Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2010, Qupperneq 21
Eyþór ArnAlds og Sjálfstæðis-
flokkurinn voru klárir sigurvegarar
sveitarstjórnakosninganna í Árborg.
Flokkurinn bætti þar við sig miklu fylgi
og náði inn nýjum manni. Þannig felldi
flokkurinn meirihlutann og hefur
sjálfur hreinan meirihluta.
Þetta er lítið
kraftaverk
Að undanförnu hefur Morgun-
blaðið fjallað í fjölmörgum grein-
um um ferðir landsmanna um há-
lendið. Annars vegar virðast vera
hópar sem kalla sig náttúruvernd-
ara og landverndarfólk og hins veg-
ar talsmenn ýmissa hópa sem af
fyrrnefndu hópunum eru nánast
flokkaðir sem skemmdarverkafólk í
óbyggðum landsins. Þar má nefna
jeppafólk, mótorhjólafólk, hesta-
fólk, og nánast alla þá sem ferðast
vilja um landið sitt öðruvísi skætt
en berfætt eða aðeins á góðum ull-
arsokkum. Ullarfólkið vill loka sem
allra flestum ökuleiðum. Ekki er
hægt að skilja málflutning „verndar-
fólksins” á annan veg en að hann sé
öfgafullur og taki ekkert tillit til þess
að rétt og eðlilegt sé að sem flest-
ar þekktar leiðir um hálendið sem
þegar hafa verið riðnar eða ekn-
ar um áratugi megi og eigi að vera
áfram opnar öllum vegfarendum
sem hingað til hafa nýtt sér þær til
yndis og gleði, hvort sem ferðast er
gangandi, akandi eða ríðandi.
Sé farið að óskum ull-
arfólksins verður gengið gróflega
á rétt landsmanna til frjálsra ferða
um landið sitt. Engin ung hjón með
smábörn fara í langar gönguleið-
ir í óbyggðum. Engir fatlaðir ganga
langar leiðir. Fá gamalmenni hafa
afl í erfiðar göngur. Jafnvel fullfrískt
fólk vill gjarnan nota vélknúið öku-
tæki til þess að komast í nánd við
fagra staði hálendisins og ganga þá
jafnvel smá spöl til þess að njóta
dýrðarinnar.
Ullarfólkið, starfslið umhverfis-
ráðuneytis og annað öfgalið, ætti að
gæta þessara hópa sem að ofan eru
nefndir.
Svandís Svavarsdóttir, sem vegna
stöðu sinnar er í fararbroddi öfga-
liðsins, mætti íhuga vandlega hve-
nær hún vegna aldurs, veikinda eða
annarrar hömlunar gæti ekki ferð-
ast á ullarsokkum um landið okkar.
Hver verða aldursmörk ferðafólks
um hálendið ef öfgarnar fá að ráða?
Ég hef nokkuð lengi mátt við veikt
hjarta búa. Á bílum hefi ég þó ekið
um hálendið mér til mikillar ánægju
og gleði. Á eins drifs húsbíl (sendi-
bíl af Mazda gerð) og á fólksbíl eins
drifs Peugeot 406. Sem dæmi hefi
ég ekið á Fjörðu, í Flateyjardal, um
Sprengisand og þá yfir að Laugafelli
og síðan niður í Bárðardal. Einnig
upp í Öskju um Herðubreiðarlindir
og þaðan yfir Krepputungu og upp
undir Hvannalindir. Niður þaðan
í Möðrudal. Frá Möðrudal upp að
Kárahnjúkum og frá Sænautaseli í
Kárahnjúka. Frá Eskifirði í Vöðla-
vík. Frá Mjóafirði út að Dalatanga.
Frá Snæbýli upp um Álftakróka að
Álftavatni. Um Eldgjá í Landmanna-
laugar. Einnig að Langasjó og inn í
Veiðivötn. Ekki skal gleyma Lakag-
ígasvæðinu. Og þá bæði Dómadals-
leið frá Landmannalaugum og eins
þaðan um Hraunið niður að Sig-
öldu. Þá má nefna Kaldadal og inn
að Surtshelli.
Þessi upptalning þjónar aðeins
þeim tilgangi að benda á að margar
leiðir má fara á venjulegum bílum,
sé gætni höfð og hugað að veðri.
Ef síðan væri bætt við öllum þeim
leiðum sem færar eru á jeppum og
auk þess sem færar eru á breytt-
um jeppum eða hópferðabílum, þá
yrði upptalning löng. Ítreka vil ég
að þess verði gætt af öllum mætti að
öfgafólk um lokun hálendisins fái
ekki ráðið. Það yrði mikil ógæfa.
Lokun vega með öfgafullum
hætti býður heim styrjöld á hálend-
inu. Enginn vafi getur leikið á að
öfgar ullarsokkaliðsins kalla á öfgar
hinna, þeirra sem vilja sem frjálsast-
ar ferðir um landið okkar allra. Þeir
gætu hugsanlega sumir tekið til öfga
um akstur utan vega verði öfgum
beitt um lokun vega og slóða sem
um áratugi hafa verið eknir. Mik-
il væri ógæfa ullarliðsins ef öfgar
þeirra um lokun hálendisins leiddi
til styrjaldar til fjalla.
Óvelkomin í eigin landi
umræða 31. maí 2010 mánudagur 21
1 Eurovision sigurvEgari striplaðist í sápuópEru Hin 19
ára gamla söngkona Lena Meyer-
Landrut kom fram nakin í ástarsenu.
2 Hin Hliðin á Jóni gnarr: vill láta gott af sér lEiða Jón
Gnarr var yfirheyrður í helgarblaði
DV.
3 „KlárlEga Hagsmunir í Húfi“Útgerðarfyrirtækið Álfsfell á Ísafirði
skuldar um tvo milljarða króna vegna
kvótakaupa.
4 „mussuKErlingar“ vilJa bæta HEiminn Sveinn Andri Sveinsson vill
lokað réttarhald yfir mönnunum sem
eru ákærðir fyrir vændiskaup.
5 bEsti floKKurinn lætur EKKi þvinga sig Frambjóðendur Besta
flokksins ætla að gefa sér tíma til að
fara yfir stöðuna.
6Jónas KristJánsson: ragna fasisti og ríKisstJórnin óHæf
Jónas Kristjánsson fyrrum ritstjóri fer
ófögrum orðum um ríkisstjórnina á
bloggsíðu sinni.
7 rapparinn bEnt áKærður fyrir árás Rapparinn Ágúst Bent
Sigurbertsson hefur verið ákærður
fyrir líkamsárás.
mest lesið á dv.is myndin
Hver er maðurinn?
„Eyþór Arnalds.“
Hvar ertu uppalinn?
„Ég er alinn upp í Reykjavík á veturna en
á sumrin var ég í Flóanum.“
Hvað drífur þig áfram?
„Að gera eitthvað nýtt, skapa eitthvað og
lifa lífinu því það má ekki fara til spillis.“
Með hverjum heldurðu í enska?
„Ætli ég verði ekki að segja Man. United.“
Hvað svafstu mikið á kosninganótt?
„Ég svaf nú alveg fjóra tíma sem var nú
meira en næturnar á undan.“
Hvað var það fyrsta sem þú hugsað-
ir í morgun?
„Hvað þetta væri yndislegur dagur.“
Hver eru þín fyrstu viðbrögð við
úrslitunum í Árborg?
„Þetta er lítið fallegt kraftaverk og við
ætlum okkur að fara vel með það traust
sem okkur er veitt. Við ætlum að vinna
náið með okkar samstarfsfólki, hinum
bæjarfulltrúunum og síðast ekki síst
fólkinu í bæjarfélaginu.“
Gastu ímyndað þér svona góða
kosningu?
„Já. Við fundum fyrir sterkri bylgju sem
fór um allt og við vorum alveg vissir um
að fá betri kosningu en síðast. Við erum
að fá 25 prósent fleiri atkvæði en fyrir
fjórum árum.“
Er þetta ekki stórsigur fyrir þig og
flokkinn?
„Ég myndi ekki segja það. Þetta er stór-
sigur fyrir íbúana og sveitarfélagið en
þannig lítum við á það. Við viljum ekki
horfa á þetta út frá of þröngu sjónar-
horni. Þetta er stórsigur fyrir þennan hóp
okkar og íbúana í sveitarfélaginu.“
þýðir þetta ekki að fólkið vill
breytingar í Árborg?
„Jú, það er nákvæmlega það sem þetta
er. Við fáum þennan stuðning af því við
unnum málefnin með íbúum bæjarsins.
Við vorum með íbúafundi á Selfossi,
Stokkseyri og Eyrarbakka.“
Hvað er brýnast að gera í sveitarfé-
laginu?
„Brýnast er að standa saman og hafa
gaman af því sem við erum að gera og
auðvitað sýna gott fordæmi.“
maður dagsins
kjallari
„Já, að sjálfsögðu.“
siGurður KÁri KristjÁnsson
37 ÁRA ÞinGMAðUR
„Já, ég held það verði skemmtilegt að
fylgjast með því.“
Guðrún Pétursdóttir
21 ÁRS StöðUVöRðUR
„Já, auðvitað.“
AlExAndEr þórsson
16 ÁRA StARFSMAðUR HJÁ
REyKJAVÍKURBoRG
„Já, það ætla ég að gera.“
rutH EinArsdóttir
38 ÁRA VERSLUnARStJóRi
„nei, mér finnst fótbolti leiðinlegur.“
HErdís stEfÁnsdóttir
22 ÁRA StöðUVöRðUR
ætlarðu að fylgJast mEð Hm í fótbolta í sumar?
dómstóll götunnar
skrifar
Kristinn snælAnd
„Lokun vega með
öfgafullum hætti
býður heim styr-
jöld á hálendinu.“
Húsbíllinn í Veiðivötnum.
fólksbíllinn við Álftavatn í Álftakrókum.
uppgufun Það var kyrrð yfir Elliðaárdalnum um klukkan tvö á kosninganótt þegar Róbert Reynisson, ljósmyndara DV, bar að.