Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2010, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2010, Side 24
24 erlent 25. júní 2010 föstudagur Julia Gillard hefur verið sett í emb- ætti forsætisráðherra Ástralíu fyrst kvenna eftir að Kevin Rudd var óvænt velt úr sessi í atkvæðagreiðslu Verka- mannaflokksins, sem hann reynd- ar tók ekki þátt í enda lítil áhöld um að hann myndi fara halloka. Verka- mannaflokkurinn hefur misst mikið fylgi í könnunum það sem af er ári og sagði Gillard að hún teldi „góða ríkis- stjórn vera að villast“ og sór að blása lífi í Verkamannaflokkinn fyrir næstu þingkosningar. Á blaðamannafundi í þinghúsinu í höfuðborginni Canberra sagði Gill- ard að það væri „sannarlega heiður“ að taka við forsætisráðherraemb- ættinu og að hún tæki við nýju hlut- verki af „auðmýkt, ákveðni og áhuga“, en þegar hún tók sæti á þingi lands- ins árið 1998 sætti hún árásum og var legið á hálsi fyrir að vera ógift og barnlaus. Merkur áfangi fyrir ástralskar konur Julia Gillard fer ekki í launkofa með þá skoðun sína að um merkisatburð og -áfanga fyrir konur í Ástralíu sé að ræða. „Ég tel að ef ein stúlka horfir á sjónvarpið næstu daga og segir „Vá, ég myndi vilja gera þetta í framtíð- inni“ þá sé það vel,“ sagði Gillard við fréttamenn. Julia Gillard fæddist á Barry Island í Suður-Wales en flutti til Ástralíu á sjöunda áratug síðustu aldar ásamt foreldrum sínum, þá fjögurra ára að aldri. Hún hyggst ekki flytja inn í ráð- herrabústaðinn í Canberra, heldur búa áfram í Altona, úthverfi í Mel- bourne, í það minnsta fyrst um sinn. Hún segist telja viðeigandi að dvelja þar fram að kosningum og hún hafi „að fullu áunnið sér traust áströlsku þjóðarinnar til að gegna embætti for- sætisráðherra“. Fyrsti rauðhausinn Gillard gerir sér manna best grein fyrir því að nýliðnir atburðir geri hana að fyrsta kvenkyns forsætis- ráðherra landsins, „og kannski fyrsta rauðhausnum“ sem gegni embætt- inu, en segist ekki ætla að ofmetnast, heldur „halda fótunum á gólfinu“. Á meðal þess sem hún hyggst beita sér fyrir er beislun vind- og sólar orku og verðlagning mengunar- kvóta. Gillard segist þó ekki ætla að taka á því síðarnefnda fyrr en að loknum þingkosningum, en málefni varðandi mengunarkvótann urðu, meðal annars, þess valdandi að vin- sældir forvera hennar dvínuðu. Gill- ard sagðist vera vonsvikin vegna þess að ríkisstjórninni hefði ekki tekist að setja lög um verð á mengunarkvóta. Hún sagðist ætla að fylgja eftir mál- efnum um verð á mengunarkvóta bæði heima fyrir og erlendis. „Það mun ég gera þegar staða efnahags ríkja heims batnar og efnahagur okkar styrkist,“ sagði hún. Julia Gillard sagðist einnig reiðu- búin til að binda enda á deilur vegna fyrirhugaðs og umdeilds námaskatts á „ofurhagnað“ námafélaganna sem hefur stefnt í voða tuga milljarða dala fjárfestingum og valdið titringi á meðal kjósenda. Býður upp á nýjar viðræður Gillard rétti námafélögum sáttahönd og sagðist opin fyrir nýjum samn- ingaviðræðum. „Þetta er raunveru- legt tilboð – dyr þessarar ríkisstjórnar standa opnar. Ég er að biðja náma- iðnaðinn að vera með opinn huga,“ sagði Gillard. Engu að síður var Gillard föst fyrir hvað varðar auðlindaskatt; hún lagði áherslu á að námafélögin ættu að greiða hærri skatt og sagði að þau hefðu viðurkennt að þau gætu borg- að meira. Áform um meiri skatta á námafélögin höfðu mætt harðri and- stöðu af þeirra hálfu, en Gillard sagði að „Ástralar ættu tilkall til sanngjarn- ari hluta“ af þeim auðlindum sem væri að finna í jörðu þar í landi. Gillard hét að stöðva tafarlaust auglýsingaherferð ríkisstjórnarinnar vegna málsins, og námafélögin svör- uðu í sömu mynt. Við leiðtogaskiptin styrktist ástralski dalurinn lítillega og hlutabréf í BHP-námafélaginu og Rio Tinto hækkuðu sem nam tveimur prósentum. Tímamót urðu í stjórnmálasögu Ástralíu á fimmtudaginn þegar Julia Gillard, fyrst kvenna, var sett í embætti forsætisráðherra landsins. Fyrir hafði hún gegnt embætti aðstoðarforsætisráð- herra í ríkisstjórn Kevins Rudd sem hafði notið fádæma vin- sælda á meðal almennings. Vegferð Juliu Gillard Brotið Blað í Ástralíu Julia Gillard sagði að „Ástral- ar ættu tilkall til sann- gjarnari hluta“ af þeim auðlindum sem væri að finna í jörðu þar í landi.“ Þegar Kevin Rudd gerði Juliu Gill- ard að aðstoðarforsætisráðherra árið 2007 sagði öldungadeildar- þingmaðurinn Bill Heffernan í viðtali við tímaritið Bulletin að Julia Gillard væri „óbyrja af ásettu ráði“ og að slíkt fólk „hefði enga hugmynd um hvað lífið snerist“. Heffernan sagði að þetta gerði Gillard „óhæfa til að stjórna“. Heffernan var síðar neyddur til að biðjast afsökunar vegna ummæla sinna. Julia Gillard hóf stjórnmála- feril sinn upp úr 1983 og var þá virk í samtökum á vinstri vængn- um, Socialist Forum. Árið 1998 var hún kjörin í full- trúadeildina og hélt hún sína fyrstu tölu 11. nóvember sama ár, en þess má geta að hún er hátt metinn ræðumaður. Eftir sigur Verkamannaflokks- ins árið 2001 var hún kjörin í skuggaráðuneytið og hafði með höndum málefni innflytjenda og skipulagsmála. Í febrúar 2003 bættust á hennar könnu málefni frumbyggja og sátta. Julia Gillard varð heilbrigðisráðherra í skugga- ráðuneytinu í júlí 2003. Það var ekki fyrr en árið 2005 sem Julia Gillard lét í ljósi áhuga á leiðtogahlutverki innan Verka- mannaflokksins, en eftir að þá- verandi formaður, Mark Latham, sagði af sér var hún nefnd til sög- unnar sem mögulegur eftirmaður hans, ásamt Kevin Rudd og Kim Beazley. Þrátt fyrir breiðan stuðn- ing innan flokksins tilkynnti Gill- ard 25. janúar 2005 að hún drægi sig í hlé og Beazley hafði sigur í formannskjörinu. Verkamannaflokkurinn sigr- aði í þingkosningunum árið 2007, Kevin Rudd varð forsætisráðherra og 3. desember það ár var Gillard sett í embætti aðstoðarforsætis- ráðherra landsins. Um forvera sinn í starfi sagði Julia Gillard: „Hann er leið- toginn sem kom okkur í gegnum alheimskreppuna.“ Julia sagði einnig að Rudd hefði verið nálægt því að ná alþjóðlegu samkomu- lagi um aðgerðir gegn loftslags- breytingum. Julia Gillard býr með sambýlis- manni sínum, Tim Mathieson, en eftir því sem hún hefur orðið meira áberandi í Ástralíu hefur hún sætt árásum fyrir að hafa ekki gifst sambýlismanni sínum eða eignast börn. Í viðtali árið 2008 sagðist Julia vera „full aðdáunar á konum sem gætu blandað því saman að vinna og eiga börn“ en hún væri ekki viss um að hún hefði náð frama í stjórnmálum ef hún hefði stofnað til fjölskyldu og barneigna. KolBeinn þoRsteinsson blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Wayne swan (t.v.) og Julia Gillard Julia Gillard brosmild eftir að hafa verið sett í embætti forsætisráðherra Ástralíu. Mynd AFP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.