Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2010, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2010, Síða 10
Fjárfestingarfélagið Valsmenn hf. og dótturfélag þess hafa skuldsett sig um 3 milljarða króna þrátt fyrir að félagið hafi ekki hafið þá uppbyggingu á Hlíðarenda svæðinu sem ráðgerð var árið 2005 þegar landið var keypt af Reykjavíkurborg. Félagið keypti þetta 35 þúsund fermetra landsvæði árið 2005 fyrir tæpar 860 milljónir króna með láni frá Frjálsa fjárfestingarbank- anum. Ráðgert var að hefja mikla upp- byggingu íbúðar- og atvinnuhúsnæðis á svæðinu en Valsmenn hf. eiga allt land á svæðinu sem er ekki undir íþróttamannvirkjum Vals. Á milli 250 og 300 íbúðir áttu meðal annars að rísa á svæðinu. Valsmenn hf. færðu eignir og skuldir félagsins inn í dótturfélagið Hlíðarfót þar sem þær eru í dag. Sam- kvæmt ársreikningum félaganna tveggja átti þessi eignatilfærsla sér stað þeirra á milli með yfirtöku skulda. At- hygli vekur að lóðasamningurinn við Reykjavíkurborg er metinn á 2,6 millj- arða króna í ársreikningi Hlíðarfótar fyrir árið 2008 en það þýðir umtals- verða hækkun á nokkurra ára tímabili. Verðmatið er því nokkurn veginn jafn hátt og skuldir félagsins. Aðstandendur Valsmanna og stjórnarmenn eru meðal annarra Brynjar Harðarson, sem er stjórnar- formaður, Jafet Ólafsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri VBS fjárfestingar- banka, Karl Axelsson hæstaréttarlög- maður og Guðni Bergsson, fyrrverandi knattspyrnumaður. Skulda SPRON rúman milljarð Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis er minnst á Valmenn hf. í yfirliti yfir stærstu áhættuskuldbindingar hjá Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis. Þar kemur fram að skuldir Valsmanna við sparisjóðinn hafi numið rúmum 1.200 milljónum króna í október 2008 og að félagið hafi verið níundi stærsti skuldari sjóðsins. Þessar skuldir eru nú inni í Hlíðarfæti. Ástæðan fyrir því að skuldir Vals- manna eru sagðar vera við Sparisjóð Reykjavíkur í rannsóknarskýrslunni er sú að sama slitastjórnin heldur um sparisjóðinn og Frjálsa fjárfestinga- bankann þar sem sá síðarnefndi var dótturfélag hans frá árinu 2002. Því er ekki um að ræða nýjar skuldir sem Valsmenn stofnuðu sérstaklega til við Sparisjóð Reykjavíkur. Á veðbandayfirlitum yfir eignir Valsmanna á Hlíðarendasvæðinu er Frjálsi fjárfestingarbankinn eini veð- hafinn sem nefndur er. Frjálsi fjárfest- ingarbankinn á fyrstu fimm veðréttina á landinu sem á hvíla veð fyrir rúmar 780 milljónir króna. Rúmar 250 millj- ónir króna eru í erlendum myntum, japönskum jenum og svissneskum frönkum. Geta ekki staðið í skilum Brynjar Harðarson, stjórnarformaður Valsmanna, segir að ástæðan fyrir því að skuldir félagsins séu svo háar sé að þær hafi verið í erlendum myntum. „Auðvitað er þessi kreppa slæm, tvö- földun lána og annað slíkt og við sitj- um í súpunni eins og allir aðrir.“ Brynj- ar segir aðspurður að félagið geti ekki staðið í skilum eins og er. „Það er engin leið. Það er allt stopp eins og staðan er núna,“ segir Brynjar en samkvæmt því sem hann segir er hluti af vandamál- inu það að Reykjavíkurborg hefur enn ekki gefið út lóðaleigusamning um landsvæðið sem og deiliskipulag og því hafi Valsmenn enn ekki getað hafið framkvæmdir þar líkt og ráðgert var. Á síðustu tveimur árum hefur Reykjavíkurborg greitt Valsmönnum hf. tæplega 300 milljónir króna í tafa- bætur vegna þessa, samkvæmt heim- ildum DV. Gróðinn til Valsmanna Spurður hvort hann geti metið hver framtíð félagsins sé og hvort mögulegt sé að lóðirnar á Hlíðarenda svæðinu fari aftur til Reykjavíkur borgar ef Valsmenn hf. geta ekki staðið í skilum segir Brynjar að hann telji að svo verði ekki. „Það held ég ekki og ef svo fer þá eru ákveðnar ástæður fyrir því,“ segir Brynjar en þar er hann að vísa til þess að Reykjavíkur borg hafi ekki getað gefið út lóðaleigusamninginn til Vals- manna og því hafi framkvæmdirnar við íbúða- og atvinnuhúsnæðið á svæðinu ekki getað hafist. Brynjar segir hins vegar að mjög erfitt sé að ræða um það hver framtíð félagsins verður. „Það á eftir að ljúka samningum við slitastjórn SPRON og Reykjavíkurborg. Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá er mjög lítið um þetta að segja þangað til að það verður. Ef Valsmenn hefðu tekið 500 til 600 milljónir að láni til að kaupa hluta- bréf sem síðar töpuðust væri það bara eins og hvert annað fjárfestingar félag. En peningarnir sem félagið tók að láni fóru beint til Reykjavíkurborgar til að greiða fyrir landið. Þessir pen- ingar voru síðan notaðir til að byggja upp íþróttamannvirki að Hlíðarenda. Valur á nú þessi íþróttamannvirki og þau eru skuldlaus. Þetta er það sem er sérstakt við þennan samning,“ segir Brynjar. Mögulegur hagnaður af sölu íbúðar- og atvinnuhúsnæðisins hefði hins vegar runnið til Valsmanna og þeirra rúmlega 400 hluthafa sem eiga félagið segir Brynjar aðspurður. Valur er stærsti hluthafi félagsins með rúm- lega 30 prósent eignarhluta. Viðskipt- in við Reykjavíkurborg voru því auð- vitað gerð til að hagnast á þeim líkt og Brynjar viðurkennir aðspurður. Gengur ekki að semja Brynjar segir aðspurður að erfið- lega hafi gengið að semja um skuld- ir Valsmanna við slitastjórn SPRON og að hingað til hafi ekki gengið að komast að samkomulagi. „Við höfum reynt mjög mikið til að ná samkomu- lagi við þá en það hefur verið alger- lega árangurslaust,“ segir Brynjar. „Ég vona að við komumst að samkomu- lagi við þá en það hefur ekki gengið hingað til að minnsta kosti.“ Spurður hvort Valsmenn hafi hugsað sér að leita réttar síns í ljósi nýfallins dóms Hæstaréttar um ólög- mæti myntkörfulána segir Brynjar að verið sé að skoða það. „Þessi dómur gæti breytt stöðu okkar eitthvað. Á meðan höldum við okkar striki. Við höfum ekkert að fela,“ segir Brynjar en samkvæmt ársreikningi Hlíðar- fótar á félagið að greiða meira en 250 milljónir króna af skuldum sínum á þessu ári. Landið að Hlíðarenda gæti því hugsanlega runnið frá Valsmönn- um ef þeim gengur illa að halda því. Spurningin er hins vegar sú hver muni eignast það aftur: Reykjavíkur- borg eða slitastjórn SPRON sem á veð í því. Ljóst er að um afar verðmætt byggingarland er að ræða. 10 fréttir 25. júní 2010 föstudagur Lán í erlendri mynt hafa gert skuldastöðu Valsmanna hf. enn verri en ella. Stjórnarformaður félagsins segir að það geti ekki staðið í skilum. Valsmenn hafa reynt að komast að samkomulagi við lánardrottna sína en án árangurs. Félagið keypti 35 þúsund fermetra landsvæði á Hlíðarenda sem byggja átti hundruð íbúða á auk atvinnuhúsnæðis. Félagið íhugar nú réttarstöðu sína í ljósi hæstaréttardóms um myntkörfulán. VALSMENN MEÐ STÆRSTU SKULDURUM SPARISJÓÐSINS iNGi f. VilhjálmSSON blaðamaður skrifar: ingi@dv.is Auðvitað er þessi kreppa slæm, tvö- földun lána og annað slíkt og við sitjum í súpunni eins og allir aðrir. Níundi stærsti skuldarinn FjárfestingafélagiðValsmennhf.erníundistærstiskuldariSPRON.Félagiðfjárfestiíbyggingarlandiá Hlíðarendaþarsemráðgertvaraðbyggjaíbúða-ogatvinnuhúsnæði.HérséstsvæðiðáHlíðarendaaðhlutatil. mYND hÖRÐUR SVEiNSSON Aðstandendur Valsmanna BrynjarHarðarsonsegiraðValsmennhafireyntaðsemjaumskuldirsínarviðslitastjórnSPRONen aðþaðhafiekkigengiðhingaðtil.TveiraðriraðstandendurValsmannaeruGuðniBergssonogJafetÓlafsson. Útsalan er hafin 40-60% afsláttur af öllum vörum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.