkt tengdar greinar í verslun og allri annarri þjónustu.
4. REYKJAVÍKURFRAMBOÐIÐ mun klára Sæmundarskóla og
Norðlingaskóla vegna fjölskyldna sem eiga sjálfsagða kröfu á
skólaaðgengi fyrir börnin sín.
5. Stöðvuð verði óhagkvæm útþensla byggðar og borgin byggð
innávið.
6. Endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur, með miðborgarbyggð í
Vatnsmýri ljúki 2010.
7. Samgöngukerfi borgarinnar verði bætt og slysagildrum útrýmt.
8. REYKJAVÍKURFRAMBOÐIÐ vill koma á þriðja stjórnsýslustiginu í
formi hverfaráða með eigin völd og mjög aukin fjárráð til staðbundinna
verkefna.
REYKJAVÍKURFRAMBOÐIÐ er framboð sem berst fyrir Reykvíkinga.
Við erum óháð og munum beita okkur að fullu fyrir heimabyggð. Hættum
að fórna hagsmunum borgarbúa sem skiptimynt í valdabrölti fjórflokksins
á landsvísu. Þessar kosningar á krepputíma snúast um velferð og lífsgæði.
REYKJAVÍKURFRAMBOÐIÐ vill verja hagsmuni borgarbúa, auka hagsæld,
bæta þjónustu og skipulag. Allt þetta viljum við gera ÁN lántöku sem á að
greiða með skattahækkunum seinna og ÁN beinnar hækkunar skatta og
gjalda núna.
GEGN hagsmunagæslu fjórflokksins
Brostin kosningaloforð og stórfurðuleg hegðun borgarfulltrúa eru undirrót
stofnunar REYKJAVÍKURFRAMBOÐSINS. Við teljum nauðsynlegt að færa
völdin frá bákninu til fólksins og ætlum að koma á fjárhagslega sjálfstæðum
hverfaráðum sem eru kosin af íbúum og fara með vald til ákvarðana um innri
framkvæmdir og skipulagsmálefni hvers hverfis.
BÆTT skipulag eykur hagsæld
REYKJAVÍKURFRAMBOÐIÐ ætlar að bæta skipulag í borginni með þéttingu
byggðar. Það dregur verulega úr óhagræði í skipulagi og samgöngum og
sparar borgarbúum stórfé í rekstri bifreiða og viðhaldi ásamt því að draga
verulega úr þeim tíma sem við í dag eyðum í bílum eða strætisvögnum.
VERJUM velferðarkerfið og sköpum störf
Með því að bakfæra þann niðurskurð sem þegar hefur orðið í
grunnþjónustu við borgarbúa, velferðarkerfinu og í framkvæmdum munum
við bæta hag borgarbúa að nýju. Lausnin liggur í nýtingu eigna borgarinnar.
Með því að skipuleggja Vatnsmýrina sem íbúabyggð skapast samstundis
mikil verðmæti sem við viljum verja til að bæta hag borgarbúa allra. Það
fjármagn getur veitt ýmsum framkvæmdum aukinn kraft og viljum við beita
okkur sérstaklega fyrir byggingar- og viðhaldsverkefnum. Þar skapast
samstundis fjölmörg störf fyrir iðnaðarmenn og annað menntafólk sem við
annars missum úr landi.
Reykjavíkurframboðið
ó h á ð f r a m b o ð u m h a g s m u n i R e y k v í k i n g a