Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2010, Blaðsíða 25
úttekt 31. maí 2010 mánudagur 25
Minni hrukkur ef þú hættir
Áhrif reykinga Á meðgöngu
n Minnkar frjósemi.
n Eykur hættu á utanlegsfóstri.
n Eykur hættu á fósturláti.
n Eykur hættu á fylgjulosi.
n Eykur hættu á fyrirsætri fylgu.
n Minnkar hættu á meðgöngueitrun.
n Eykur líkur á að barnið verði léttburi.
n Eykur hættu á fyrirburafæðingum.
n Eykur hættu á fósturdauða.
n Hækkar burðarmálsdauða.
n Eykur hættu á því að barnið fæðist
með kolfna vör og/eða góm.
reykingar og brjóstagjöf
n Nikótín fer mjög greiðlega út í
brjóstamjólkina, en frásogast ekki
vel frá meltingarvegi barnsis.
n Reykingar minnka mjólkurmyndun.
n Eitrunareinkennum lýst hjá
börnum mæðra sem reykja meira
en 1 pakka á dag.
n Einkenni: Óværð, svefnleysi,
uppköst, niðurgangur, hraður
hjartsláttur, linka og fölvi.
byggt Á fyrirlestri
Þórðar Þórkelssonar læknis
áhrif reykinga á meðgöngu
Flestir sem hringja í Reyksímann
hafa reynt allt.
Ráðþrota
reykingafólk
hringir inn
„Við fáum símtöl frá öllum skalanum en upp á síðkastið hefur
aukist að ungt fólk er að hringja inn og leita sér hjálpar,“ segir
Ágústa Tryggvadóttir, verkefnisstjóri Reyksímans. Ágústa og
félagar eru ekki með neitt eitt ráð handa þeim sem vilja hætta.
„Við spjöllum við fólk og fáum að vita hvað það hefur reykt
lengi. Þjónusta okkar er einstaklingsmiðuð og við reynum að
finna réttu leiðina handa hverjum og einum,“ segir hún og
bætir við að þau bjóðist til að hringja aftur í viðkomandi til að
fylgjast með og að flestir nýti sér þá þjónustu.
Ágústa segir flestum þykja erfitt að hætta að reykja en
að það sé þó afar einstaklingsbundið. „Sumum finnst þetta
minna mál en öðrum en þeir sem hringja í okkur eru flestir
búnir að reyna allt til að hætta. Við reynum að leggja þetta
þannig upp að fólk líti á það að hætta með jákvæðum augum.
Til dæmis að gleðjast ef þér tekst að reykja tíu sígarettur á dag
í stað 15. Við verðum að fagna öllum litlu sigrunum og þótt
þú fallir skaltu bara passa þig betur næst og halda ótrauð/ur
áfram.“
Símanúmer Reyksímans er 8006030.