Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2010, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2010, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 31. maí 2010 FRÉTTIR Ólafur Arnarson fær um 400 hundruð þúsund krónur á mánuði frá almannatenglinum Gunnari Steini Pálssyni fyrir ráðgjafastörf. Gunnar Steinn hefur unnið náið með eig- endum Exista og Hreiðari Má Sigurðssyni og Sigurði Einarssyni. Exista hefur greitt fyrirtæki Gunnars, GSP samskiptum, háar fjárhæðir fyrir ráðgjöf á liðnum árum. Almannatengillinn Gunnar Steinn Pálsson hefur borgað Ólafi Arnar- syni, hagfræðingi og blaðamanni sem skrifar pistla á vefritið Press- una, fjögur hundruð þúsund krónur á mánuði fyrir ráðgjafastörf síðustu misserin, samkvæmt heimildum DV. Ekki liggur ljóst fyrir hvers konar ráð- gjafastörf Ólafur hefur unnið fyrir Gunnar Stein. Ólafur hefur orðið nokkuð þekkt- ur hér á landi frá bankahruninu fyr- ir pistla sína á Pressunni þar sem hann tekur oft upp hanskann fyrir ýmsa þekkta auðmenn, sérstaklega fyrrverandi stjórnendur Kaupþings og eigendur Existu. Gunnar Steinn, eða félag í hans eigu sem heitir GSP samskipti, hefur unnið náið með eig- endum Existu og fyrrverandi stjórn- endum Kaupþings, Hreiðari Má Sig- urðssyni og Sigurði Einarssyni, á liðnum árum. Heimildir DV herma að Gunnar Steinn og félag hans hafi í gegnum tíðina fengið háar greiðslur frá Existu fyrir ýmiss konar þjónustu. Sömu heimildir DV segja að hluti af þeim greiðslum sé til að standa straum af launagreiðslum Gunnars Steins til Ólafs Arnarsonar. Játar hvorki né neitar Aðspurður hvort hann hafi í gegn- um tíðina fengið greitt mánaðarlega frá Gunnari Steini Pálssyni segir Ól- afur að hann geti ekki svarað því. „Ég fæ greitt mánaðarlega frá hin- um og þessum fyrir ráðgjafastörf. Ég gef ekki upp hverjir greiða mér en ég hef greint frá því að það greiðir mér enginn fyrir greinaskrif annar en Vef- pressan.“ Aðspurður hvort hann neiti því að hann fái greiðslur frá Gunnari Steini eða félagi hans segir Ólafur. „Ég tjái mig ekki um greiðslur frá öðrum en Vefpressunni. Ég get ekki farið að játa eða neita greiðslum frá einhverjum. Ég vinn ráðgjafastörf fyrir hina og þessa viðskiptavini og þeir njóta míns trúnaðar. Ég mun því hvorki játa þessu né neita. Mér dett- ur ekki í hug að greina frá því hverj- ir hafa fengið reikninga frá mér,“ seg- ir Ólafur en DV hefur heimildir fyrir því að samtals nemi laun Ólafs um 900 þúsund krónum á mánuði. Þar meðtalin eru væntanlega laun hans frá Vefpressunni. Ólafur er ekki í fastri vinnu svo vitað sé og fær þessa upphæð, 900 þúsund krónur, fyrir ýmis rit- og ráðgjafastörf sem verk- taki. Eina þekkta starfið sem vitað er að Ólafur gegni eru pistlaskrifin á Pressunni. Sagðist ekki vinna fyrir Existu DV hafði samband við Ólaf fyrir nokkrum vikum til að spyrja hann um hvort hann fengi greitt frá Existu. Hávær orðrómur var þá um að Ólaf- ur hefði unnið fyrir félagið og fengið greitt frá því. Ólafur neitaði því hins vegar með eftirfarandi orðum. „Það hefur aldrei eitt einasta félag á mín- um vegum eða ég sjálfur unnið fyrir Existu eða sent félaginu einn einasta reikning eða fengið greiðslu frá því,“ sagði Ólafur í samtali við DV. Þetta var áður en DV fékk heimildir fyrir því að Ólafur fengi greitt frá Gunnari Steini. Fyrir nokkrum vikum gat Ólafur því neitað því að hann fengi greitt beint frá Existu en í samtali við DV nú vill hann hvorki játa né neita að hann fái greitt frá Gunnari Steini og ber því við að almennt séð játi hann því hvorki né neiti að hann vinni fyrir einhvern. Þarna er því ákveðið misræmi í svörum Ólafs: Annars vegar neitar hann því að hann fái greitt frá Existu en hins vegar segir hann að hann vilji hvorki játa því né neita að hann fái greitt frá Gunn- ari Steini. DV hafði samband við Gunnar Stein Pálsson til að spyrja hann hvort Ólafur fengi greitt frá honum fyrir ráðgjafastörf. Gunnar Steinn vildi hvorki játa þessu né neita. Hann sagði að hann hefði það sem vinnureglu í öllum tilfellum að játa hvorki né neita slíkum fyrir- spurnum. Tengdur Existu og Kaupþingi Fjölskyldutengsl Ólafs Arnarsonar við Existu og Kaupþing eru nokk- ur. Erlendur Hjaltason, fyrrverandi forstjóri Existu, er náfrændi Ólafs. Mæður þeirra eru systur. Erlendi var vikið frá störfum hjá Existu 30. apríl síðastliðinn eftir að ný stjórn tók yfir félagið í kjölfarið á yfirtöku kröfu- hafa Existu á félaginu. Auk þess að vera skyldur Erlendi Hjaltasyni er kona Ólafs föðursystir Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra Kaupþings. Líklegt er að Exista muni ekki halda áfram að greiða Gunnari Steini Pálssyni fyrir ráðgjöf þar sem helsta ástæðan fyrir störfum hans fyrir félagið snerist um per- sónuleg tengsl hans við helstu eig- endur þess, Bakkabræður, og lykil- stjórnendur, meðal annars Erlend. Tengsl Gunnars Steins og Hreiðars Más og Sigurðar eru alþekkt og hef- ur Gunnar Steinn unnið mikið fyrir þá í gegnum tíðina og munu tengsl hans við þá vera nokkuð náin. Bakkabræður hafa enn fremur verið nánir viðskiptafélagar Sigurðar og Hreiðars í gegnum tíðina og var Ex- ista stærsti kröfuhafi og lántakandi Kaupþings. Í pistlum sínum á Pressunni hef- ur Ólafur nokkrum sinnum tekið upp hanskann fyrir þá Kaupþings- menn og tengda aðila og verið dug- legur við að reyna að beina sviðs- ljósinu að óvildarmönnum þeirra og andstæðingum. Allmörg dæmi eru um slíkt. Til að mynda gagnrýndi hann nýlega gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Hreiðari Má og Magnúsi Guð- mundssyni í pistli á Pressunni eft- ir að þeir höfðu verið handteknir. Jafnframt gagnrýndi hann Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingrím J. Sigfússon fjármálaráð- herra harðlega fyrir að fagna gæslu- varðhaldsúrskurði tvímenninganna. ANNAS SIGMUNDSSON og INGI F. VILHJÁLMSSON blaðamenn skrifa: annas@dv.is og ingi@dv.is FÆR BORGAÐ FRÁ GUNNARI STEINI Neitar ekki Ólafur Arnarson vill hvorki játa því né neita að hann hafi fengið greitt frá Gunnari Steini Pálssyni al- mannatengli. Gunnar Steinn hefur unnið mikið fyrir Existu sem nú hefur verið tekið yfir af kröfuhöfum sem skipt hafa um æðstu stjórnendur félagsins. Ég fæ greitt mánaðarlega frá hinum og þessum fyrir ráðgjafastörf. Tekur upp hanskann fyrir Kaupþing Ólafur hefur í pistlum sínum á Pressunni gjarnan tekið upp hanskann fyrir fyrrverandi stjórnendur Kaupþings, Hreiðar Má Sigurðsson og Sigurð Einarsson. Heimildir DV herma að Ólafur fái greiddar 400 þúsund krónur á mánuði frá almannatengli þeirra Sigurðar og Hreiðars og Existu. Greiðslur frá Existu Gunnar Steinn hefur unnið mikið fyrir Existu í gegnum tíðina og fengið vel greitt frá félaginu. Almannatengillinn hefur aftur greitt Ólafi Arnarsyni fyrir ráðgjafastörf. Ólafur er náfrændi fyrrverandi forstjóra Existu, Erlendar Hjaltasonar. Meirihluti myndað- ur á Akranesi Búið er að mynda nýjan meirihluta í bæjarstjórninni á Akranesi. Þar er um að ræða þriggja flokka stjórn Framsóknarflokks, Samfylkingar og vinstri-grænna. Sjálfstæðisflokkur- inn var áður með hreinan meirihluta á Akranesi eftir að Karen Jónsdóttir, bæjarfulltrúi Frjálslynda flokksins, sagði skilið við flokkinn og gekk til liðs við sjálfstæðismenn árið 2008. Í vikunni munu bæjarfulltrúar flokk- anna stinga saman nefjum til skrafs og ráðagerða. Sjálfstæðisflokkur- inn líklega úti Allt bendir til þess að fjögurra flokka stjórn verði mynduð í Kópavogi milli Samfylkingar, vinstri-grænna, Næst- besta flokksins og Lista Kópavogs- búa. Tvö síðastnefndu framboðin eru ný af nálinni. Þau fengu einn mann kjörinn hvort. Sjálfstæðis- flokkur og Framsókn mynduðu áður meirihluta bæjarstjórnar Kópavogs. Sjálfstæðisflokkurinn missti einn bæjarfulltrúa í kosningunum á laug- ardag og þar með meirihlutann. Viðræður á Fljótsdalshéraði Fulltrúar Framsóknarflokksins og Héraðslistans á Fljótsdalshéraði hófu í gær meirihlutaviðræður. Áður hafði Sjálfstæðisflokkurinn mynd- að meirihluta með Héraðslistanum. Sjálfstæðisflokkurinn tapaði hins vegar miklu fylgi í kosningunum og tveimur sveitarstjórnarfulltrúum. Þá er ekki útilokað að annaðhvort Framsóknarflokkurinn eða Héraðs- listinn myndi meirihluta með Á-list- anum. Kæra úrslit til sýslumanns Ákveðið hefur verið að kæra úrslit kosninganna í sameinuðu sveitarfélagi Hörgárbyggðar og Arnarneshrepps í Eyjafirði til sýslumanns embættisins á Akureyri. Ástæðan er einföld. Þar skildi aðeins eitt atkvæði framboðslistana Samstöðulistann og Lýðræðislistann að. Þar fékk hinn síðarnefndi atkvæði meira og því hreinan meirihluta. Fulltrúar Samstöðulistans segja að merkingar á einum atkvæðaseðli hafi verið mjög óskýrar og að þar sé ekki fullsannað að viðkomandi hafi ætlað að kjósa Lýðræðislistann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.