Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Side 26
TÍUNDU MARAÞON- TÓNLEIKARNIR Tíundu Maraþontónleikar Kárs- neskóranna fara fram í Salnum á laugardaginn. Um fjögur hundruð börn standa fyrir samfelldri söng- dagskrá frá klukkan níu að morgni til klukkan fjögur um daginn og ljúka þannig 35. starfsári kórsins. Þetta er í níunda sinn sem kórarnir efna til Maraþontónleika en þeir eru haldnir annað hvert ár og hafa notið mikilla vinsælda hjá bæjarbúum og öðrum velunnurum kóranna. Verð aðgöngumiða er 2.000 krónur og eru kaffiveitingar innifaldar í verð- inu. Ókeypis er fyrir þrettán ára og yngri í fylgd með fullorðnum. UM HELGINA OPINSKÁIR BRÆÐUR Dansverkið Bræður var frumsýnt á Listahátíð í gær en síðari sýningin fer fram í Þjóðleikhúsinu í kvöld, föstudag. Verkið er um karlmenn þar sem dans, leikur, tónar og sjónlist mætast með djörfum og kraftmiklum hætti, segir í tilkynningu. Samskipti kynjanna og kynhlutverk eru sýnd í óvenjulegu og opinskáu samhengi þar sem meðal annars er fjallað um erjur og ástríður, trú og tungumál, sátt og sundurlyndi. Bræður er hugverk Ástrósar Gunnarsdóttur, Láru Stefánsdóttur og Hrafnhildar Hagalín. HOLLENSKT DAUÐAROKK Hollensku goðsagnirnar í Pesti- lence spila á Sódómu Reykjavík í kvöld, föstudag. Pestilence heyrir til þeirra sveita sem eiga öruggt sæti í Hall of Fame dauðarokks- ins, segir í tilkynningu. Bandið var stofnað 1986 og gaf út nokkr- ar verulega áhrifaríkar plötur á árunum 1989 til 1993. Sveitin kom saman eftir langt hlé fyrir tveimur árum og gaf út plötu í fyrra sem heitir Resurrection Macabre. Í kjölfarið hefur sveitin verið bókuð til að spila á stærstu þungarokkshátíðum heims en hún kemur við á Íslandi á leið sinni til Bandaríkjanna þar sem hún túrar í maí og júní. Tónleik- arnir byrja klukkan 23, miðaverð er 2.000 krónur. 26 FÖSTUDAGUR 28. maí 2010 Leikritið Klæði eftir Berg Ebba Benediktsson frumsýnt: UNGIR LISTAMENN SAMEINAST BENEDIKT Á GLJÚFRASTEINI Benedikt Erlingsson fjallar um leikgerð Þjóðleikhússins á Íslands- klukkunni eftir Halldór Laxness á Gljúfrasteini á sunnudaginn. Ís- landsklukkan í leikgerð Benedikts var frumsýnd í apríl síðastliðnum. Hann mun gefa tæknilega sýn inn í þá vinnu sem leikhús og leikstjór- ar þurfa að vinna til þess að koma skáldverki á svið. Benedikt ætl- ar einnig að fjalla um hefðbundin vinnubrögð vestræns leikhúss og hvernig þessum vinnubrögðum var beitt við nýja leikgerð Íslandsklukk- unnar. Spjallið hefst klukkan 16, að- gangseyrir er 800 krónur. Það eru margir ungir og kraftmiklir listamenn sem koma að leikverkinu Klæði sem frumsýnt er á sunnudag í nýja leikhúsinu Norðurpólnum sem er úti á Seltjarnarnesi. Bergur Ebbi Benediktsson er höfundur verks- ins en Halldór Halldórsson, bet- ur þekktur sem Dóri DNA, leikstýr- ir því. Þeir félagar eru ekki ókunnir hver öðrum en þeir eru partur af uppistandshópnum Mið Íslandi sem hefur gert það gott undanfarið. Þá eru margir ungir og efnilegir leik- arar sem fara með hlutverk, þau Hjörtur Jóhann Jónsson, Ólafur Ás- geirsson, Sara Margrét Nordahl og Snorri Engilbertsson. Snorri lék eitt af aðalhlutverkunum í vinsælustu mynd landsins árið 2007, Astrópíu, en hann hefur einnig verið að gera það gott í þáttunum Steindinn okk- ar sem nú er sýndur á Stöð 2 ásamt Hirti Jóhanni. Þá kannast eflaust flestir landsmenn við Söru Margréti úr kvikmyndinni Bjarnfreðarson og undanförum hennar, Nætur-, Dag- og Fangavaktinni. Þar fór hún með hlutverk Ylfu Daggar, eiginkonu Daníels. Að lokum er það svo Snorri Helga- son sem sér um tónlistina í verkinu en hann er söngvari hinnar vinsælu hljómsveitar Sprengjuhöllin. Miðasölu og nánari upplýsingar er að finna um verkið á midi.is. ÆTLUM EKKI Á KENNITÖLUFLAKK Plötuútgáfan Geimsteinn í Keflavík er elsta starfandi plötuútgáfa landsins. Sjö diskar koma út á vegum útgáfunnar í sum- ar, þar á meðal nýjasta plata hljómsveitar- innar Deep Jimi and the Zep Creams en forsprakki hennar, Júlíus Guðmundsson, er jafnframt einn þriggja starfsmanna Geimsteins. Hann segir fyrirtækið hafa haft sömu kennitölu í 34 ár og ætlunin sé að halda því þannig. „Við ákváðum að fá öndverðan pól í þetta með okkur og fengum því Þor- vald Bjarna Þorvaldsson til þess að klára plötuna með okkur. Útkom- an er mjög góð. Þetta er gott rokk og ról,“ segir Júlíus Guðmundsson, einn meðlima hljómsveitarinnar Deep Jimi and the Zep Creams. Á dögunum kom út fjórða plata bandsins og eins og Júlíus lýsir tóku félagarnir aðeins annan vink- il í gerð hennar en á fyrri plötum. Hann segir aðspurður að aðkoma Þorvaldar Bjarna að pródúksjón- inni skili sér að einhverju leyti í hljómnum. „Já, þetta er svona ekki alveg jafnhrátt og við erum þekktir fyrir. Það er hráleiki og rokk þarna, en þetta er svona fágaðra.“ Eftir sem áður semja hljómsveitarmeðlimir lögin sjálfir án íhlutunar Þorvald- ar. „Hann hafði samt hönd í bagga með að velja lög á plötuna. Við tók- um upp fleiri og hann valdi svo úr í samstarfi við okkur. Eftir sitja ellefu lög sem allir voru sammála um, og hvergi veikan blett að finna,“ segir Júlíus í léttum dúr. Titill plötunnar er Better when We are Dead sem jafnframt er nafn eins laganna ellefu sem sluppu í gegnum nálaraugað. Að sögn Júlíusar er ekki þunglyndistónn í plötunni þrátt fyr- ir að heiti hennar gæti bent til ann- ars. „Það má segja að við séum und- erground-hljómsveit, alla vega ekki beint mainstream. Það er oft með svoleiðis hljómsveitir að þegar þær loks hætta fer fólk að uppgötva þær. En maður veit ekki hvað gerist,“ segir Júlíus sposkur. „Annars má leika sér endalaust að skýringum á þessum orðaleik, en það er allavega hægt að hafa gaman af þessari skýringu.“ Sjö platna sumar Júlíus er ekki einungis forsprakki Deep Jimi and the Zep Creams heldur líka einn þriggja starfs- manna plötuútgáfunnar Geimsteins í Keflavík, elstu starfandi plötuút- gáfu á landinu. Foreldrar Júlíus- ar, Rúnar Júlíusson og María Bald- ursdóttir, stofnuðu Geimstein árið 1976 og hafa í kringum tvö hundruð og fimmtíu plötur komið út undir merkjum útgáfunnar síðan þá. Auk nýja disksins með Deep Jimi eru sex diskar væntanlegir frá útgáfunni í sumar. Þar á meðal er plata með Bjartmari Guðlaugssyni og Bergris- unum, diskur með hljómsveitinni Klassart sem skipuð er tveimur syst- kinum úr Sandgerði og vakti nokkra athygli fyrir nokkru með laginu Ör- lagablús, og diskur frá Erpi Eyvind- arsyni sem er hans fyrsta sólóplata. Síðastnefnda platan mun með- al annars innihalda lög sem notið hafa nokkurra vinsælda undanfarin misseri, þar á meðal Viltu dick? og Stórasta land í heimi. Einnig gefur Geimsteinn út tvær nýjar frumraunir. Annars vegar með hljómsveitinni Lifun þar sem Lára Rúnarsdóttir er söngkona en þess má einnig geta að bróðursonur Júlí- usar er í bandinu. Hin frumraunin er frá hljómsveitinni Valdimar úr Kefla- vík. „Ef maður sér þessa hljómsveit spila gleymir maður því ekkert. Hún á pottþétt eftir að vekja athygli,“ full- yrðir Júlíus og lýsir tónlistinni sem þróaðri og um leið áheyrilegri með flottum og einlægum textum. Þá er ónefnd fyrsta hljóðversplata hljóm- sveitarinnar Breiðbandsins sem skipuð er þremur keflvískum piltum með mikinn húmor. Kollvörpum ekki hugmyndafræðinni Júlíus segir Geimstein hafa gef- ið út sex til sjö plötur á ári þegar mest hefur látið. Aðeins minna umfang var í útgáfunni á síðasta ári en árin þar á undan sem helg- ast fyrst og fremst af andláti Rún- ars, föður Júlíusar, í lok árs 2008. Af þeim diskum sem komu út í fyrra má nefna upptöku af tónleik- unum sem haldnir voru til minn- ingar um Rúnar og endurútgáfu á fyrstu sólóplötu hans. Júlíus Guðmundsson Hefur nóg að gera við að gefa út sjö diska undir merkjum Geimsteins í sumar auk þess að fylgja eftir útgáfu disks með hljómsveit sinni, Deep Jimi and the Zep Creams. MYND HEIÐA HELGADÓTTIR Bergur, Dóri og Snorri Eru meðal þeirra sem koma að leikverkinu Klæði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.