Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2010, Síða 3
fréttir 31. maí 2010 mánudagur 3
Flokkarnir liFa á landsbyggðinni
SeltjarnarneS Sjálfstæðisflokk-
urinn heldur sínum fimm fulltrúum og
fær hreinan meirihluta.
moSfellSbær Meirihluti Sjálf-
stæðisflokks og vinstri-grænna heldur.
Sjálfstæðismenn bæta við sig manni
og eru með fimm fulltrúa.
garðabær Sjálfstæðisflokkurinn
bætir fimmta fulltrúanum við sig og
heldur hreinum meirihluta.
reykjaneSbær Sjálfstæðisflokk-
urinn heldur sínum sjö fulltrúum og
hreinum meirihluta.
Skagafjörður Meirihluti
Framsóknarflokks og Samfylkingar
heldur velli þar sem Framsókn hefur
fjóra fulltrúa en Samfylking einn.
ÍSafjörður Meirihluti Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknarflokks heldur
með fimm fulltrúa kjörna.
Hornafjörður Framsóknarflokk-
urinn bætir við sig manni og er nú með
fjóra menn kjörna og hreinan meiri-
hluta. Meirihluti Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks heldur.
Hveragerði Sjálfstæðisflokkurinn
bætir við sig fimmta manninum og
heldur hreinum meirihluta.
borgarbyggð Framsóknarflokk-
urinn tapar manni og er nú með tvo
menn kjörna. Meirihluti Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks heldur þó
með fimm menn kjörna.
dalvÍkurbyggð Framboðslisti
óháðra bætir við sig fjórða manninum
á kostnað samstarfsflokks síns,
Framsóknarflokksins. Meirihutinn
stendur en Framboðslisti óháðra er nú
með hreinan meirihluta.
fjallabyggð Meirihlutasamstarf
Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks
heldur en sjálfstæðismenn tapa manni
og eru nú með þrjá fulltrúa kjörna en
Framsóknarflokkurinn tvo.
bolungarvÍk Meirihluti Sjálf-
stæðisflokks heldur velli þar sem hann
er með fjóra menn kjörna og hreinan
meirihluta.
fjarðabyggð Meirihluti Fjarðalista
og Framsóknarflokks heldur meirihluta
sínum en Fjarðalistinn tapar manni og
er með þrjá menn kjörna.
veStmannaeyjar Sjálfstæð-
isflokkurinn heldur sínum fjórum
fulltrúum og hreinum meirihluta.
norðurþing Meirihluti Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknar heldur með
sex menn kjörna en Sjálfstæðisflokkur
tapar einum manni yfir til framsóknar-
manna.
SnæfellSbær Sjálfstæðisflokkur
heldur hreinum meirihluta með fjóra
fulltrúa kjörna.
StærStu Sigrarnir
reykjavÍk Meirihluti Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks geldur
afhroð. Sjálfstæðisflokkurinn fær fimm
menn kjörna og Framsókn deyr út.
Besti flokkurinn fær sex menn kjörna.
akureyri L-listi fólksins vinnur
stórsigur og fær sex menn kjörna og
hreinan meirihluta. Sjálfstæðisflokk-
urinn tapar þremur fulltrúum og
Samfylking tveimur.
kópavogur Sjálfstæðisflokkurinn
tapar manni og fær fjóra kjörna. Meiri-
hluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks fellur. Nýju framboðin, Næstbesti
flokkurinn og Listi Kópavogsbúa, fá tvo
bæjarfulltrúa.
Hafnarfjörður Samfylkingin
tapar tveimur fulltrúum yfir til Sjálf-
stæðisflokksins og þar með hreinum
meirihluta.
grindavÍk Framsóknarflokkur bætir
við sig manni á kostnað Sjálfstæðis-
flokks. Vinstri-grænir ná ekki inn manni
og meirihlutinn því fallinn.
akraneS Sjálfstæðisflokkurinn tapar
þremur fulltrúum yfir til Samfylkingar
og Framsóknarflokks og þar með
hreinum meirihluta. Samfylking hefur
fjóra menn kjörna.
árborg Sjálfstæðisflokkurinn
tapar einum fulltrúa yfir til Fram-
sóknarflokksins og þar með hreinum
meirihluta en er eftir sem áður stærstur
með fjóra fulltrúa.
fljótSdalSHérað Sjálfstæðis-
flokkur tapar tveimur fulltrúum og er
með einn mann kjörinn og þar með
meirihluta við L-lista. Framsóknarflokk-
ur heldur sínum þremur fulltrúum og
er stærstur.
ölfuS Sjálfstæðisflokkur tapar
tveimur fulltrúum yfir til nýs framboðs,
Fyrir okkur öll, og þar með hreinum
meirihluta.
veSturbyggð Sjálfstæðisflokkur
tapar einum manni og þar með
hreinum meirihluta.
SeyðiSfjörður Sjálfstæðisflokk-
urinn tapar einum fulltrúa og þar með
hreinum meirihluta.
StærStu óSigrarnir
„Ég varð afslappaðri eftir skoðana-
könnunina og fór þá virkilega að
trúa að okkur myndi ganga vel. Ef ég
hefði hins vegar verið spurður í vet-
ur hefði ég sagst verða ánægður með
þrjá menn inn. Ævintýrin gerast svo
sannarlega enn,“ segir L-listamaður-
inn Oddur Helgi Halldórsson en list-
inn fékk hreinan meirihluta í kosn-
ingunum á Akureyri á laugardag.
Aldrei áður í sögu Akureyrarbæjar
hefur einn flokkur náð slíkum ár-
angri en Oddur Helgi segir ástæður
velgengninnar margþættar.
„Ástandið í þjóðfélaginu og okkar
góða fólk skiptir þar mestu. Akureyr-
ingar eru vanafastir og L-listinn hef-
ur starfað frá árinu 1998 og alltaf ver-
ið laus við þessa bæjarstjórasýki sem
allir eru að sverja af sér núna. Við
erum óháð og ekki undir handbendi
miðstjórnarflokkana og setjum Akur-
eyri fyrst og flokkinn svo,“ segir hann
og bætir við að meirihlutaflokkarn-
ir hafi skort tengingu við bæjarbúa.
„Það sést best á því hvernig þau átt-
uðu sig ekki á því að bæjarbúar vilja
ekki þetta miðbæjarskipulag þeirra
auk þess sem ég tel að allt hringlið
með bæjarstjórastólinn hafi reynst
þeim dýrkeypt. Fólk vissi sjaldnast
hver var bæjarstjóri. Að skiptast á
á vel við úti á róluvelli, svona þegar
rólurnar eru færri en krakkarnir, en á
ekki við í bæjarstjórn. Að okkar mati
á bæjarstjórinn að vera sameining-
artákn fyrir bæði meirihluta, minni-
hluta og almenning.“
Oddur Helgi hefur verið í for-
svari fyrir L-listann í tólf ár en var
nú í þriðja sæti listans á eftir þeim
Geir Kristni Aðalsteinssyni og Höllu
Björk Reynisdóttur. „Mig langaði
til að leggja störf mín í dóm kjós-
enda og ákvað að fá hæfa einstakl-
inga fyrir framan mig. Ef illa gengi
og fólk vildi mig ekki væru þau alla-
vega inni,“ segir hann en bætir við
að hann hafi vonast eftir fersku fólki
sem kæmi honum inn úr þriðja sæt-
inu. „Þetta er glæsilegt fólk og ég er
alls ekkert viss um að sigurinn hefði
verið svona stór ef ég hefði ver-
ið fremstur.“ Oddur Helgi sér ekki
ástæðu til að fá bæjarfulltrúa hinna
flokkanna með í meirihluta. „Við
erum með hreinan meirihluta en
munum við reyna að virkja alla bæj-
arfulltrúana með okkur. Við erum í
þessu til að gera bæinn okkar enn
betri en ekki fyrir völdin.“
Aðspurður hvort L-listinn hafi
augastað á ákveðnum einstaklingum
í sæti bæjarstjóra segir hann starf-
ið verða auglýst. „Við ætlum að gera
stjórnsýsluna opnari, viljum allt upp
á borðið og niður með klíkuskap og
því verður ráðning hins ópólitíska
bæjarstjóra frammi fyrir allra aug-
um,“ segir hann og bætir við að hann
eigi ekki von á því að Akureyringar
sjái fram á miklar breytingar fyrst um
sinn. „Fyrsta breytingin er að eignast
bæjarstjóra sem allir bæjarbúar geta
flykkt sér á bak við en annars ætlum
við ekki með hausinn á undan okk-
ur inn í Ráðhúsið. Þetta er fjögurra
ára ferðalag sem við erum að leggja í.
Það kann enginn að vera með hrein-
an meirihluta, hvorki við, embætt-
ismenn né fólkið í bænum og því
ætlum við að skoða málin hægt og
rólega og án þess að sparka til stól-
um.“ indiana@dv.is
Oddur Helgi Halldórsson, L-listanum á Akureyri:
Kunnum ekki á hreinan meirihluta
Sér ekki eftir að hafa vikið Oddur
hefur leitt L-listann í tólf ár en ákvað
að fá hæfa einstaklinga í efstu sætin að
þessu sinni. Hann sér ekki eftir þeirri
ákvörðun og efast um að flokknum hefði
gengið jafn vel með hann fremstan.
2. sæti
Einar Örn Benediktsson Fæddur árið 1962. Útskrifaðist
sem stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð og nam
fjölmiðlafræði í Lundúnum. Er þekktur fyrir störf sín í
tónlistarbransanum og þá sérstaklega setu sína í Sykurmol-
unum, KUKL og Ghostigital. Í dag er hann einn af eigendum
plötufyrirtækisins Grapewire og er framkvæmdastjóri þess
auk þess að sitja í stjórn Smekkleysu.
3. sæti
Óttar Proppé Óttari Proppé er lýst sem afskaplega ljúfum
dreng. Hann hefur starfað lengi við bóksölu hjá Máli og
menningu og Pennanum. Hann er að sögn víðlesinn og
bráðgáfaður. Óttar hefur einnig getið sér gott orð fyrir störf
sín í tónlistarbransanum og ber þar einna helst að nefna
fornfrægu hljómsveitina HAM. Þar þandi hann raddböndin
ásamt Sigurjóni Kjartanssyni.
4. sæti
Elsa Hrafnhildur Yeoman Elsu Hrafnhildi er lýst sem
ofsalega sterkri og öflugri konu. Elsa er lærður smiður og er
sjálfstætt starfandi. Henni er lýst sem hugmyndaríkum þús-
undþjalasmið. Hún opnaði pítsustað þegar hún var aðeins
fimmtán ára gömul og bjó um tíma í Iowa í Bandaríkjunum.
5. sæti
Karl Sigurðsson Karli Sigurðssyni er líst sem algjöru
séntilmenni með hljómfagra söngrödd sem hafi einnig
sínar hrjúfu hliðar. Karl er tölvunarfræðingur og þekkir
hvern krók og kima internetsins samkvæmt þeim sem til
hans þekkja. Hann stundar venjulega vinnu frá klukkan
níu til fimm. En hann er einnig listrænn og klár músíkant.
Þekktastur er hann fyrir störf sín í hljómsveitinni Baggalúti.
6. sæti
Eva Einarsdóttir Eva Einarsdóttir er reyndur tómstunda-
fræðingur, menntaður í Gautaborg í Svíþjóð. Hún hefur
unnið hjá Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkurborgar og
er kynnt til sögunnar sem félagsmálafrömuður. Henni er
lýst sem hvetjandi og röskri konu en hún á von á sínu öðru
barni í sumar. Eva hefur verið kölluð Palestínu-Eva.
fólkið Sem bylti borginni
Heiða aðstoðar Jón
Jón Gnarr hefur beðið Heiðu Krist-
ínu Helgadóttir, kosningastjóra
Besta flokksins, um að verða aðstoð-
armaður sinn
fari svo að hann
verði borgar-
stjóri eins og allt
bendi til. Heiða
Kristín var sæl og
glöð með ótrú-
legan árangur
Besta flokksins.
Engu að síður var
hún líka þreytt eftir erfiða törn, en
á meðan á kosningabaráttunni stóð
hófust dagarnir gjarna klukkan átta
á morgnana og stóðu fram á miðja
nótt. Það gafst þó ekki mikill tími til
að hvílast svona rétt eftir kosningar
enda næg vinna fyrir höndum hjá
Besta flokknum við að koma mynd á
borgarstjórnarsamstarfið í Reykja-
vík næstu fjögur árin. Heiða Kristín
hefur ekki tekið þátt í pólitísku starfi
áður en hún er fædd árið 1983, er
stjórnmálafræðingur að mennt og
almannatengill Vitvélastofnunar.
Skilaboð frá hægri vængnum Þessi
garpur tók sér stöðu fyrir utan kosn-
ingakaffi vinstri-grænna við Suðurgötu
í Reykjavík þar sem hann taldi sig vera
að koma mikilvægum skilaboðum
á framfæri. Hann sneri sér síðan að
umferðarstjórnun.