Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Blaðsíða 37
28. maí 2010 föstudagur 37 áfengi? Reykt hass? Ég hef prófað allt sem Obama hefur prófað.* 10. Hefur þú lent í klóm ræningja? Nei, sem betur fer ekki. 11. Hefur þú verið tekinn af lögreglunni? Já, en yfirleitt bara í góðu. 12. Ef þú ættir heima í öðrum heimi, hvar væri það? Í Kardimommubæ. 13. Hvað er það sem þú myndir helst vilja prófa? Sjá? Gera? Gera Reykjavík fallega og skemmtilega heimsborg. 14. Hvað er besta stundin sem þú hefur upplifað? Þegar ég kynntist konunni minni. Sú stund varir enn. 15. Hvenær og hvern kysstir þú síðast? Son minn þegar ég kvaddi hann í leikskólan- um. 16. Hefur þú gleymt afmælisdegi ein- hvers sem skiptir þig máli? Já. 17. Hvenær gleymdir þú barninu þínu síðast? Ég man það ekki. 18. Hver er einmanalegasta stundin sem þú hefur upplifað? Ég er ekki til í að deila því. 19. Hver er albesta máltíð sem þú hefur fengið? Mér finnst allur matur ágætur. 20. Hefur þú svikið einhvern? Ekki vilj- andi. Það stríðir gegn eðli mínu. 21. Biðst þú afsökunar á mistökum þín- um? Ef já, hvernig? Já, en ég geri aldrei mis- tök, en þegar ég geri þau þá er ég fyrstur manna til að biðjast afsökunar. 22. Hvað er það fyndnasta sem þú hefur séð eða heyrt? Pétur Jóhann Sigfússon. 23. Hvað er það síðasta sem þú gerir á kvöldin áður en þú ferð að sofa? Loka aug- unum. 24. Hvernig heilsar þú fjölskyldunni þeg- ar þið vaknið á morgnana? Með gleði. 25. Hvað yrði þitt fyrsta verk í hlutverki hins kynsins ef það myndi breytast? Ganga í Besta flokkinn. 26. Hversu mörg kosningaloforð telur þú að þú getir staðið við? Það fer eftir kosningu. 27. Hvað er það versta sem þér hefur tek- ist að fyrirgefa? Mannlegir breyskleikar. 28. Hvert er eftirminnilegasta ferðalagið sem þú hefur farið í? Asoreyjar 2001. 29. Hver er stærsta stundin í þínu lífi? Dagurinn í dag. 30. Hver er þinn æðsti draumur? Að láta eitthvað verulega gott og skemmtilegt af mér leiða. * Hass og kókaín Hefur aldrei svikið fjallkonuna Ólafur F Magnússon, oddviti framboðs um heiðarleika og almannahagsmuni 1. Hvað gerðir þú síðasta laugardagskvöld? Ég sat í sólskálanum heima og hlustaði á „Freyju“ Magnúsar Þórs Sigmundssonar. 2. Hver var þín fyrsta hugsun í morgun? Að koma mér á fætur og hefja stórhreingerningu á heimili mínu. 3. Hvað lýsir þér best? Víkingaeðlið. 4. Hver er fyrsta minning þín úr æsku? Þeg- ar ég horfði lengi framan í karlinn í tunglinu, frá heimili mínu í Washington D.C. 5. Hvar, hvenær og hvernig var fyrsti kossinn? Það var eftir gagnfræðaskólaball alllöngu eftir að Hljómar kyrjuðu um efnið. 6. Hefur þú einhvern tímann fengið sælu- hroll? Ef já, hvenær og af hverju? Já, þegar ég horfði sigri hrósandi yfir hina ginnhelgu Eyja- bakka af tindi Snæfells, sumarið 2000. 7. Hvað er það villtasta sem þú hefur gert? Þeg- ar ég fór með Agli syni mínum í öll villtustu tækin í Universal Studios í Hollywood í fyrrasumar. 8. Hefur þú verið nakinn í óbyggðum? Nei. 9. Hefur þú prófað fíkniefni önnur en áfengi? Reykt hass? Að sjálfsögðu ekki. 10. Hefur þú lent í klóm ræningja? Nei. 11. Hefur þú verið tekinn af lögreglunni? Nei. 12. Ef þú ættir heima í öðrum heimi, hvar væri það? Í heimi ása og jötna. 13. Hvað er það sem þú myndir helst vilja prófa? Sjá? Gera? Koma í veg fyrir fleiri niður- greidd náttúruspjöll á Íslandi. 14. Hver er besta stundin sem þú hefur upp- lifað? Fæðingar barna minna. 15. Hvenær og hvern kysstir þú síðast? Kær- ustuna mína. 16. Hefur þú gleymt afmælisdegi einhvers sem skiptir þig máli? Já. 17. Hvenær gleymdir þú barninu þínu síð- ast? Ég gleymi ekki börnunum mínum, né börn- um yfirleitt. 18. Hver er einmanalegasta stundin sem þú hefur upplifað? Þegar ég upplifði það að vera orðinn eini náttúruverndarsinninn í Sjálfstæð- isflokknum árið 2001. 19. Hver er albesta máltíð sem þú hefur fengið? Það voru rjúpumáltíðirnar á jólunum í gamla daga. 20. Hefur þú svikið einhvern? Vafalaust, en ekki Fjallkonuna og framtíð Íslands. 21. Biðst þú afsökunar á mistökum þínum? Ef já, hvernig? Já, ég geri það oft, enda er ég fyrst og fremst vandvirkur læknir fremur en stjórn- málamaður. 22. Hvað er það fyndnasta sem þú hefur séð eða heyrt? Það þegar framsóknarmenn segjast „trúa á hið góða í manninum“. 23. Hvað er það síðasta sem þú gerir á kvöld- in áður en þú ferð að sofa? Hringi í 118 og bið um vakningu. 24. Hvernig heilsar þú fjölskyldunni þegar þið vaknið á morgnana? „Jæja, eigum við ekki að fara á fætur núna?“ 25. Hvað yrði þitt fyrsta verk í hlutverki hins kynsins ef það myndi breytast? Ég get ekki ímyndað mér hvernig ég myndi höndla það að öðlast yfirburði hins kynsins. 26. Hversu mörg kosningaloforð telur þú að þú getir staðið við? Ég stend ávallt við orð mín, engin undantekning finnst á því. 27. Hvað er það versta sem þér hefur tekist að fyrirgefa? Ég er lítið fyrir að fyrirgefa þeim sem hafa eyðilagt framtíð barnanna okkar. 28. Hvert er eftirminnilegasta ferðalagið sem þú hefur farið í? Það var ferð um „undra- veröld Jöklu og Kringilsárrana“ sumarið 2004. 29. Hver er stærsta stundin í lífi þínu? Sig- urinn í Eyjabakkadeilunni og fæðing barnanna minna. 30. Hver er þinn æðsti draumur? Að Ísland siðvæðist og komið verði lögum yfir þá sem vís- vitandi eyðilögðu tækifærin sem við áttum. Aldrei eins einmana og í New York Sóley Tómasdóttir, oddviti Vinstri-grænna 1. Hvað gerðir þú síðasta laugardagskvöld? Planið var að hafa það gott með fjölskyldunni en ég steinsofnaði því miður um níuleytið. 2. Hver var þín fyrsta hugsun í morgun? Ætli það séu nýjar fréttir af eldgosinu? 3. Hvað lýsir þér best? Ætli það séu ekki for- eldrar mínir og systur. Að alast upp í svona kraft- mikilli fjölskyldu hefur gert mig að því sem ég er. 4. Hver er fyrsta minning þín úr æsku? Ferða- lag með ömmu og afa til Kanaríeyja þegar ég var þriggja ára. Afi bar sjó í lekum plastpoka svo við gætum búið til hallir úr sandinum á strönd- inni. Veit ekki hvort ég man þetta í alvörunni eða hvort síendurteknar sögur ömmu og afa gera þetta svona ljóslifandi fyrir mér. 5. Hvar, hvenær og hvernig var fyrsti koss- inn? Í Færeyjum, ég var 13 ára, ljómandi fínn bara. Næstu spurningu takk. 6. Hefur þú einhvern tímann fengið sælu- hroll? Ef já, hvenær og af hverju? Ég fæ oft sæluhroll. Til dæmis þegar Svandís Svavars- dóttir kjarnakona og vinkona mín settist í stól umhverfisráðherra og ég áttaði mig á því að við vinstri-græn værum komin í stöðu til að breyta samfélaginu. 7. Hvað er það villtasta sem þú hefur gert? Það er varla prenthæft, en mér detta margar skemmtilegar aðgerðir með grasrótarsamtök- um í hug. 8. Hefur þú verið nakin í óbyggðum? Ójá. Hefði ég annars rétt á að kalla mig hippa? 9. Hefur þú prófað fíkniefni önnur en áfengi? Reykt hass? Já, ég prófaði að reykja hass einu sinni þegar ég var 18 ára. Mæli ekki með því. 10. Hefur þú lent í klóm ræningja? Það er spurning sem allir Íslendingar geta svarað ját- andi eftir það sem á undan er gengið. 11. Hefur þú verið tekin af lögreglunni? Ég hef reyndar ekki verið handtekin, en var marg- dregin með valdi frá tollhliðinu á Keflavíkur- flugvelli þegar ég var ásamt Suður-Afríkusam- tökunum að reyna að koma í veg fyrir brot á viðskiptabanninu. Það var fyrir tuttugu árum og gaman að segja frá því að baráttan um allan heim skilaði fullnaðarsigri stuttu síðar. 12. Ef þú ættir heima í öðrum heimi, hvar væri það? Heimur friðar og réttlætis. 13. Hvað er það sem þú myndir helst vilja prófa? Sjá? Gera? Ferðast um Afríku. 14. Hver er besta stundin sem þú hefur upplifað? Á tvær ógleymanlegar stundir – þeg- ar börnin mín, Anna og Tommi, fæddust. Það verður ekki toppað. 15. Hvenær og hvern kysstir þú síðast? Ég kyssti manninn minn Aart síðast í morgun. Það er alltaf jafn gaman. 16. Hefur þú gleymt afmælisdegi einhvers sem skiptir þig máli? Ójá ... Til hamingju með afmælið Fífa! 17. Hvenær gleymdir þú barninu þínu síð- ast? Ætli fólk komist ekki næst því að gleyma börnunum sínum í kosningabaráttu. Það vill til að börnin mín eru sjálfstæð og dugleg og eiga stóra og góða fjölskyldu sem passar þau vel á lokadögunum fyrir kosningarnar. 18. Hver er einmanalegasta stundin sem þú hefur upplifað? Að vera ein í heila viku á risa- stórri ráðstefnu í New York þar sem ég þekkti engan. Það er svo merkilegt að vera einmana í fjölmenni. 19. Hver er albesta máltíð sem þú hefur fengið? Við hjónin erum miklir ástríðukokkar og toppum okkur reglulega í matseldinni. Gæti til dæmis nefnt nýlega máltíð með lambalund- um, bernaise, sultuðum lauk og dýrindis salati. Humarsúpa okkar Ljósvellinga er líka dásemd, en sennilega eru rjúpurnar sem eldaðar eru samkvæmt uppskrift langalangömmu minnar á hverjum jólum það besta sem fæst. 20. Hefur þú svikið einhvern? Já, því miður. 21. Biðst þú afsökunar á mistökum þínum? Ef já, hvernig? Já. Ég reiðist auðveldlega en er jafnsnögg að jafna mig. Þessi eiginleiki kallar á hæfni til að ræða málin til enda og hreinsa and- rúmsloftið. Það gerist iðulega. 22. Hvað er það fyndnasta sem þú hefur séð eða heyrt? „You had to be there“ – eins og allt- af með verulega fyndnar uppákomur. Þegar vin- kona mín hélt ræðu heima hjá mér og það mátti bara grípa framm í með söng um umræðuefn- ið hverju sinni. Í veislunni var sérstaklega hug- myndaríkt fólk sem tókst að syngja framm í fyrir henni þannig að ræðan entist í hátt í klukkutíma. 23. Hvað er það síðasta sem þú gerir á kvöld- in áður en þú ferð að sofa? Loka augunum. 24. Hvernig heilsar þú fjölskyldunni þegar þið vaknið á morgnana? Best er að eiga tíma til að knúsa hvert og eitt þeirra vel og lengi. 25. Hvað yrði þitt fyrsta verk í hlutverki hins kynsins ef það myndi breytast? Klóra mér í pungnum á almannafæri. 26. Hversu mörg kosningaloforð telur þú að þú getir staðið við? Kosningaloforð okkar vinstri-grænna eru skotheld, enda snúast þau um að vinna í þágu hugmyndafræði flokksins og koma borginni í gegnum þá erfiðu tíma sem fram undan eru með félagslegt réttlæti að leið- arljósi. 27. Hvað er það versta sem þér hefur tekist að fyrirgefa? Allt sem ég hef raunverulega fyrir- gefið er gleymt og grafið. 28. Hvert er eftirminnilegasta ferðalagið sem þú hefur farið í? Ætli afdrifaríkasta ferðalag mitt hafi ekki verið til Umeå í Svíþjóð þar sem ég dvaldi sem skiptinemi í hálft ár. Ég kynntist manninum mínum eftir nokkurra daga dvöl og hef verið með honum síðan. 29. Hver er stærsta stundin í þínu lífi? Sama svar og við spurningu 14. 30. Hver er þinn æðsti draumur? Réttlátt samfélag þar sem öllum líður vel. KOSNINGAR2010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.