Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2010, Blaðsíða 30
Þeir Steindi Jr og Ágúst Bent sem
eru mennirnir á bak við gaman-
þættina Steindinn okkar léku vin
sinn Halldór Halldórsson, betur
þekktan sem Dóri DNA, heldur
grátt. Í þeim atriðum í þáttun-
um þar sem GSM-númeri hefur
brugðið fyrir hafa þeir Steindi
og Bent sett símanúmer Dóra á
skjáinn. Til dæmis í einu atrið-
anna með eltihrellinum Níelsi.
Sökum þess hefur Dóri verið að
fá símtöl á ýmsum tímum sól-
arhrings og hefur hann litla þol-
inmæði fyrir gríninu, þrátt fyrir
að vera sjálfur með mikið og ríkt
skopskyn.
Þegar hefur verið stofnuð grúppa
á samskiptavefnum Facebook í
kringum ummæli Boga Ágústs-
sonar úr kosningasjónvarpinu á
laugardag. Of snemma var skipt
inn í stúdíó á Boga og Þóru Arn-
órsdóttur og heyrðist fréttamað-
urinn reyndi þá segja línuna
eftirminnilegu: „Þetta græna
eplakjaftæði vil ég ekki sjá.“
„Já, er það!,“ segir Bogi og
hlær þegar blaðamaður DV til-
kynnir honum það að þegar hafi
verið stofnuð Facebook-grúppa
um ummæli hans. „Það var ekki
lengi gert.“ En hvað er þetta
græna eplakjaftæði? „Þannig var
mál með vexti að ég hafði beð-
ið sviðsstjórann um sódavatn og
vildi ekki með eplabragði. Mér
finnst það einfaldlega vont,“ seg-
ir Bogi enn hálfhlæjandi útaf at-
vikinu.
„Málið var að vitlaus tíma-
setning var á innslaginu og þetta
átti auðvitað ekkert að heyrast.
En það hefur nú margt verra en
þetta verið sagt í beinni útsend-
ingu sem ekki var ætlað fyrir eyru
almennings.“ Bogi segist ekki
muna eftir að hafa lent í þessu
áður á löngum ferli sínum. Enda
beri fréttamönnum að umgang-
ast míkrafóna af varkárni og fag-
mennsku. asgeir@dv.is
Símtöl að
næturlagi
Valli Sport, umboðSmaður Heru:
„Takk fyrir mig. Jii, það þarf
greinilega ekki að eiga kærasta
til að fá blóm!“ segir blaða- og
sjónvarpskonan og nú rithöf-
undurinn Þorbjörg Alda Marin-
ósdóttir á Facebook-síðu sinni.
Þorbjörg, eða Tobba eins og hún
er jafnan kölluð, hélt á fimmtu-
daginn í síðustu viku útgáfuteiti
vegna fyrstu bókar sinnar, Maka-
laus. Stefnumótasérfræðing-
urinn, sem er enn á lausu, fékk
haug af blómum í samkvæminu
sem haldið var á skemmtistaðn-
um Austur og var hin þakklát-
asta fyrir.
Enginn
kæraSti,
fullt af
blómum
30 mánudagur 31. maí 2010 fólkið
Ummæli Boga Ágústssonar Á rúV hafa Vakið mikla athygli:
Eplakjaftæðið slær í gegn
Bogi Ágústsson Finnst sódavatn með
eplabragði einfaldlega vont.
„Það fór ekki bent neitt úrskeiðis.
Við bara fengum ekki eins mörg stig
og spáð var,“ segir Valli Sport, um-
boðsmaður Heru Bjarkar Þórhalls-
dóttur, en framlag Íslands í Eurov-
ision þetta árið, „Je Ne Sais Quoi“, í
flutningi Heru endaði einungis í 19.
sæti í keppninni. Laginu hafði verið
spáð góðu gengi eftir undankeppn-
ina sem fram fór á þriðjudaginn síð-
asta. Þar lenti lagið í þriðja sæti og
og úrslitin á laugardaginn því tölu-
verð vonbrigði.
„Þau stóðu sig eins vel og þau
gátu. Þessi keppni er bara algjört
ólíkindatól. Við vorum með gríðar-
legan meðbyr svo einhvern veginn
þarna á lokasprettinum, þarna síð-
ustu tvo dagana fyrir keppnina tekur
einhver annar ölduna og við sitjum
eftir og við vitum ekkert af hverju.
Fólk hrífst allt í einu af öðru atriði
og við vitum ekkert af hverju,“ segir
Valli og bætir við: „Við vorum ennþá
með athyglina hjá blaðamönnum
og við fengum langmestan stuðn-
ing frá áhorfendum í höllinni,“ sagði
Valli þegar blaðamaður náði tali af
honum en þá var hann nýkominn
til landsins frá Ósló. Um 20 þúsund
áhorfendur voru í höllinni á úrslita-
kvöldinu.
Valli segir lítið hafa verið um
fagnaðarlæti hjá íslenska hópnum í
gær enda hafi þau ekki verið ánægð
með að lenda svona neðarlega í
keppninni, „Við áttum alls ekki von
á að lenda í 19. sæti enda var búið að
spá okkur að við værum eitt af þeim
sex löndum sem væri líklegt til að
vinna keppnina. En svona er þetta
bara. Við fögnuðum ekki en þetta
er atvinnufólk sem hefur lent í
ýmsu og er ýmsu vant,“ seg-
ir Valli og það vottar fyrir
vonbrigðum í röddinni.
„Maður heldur að eitt-
hvað sé að fara að slá í
gegn en það gerir það
ekki og svo heldur mað-
ur að eitthvað sé ekki
að fara að slá í gegn en
það gerir það.“
viktoria@dv.is
VonBrigði Gengi
Heru í Eurovison var
töluvert slakara en
búist var við.
Vonbrigði
að lenda í 19. sæti
Valli Sport, umboðsmaður Heru Bjarkar, segir það vonbrigði að
lenda í 19. sæti í Eurovision. Búið að var að spá Íslandi í eitt af
sex efstu sætunum.
umBoðSmaður Heru
Er vonsvikinn með úrslitin.