Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2010, Síða 11
fréttir 31. maí 2010 mánudagur 11
„Við viljum að Ísland gangi í ESB.
Við lítum á Ísland sem meðlim í
evrópsku fjölskyldunni. Við getum
lært margt af Íslendingum og þeir
geta lært margt af okkur,“ segir Írinn
Pat „The Cope“ Gallagher, þing-
maður á Evrópuþinginu. „Ég vona
að Íslendingar kjósi að ganga í ESB.
Ég bið þá líka að loka ekki augunum
áður en þeir sjá hvað er á borðinu,“
segir írski þingmaðurinn.
Við hittum Gallagher í húsa-
kynnum Evrópuþingsins í síðustu
viku og ræddum við hann um að-
ildarumsókn Íslands að Evrópu-
sambandinu og reynslu Íra af því.
„Við“ erum hópur íslenskra blaða-
manna, frá mismunandi fjölmiðl-
um, sem stækkunardeild fram-
kvæmdastjórnar ESB hefur boðið í
námsferð til höfuðborgar Belgíu og
Evrópu.
Nú þegar aðildarviðræður Ís-
lands og ESB eru rétt handan við
hornið mælist stuðningur við að-
ild lítill í skoðanakönnunum en á
sama tíma hefur umræðan um Evr-
ópumálin orðið nokkuð lágvær. Og
á meðan spáir hag- og sagnfræð-
ingurinn Niall Ferguson ragnarök-
um evrunnar vegna skuldakrepp-
unnar í Grikklandi.
Ísland góðar fréttir
„Evrópusambandið fagnaði aðild-
arumsókn Íslands á sínum tíma,
því það þótti hafa staðið sig illa í
kreppunni og þurfti sárlega á góð-
um fréttum að halda. Umsókn Ís-
lands átti að sanna að ESB væri
ennþá vinsælt og eftirsótt,“ seg-
ir breskur blaðamaður okkur þar
sem við sitjum á írskum pöbb sem
er í húsi beint á móti höfuðstöðv-
um framkvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins, Berlaymont-bygg-
ingunni í Brussel, þar sem Jose
Manuel Barroso forseti situr á
þrettándu hæð. Við hlustum með
áhuga á nokkra evrópska starfs-
bræður okkar á pöbbnum, sem
vinna meðal annars fyrir stórblöð-
in Frankfurt Allgemeine Zeitung og
Times í London og virðast vita sínu
viti um starfsemina í Brussel. Þeir
segja okkur líka hvernig lífi frétta-
rritarans í Brussel er háttað, hvern-
ig heimilda sé aflað. Þeir segja
að blaðamenn frá litlum lönd-
um miðli gjarnan upplýsingum til
blaðamanna frá öðrum löndum, á
meðan samkeppnin sé harðari hjá
blaðamönnum frá stærri löndum
sem miðli sjaldan til starfsbræðra
sinna.
Þjónar Ísland tilgangi?
Rétt áður en blaðamaður lagði
af stað til Brussel las hann grein
sænska tónlistargagnrýnandans
Fredrik Strage, sem gagnrýndi
ákvörðunina um að veita Björk
Guðmundsdóttur hin virtu sænsku
tónlistarverðlaun Polar-verðlaun-
in: „Með því að styðja einu súper-
stjörnu Íslands gefur kviðdómur-
inn ekki bara Björk eina milljón
sænskar krónur heldur fá lands-
menn hennar í þokkabót einn
skammt af sjálfstrausti. Frá því
að íslensku bankarnir hrundu og
Eyjafjallajökull gaus hafa margir
Evrópubúar spurt sig hvort Ísland
þjóni nokkrum tilgangi. Með því
að veita Íslendingum Polar-verð-
launin er erfiðara að afgreiða íbúa
landsins sem seinþroska rass-
álfa sem éta rotinn hákarl,“ skrifar
Strage, er auðvitað að grínast, en
veltir engu að síður fyrir sér þeirri
skondnu staðalímynd sem virðist
hafa myndast að undanförnu um
okkur Íslendinga.
ESB virðist þó ekki telja að Ís-
lendingar séu eintómir rassálfar
því töluverður áhugi virðist ríkja
á meðal embættismanna í Brussel
á málefnum Íslands og aðildarum-
sókninni.
Embættismaður sem vinnur fyr-
ir ráðherraráðið sagði að Svíar, sem
fóru þá með stjórn í ráðinu, hafi
hvatt mikið til að aðildarumsókn Ís-
lands yrði samþykkt um leið og hún
barst því Ísland væri órjúfanlegur
hluti Evrópu.
Icesave ekki hindrun
Embættismenn í Brussel hafa sagt
okkur að grænt ljós logi í Brus-
sel fyrir aðild Íslands og aðildar-
viðræðurnar gætu gengið nokk-
uð snurðulaust fyrir sig, sér í lagi
vegna allra þeirra reglugerða sem
Ísland hefur þegar samþykkt með
EES. Fullyrt er að Icesave-mál-
ið muni ekki hindra ferlið og að
það sé mál sem Ísland, Holland
og Bretland þurfi að leysa sín á
milli. Þó hefur verið nefnt að skip-
anir dómara og ýmsir hagsmuna-
árekstrar (sem til dæmis hafi
verið rætt um í skýrslu rannsókn-
arnefndarinnar) samræmist ekki
vinnubrögðum í ESB.
Eins og fram kom í upphafi
greinar segir írski þingmaður-
inn Pat Gallagher að vilji sé til
þess að Íslendingar gangi í ESB og
að sambandið geti grætt á því, hafi
hagsmuni af aðild Íslands. Hann
segir að Íslendingar geti miðlað af
reynslu sinni af fiskveiðum og land-
búnaði. „Það hefur líka verið gott
að versla við Íslendinga í gegnum
EES og við viljum enn meira sam-
starf við ykkur.”
ESB ekki matseðill
Flestir í Brussel vita að sjávarútvegs-
málin hafa fælt marga Íslendinga frá
stuðningi við „ESB ER EKKI MAT-
SEÐILL“ aðild að ESB. Við hittum
menn frá framkvæmdastjórn fisk-
veiða hjá sambandinu. Þeir sögðu
að Íslendingar gætu ekki einfaldlega
einblínt á sjávarútveginn, geirann
sem þeir væru sterkastir í og sagt að
þeir vildu ekki taka þátt í sameigin-
legri fiskveiðistefnu ESB. „ESB er
ekki matseðill þar sem hægt er að
benda á það sem menn vilja. ESB
snýst um heimspekilega og pól-
itíska hugsjón um að við Evrópu-
menn stöndum saman eins og ein
stór fjölskylda og Íslendingar verða
að átta sig á því,” sagði einn embætt-
ismaðurinn. Nefnt var þó að reglu-
gerðir ESB um hlutfallslegan stöð-
ugleika í sjávarútvegi myndu þýða
að sögulegar veiðiheimildir myndu
skera úr um í kvótaúthlutun, eða
með öðrum orðum að Íslendingum,
sem hafa veitt einir þjóða á miðum
landsins í áratugi, myndi verða út-
hlutað kvótanum. Sömu embættis-
menn sögðu alveg öruggt að Íslend-
ingar þyrftu að hætta hvalveiðum
gengju þeir í ESB.
Annar embættismaður stakk
upp á að Íslendingur myndi gegna,
fljótlega eftir inngöngu í ESB,
embætti fulltrúa sjávarútvegs-
mála framkvæmdastjórnarinnar
(Commissioner for Maritime Af-
fairs and Fisheries), sem er valda-
mesta embætti geirans í Brussel.
Hann nefndi að fordæmi séu fyr-
ir að ríki fái við inngöngu úthlut-
að embættum sem snúa að þeim
málaflokkum sem hafi verið um-
deildir og erfiðir í landinu. Nú-
verandi fulltrúi eða fiskistjóri er
Grikkinn Maria Damanaki.
Ákveðið 17. júní
Ísland er ekki enn komið á dag-
skrá leiðtogaráðs ESB, sem mun
funda í júní. Leiðtogaráðið þarf að
samþykkja umsókn Íslands svo að-
ildarviðræður geti hafist. Talið er
nokkuð öruggt að aðildarumsókn
Íslands verði sett á dagskrá í næsta
mánuði og fjallað um hana hinn 17.
júní.
„ESB ER EKKI
MATSEÐILL“
Á sama tíma og ESB titrar vegna erfiðleikanna í Grikklandi er hópi íslenskra blaðamanna boðið til Bruss-
el til að glöggva sig á Evrópumálunum og kynna sér aðildarumsóknarferli Íslands sem senn fer af stað.
Er einhver með hugann við okkur? Blaðamaður ræddi við fólk í Brussel.
Ég bið þá líka að loka ekki aug-
unum áður en þeir sjá
hvað er á borðinu.
hElgI hrafn guðmundSSon
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
framkvæmdastjórn ESB
Rætt er um að embættismenn
hafi gefið afdráttarlaust grænt
ljós á aðild Íslands.
Evrópuþingið Írski þingmaðurinn
Pat Gallagher telur að ESB geti
hagnast á inngöngu Íslands.
Brussel Skuldakreppan í Grikklandi hefur valdið miklum titringi í Evrópusam-
bandinu.