Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Blaðsíða 6
6 föstudagur 28. maí 2010 fréttir gísli hræddur við Besta flokkinn n Gísli Marteinn Baldursson, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, skelfur á beinunum þessa dagana af ótta við að hann muni missa starf sitt í sveitarstjórna- kosningunum um helgina. Ótti borgarfulltrúans við atvinnuleysi mun meðal annars beinast að Besta flokknum en sá flokkur hefur mælst stærstur í síðustu skoðanakönnunum. Gísli Marteinn er í fimmta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í borginni og er tæpur að ná inn í borgarstjórn út af uppgangi Besta flokksins. Gísli mun meðal annars hafa látið þessa óánægju sína í ljós við einhverja í Besta flokknum og barmað sér sáran yfir framboði þeirra. dýrasta ráðning íslandssögunnar? n Talan 11.000 drynur nú hátt ofan úr Hádegismóum en traustar heimildir herma að svo margir áskrifendur hafi sagt upp blaðinu í kjölfar ritstjóra- skiptanna í fyrra þegar Davíð Oddsson tók við starfinu af Ólafi Stephensen. Mikið hefur verið skrafað upp um hversu margir hafi hætt að kaupa Morgunblaðið í áskrift eftir ritstjóraskiptin en þessi tala mun vera sú rétta. Reiknast mönnum svo til að áskrifendafækk- unin þýði tekjumissi hjá útgáfufélagi Morgunblaðsins upp á um 600 milljónir króna á ári. Ef Davíð Oddsson verður ritstjóri í þrjú ár þýðir það að ráðning hans mun hafa kostað útgáfufélagið um 1.800 milljónir króna. Segja sumir að ráðning Davíðs kunni því að vera ein sú dýrasta í Íslandssögunni. deilur Mogga- ritstjóra n Ólafur Stephensen fékk reyndar ekki aðeins að finna til tevatnsins eftir að Morgunblaðið komst í hendur nýrra eigenda og honum var sparkað út úr Hádegismóum fyrir að vera ekki með réttar skoð- anir á Evrópu- málum. Sagan segir nefnilega að skömmu eftir að Ólafur tók við ritstjórastarfinu af Styrmi Gunnarssyni árið 2008 hafi fyrirrennari hans sent honum pillu sem varla er hægt að skilja nema sem hótun. Þá sagði Styrmir við Ólaf, eftir að sá síðarnefndi hafði látið hann vita að blaðið hefði ekki efni á að kaupa af honum vikulega pistla fyrir morð fjár, að hann yrði þá ekki lengi ritstjóri Morgunblaðsins fyrst hann neitaði honum um greinarnar og aurinn fyrir þær. Styrmir mun svo hafa unnið gegn Ólafi á laun vegna þessa. Björgólfur góður við styrMi n Ástæðan fyrir því að Styrmir mun hafa sótt það hart að skrifa pistlana dýru í Moggann er sú að hann var fjárþurfi en al- kunna er hversu bág fjárhagsstaða hans hefur verið síðustu ár þrátt fyrir rífandi tekjur um langt skeið. Þannig segir sagan að á meðan Styrmir stýrði Mogganum hafi hann fengið lífeyrinn sinn greiddan út tvisvar. Í seinna skiptið mun eigandi Morgun- blaðsins, Björgólfur Guðmundsson, hafa séð aumur á honum og borgað honum út lífeyri jafnvel þótt hann hafi ekki þurft þess, enda er gjafmildi Björgólfs alkunn þótt hann megi gagnrýna fyrir ýmislegt annað. sandkorn Hallgrímur Kjartansson, heimilis- læknir á Þingeyri og einn eigenda fyrirtækisins Álfsfells, segir ástæð- una fyrir mikilli skuldsetningu fyr- irtækisins vera vegna kaupa á afla- heimildum. „Við erum búin að kaupa mikinn kvóta og allan kvóta sem við eigum höfum við keypt,“ segir Hallgrímur en hann kom inn í fyrirtækið árið 2002. „Til þess að geta rekið útgerðina allt árið var annaðhvort að kaupa kvóta eða gera ekkert. Við völdum að veðja á það að reyna að byggja það upp og kaupa veiðiheimildir fyrir lánsfé. Það var engin leið önnur en að taka erlend lán fyrir þessum kaupum,“ segir Hallgrímur, en tólf til fimmtán manns vinna hjá Álfsfelli og fyrir- tækið á um 540 tonna kvóta í þorsk- ígildum talið. Það gerir út bátinn Lúkas og rekur einnig þorskeldi. Fyrningarleið myndi skaða Hallgrímur er sambýlismaður Birnu Lárusdóttur, forseta bæjar- stjórnar Ísafjarðarbæjar og ann- ars varaþingmanns Sjálfstæðis- flokksins, fyrir Norðurland vestra. Hann segir sambýliskonu sína ekk- ert koma nálægt rekstri fyrirtækis- ins. „Hún á ekki neitt í þessu fyrir- tæki.“ Spurður hvort hann telji það skarast að sambýliskona hans sé í pólitík og dyggur stuðningsmaður kvótakerfisins, en Birna hefur talað mjög gegn fyrningarleið aflaheim- ilda. „Nei, ég sé það nú ekki,“ seg- ir Hallgrímur og bætir við. „Það er alveg ljóst að fyrningarleið myndi grafa undan mínu fyrirtæki og öll- um fyrirtækjum reyndar. Þessi um- ræða hefur staðið nokkuð lengi og við höfum reynt að sýna fram á það að hagsmunirnir til dæmis hjá þessu fyrirtæki eru víðar en bara hjá eigendum þess.“ Talað opinberlega „Það er engin pólitísk hlið eða teng- ing í þessu við sambýliskonu mína. Við höfum talað opinberlega fyr- ir hagsmunum þessa fyrirtækis og mjög sterkt gegn breytingum á fisk- veiðistjórnunarkerfinu sem nú hafa verið ræddar. Þær munu allar grafa undan rekstri fyrirtækisins og þeirri uppbyggingu sem hefur átt sér stað í því. Allt sem við höfum gert frá byrjun höfum við gert á löglegan og heiðarlegan hátt,“ segir Hallgrímur. Leigir mun meira frá sér Þegar tölur frá Fiskistofu eru skoð- aðar varðandi Álfsfell kemur í ljós að fyrirtækið hefur leigt frá sér tæp- lega eitt þúsund tonn af þorski frá fiskveiðiárinu 2007 til 2008. Tölurn- ar sýna að fyrirtækið er að leigja meiri afla frá sér en til sín. Hall- grímur segir ástæðuna vera þá að útgerðinni hafi vantað aðrar teg- undir og þá sérstaklega steinbít. „Við höfum hins vegar alltaf leigt frá okkur þorsk en til okkar steinbít, ýsu og aðrar tegundir eftir því sem báturinn þarfnast. Þannig að mest af þessu eru skipti á tegundum,“ segir Hallgrímur. Í tölunum frá Fiskistofu kem- ur fram að fyrirtækið leigir á þess- um árum frá sér tæplega 60 tonn af ýsu en til sín leigir fyrirtækið tæp- lega 490 tonn af ufsa og tæplega 280 tonn af steinbít. Spurður hvort Hallgrímur hafni því að þarna sé um kvótabrask að ræða svarar hann: „Já, algjörlega. Þetta sveifl- ast til og frá. Eitt árið erum við að láta meira frá okkur. Þetta ár mun- um við taka meira til okkar. Ef mað- ur reynir ekki að nota það rými sem fiskveiðikerfið bíður upp á, þá nátt- úrlega gengur þetta ekki. Maður verður að reyna að hámarka þetta eins og mögulegt er.“ Mikill ávinningur Að sögn Hallgríms lét fyrirtæk- ið smíða bát sem tók lengri tíma en áætlað var. Af þeim sökum hafi fyrirtækið leigt meira frá sér en til sín. Spurður hvort ekki sé einfald- lega verið að leigja frá sér dýra fisk- inn og leigja til sín þann ódýra seg- ir Hallgrímur það ekki vera. „Þegar þú ert að veiða kemur alls konar fiskur í land og þú þarft þá að miðla tegundum þarna á milli. Af því allur okkar kvóti er í þorski þá verðurðu að leigja hann frá þér til þess að borga innkaupin á hinum tegund- unum og til að borga af hlutfalls- lega hærra láni en annars hefði ver- ið,“ segir Hallgrímur og vísar til þess að það hafi bitnað illa á fyrirtækinu þegar kvótinn var skertur um nærri þriðjung. „Þú notar ekki þessa pen- inga sem fást fyrir útleigu til að borga arð út úr fyrirtækinu. Þess- ir peningar fara beint í bankann,“ segir Hallgrímur en samkvæmt töl- um Fiskistofu um útgerð Álfsfells sést að ávinningur fyrirtækisins af útleigu á þorski getur verið á bilinu 150 til 175 milljónir króna frá fisk- veiðiárinu 2007 til 2008. Peningar sem að sögn Hallgríms hafa runn- ið til bankans. Sem dæmi leigir fyr- irtækið frá sér kvóta árið 2007 fyrir tæpar 60 milljónir samkvæmt árs- reikningi, en til sín fyrir rúmar sex milljónir. Ávinningurinn á árinu 2007 var því um 54 milljónir króna. Miklar skuldir Heildarskuldir Álfsfells eru um tveir milljarðar króna og segist Hall- grímur vera í viðræðum við Kaup- þing sem er stærsti lánardrottinn fyrirtækisins. Spurður hvort hann sé bjartsýnn á að það takist að semja um skuldir fyrirtækisins seg- ist hann vera það. „En ég veit ekkert hvort það tekst. Hins vegar er fyrir- tækið vel rekið og á eins hagkvæm- an hátt og hugsast getur. Við bræð- urnir sem rekum fyrirtækið höfum sáralítinn arð tekið út úr fyrirtæk- inu og engan eftir hrun bankakerf- isins.“ Sem dæmi leigir fyrirtækið frá sér kvóta árið 2007 fyrir tæpar 60 milljónir sam- kvæmt ársreikningi, en til sín fyrir rúmar sex milljónir. jÓhanneS Kr. KriSTjánSSOn blaðamaður skrifar: johanneskr@dv.is er eðlilegt að þú sért í pólitík með þessa hagsmuni? „Ég er náttúrlega ekki eigandi að þessu fyrirtæki, ég sit ekki í stjórn og kem ekki að daglegum rekstri fyrirtækisins.“ en hagsmunirnir eru klárir? „Klárlega eru hagsmunir í húfi - ég er alveg sammála þér í því. Það er hægt að telja upp ýmis dæmi þess að stjórnmálamenn séu hagsmuna- tengdir og svo fremi sem það er öllum ljóst sé ég ekkert því til fyrirstöðu, á meðan að maður er ekki að gera einhverjar tilraunir til að hylma yfir þau hagsmunatengsl. Það hefur alltaf legið fyrir, fyrir hvað ég stend í pólitík og það er öllum ljóst hvernig ég tengist inn í sjávarútveginn.“ Þannig að þér finnst það ekkert skaða trúverðugleika þinn að þetta sé svona? „Mér finnst það ekki en aðrir verða bara að eiga það við sig ef þeim finnst það. Ég hef eins og ég segi alltaf gert grein fyrir þessum hagsmunatengslum. Hafi einhver mál til dæmis komið inn á borð bæjarstjórnar þar sem sérstaklega þarf að taka afstöðu til mála, en fyrir það fyrsta eru þessi mál ekki inni, formlega á borðum sveitarstjórna en þetta er auðvitað til umræðu, og sé eitthvað til ákvarðanatöku sem tengist sjávarútvegi hef ég ávallt vikið af fundum.“ en er þetta ekki óheppilegt? „Vafalaust kann einhverjum að þykja það. Ég get ekkert dregið dul yfir það hver ég er eða hverjum ég tengist í atvinnulífi í sveitar- félaginu mínu. Ég held nú að það sé leitun að stjórnmálamönnum sem tengjast ekki með einum eða öðrum hætti einhverju sem að getur orðið hagsmunatengt inn á borði sveitarstjórna - nefnum sem dæmi verkalýðshreyfinguna. Ég efast um að þú finnir mjög marga sem ekki tengjast með einhverjum hætti einu eða öðru.“ en hvað með siðferðilegu hliðina? „Mér finnst ég nú eiginlega bara vera búin að svara því. Ég tel mig alla tíð hafa verið fullkomlega innan allra siðferðismarka í störfum í pólitík.“ Birna LáruSDÓTTir: aldrei falið tengslin „Klárlega hags- munir í húfi“ Útgerðarfyrirtækið Álfsfell á Ísafirði skuldar um tvo milljarða króna vegna kvóta- kaupa. Birna Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar og annar varaþing- maður Sjálfstæðisflokksins, er sambýliskona eins eigenda fyrirtækisins. Hún hefur talað mjög gegn fyrningarleið í sjávarútvegi. Sambýlismaðurinn segir fyrningarleið skaða fyrirtækið. Ísafjörður Útgerðarfélagið Álfsfell á Ísafirði skuldar um tvo milljarða króna eftir hrun og eru skuldirnar tilkomnar vegna kvótakaupa. MynD SiGurður GunnarSSOn Læknirinn Hallgrímur Kjartansson segir sambýliskonu sína ekki koma nálægt rekstrinum á Álfsfelli. Hann segir allt uppi á borðum hjá fyrirtækinu. MynD BB.iS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.