Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2010, Blaðsíða 23
ættfræði 31. maí 2010 mánudagur 23
Tryggvi Ólafsson
málari
Tryggvi fæddist í Neskaupstað og ólst
þar upp til sextán ára aldurs. Hann
flutti þá til Reykjavíkur, stundaði nám
við MR, lauk þaðan stúdentsprófi
1960, stundaði nám við Myndlista-
og handíðaskólann 1960-61 og við
Konunglegu listaakademíuna í Kaup-
mannahöfn 1961-67, þar af í eitt ár í
grafíska skólanum. Hann var búsettur
í Kaupmannahöfn frá 1961.
Tryggvi tók þátt í haustsýningu
listamanna, Den Frie, í Kaupmanna-
höfn 1963. Fyrstu einkasýningu sina
hélt hann í Gallerie Jensen í Kaup-
mannahöfn 1966. Hann sýndi sem
meðlimur SÚM á flestum samsýn-
ingum hópsins 1969-79, hélt hann
fimm einkasýningar í Gallerí SÚM frá
1969-77, tvær einkasýningar í List-
munahúsinu í Reykjavík 1980 og 1982,
einkasýningu í Listasafni ASÍ 1985 og í
Gallerí Borg 1986, hefur haldið fjólda
einkasýninga í Kaupmannahöfn frá
1966 og tekið þátt í samsýningum og
haldið einkasýningar í öllum höfuð-
borgum Norðurlanda auk Hollands, í
Þýskalandi, í Frakklandi og í Englandi.
Hann tók þátt í sýningum myndlistar-
samtakanna Den Nordiske á árunum
1970-80 og var heiðursgestur á haust-
sýningunni á Charlottenborg 1989.
Tryggvi hefur skreytt bygging-
ar í Danmörku og á Íslandi og hef-
ur skreytt fjölda bóka á Íslandi og í
Danmörku. Hann gerði heimildar-
kvikmynd um kennara sinn, danska
myndlistarmanninn S. Hjorth Nielsen,
ásamt leikstjóranum H.H. Jörgensen
1977. Gerð hefur verið heimildakvik-
mynd um list Tryggva, undir heitinu
Bygging, jafnvægi, litur, en myndina
gerðu Baldur Hrafnkell Jónsson, Böðv-
ar Guðmundsson og Úlfur Hjörvar. Þá
hafa Halldór B. Runólfsson og Thor
Vilhjálmsson ritað texta í listaverka-
bók um Tryggva sem Listasafn ASÍ og
bókaforlagið Lögberg gáfu út 1987.
Tryggvi á verk á miklum fjölda
listasafna á Norðurlöndunum. Hann
hefur um árabil verið í hópi þekktustu
og virtustu listamanna, íslenskra.
Stofnað var Málverkasafn Tryggva
Ólafssonar í Neskaupstað, í fæðing-
arbæ hans, honum til heiðurs, árið
2001, en sumaropnun safnsins verð-
ur á afmælisdegi hans, á morgun..
Tryggvi datt og slasaðist alvarlega og
flutti síðan heim til Íslands í kjölfarið,
árið 2008.
Fjölskylda
Kona Tryggva er Gerður, f. 2.11. 1940,
húsmóðir. Hún er dóttir Sigurðar B.
Jónssonar, f. 29.5. 1913, nú látinn, loft-
skeytamanns, og Guðríðar Sigurðar-
dóttur, f. 13.3. 1913, d. 2.3.1980, versl-
unarmanns.
Sonur Gerðar og stjúpsonur
Tryggva er Stígur Steinþórsson, f.
18.1.1960, leiktjaldamálari í Reykja-
vík, og á hann fimm börn.
Dóttir Tryggva og Gerðar er Gígja
Tryggvadóttir, f. 13.7. 1964, tannfræð-
ingur í Reykjavík, gift Ara Matthías-
syni leikara og eiga þau þrjú börn.
Sonur Tryggva og Gerðar er
Þrándur Tryggvason, f. 1.5. 1979,
húsamálari í Reykavík og í Kaup-
mannahöfn, kvæntur Elísabetu Hall-
dórsdóttur nema og eiga þau einn
son.
Bróðir Tryggva var Loftur Ól-
afsson, f. 24.2. 1942, d. 17.11. 2005,
tannlæknir í Reykjavík, var kvæntur
Hrafnhildi Höskuldsdóttur húsmóð-
ur og eignuðust þau tvö börn.
Foreldrar Tryggva: Ólafur Magn-
ússon, f. 5.1. 1907, d. 31.10. 1982, og
Sigríður Bjarnadóttir, f. 25.3.1905, d.
24.7. 1957.
Ætt
Ólafur var sonur Magnúsar, b. á Eyj-
ólfsstöðum í Fossárdal Jónssonar og
Sigrúnar Gísladóttur.
Sigríður var dóttir Bjarna, b. í
Hraunkoti í Lóni Þorsteinsson-
ar, b. og hreppstjóra á Skálafelli í
Suðursveit, bróður Sigurðar, lang-
afa Kvískerjabræðra í Öræfum. Þor-
steinn var sonur Ingimundar, b. á
Reynivöllum i Suðursveit, bróður
Guðnýjar, langalangömmu meistara
Þórbergs. Dóttir Guðnýjar var Auð-
björg á Brunnum, langamma Svav-
ars Guðnasonar listmálara og langa-
langamma Einars Braga skálds.
Ingimundur var sonur Þorsteins
Vigfússonar, b. á Felli í Suðursveit, og
Ingunnar Guðmundsdóttur. Móð-
ir Þorsteins á Skálafelli var Helga
Bjarnadóttir frá Skaftafelli. Móðir
Bjarna í Hraunkoti var Þórlaug Jóns-
dóttir. Móðir Sigríðar var Ragnhildur
Sigurðardóttir, b. á Bæ í Lóni, Guð-
mundssonar, og Margrétar Jónsdótt-
ur. Móðir Sigurðar á Bæ var Iðbjörg
Þorsteinsdóttir.
30 ára
Cristina Landayan Caamic Möðrufelli 1,
Reykjavík
Mariusz Dobrzycki Mörkinni 8, Reykjavík
Sigurjón Björgvinsson Hagalandi 6, Mos-
fellsbæ
Lilja Ósk Björnsdóttir Seljabraut 34, Reykjavík
Ólöf Birna Margrétardóttir Stóragerði 4,
Reykjavík
Heiðdís Arna Ingvarsdóttir Breiðöldu 3, Hellu
Kristjana Guðmundsdóttir Skiphyl, Borg-
arnesi
Þórdís Halldóra Gestsdóttir Mávabraut 3a,
Reykjanesbæ
Sandra Þórðardóttir Bergstaðastræti 33,
Reykjavík
40 ára
Marzena Malgorzata Gosciniak Öldugötu
11, Flateyri
Ingi Þorgrímur Guðmundsson Fjarðarstræti
2, Ísafirði
Helga Rún Guðmundsdóttir Hólmaflöt 5,
Akranesi
Unnur Ingibjörg Gísladóttir Stórholti 6,
Akureyri
Elísabet Jóna Gunnarsdóttir Skagfirðinga-
braut 25, Sauðárkróki
Hrund Pálína Hjartardóttir Sæbóli 11,
Grundarfirði
Sigurborg A Helgadóttir Faxatúni 18,
Garðabæ
Inga Sigríður Halldórsdóttir Sigluvogi 10,
Reykjavík
Helga Dóra Helgadóttir Hjarðarhóli 2,
Húsavík
Gunnar Steinarsson Arnarsmára 14, Kópavogi
Oddný Sif Guðmundsdóttir Ölduslóð 2,
Hafnarfirði
Samúel Hermannsson Sveighúsum 11,
Reykjavík
50 ára
Anne Grethe Salvesen Dalhúsum 75,
Reykjavík
Patrick Joseph Shevlin Sléttahrauni 29,
Hafnarfirði
Sigurbjörg Jónsdóttir Akurseli, Kópaskeri
Sigurður Sigurjónsson Ásbrún 4, Egilsstöðum
Heiðdís Þorsteinsdóttir Lágengi 18, Selfossi
Guðrún Hrund Sigurðardóttir Hofakri 1,
Garðabæ
Ragnheiður Júlíusdóttir Lágholtsvegi 9,
Reykjavík
Auður Vilhelmsdóttir Valbraut 12, Garði
Þórir Garðarsson Nýlendugötu 17, Reykjavík
60 ára
Jón Ásbergsson Granaskjóli 62, Reykjavík
Guðríður Halldórsdóttir Suðurgarði 18,
Reykjanesbæ
Guðmundur Kristinsson Gerðhömrum 27,
Reykjavík
Eygló Yngvadóttir Gullsmára 8, Kópavogi
Gísli Gíslason Rekagranda 2, Reykjavík
Gunnhildur Frímann Aðalstræti 8, Akureyri
Ragna Þórarinsdóttir Mýrarvegi 117, Akureyri
Lóa May Bjarnadóttir Garðsenda 15,
Reykjavík
Steinunn Svavarsdóttir Hveramýri 1, Mos-
fellsbæ
70 ára
Ingibjörg Guðjónsdóttir Arahólum 2,
Reykjavík
Jóhanna Bryndís Helgadóttir Tungubakka
30, Reykjavík
Ingvar Sveinsson Grandavegi 47, Reykjavík
Jónína Kristín Jensdóttir Kársnesbraut 131,
Kópavogi
Borghildur Skarphéðinsdóttir Tröllhólum
3, Selfossi
75 ára
Guðfríður Guðjónsdóttir Miðdalsgröf,
Hólmavík
Erla Magnþóra Magnúsdóttir Asparási 12,
Garðabæ
Sverrir Guðnason Foldahrauni 38b, Vest-
mannaeyjum
Ingunn Þórðardóttir Sóltúni 16, Reykjavík
80 ára
Ragnhild Guðrún Friðjónsdóttir Þangbakka
10, Reykjavík
Gerður Sigurðardóttir Tjarnarlundi 12a,
Akureyri
Sigurjón Einarsson Háaleitisbraut 49,
Reykjavík
Sigurður Garðarsson Hjallalundi 18, Akureyri
85 ára
Skúli Helgason Furugerði 1, Reykjavík
Dagný Albertsson Rauðhömrum 12, Reykjavík
70 ára á morgun
30 ára
Julita Wilk Munaðarhóli 14, Hellissandi
Boguslaw Szerel Álftamýri 24, Reykjavík
Ragnhildur Sigurjónsdóttir Reykási 13,
Reykjavík
Helgi Rúnar Sævarsson Fífuvöllum 15, Hafn-
arfirði
Jónatan Þór Magnússon Skessugili 7, Akureyri
Sigríður Margrét Jónsdóttir Köldukinn 24,
Hafnarfirði
Ásgeir Örn Ásgeirsson Gvendargeisla 16,
Reykjavík
Sigurður Björnsson Helluvaði 11, Reykjavík
Hanna Katrín Stefánsdóttir Ugluhólum 8,
Reykjavík
Ráðhildur Anna Sigurðardóttir Hnoðravöllum
44, Hafnarfirði
Ingólfur Kristinn Magnússon Dalalandi 14,
Reykjavík
Friðrik Magnus Öldugötu 5, Reykjavík
40 ára
Rattana Hiranchot Hraunbæ 52, Reykjavík
Gracia Prado Surban Hvassaleiti 26, Reykjavík
Florian Zink Lynghaga 4, Reykjavík
Kittikhun Udomworakul Hraunbæ 44,
Reykjavík
Sighvatur A Sighvatsson Spóahólum 20,
Reykjavík
Jón Harðarson Klettastíg 14, Akureyri
Rafnkell Kristján Guttormsson Hlynskógum
5, Akranesi
Harpa Dís Birgisdóttir Lindasmára 35,
Kópavogi
Guðrún Blöndal Lómasölum 39, Kópavogi
Guðfinna Unnur Gunnarsdóttir Rekagranda
3, Reykjavík
50 ára
Silvía Pranee Kimworn Blikahólum 12,
Reykjavík
Wlodzimier Waclaw Andrzejewski Álfhólsvegi
115, Kópavogi
Jens Gunnar Ormslev Engjaseli 55, Reykjavík
Sigríður Jósafatsdóttir Hvammstangabraut
14, Hvammstanga
Jónmundur Aðalsteinsson Stórhóli 8, Húsavík
Unnar Eiríksson Skógarhlíð 39, Akureyri
Sigurjón Sveinsson Krossholti 4, Reykjanesbæ
Eiríksína Kr Ásgrímsdóttir Kirkjuvegi 5,
Hafnarfirði
Matthías Ægisson Krummahólum 45, Reykjavík
Sveinn Kristján Guðjónsson Heiðarbraut 7,
Hnífsdal
Einar Vilhjálmsson Sörlaskjóli 92, Reykjavík
60 ára
Paul Ejner Szmiedowicz Höskuldarvöllum 15,
Grindavík
Guðrún Olga Clausen Lyngheiði 19, Hveragerði
Þóra Sen Svöluhrauni 9, Hafnarfirði
Erna Bjargey Guðmundsdóttir Torfufelli 24,
Reykjavík
Auður Björg Sigurjónsdóttir Keilufelli 3,
Reykjavík
Kristinn Karlsson Skúlagötu 10, Reykjavík
Jóhann Árnason Löngubrekku 23, Kópavogi
70 ára
Hanna Hannesdóttir Flúðaseli 81, Reykjavík
Gísli Óli Jónsson Rauðagerði 67, Reykjavík
Jónína M Friðriksdóttir Árskógum 6, Reykjavík
Garðar Ingólfsson Bakkaseli 5, Reykjavík
Halldór Norðquist Grímsson Þórðarsveig 5,
Reykjavík
Sigurjón Torfason Funafold 85, Reykjavík
Jóhann Páll Árnason Lindasíðu 2, Akureyri
75 ára
Jóna Gréta Sigurjónsdóttir Kaplaskjólsvegi
83, Reykjavík
Haukur Guðmundsson Bæ, Egilsstöðum
Magnea Halldórsdóttir Hraunbúðum, Vest-
mannaeyjum
Guðný Óskarsdóttir Brekkugerði 20, Reykjavík
Sigurlaug Vilmundardóttir Fífilgötu 2, Vest-
mannaeyjum
Valgerður Nikólína Sveinsdóttir Sautjánda-
júnítorgi 5, Garðabæ
Guðrún Guðjónsdóttir Austurbrún 6, Reykjavík
Guðveig Fjóla Guðmundsdóttir Þórustíg 14,
Reykjanesbæ
80 ára
Guðrún Friðgeirsdóttir Einarsnesi 28,
Reykjavík
Kristín Helgadóttir Gvendarstöðum, Húsavík
Þórhildur A Jónasdóttir Einilundi 6c, Akureyri
85 ára
Einar Einarsson Kristnibraut 2, Reykjavík
Arnbjörn Kristinsson Mávanesi 9, Garðabæ
Sæbjörn Hallgrímur Jónsson Sólbrekku,
Egilsstöðum
Lilja Sveinsdóttir Neðri-Hundadal, Búðardal
til hamingju ingju
mánudaginn 31. maí
30 ára í dag
Guðbjörg fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp í Breiðholtinu. Hún var
í Fellaskóla.
Guðbjörg var í unglingavinn-
unni á sumrin með skóla. Hún hef-
ur verið húsmóðir undanfarin ár.
Fjölskylda
Börn Guðbjargar eru Magnús Aron,
f. 26.9. 2001; Maríam Lilja, f. 23.3.
2003.
Systkini Guðbjargar eru Eiríkur
Ólafur Emilsson, f. 26.8. 1972, bú-
settur í Reykjavík; Dagbjört Aðal-
heiður Magnúsdóttir, f. 7.3. 1998,
nemi; Guðlaug Magnúsdóttir, f.
22.2. 1999, nemi.
Foreldrar Guðbjargar eru Magn-
ús Örn Haraldsson, f. 4.4. 1955, bíl-
stjóri í Reykjanesbæ, og Dagbjört
Eiríksdóttir, f. 12.8. 1952, d. 29.11.
1995, starfsmaður hjá Félagsmála-
stofnun Reykjavíkurborgar.
Guðbjörg Lilja Magnúsdóttir
húsmóðir í reykjavík
til hamingju
þriðjudaginn 1. júní
Íris Jónsdóttir sem er þrítug í dag er
lyfjafræðingur hjá Actavis, búsett í
Hafnarfirði. Eiginmaður hennar er
Haraldur Örn Sturluson tölvunarfræð-
ingur og eru synir þeirra Sturla, tveggja
ára, og Flóki, átta mánaða.
Íris var að missa sig úr afmæl-
isspenningi þegar blaðamaður DV
hringdi í hana á föstudagsmorguninn:
Hlakkarðu svona mikið til afmæl-
isins?
„Jahá, sérstaklega núna, því að á
morgun verð ég með fimmtíu manna
afmælisveislu hér heima. Þetta á að
verða stórt stórafmæli - á þremur
hæðum - inni og úti í garði - og ég er
búin að panta sól fram á rauða nótt.“
Eins gott að enginn detti í stigan-
um. Verður lyfta?
„Nei, en það verður sjónvarp á
hverri hæð. Þetta er nefnilega svo
flókinn dagur: Eurovision og kosn-
ingar. Á einni hæðinni verður því
Eurovisionpartí, á annarri hæð kosn-
ingavaka og svo líklega barnaefni á
þriðju hæðinni. Þannig getur hver
og einn valið.“
En veisluföngin? Nokkuð val þar?
„Nei, bara einfalt og gott. Bara
bjór og hamborgarar – grillaðir ham-
borgarar.“
Og franskar?
„Nei, bara nóg af góðum, grilluð-
um hamborgurum.“
Engin kaka?
„Jú, bara ein tegund: Rice Crisp-
ies kaka.“
Eru ekki svoleiðis kökur bara í
barnaafmælum?
„Svoleiðis kaka er uppáhaldskaka
fjölskyldunnar. Þess vegna verður
hún í afmælinu mínu,“ segir lyfja-
fræðingurinn í Hafnarfirði sem veit
upp á hár hvernig á að halda stóraf-
mæli þegar þjóðin er nýbúin að kjósa
og er að horfa á Eurovision.
Lyfjafræðingur í Hafnarfirði:
á þremur hæðum
komdu í áskrift!
512 70 80
dv.is/askrift
frjálst, óháð dagblað