Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2010, Page 12
12 fréttir 25. júní 2010 föstudagur
Sendiráð Íslands í Stokkhólmi hélt
glæsilega veislu á þjóðhátíðar-
degi okkar Íslendinga, 17. júní síð-
astliðnum. Hátt í fjögur hundruð
manns var boðið til veislunnar og
þar mátti sjá mörg þekkt andlit.
Á listanum mátti finna yfir tvö
hundruð útlendinga, flesta sænska,
ásamt fjölda sendiherra erlendra
ríkja í Svíþjóð. Þá voru yfir hundr-
að merkir Íslendingar á boðslistan-
um, meðal annars leikhúsfrömuðir,
tónlistarstjörnur og knattspyrnu-
fólk. Samtals voru boðsgestirnir
337 talsins og mætti um það bil
helmingur til veislunnar, þar sem
boðið var upp á léttvín og pinna-
mat. Tilefni veislunnar var að fagna
þjóðhátíðardegi Íslands.
Glæsilegur hópur
Guðmundur Árni Stefánsson,
sendiherra Íslands í Svíþjóð, er
ánægður með hvernig til tókst á
fallegum og sólríkum 17. júní í
Stokkhólmi. Hann segir boðslist-
ann hafa verið glæsilegan. „Þetta
er glæsilegur hópur. Við erum að
bjóða þarna diplómötum sem hafa
aðsetur í borginni ásamt sænskum
aðilum sem sendiráðið hefur ein-
hver samskipti við, hvort sem það
er úr pólitík, atvinnulífi eða listum.
Þá er það hópur Íslendinga sem
hefur verið í forystustörfum fyrir ís-
lenska samfélagið í Svíþjóð,“ segir
Guðmundur Árni.
Elítunni boðið
Til að nefna dæmi um frægt fólk
af boðslistanum ber fyrst að nefna
tónlistarstjörnuna Björk Guð-
mundsdóttur. Söngvarinn Frið-
rik Ómar og maður hans Ármann
Skæringsson voru þar einnig.
Leikhúsfrömuðunum Árna Þór
Vigfússyni og eiginkonu hans, Mar-
íkó Margréti Ragnarsdóttur, og
Kristjáni Ra. Kristjánssyni var einn-
ig boðið en þeir reka leikhús í Sví-
þjóð. Íslenskar knattspyrnuhetjur
voru einnig á boðslista Guðmund-
ar Árna, til að mynda þær Guð-
björg Gunnarsdóttir og Guðrún
Sóley Gunnarsdóttir. Þá var fyrrver-
andi landsliðsmanninum og knatt-
spyrnuþjálfaranum Sigurði Jóns-
syni boðið en hann þjálfar sænskt
knattspyrnulið um þessar mundir.
Víða úr veröldinni
Það var ekki aðeins íslenska elítan
sem var boðið í þjóðhátíðarpartí
sendiráðsins heldur líka sænskt
mektarfólk. Þannig má finna á
boðslistanum þá Carl Bildt, utan-
ríkisráðherra Svíþjóðar og Göran
Persson, fyrrverandi forsætisráð-
herra Svíþjóðar. Þá voru tæplega
hundrað sendiherrar erlendra ríkja
í Svíþjóð á listanum. Með mökum
voru þeir 93 talsins. Til að nefna
dæmi um sendiherra sem boðið
var voru það sendiherrar Þýska-
lands, Hollands, Íraks, Sádi-Arabíu,
Kýpur, Simbabve og Botsvana.
Heimatilbúinn matur
Guðmundur Árni viðurkennir
að hann hafi íhugað um tíma að
sleppa veislunni sökum efnahags-
þrenginganna. Að sama skapi
reyndi hann að halda veisluna með
sem minnstum tilkostnaði. Hann
segir áætlaðan kostnað veislunnar í
kringum hálfa milljón króna. „Veisl-
an var óhjákvæmileg því svona er
hefðbundið hjá öllum sendiráðun-
um hér í borginni. Við buðum upp
á léttvín og heimatilbúinn pinna-
mat sem búinn var til af konunni
minni og dóttur,“ segir Guðmundur
Árni.
„Það var gert til þess að draga úr
kostnaði því ég vildi gera þetta eins
ódýrt og hægt er. Vissulega velti ég
því fyrir mér að sleppa veislunni
en við verðum hins vegar að halda
úti einhverjum sýnileika og það er
enginn dagur hentugri til þess en
sjálfur þjóðhátíðardagurinn.“
Vel heppnað
Sendiherrann ítrekar að óhjákvæmi-
legt sé að halda svona veislur til að
viðhalda sýnileika Íslands. Hann segir
veisluna hafa verið vel heppnaða í alla
staði þar sem gestirnir hafi notið sín.
„Ég er ánægður með vel heppnaða
veislu því ég held að þetta hafi verið
gert eins myndarlega og sparlega og
hægt var. Gestirnir nutu sín ágætlega,
mættu prúðbúnir á þessum fallega
sumardegi. Ég sá ekki betur en að all-
ir væru kátir,“ segir Guðmundur Árni.
Guðmundur Árni Stefánsson, sendiherra
Íslands í Svíþjóð, blés til myndarlegrar
veislu á 17. júní þangað sem hann bauð hátt
í 400 gestum. Á listanum er að finna diplóm-
ata, þekkta einstaklinga úr sænsku þjóðlífi
og forystusveit Íslendinga í landinu. Sendi-
herrann er ánægður með hvernig til tókst
og segist hafa sparað eins og hægt var.
Hundruð gesta í
glæsilegri veislu
trauSti HafStEinSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Gestirnir nutu sín ágætlega,
mættu prúðbúnir á
þessum fallega sumar-
degi. Ég sá ekki betur en
að allir væru kátir.
flottir gestir Það
voru frægir gestir
sem Guðmundur
Árni bauð til sín á 17.
júní. Hér er hann með
ræðismanni Íslands
í Serbíu, Slobodan
Micic, í júróvisjón-
veislu í Serbíu árið
2008.
Það var svo sannarlega mörgum þekktum boðið í
sendiráðsveisluna á
þjóðhátíðardeginum síðastliðnum.
n Björk Guðmundsdóttir
n Friðrik Ómar og Ármann Skæringsson
n Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar
n Göran Persson, fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar
n Lennart Johansson, fyrrverandi formaður Evrópska
knattspyrnusambandsins,
n Árni Þór Vigfússon og Mariko Margrét Ragnarsdóttir,
n Kristján Ra. Kristjánsson
n Sigurður Jónsson knattspyrnuþjálfari
Margir frægir