Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Síða 52
52 föstudagur 28. maí 2010 útlit
Thelma Björk Jónsdóttir fatahönn-
uður er þekkt fyrir hönnun
sína á fallegum höfuðföt-
um. Hún hefur í nokkur
ár hannað spangir sem
hafa vakið athygli á
heimsvísu og und-
anfarið hafa hattar
skipað stærri sess í
hönnun hennar.
Thelma og Lou-
ise á Seyðisfirði
Thelma ákvað
á dögunum að
leggja land und-
ir fót og setjast að
í Seyðisfirði sumar-
langt. „Ég hef alltaf
verið hrifin af Seyð-
isfirði en aldrei kom-
ið þangað áður. Mig
langaði að komast að-
eins í burtu og Seyðisfjörð-
ur varð fyrir valinu. Ég pakk-
aði öllu mínu niður, sast upp í litla
bílinn minn og keyrði af stað.“ Með í
för var hundurinn hennar Thelmu,
Louise, og litli bróðir hennar. „Í
rauninni var eina planið hjá
mér að gera engin plön.“
Hún segir Seyðisfjörð
vera yndislegan stað.
„Þetta er í raun önnur
pláneta, mér hefur
aldrei liðið jafn vel.
Þetta er eins og að
vera í hleðslu.“
Innblástur frá
náttúrunni
Á daginn vinnur
hún á kaffihúsi en
á kvöldin vinnur
hún að nýrri línu.
„Ég er í rannsókn-
ar- og skissuvinnu
og ætla að leyfa lín-
unni að þróast hægt
og rólega með mér inn í
sumarið.“ Hún segist verða
fyrir miklum áhrifum af nýju
umhverfi sínu og það komi til
með að vera innblástur fyrir nýju
línuna hennar. „Ég skissa niður það
sem verður fyrir sjónum mínum hér.
Náttúran, húsin, litirnir, form
og annað.“
Hattar í
aðalhlutverki
Línan sem Thelma
vinnur að á kvöld-
in hefur aðallega
að geyma hatta.
„Það verður eitt-
hvað af spöng-
um en þó aðallega
hattar. Ég hef allt-
af saumað hatta
með en einblínt
meira á spangirnar
nema í síðustu línu
sem ég gerði.“ Hún
frumsýndi þá línu
á Reykjavík Fashion
Festival og hlaut mik-
ið lof fyrir. Fyrir þá línu
sótti Thelma áhrif í kven-
ofurhetjur og skáta. „Ég og
Guðjón vinur minn sem gerir lín-
una „Go with Jan“ sýndum saman
á RFF. Við eigum í leynilegu tísku-
ástarsambandi og elskum að
sýna vörurnar okkar saman.
Við vildum búa til mikla
sýningu og hafa „atti-
tjúd“ í sýningunni.“
Þeim tókst það vel
upp því þau fengu
til liðs við sig stælt
fitnessmódel sem
sýndu hönnun-
ina. Sú lína verður
til sölu í Nakta ap-
anum sem er ver-
ið að opna aftur,
nú á Laugavegi.
Spangirnar hennar
Thelmu er svo hægt
að nálgast í Mýrinni
í Kringlunni og GK
Laugavegi.
Strákalína í haust
Það er ýmislegt í gangi hjá
Thelmu. „Fyrir nýju línuna er
ég í svipuðum hugleiðingum og
ég var fyrir RFF. Ég er enn upptek-
in af kvenofurhetjum og leyfi því að
blandast inn í íslenska náttúru, eitt-
hvert sveitalíf. Svo er ég líka að skoða
að koma jafnvel með strákalínu eft-
ir sumarið, þá strákahatta,“ segir
Thelma og er greinilega innblásin af
hugmyndum úr sveitaloftinu á Seyð-
isfirði. „Ég ætla að leyfa þessu að rek-
ast eitthvað inn í sumarið og fer svo
í framleiðslu á nýju línunni beint í
haust. Það er bara himnaríki á jörði
að vera hérna. Fólkið hérna er svo
einlægt og yndislegt.“
viktoria@dv.is
Thelma Björk Jónsdóttir ákvað að setjast að á Seyðisfirði yfir sumarið. Þar vinnur
hún að nýrri hattalínu og sækir innblástur í náttúruna, húsin, fólkið og formin allt
í kringum sig. Hún hyggst stækka línuna sína og jafnvel koma með strákalínu eftir
sumarið.
Kvenofurhetjur
og sveitin mætast
í hönnun thelmu
Fór út á land í leit að innblæstri
Thelma hélt á vit ævintýranna
með Louise og spókar sig nú um á
strigaskóm á Seyðisfirði.
Tískudrósin
elísabet Alma Svendsen
fatahönnunarnemi
Hvað er nauðsynlegt í fataskáp-
inn fyrir sumarið? Ökklasíður og
léttur, sumarlegur blómakjóll, fallegur,
munstraður samfestingur og fullt, fullt af
litríkum sokkabuxum!
mynd Saga SIg.
Blómailmur
frá Burberry
Burberry-tískuhúsið var að senda frá
sér nýjan ilm, Burberry Sport. Ilmur-
inn fylgir sportlínu tískuhússins sem
inniheldur ekki aðeins fatnað held-
ur einnig gleraugu, töskur, fylgihluti,
úr og nú ilm. Rautt gúmmíarmband
fylgir líka hverri keyptri flösku. Ilm-
urinn kemur bæði í dömu- og herra-
útgáfu og er sá kvenlegi ferskur
blómailmur á meðan karlmanns-
ilmurinn er viðarkennd-
ur sítrusilmur. Eins og
nafnið gefur til
kynna
eru þeir
báðir
léttir og
frísklegir.
Nýir íslenskir húðdropar hafa vak-
ið mikla athygli undanfarið. Verkun
dropanna á húð hefur verið líkt við
kraftaverk þar sem þeir bæði yngja og
styrkja húðina.
Þeir eru líka sagðir vera mjög góð-
ir við þurri húð og húðsjúkdómum
tengdum henni. Það er íslenska fyrir-
tækið Sif Cosmetics sem á heiðurinn
af þessari nýju húðvöru. Framleiðsl-
an er íslensk og varan inniheldur
engin rotvarnarefni, engin aukaefni
og er ekki prófuð á dýrum. Sif Cos-
metics sérhæfir sig í að þróa og selja
snyrtivörur með sérvirk-
um próteinum. Sérvirk
prótein eru í líkaman-
um en sum húðprótein
minnka eða brotna
niður með aldrinum.
Dropunum er ætl-
að að gefa húðinni
aftur það sem hef-
ur tapast með aldri
og árum. Droparn-
ir eru líka á mjög
góðu verði sem ætti
að vera viðráðan-
legt flestum þeim
sem vilja styrkja eða
yngja upp húð sína.
Íslenskir
húðdropar
gegn öldrun
Kringlótt sólgleraugu í sumar
Nú þegar sólin er farin að skína á
okkur eftir langa vetrarmánuðina
er mjög mikilvægt að eiga góð sól-
gleraugu. Falleg sólgleraugu sem
vernda augun fyrir sterkum sólar-
geislunum eru nauðsynleg á hvert
nef fyrir heita sumardaga. Þau eru
líka sá fylgihlutur sem maður not-
ar hvað mest yfir sumarmánuð-
ina, og jafnvel fram á vetur.
Líkt og undanfarin ár halda
sólgleraugun áfram að vera stór
en fara þó minnkandi miðað við
undanfarin ár. Það allra heitasta
þetta sumarið er kringlótt sólgler-
augu í anda John Lennon – í alls
konar útfærslum, stór og lítil, og í
hinum ýmsu litum. Vintage gleraugu
Carolina Herrera
Ralph Lauren
Sonia Rykiel