Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2010, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2010, Page 29
sviðsljós 31. maí 2010 mánudagur 29 Umbo›s- og sölua›ili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi Minnistöflur www.birkiaska.is Birkilauf- Betulic Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). Justin Bieber: gekk næstum á gler, aftur! Minnstu mátti muna að ungstirnið Justin Bieber gengi aftur inn í glervegg í síðustu viku. Justin var svo önnum kafinn við að laga hár sitt að hann gekk næstum því á vegginn en var heppinn að reka tánna í hann fyrst. Fyrir rétt rúmri viku lenti söngvarinn einmitt í því að ganga inn í glerhurð í Þýskalandi en þá var hann ekki jafn heppinn. Biener var þá að koma út úr stóri snúningshruð en var of fljótur á sér og rak höfuðið í glerið. Bieber Ætti kannski að fá sér gleraugu. Ólétt og trúlofuð Alica Keys og unnusti hennar Swizz Beats: Stórstjarnan Alicia Keys á von á sínu fyrsta með kærasta sínum Swizz Beats. Reyndar er Swizz meira en kærasti hennar því þau eru einnig trúlofuð og ætla að ganga í það heilaga síðar á árinu. Aliciu Keys þarf varla að kynna en hún er á meðal vinsælustu poppsöng- kvenna heims undanfarin ár. Vin- sældir hennar hafa sennilega aldrei verið meiri en akkurat núna þar sem lag hennar og Jay-Z, Empire State Of Mind, hefur slegið í gegn um víða ver- öld. Swizz Beats er heldur enginn ný- græðingur en hann er þekktur pródús- ent í rappheimum. Swizz heitir réttu nafni Kasseem Dean og hefur unnið mikið með DMX og Eve. Hann hefur einnig gert það gott með sínu eigin efni en frægastur er hann fyrir taktinn í lag- inu Ruff Ryders Anthem. Alicia og Swizz Eiga von á sínu fyrsta barni saman. Smá bumba Alicia á tónleikum nýlega. Sarah Jessica Parker  vakti heldur betur athygli á frum-sýningu myndarinnar Sex And The City 2 í Lundúnum í síð- ustu viku. Frumsýningin fór fram á Leicester Square eins og jafnan þegar stórmyndir eru frumsýnd- ar í Lundúnum en Parker klædd- ist glæsilegum kjól frá Alexander McQueen og við hann brjálæðis- legan hatt frá Philip Treacy. Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem Parker er með brjálaðan hatt frá Treacy. Hún var líka með einn slíkan á frumsýningu fyrri myndar- innar árið 2008. Sarah Jessica Parker á frumsýningu: Brjálaður hattur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.