Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2010, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2010, Side 2
„Hefði endað öðruvísi“ n Faðir Gústafs Jökuls Ólafs- sonar svipti sig lífi í skugga at- vinnuleysis og fjárhagsvanda. Vanda sem mátti rekja til myntkörfuláns. Gústaf segir engan vafa leika á því að öðruvísi hefði farið ef gengistryggð lán hefðu ekki verið leyfð. Félagsráðgjafi hjá Hjálpar- starfi kirkjunnar segir að margir hafi ekkert á milli handanna þegar þeir hafi greitt af lánum sínum og margir lifi í mikilli óvissu. Forstjóri Lýsingar segir stjórnvöld ábyrg fyrir hruni krón- unnar. DV sagði á mánudag frá hópi fólks sem lent hefur í erfiðleikum vegna gengistryggðra lána. Var meðal ann- ars rætt við Ástþór Skúlason, bónda á Melanesi á Rauðasandi, sem er lam- aður fyrir neðan mitti. Hann lýsti því hvernig Lýsing tók af honum land- búnaðarvélar sem eru sniðnar að fötlun hans. seldi eignir sem lýsing Hafði Hirt n Haraldur Flosi Tryggva- son, nýkjörinn stjórnarfor- maður Orku veitunnar, segist ekki víkja sér undan þeirri ábyrgð að hafa verið einn af framkvæmdastjórum lánafyrirtækis- ins Lýsingar, sem gekk mjög hart fram gegn þeim sem tóku gengis tryggð lán og svipti fjölda lántakenda eignum sínum. Gengistryggð lán voru dæmd ólögleg í Hæstarétti Íslands í síðustu viku og því ljóst að innheimta Lýsingar var ólögleg en Haraldur telur engu að síður að hann njóti trausts til þess að verða í kjölfarið stjórnarformaður Orkuveitunnar. „Annars væri ég ekki að gefa mig í þetta. Ég tel mig geta notið trausts, auðvitað þarf ég að vinna mér það inn með verkum mínum. Ég og samstarfsmenn mínir höfum metið það þannig og við látum verkin tala.“ ríkHarður krefst 30 milljóna n Ríkharður Daðason, fyrrverandi landsliðs- framherji í knattspyrnu, krefst ríflega þrjátíu milljóna króna frá þrota- búi Kaupþings vegna vangoldinna launa. Málsókn hans gegn bank- anum var þingfest á miðvikudag í síðustu viku. Ríkharður starfaði í markaðsviðskiptum hjá Kaup- þingi og gegndi þar góðri stöðu er bankinn fór á hausinn haust- ið 2008. Hjá hinum nýja banka, Arion banka, hefur hann haldið áfram störfum og segir aðspurður enga árekstra hafa orðið vegna mála reksturs ins gegn þrotabú- inu. „Þetta eykur klárlega flækjustig- ið en ég vona að málsaðilar geti horft framhjá þessum ágreiningi. Ennþá hafa ekki orðið árekstrar og vonandi verður það ekki þannig. Það er hægt að treysta því að ég sinni mínu störfum af heilum hug,“ segir Ríkharður. 2 1 MÁNUDAGUR og ÞRIÐJUDAGUR 21. – 22. JÚNÍ 2010 dagblaðið vísir 70. tbl. 100. árg. – verð kr. 395 Faðir GústaFs svipti siG líFi í skuGGa myntkörFuláns: n HANN HAFÐI BORGAÐ MEIRA EN VIRÐI BÍLSINS n LÝSING VILDI EKKI SEMJA OG ÆTLAÐI AÐ TAKA BÍLINN LÁNIÐ NÁNAST HVERFUR ERPUR STEFNIR LÖGREGLUNNI n ANELKA SóTBÖLVAÐI DOMENEcH allt í rugli hjá frökkum BJARNI OG ÓLÖF SIGUR STRANGLEG FRéTTIR FRéTTI R Ólafur Jón Leósson „HEFÐI ENDAÐ ÖÐRUVÍSI“ ÓTRÚLEG UPPRISA MARK- VARÐAR PYNTINGAR BÚA TIL ÖFGAMENN DJÚPBORUN Í UPPNÁMI ERLENT n MAÐURINN SEM SIGRAÐI SP-FJÁRMÖGNUN n LAMAÐUR BóNDI SVIPTUR VINNUVéLUM NEyTENDUR Þessar fréttir bar hæst í vikunni þetta helst Gráa svæðið - skiptivinnumarkaður heitir Face-book-síða sem hefur það að markmiði að fá fólk til að skiptast á viðvikum án þess að peningar komi þar við sögu. Lögum sam- kvæmt er óhætt að segja að síðan sé á gráu svæði. hitt málið 2 fréttir 25. júní 2010 föstudagur Fæst í apótekum Rodalon® -utanhúss Eyðir bakteríum, sveppagróðri og mosa • Fyrir sólpallinn • Garðhúsgögnin • Sumarbústaðinn • Húsbílinn • Tjaldvagninn Sími 569 3100 • Stórhöfða 25 • www.eirberg.is RÍKHARÐUR KREFST ÞRJÁTÍU MILLJÓNA miðvikudagur og fimmtudagur 23. – 24. JÚNÍ 2010 dagblaðið vísir 71. tbl. 100. árg. – verð kr. 395 VINUR BESTA FLOKKSINS SETTUR YFIR ORKUVEITUNA: n fyrrverandi landsliðsframherji dregur kaupþing fyrir dóm n „Ég fÉkk vel borgað fyrir mín störf“ frÉttirlánafyrirtækin: vilja 100 þÚsund meira n af hverri milljón SVIPTI FÓLK EIGUM n „Ég tel mig geta notið trausts“ n viðskiptavinir lÝsingar greina frá niðurlÆgingu n „ef fólk vissi hvernig þeir láta“ BESTI FLOKKURINN SKIPAÐIYFIRLÖGFRÆÐING LÝSINGARSTJÓRNARFORMANN ORKUVEITUNNAR! BJARTSÝN ÞRÁTT FYRIR STEFNUR n frá tveimur bönkum frÉttir AFTUR MÓDEL erna g. tók sér hlé: fólk tapaði milljörðum á spákaupmennsku íbúðalánasjóður: frÉttir frÉttir MAKRÍLL ÓGNAR ESB-AÐILD frÉttir SKIPTIVINNA Á GRÁU SVÆÐI „Vantar þig smið? Ertu góð barna- pía? Gætirðu passað börnin fyrir smiðinn?“ Þannig hljóðar inngangur á Facebook síðu sem kallast Gráa svæðið - skiptivinnumarkaður. Á samskiptavefnum og ólíkinda- tólinu Facebook er sprottin upp síða þar sem fólk getur boðið fram eða óskað eftir vinnuframlagi, án þess að greiðsla fari fram. Þar getur hver sem er boðið fram vinnu sína gegn því að þiggjandinn geri eitthvað í staðinn sem hinn er ekki fær um eða treystir sér ekki til. Ríflega 2.000 manns eru aðdáendur síðunnar. Engin laun, engin útgjöld Á henni kemur fram að „grúbban“ hafi það ekki á stefnuskrá sinni að búa til gjaldmiðil eða skrásetja eitt- hvert verð til viðmiðunar. „Hér er fólki frjálst að miðla verkbeiðnum og verkboðum sín á milli og ég treysti því að fólk sem tekur þátt í þessu hérna hafi þroskann og mannlegt vit til að gera sér ljóst hvert verðgildi verka sinna og annarra er,“ segir á upplýsinga hluta síðunnar en þar kemur einnig fram að síðan sé vett- vangur fyrir fólk sem vanti vinnuafl í stað vinnu. „Engin laun, engin út- gjöld. Engir skattar.“ Barnapössun fyrir hljóðfæra- kennslu Fjölmargir hafa þegar sett inn auglýs- ingar þar sem þeir bjóða fram hina ýmsu þjónustu eða viðvik. Dæmi um verk sem fólk hefur boðist til að gera er að prjóna lopa peysur, gera við tölvur eða önnur raftæki, nudda þann sem gerir greiða á móti, elda fyrir hann mat, kenna honum á hljóðfæri. Hugmyndaflugi fólks eru engin takmörk sett. Prófarkalestur, tungumálakennsla, barnapössun og viðgerðir á fatnaði bjóðast fyrir bíla- viðgerðir, tölvuaðstoð, hársnyrtingu og rafvirkjun. „Hér fara engir fjármunir á milli manna, aðeins skiptivinna,“ segir á síðunni en aðstandendur hennar taka þó fram að engin ábyrgð er tekin á þeirri vinnu sem fólk kann að inna af hendi fyrir hvert annað. Vinnuskipti bönnuð Eins og áður segir heitir síðan Gráa svæðið. Hún ber nafn með rentu og rúmlega það. Þó að hugmyndin sé sniðug og markmiðið í sjálfu sér göfugt er Skúli Eggert Þórðarson ríkis skattstjóri ekki á sama máli. Í samtali við DV sagði hann málið einfalt. Skiptivinna væri einfaldlega bönnuð nema greidd væru af henni gjöld eins og af allri vinnu og vörum. Í lögum um tekjuskatt og eigna- skatt frá 2003 er skýrt kveðið á um að vinnuskipti séu bönnuð. Þar segir að skattskyldar tekjur teljist hvers konar gæði, arður, laun og hagnaður sem skattaðila hlotnist og metin verði til peningaverðs. Ekki skipti máli hvað- an þær stafi eða í hvaða formi þær séu. „Hvorki skiptir máli hver tek- ur við greiðslu né í hvaða gjaldmiðli goldið er, hvort sem það er í reiðufé, fríðu, hlunnindum eða vinnuskipt- um,“ segir meðal annars í lögunum. Skúli segir skattayfirvöld al- mennt séð ekki eltast við fáein þús- und krónur, sérstaklega ekki ef fjöl- skyldumeðlimir eða ættingjar hjálpi hver öðrum við tilfallandi verk. „En ef menn eru farnir að gera þetta með þeim hætti að fá utanaðkomandi aðila til að vinna gegn greiða er það auðvitað annað en stakur greiði á milli fjölskyldumeðlima eða náinna vina,“ segir hann og bætir við: „Tala nú ekki um ef menn þiggja auk þess atvinnuleysisbætur.“ Baldur guðmundsson blaðamaður skrifar: baldur@dv.is Engin laun, engin útgjöld. Engir skattar. sannarlega á gráu svæði Aðsögnríkisskattstjóraeruvinnuskiptióheimilnemaþauséugefinupptilskatts. H&n-mynd pHotos.com nudd fyrir vefsíðugerð Notendursíðunnar hafaboðiðýmis verkístaðinnfyrir önnursemþarfað innaaðhendi. 3 10 fréttir 23. júní 2010 miðv ikudagur Ríkharður Daðason, fyrrverandi landsliðsframherji í knattspyrnu, krefst ríflega þrjátíu milljóna króna frá þrotabúi Kaupþings vegna van- goldinna launa. Málsókn hans gegn bankanum var þingfest síðastliðinn miðvikudag. Ríkharður starfaði í markaðsvið- skiptum hjá Kaupþingi og gegndi þar góðri stöðu er bankinn fór á hausinn haustið 2008. Hjá hinum nýja banka, Arion banka, hefur hann hald- ið áfram störfum og segir aðspurð- ur enga árekstra hafa orðið vegna málarekstursins gegn þrotabúinu. „Þetta eykur klárlega flækjustigið en ég vona að málsaðilar geti horft fram hjá þessum ágreiningi. Enn þá hafa ekki orðið árekstrar og vonandi verð- ur það ekki þannig. Það er hægt að treysta því að ég sinni mínum störf- um af heilum hug,“ segir Ríkharður. Skiptir máli Ríkharður staðfestir að hér sé á ferðinni launakrafa á hendur þrotabúinu þar sem honum hafi ekki verið greitt samkvæmt ráðn- ingarsamningi. Hann vill ekki ræða upphæðir en segir þó að um sé að ræða fjárhæðir sem hann muni um. „Ég var með ráðningarsamning við gamla bankann og tel mig ekki hafa fengið greitt samkvæmt honum. Ég er í rauninni bara að reyna að sækja það. Í mínum huga er samningur alltaf samningur og þess vegna er ég að láta á þetta reyna fyrir dóm- stólum,“ segir Ríkharður. „Þetta er þannig tala að hún skiptir töluverðu máli, sér í lagi þegar aðrir hlutir hafa farið eins og þeir fóru. Það er ágreiningur um þessa launakröfu og því miður ekk- ert annað í stöðunni en að leita til dómstóla. Klárlega myndi ég vilja MarkaMaskína vill launin sín Fyrrverandi landsliðsframherjinn í knattspyrnu Ríkharður Daðason vonast eftir þ ví að fá rúmar þrjátíu milljónir króna úr þrotabúi Kaupþings. Milljónirnar eru laun sem hann t elur sig eiga inni samkvæmt ráðn- ingarsamningi og því stefndi hann búinu. Ríkharði þykir leiðinlegt að fara þessa leið, sér í lagi þar sem hann starfar hjá nýja bankanum. Þetta er þannig tala að hún skiptir töluverðu máli, sér í lagi þegar aðrir hlutir hafa farið eins og þeir fóru. tRauSti hafSteinSSon blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Stór tala Ríkharður segir upphæð vangoldinna launa þannig tölu að hún skipti máli og þykir leitt málið endi fyrir dómstólum. RíkhaRðuR DaðaSon hóf knattspyrnuferil sinn hérlendis með meistaraflokki Fram árið 1989. Þaðan lá leið hans til KR og síðan í atvinnumennsku. Á flottum ferli skoraði Ríkharður 129 mörk með félagsliðum sínum í 302 leikjum. Þá spilaði hann 44 landsleiki fyrir Íslands hönd og skoraði í þeim 14 mörk. FLOTTUR FERILL ÁR Lið LeikiR MöRk 1989 – 1995 fram 101 30 1996 – 1997 kR 34 21 1998 – 2000 Viking 69 49 2000 – 2002 Stoke 39 10 2002 – 2003 Lilleström 12 4 2003 fredrikstad 9 4 2004 – 2005 fram 28 10 fara aðra leið en þessa. Lögfræð- ingar ráðlögðu mér að fara þessa leið. Svo er að sjá hvað dómarinn segir.“ Lykilmenn vilja launin „Ég var í þannig stöðu að ég fékk vel borgað fyrir mín störf og vil fá borgað samkvæmt samningi. Helst myndi ég vilja sleppa því að fara inn í réttarsal því það yrði þá mitt fyrsta skipti. Auðvitað er það óþægilegt því ég hef ekki upplifað svona áður,“ bætir hann við. Með málsókninni bættist Rík- harður í hóp fyrrverandi stjórn- enda Kaupþings sem margir hafa lagt fram háar launakröfur á hend- ur þrotabúinu og stefnt fyrir dóm- stóla. Tveir lykilstjórnendur Kaup- þings, þeir Ingólfur Hannesson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings á Íslandi, og Steingrímur Kárason, fyrrverandi framkvæmdastjóri áhættustýringar Kaupþings, fara fram á yfir hundrað milljónir króna í laun frá þrotabúi bankans. Sá fyrr- nefndi heimtar rúmar 80 milljónir og sá síðarnefndi tæpar 25 millj- ónir. Sigurður Einarsson, fyrrver- andi stjórnarformaður, krefst einn- ig launa úr þrotabúi bankans en hann fer fram á tæpar 250 milljón- ir. Þá fara tveir framkvæmdastjór- ar Kaupþings fram á tugi milljóna, þau Guðný Arna Sveinsdóttir, með ríflega 12 milljóna kröfu, og Guðni Níels Aðalsteinsson, með tæplega 30 milljóna kröfu. Samanlagðar launakröfur stjórnenda hins gjald- þrota banka eru því hátt í 400 millj- ónir íslenskra króna. tapaði miklu Fjárfestingarfélag Birkis kristinssonar, fyrrverandi landsliðsmarkvarðar í knatt- spyrnu, er tæknilega gjaldþrota eftir rúmlega tveggja milljarða króna tap vegna fjárfestinga. Líkt og DV hefur greint frá tapaði Birkir milljörðum á fjárfestingum sínum í fjárfestingarfélaginu Gnúpi. Birkir seldi Magnúsi bróður sínum, útgerðarmanni frá Vestmannaeyjum, hlut sinn í Gnúpi á sjö milljarða króna sumarið 2007. Gnúpur lenti svo á hliðinni á seinni hluta ársins og lagði Birkir 1,5 milljarða króna inn í félagið í nóvember til að aðstoða bróður sinn við að reyna að bjarga því. Tæpum tveimur mánuðum síðar lá hins vegar fyrir að Birkir hefði tapað þessum fjármunum þar sem Gnúpur þurfti að selja eignir sínar með gríðarlegu tapi. draumurinn búinn Fyrirliði karla- landsliðs Íslands í knattspyrnu, eiður Smári Guðjohnsen, tapaði nokkrum fjármunum á dögunum þegar milljarðafjár- festing hans og annarra fyrrverandi landsliðsmanna rann út í sandinn. Komið hefur fram að fyrirliðinn lagði til 130 milljónir króna í uppbyggingu Knattspyrnuakademíunnar í Kópavogi sem nú séu tapaðar eftir að bærinn tók verkefnið yfir og eignir þess, að því er Viðskiptablaðið greindi frá, vegna fjárhagsvandræða eigenda akademíunnar. DV hefur einnig greint frá skuldum landsliðsfyrirliðans sem skuldar talsverðar fjárhæðir, að stærstum hluta í Banque Havilland í Lúxemborg, áður Kaupþingi í Lúxemborg. Á sama tíma var greint frá viðleitni knattspyrnumanns- ins til að ráða fram úr sínum skuldum og standa í skilum við lánardrottna. rann út í sandinn Guðni Bergsson var meðal eigenda Knattspyrnuakademíunnar sem Kópa- vogsbær tók yfir á dögunum. Þar var hann í góðum hópi annarra landsliðsmanna í knattspyrnu ásamt fyrrverandi landsliðsþjálfara. Ástæðan fyrir því að Kópavogsbær keypti eignir Knattspyrnuakademíunnar eru þær að Logi Ólafsson, fyrrverandi landsliðs- þjálfari, og félagar áttu ekki fjármuni til að standa við skuldbindingar sínar út af byggingu íþróttaaðstöðunnar í Kópavoginum. Ásamt öðrum hetjum íslenska karlalandsliðsins var Ásgeir Sigurvinsson, fyrrverandi atvinnu- maður í knattspyrnu, í góðum hópi leikmanna sem vildu byggja upp Knattspyrnuakademíu í Kópavogi. Fyrirtækið gat ekki staðið við skuldbindingar sínar og því tók bærinn yfir verkefnið. LANDSLIÐSMENN Í KLÍPU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.