Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2010, Síða 12
12 mánudagur 31. maí 2010 fréttir
„Ég er anarkisti og trúi í rauninni
ekki á stjórnmál. Ekki sem lausn á
neinu og ég trúi ekki að hinn almenni
stjórnmálamaður skili neinu af viti...
Það eru eru frávik þegar stjórnmála-
maður stígur fram og gerir eitthvað
af viti, “ með þessum orðum lýsti Jón
Gnarr íslenskum stjórnmálum í við-
tali í DV um miðjan desember í fyrra,
þegar hann steig fram með framboð
sitt Besta flokkinn. Framboð sem var
einhvers konar óræð blanda af al-
vöru, ádeilu og gríni, sem Reykvíking-
ar hafa smám saman verið að með-
taka.
Nú hálfu ári síðar er Jón Gnarr
líklega valdamesti stjórnmálamað-
ur augnabliksins. Hann gjörsigraði
borgarstjórnarkosningarnar á laug-
ardag og splundraði um leið upp
gamla valdakerfinu í borginni, sem er
nokkuð sem engum hefur áður tek-
ist. Jón hefur öll spil á hendi sér um
hvorn hinna rótgrónu stjórnmála-
flokka, Samfylkingu eða Sjálfstæðis-
flokk, hann vill leiða til valda með sér í
Reykjavík næstu fjögur ár. Nær öruggt
er talið að hann verði borgarstjóri á
næstu dögum, enda veittu nákvæm-
lega 20.666 Reykvíkingar honum um-
boð sitt á laugardaginn. Hann hefur
þegar hafið viðræður við Dag B. Egg-
ertssson, oddvita Samfylkingarinnar,
um samstarf.
Hrópar ekki allt í lagi, allt í lagi.
Benedikt Erlingsson leikari þekkir Jón
vel. Þeir unnu meðal annars að gerð
Fóstbræðraþáttanna. Þegar Benedikt
er beðinn um að lýsa Jóni, segir hann:
„Hann er mjög vitur manneskja og
meðvitaður um það sem hann get-
ur og getur ekki. Ég myndi segja að
hann sé kjarkmikill og þori að ráð-
ast í hluti sem hægt er að breyta. Svo
myndi ég segja að hann væri ótta-
laus og auðmjúkur gagnvart því sem
er ómögulegt að breyta. Svo er hann
oft svo vitur og áttar sig á því sem er
hægt að breyta og ekki breyta. Hann
hefur þessi þrjá eiginleika, kjark, visku
og æðruleysi. Þetta er ekki frá honum,
þetta hefur honum verið gefið.“
Benedikt segir að Jón muni standa
sig óskaplega vel sem borgarstjóri.
„Hirðfífl og trúður eins og Jón, hann
þekkir andlit lyginnar og hann er sér-
fræðingur í að skoða lygina. Það er
hans vinna. Þannig leiðtoga þurfum
við. Hann er svona maður sem kann
að klifra upp í tré til að segja fólkinu
niðri í frumskóginum hvort það sé að
höggva sig í rétta átt. Hann er smali
sem stuggar hjörðinni frá hömrunum
en hleypur ekki glaður með í þokunni
og hrópar allt í lagi, allt í lagi!“
Óttast pólitíska hefnd Jóns
Benedikt segir stærsta kostinn þó að
Jón sé ekki alinn upp í stjórnmála-
flokki og að hann sé alveg jafnhæfur
til þess að stýra borginni og hver ann-
ar. „Allir þessir borgarfulltrúar Besta
flokksins eru með meiri reynslu af
ólíkustu þáttum lífsins en þessir litlu
flokkshestar, kettir og kettlinga,“ segir
Benedikt og heldur áfram: „Hann er
með athyglisbrest og það er mjög gott
að hafa þannig smala, þá er gaman í
hjörðinni og annars er leiðinlegt og þá
er alveg eins hægt að hlaupa fram af
hömrunum.“
En mun athyglisbresturinn ekki
erfiða Jóni starfið sem borgarstjóri,
þar sem langir vinnudagar fara í að
lesa pappíra? „Nei, enda verður hann
með menn í því. Heldur þú að Villi
hafi pælt mikið í pappírunum, hann
las ekki smáaletrið sjálfur.“
Benedikt er tregur til þess að segja
blaðamanni skemmtilega sögu af Jóni
nú þegar hann er að verða borgar-
stjóri. „Ég vil ekki eiga eitthvað und-
ir því ég óttast pólitíska hefnd,“ segir
Benedikt.
Bensínstöðvardót í afmælisgjöf
Jón er fæddur 2. janúar árið 1967
og er því 43 ára gamall. Þann dag ár
hvert fara fram vörutalningar í mörg-
um verslunum landsins og gerði Jón
grín að því í uppistandinu Ég var einu
sinni nörd, að hann hafi því yfirleitt
fengið eitthvað dót sem fæst á bensín-
stöðvum í afmælisgjöf, því allar aðrar
verslanir voru lokaðar.
Jón hefur komið víða við á ferl-
inum. Hann gekk í Réttarholtsskóla
þegar hann var unglingur og þar gerð-
ist hann pönkari, einn þeirra fyrstu á
landinu. Það gekk þó ekki átákalaust
að vera brautryðjandi í pönkinu á Ís-
landi. Í Réttó var hann að eigin sögn
oft laminn í klessu. Ástæðurnar voru
bæði að hann var pönkari og einnig
vegna þess að hann var einfaldlega
skrítinn.
14 ára gamall ákvað Jón að hætta
að mæta í skólann, bæði út af bar-
smíðum og vegna þess að hann átti
við mikla námsörðugleika að stríða. Í
stað þess að fara í skólann, fór Jón að
venja komur sínar á Hlemm og varð
þar hluti af pönkurunum á Hlemmi.
Á þeim tíma gekk hann undir gælu-
nafninu Jónsi pönk. Óregla fylgdi þó
lífinu sem pönkari og þar sem hefð-
bundin eiturlyf á borð við hass og
amfetamín voru ekki á hverju strái
þá, fóru pönkararnir á Hlemmi að
taka inn sjóveikistöflur til að komast í
vímu. Eitt skipti gleypti Jónsi pönk svo
margar sjóveikistöflur að hann var
lagður inn á spítala og var næstum því
dáinn. Í síðasta helgarblaði DV viður-
kenndi Jón líka að hafa prófað önnur
fíkniefni eins og kókaín og hass.
Lífið á Hlemmi varði þó ekki að
eilífu og svo fór á endanum að hann
var sendur á Núp í Dýrafirði. Þar voru
rimlar fyrir gluggum og á kvöldin var
öllum herbergjum og hurðum læst.
Hann hefur þó sagt frá því að honum
hafi líkað vistin á Núpi vel.
Sjálfsprottinn með
hug eins og flugvöll
Í viðtali við götublaðið Reykjavík
Grapevine um daginn, í þýðingu Ill-
uga Jökulssonar á DV.is, lýsti Jón sér
sem sjálfmenntuðum listamanni sem
hefur tekið þátt í ýmsum verkefnum í
gegnum tíðina.
„Ég hef leikið, skrifað, leikstýrt,
unnið við auglýsingagerð og búið til
gommu af gamanþáttum. Og ég hef
leikið stór hlutverk í nokkrum bíó-
myndum. Líklega lít ég á sjálfan mig
sem eins konar hugmyndasmiðju.
Ég hugsa mjög mikið. Hugur minn
er eins og flugvöllur, eins og Heat-
hrow. Þar er aldrei lokað; það er allt-
af einhver að koma eða fara, en eng-
inn stoppar, því ég er mjög gleyminn.
Ég er sjálfsprottinn maður og ég hef
aldrei farið troðnar slóðir að neinu
marki - ég hef enga formlega mennt-
un.“
í sama viðtali sagði Jón frá því að
hann hafi alla tíð verið sjokkerandi
persónuleiki og rifjar upp þegar hann
var fjögurra ára gekk hann upp að
fólki í strætó og spurði hvort það hefði
verið að ríða: „Alltaf að ríða?“
Afleit framhaldsskólaganga
Þegar Jón kom aftur í bæinn frá Núpi
reyndi hann fyrir sér í nokkrum fram-
haldsskólum en náði engum árangri
þar. Hann fór í MH, Flensborgarskól-
ann, FÁ, FB og MS en kláraði eig-
inlega ekkert. Hann segir sjálfur að
skólagangan hafi verið tilgangslaus
fyrir hann þar sem hann það væri
óhugsandi að hann myndi ljúka stúd-
entsprófi. Verðandi borgarstjóri seg-
ist vera algjörlega talnablindur, hann
kunni plús og mínus en ekkert meira.
Eftir hrikalega árangurslitla fram-
haldsskólagöngu fékk hann vinnu hjá
borginni áður en leið lá á geðdeildir
Borgarspítalans, Landspítlans, Kleppi
og einnig á Kópavogshæli, þar sem
hann fékk vinnu. Þar fann hann sig vel
og kynntist athyglisverðu fólki. Sjón-
varpsþáttur sem gerist á geðdeild,
með sömu mönnum í fararbroddi og
gerðu Vakta-þættina, er sagður vera í
bígerð. Þau áform hljóta þó að vera í
uppnámi, þar sem Jón hefur sagt að
hann ætli ekki að sinna tveimur störf-
um á meðan hann er borgarstjóri.
Eftir að hann hætti á Kleppi flutti
hann til Svíþjóðar þar sem hann fékk
vinnu í Volvo-verksmiðjunum. Jón
hefur sagt að það hafi verið ánægulegt
starf en þreytandi til lengdar.
Hann varð hins vegar frægastur
á miðjum 10. áratugnum sem annar
helmingur Tvíhöfða ásamt Sigurjóni
Kjartanssyni. Þátturinn hefur verið í
loftinu á fjölmörgum útvarpsstöðv-
um í gegnum tíðina, meðal annars á
X-inu, Radíó, Radíó X, Kananum og
Rás 2.
Þá hefur hann getið sér gott orð
fyrir hina goðsagnakenndu grínþætti
Fóstbræður sem sýndir voru á Stöð 2
fyrir nokkrum árum. Hann hefur leik-
ið í fjölmörgum auglýsingum og vakti
óskipta athygli í auglýsingum Símans
fyrir nokkrum árum þegar hann lék
Júdas í sjónvarpsauglýsingu sem fór
fyrir brjóstið á mörgum.
„Besti borgarstjóri
sem verið hefur“
Í viðtalinu við DV í desember þeg-
ar stjórnmálaleiðtoginn Jón Gnarr
var að fæðast, sagðist hann ekki hafa
áhyggjur af því að kerfið myndi ná
tökum á sér ef hann yrði kjörinn borg-
arfulltrúi. „Ég hef engar áhyggjur af
því að þetta muni hafa áhrif á mig.
„SMALI SEM STUGGAR HJÖRÐINNI“
Jón Gnarr var kallaður Jónsi pönk og var næstum því dáinn eftir að hann tók of margar sjóveikistöflur
inn. Hann kláraði ekki grunnskóla og er með athyglisbrest, en hefur fyrstur manna náð að splundra gamla
valdakerfinu með ótrúlegum sigri í kosningunum á laugardag. Hann er trúður sem þekkir andlit lyginnar,
að mati félaga hans. Mágur hans segir allt sem hann tekur sér fyrir hendur verða snilld. Vinnufélagi hans
segir hann hafa leiðtogahæfileika.
vAlGeir örn rAGnArSSon
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Hirðfífl og trúður eins og Jón, hann
þekkir andlit lyginnar
og hann er sérfræðingur
í að skoða lygina.
Sigurvegari „Hann er maður fólksins,
hvar sem hann er staddur, sérstaklega
við tökur á Vöktunum, þá heldur hann
öllu gangandi með jákvæðni og með
því að taka þátt í lífi annarra.“
20.666 atkvæði Besti flokkurinn vann
stórsigur í kosningunum á laugardag og
20.666 manns kusu flokkinn.