Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2010, Page 18
Dísilolía
Algengt verð verð á lítra 200,2 kr. verð á lítra 200,2 kr.
Skeifunni verð á lítra 200,3 kr. verð á lítra 197,3 kr.
Algengt verð verð á lítra 203,2 kr. verð á lítra 200,2 kr.
bensín
Dalvegi verð á lítra 199,4 kr. verð á lítra 196,4 kr.
Fjarðarkaupum verð á lítra 197,1 kr. verð á lítra 197,1 kr.
Algengt verð verð á lítra 203,2 kr. verð á lítra 200,2 kr.
Umsjón: BaldUr GUðmUndsson, baldur@dv.is / ney tendur@dv.is
el
d
sn
ey
ti
18 mánuDAgur 31. maí 2010
StAFræn
mynDAvél á
10.000 krónur
Neytendasamtökin könnuðu fram-
boð og verð á stafrænum myndavél-
um um mánaðamótin apríl-maí og
náði könnunin til þrettán seljenda.
Kannað var verð á bæði vélum með
fastri og skiptanlegri linsu, að því er
fram kemur á vef samtakanna. 146
mismunandi vélar reyndist til með
fastri linsu og 51 vél með skiptan-
legri linsu.
„Verðið er mjög mismunandi
enda mismikið lagt í vélarnar af
hálfu framleiðenda. Lægsta verð á
vél með fastri linsu var 9.995 krónur
og það hæsta 139.900 krónur. Lægsta
verð á vél með skiptanlegri linsu var
49.900 krónur og það hæsta 990.000
krónur. Reyndar er í báðum tilvik-
um hægt að kaupa dýrari vélar eða
allt upp í 3,8 milljónir króna, en þar
sem slíkar vélar eru fyrst og fremst
ætlaðar atvinnumönnum eru þær
ekki birtar hér,“ segir enn fremur um
könnunina.
Bílstjóri goða
n „Ég þurfti að nauðhemla á stæð-
inu við Holtagarða. Hann keyrði eins
og vitleysingur,“ sagði neytandi sem
vildi lasta ökumann bíls frá Goða.
„Bílnúmerið var MR-eitthvað. Ég sá
það ekki því hann sikk-
sakkaði út um allt. Ég
sá að tveir aðrir bílar
urðu að nauðhemla til
að forðast árekstur,“
sagði maðurinn. Þetta
var á þriðjudegi í síðustu
viku, laust fyrir klukkan þrjú.
sEndIð loF Eða lasT Á nEYTEndUr@dV.Is
til sjávar og sveita
n Lofið að þessu sinni fær fisk- og
kjötbúðin Til sjávar og sveita sem var
opnuð nýlega í Ögurhvarfi í Kópa-
vogi. Viðskiptavinur sem hafði
samband við DV keypti sér
þorsk og tók hann það sér-
staklega fram að þjónustan
hafi verið afar góð. Þá
skemmdi ekki fyrir að
úrvalið í versluninni
var til fyrirmyndar og
verðinu stillt í hóf.
LOF&LAST
Svona undirbýrðu ferðalagið
Það er sannarlega að mörgu að hyggja þegar utanlandsferð er undirbúin. Þú þarft að at-
huga með tryggingar, fullvissa þig um að vegabréfið gildi, koma farsímamálum á hreint,
panta hótel, undirbúa ferðamáta og ganga frá heimili þínu á Íslandi, svo fátt eitt sé nefnt.
Hér að neðan er leiðarvísir að því hvað þú þarft að gera áður en haldið er utan.
NOTAðu
NeTið
n Einfaldast er að panta hótelgistingar
fyrirfram á netinu. auðvelt er að finna
lista yfir hótel í hverri borg þar sem
ferðalangar geta fundið hótel sem er
nákvæmlega sniðið að þeirra þörfum.
Pantið með góðum fyrirvara. athugaðu
að oft þarf að panta borð á góðum
veitingahúsum með miklum fyrirvara,
ef slíkt er á dagskrá. Gott er að gera það
á netinu áður en í ferðina er haldið. að
sama skapi getur verið nauðsynlegt að
panta miða í leikhús eða á aðra viðburði
með góðum fyrirvara. Ekki treysta á að
það reddist þegar út verður komið. notið
google til að finna upplýsingar fyrir
ferðamenn. dæmi um góðar síður borga
eru newyork.com og copenhagen.dk.
VegAbréF Og
SmáhLuTir
n Vegabréfið þarf að skoða með fyrir-
vara. athugið strax og ferðin er ákveðin
hvort vegabréfið sé gilt. Þú kemst
ekkert án fullgilds vegabréfs. Gerðu svo
nákvæman lista yfir allt sem þú vilt hafa
með þér í ferðalagið. Ef þetta er ekki gert
eru líkur á að þú gleymir hlutum á síðustu
metrunum þegar þú þarf að drífa þig út
á flugvöll. Það er ekkert grín að gleyma
kreditkortinu, vegabréfinu, farseðlum eða
staðfestingu á hótelgistingunni. Geymdu
listann í snyrtiveskinu þínu og bættu á
listann því sem þér dettur meira í hug í
aðdraganda ferðarinnar. Gleymdu ekki
fylgihlutum eins og hleðslutækjum.
Að pAkkA
n Þegar kemur svo að því að pakka
niður er gott að draga allt sem þú tekur
með þér fram á gólf eða borð. skoðaðu
farangurinn gaumgæfilega og spurðu
þig hvort þú þurfir á þessu öllu að halda.
Þarftu að taka hárblásarann með þér
eða er hann til staðar á hótelinu? Ertu
líklegur til að þurfa tvenn jakkaföt? settu
lása á ferðatöskurnar og auðkenndu þær
með einhverjum hætti, til dæmis skær-
um borða þannig að þú þekkir töskurnar
þínar úr fjarlægð. Hafðu með þér
nauðsynleg heimilisföng og símanúmer
sem þú kannt að þurfa að nota.
LáTTu NágrANNA ViTA
n láttu nágrannana vita af því að þú sért að fara og hversu lengi þú verður. Ekki setja
tilkynningu um ferðatilhögun þína á Facebook, sérstaklega ekki ef þú ert með opinn
„profile“. Biddu ættingja eða nágranna sem þú treystir að fylgjast með húsinu þínu,
tæma pósthólfið og jafnvel draga frá gluggum á daginn. Þannig fælirðu innbrots-
þjófa frá. annað ráð er að biðja einhvern nágranna að nota snúrurnar þínar eða
bílastæðið, þannig að utan frá virðist einhver vera heima.
TryggiNgAr
n Farangurstryggingar eru ekki dýrar
miðað við það tjón sem þær kynnu að
þurfa að bæta, ef illa fer. Vertu viss um
að vera slysatryggður og hvert þú átt að
snúa þér ef þú lendir í tjóni. Það getur
verið dýrt að leggjast inn á sjúkrahús
erlendis. Hafðu þessa hluti á hreinu, áður
en þú leggur af stað.
gjALdeyrir
n Hámarks gjaldeyrir sem taka má
með sér úr landi er 300 þúsund krónur.
Gjaldeyrishöftin koma í veg fyrir frekari
flutning peninga úr landi. Íhugaðu vel
hvort þú þurfir á miklum peningum að
halda - greiðslukort eru mun hentugri
valkostur þar sem þú getur lokað kortinu
ef það glatast. Finndu út hvaða númer
þú þarft að hringja í ef þú týnir veskinu
eða kortinu. Hafðu samt smáræði af
gjaldeyri með í seðlum til að þurfa ekki
að byrja á því að leita að hraðbanka
þegar þú lendir á flugvellinum úti. Það er
gott að hafa fé fyrir drykkjarföngum og
snakki í flugvélinni og á flugvöllum auk
þess sem þú þarft yfirleitt að greiða fyrir
ferðina á milli flugvallar og hótels.
LausLega byggt á bókinni 500 hoLLráð.
„Við teljum einfaldlega að það sé
pláss fyrir fleiri aðila. Það hefur ríkt
ansi mikil fákeppni á þessum mark-
aði í um fimmtán ár, þar sem tvö fyr-
irtæki hafa skipt þessu á milli sín. Við
ákváðum bara að láta á þetta reyna,“
segir Birgir Hákonarson, fram-
kvæmdastjóri Tékklands bifreiða-
skoðunar. Tékkland býður aðalskoð-
un fyrir fólksbíla á þúsund krónum
lægra verði en samkeppnisaðilarnir.
Skoðunin kostar 7.495 krónur en til
samanburðar kostar 8.400 krónur hjá
Frumherja og 8.490 krónur hjá Aðal-
skoðun hf.
Birgir segir að reglur um bif-
reiðaskoðanir hafi breyst í fyrra þeg-
ar skoðunaraðilum var ekki lengur
gert að skoða allar gerðir farartækja,
meðal annars rútur og vörubíla. Þá
hafi þessi möguleiki opnast. „Áður
þurfti að skoða alla bíla til að fá leyf-
ið en við getum, eftir breytingarn-
ar, einbeitt okkur að því að skoða
minni bíla. Fyrir vikið þurfum við
ekki að fjárfesta eins mikið, getum
haft minni yfirbyggingu. Þannig
skapast svigrúm til að hafa verð-
ið lægra en hjá hinum,“ segir Birgir
en hann segir að verðið á bifreiða-
skoðunum hafi hækkað umfram al-
mennar verðlagsbreytingar í land-
inu undanfarin ár. „Það er viðbúið
að samkeppnisaðilarnir lækki verð-
ið hjá sér, og þá reynir á neytendur
að standa við bakið á nýjum aðila
sem er að leggja sitt af mörkum til
að auka samkeppni og lækka verð,“
segir hann.
Spurður hvort til standi að opna
fleiri stöðvar segir Birgir að stefnt
sé að því að opna aðra stöð við N1
í Holtagörðum eftir þrjár vikur og
horft sé til þess að því að opna þriðju
stöðina í Borgartúni í lok ársins en
þess má geta að Tékkland hefur gert
samstarfssamning við N1um leigu á
húsnæði og því verði stöðvarnar við
hlið bensínstöðvanna.
Birgir segir aðspurður að skoðun-
in hjá Tékklandi fari að öllu leyti eins
fram og hjá stóru aðilunum, enda
verði allir að fylgja stjórnvaldsreglum
þegar kemur að því að skoða bifreið-
ar. Munurinn fyrir eigendur fólksbíla
felist því einungis í lægra verði og
minni yfirbyggingu. Spurður hvaðan
nafnið Tékkland sé komið segir Birg-
ir að þeir hafi viljað finna ferskt og
gott sem sé öðruvísi. „Við erum auð-
vitað að „tékka“ á bílum og athuga
hvort þeir séu í lagi. Þaðan er þetta
komið,“ segir hann í léttum dúr.
Tékkland er ný bifreiðaskoðun sem hefur opnað í Hafnarfirði:
ódýrari bifreiðaskoðun
Lækka verðið Birgir segir mikilvægt að
neytendur styðji við nýja aðila á markaði,
enda hafi fákeppni ríkt um langt skeið.