Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2010, Qupperneq 30
Þetta er alveg æðislega skemmtilegt verk með mikl-um húmor,“ segir Þórunn Lárusdóttir leikkona um
verkið Sellófón. Leikritið sem er eft-
ir Björk Jakobsdóttur sló eftirminni-
lega í gegn hér á landi fyrir nokkrum
árum en það var frumsýnt árið 2002.
Þá lék Björk í verkinu. Síðan þá hef-
ur verkið notið mikilla vinsælda og
farið sigurför um Evrópu og stendur
einnig til að sýna það í Ástralíu.
Sellófón, eða Chellophon eins og
það heitir á ensku, fjallar um hina
dæmigerðu nútímaframakonu sem
á börn og fjölskyldu, að sögn Þór-
unnar. „Þetta er að mestu leyti speg-
ill á útivinnandi konu sem hefur
mikið að gera og ætlar að standa sig
vel. Það er alveg brjálað að gera hjá
henni og hún er á kafi í öllu en reynir
á sama tíma að taka öllu með jafn-
aðargeði.“
Fyndið verk fyrir barnafólk
Þórunn segist vel geta samsamað sig
við persónuna sem hún leikur í leik-
ritinu. „Ég er akkúrat í pakkanum
sem verkið fjallar um. Það fjallar um
konu sem á tvö börn og eiginmann
og er í fullri vinnu og er að reyna að
standa sig á öllum vígstöðvum,“ seg-
ir Þórunn sem á tvö börn líkt og per-
sónan sem hún leikur auk þess að
vera hamingjusamlega gift og vinna
fullan vinnudag með. Hún segir
það oft geta tekið á og þess vegna
skilji hún vel raunir persónunnar
sem hún túlkar í verkinu. Hún seg-
ir flestar konur geti speglað sig í per-
sónu leikritsins. „Ég get vottað það
að þetta er ansi nálægt nútímakon-
unni.“
Hún segir leikritið þó ekki ein-
ungis eiga við nútímakonur því
margir geti speglað sig í því. „Þetta er
verk sem á við svo marga, í rauninni
alla sem hafa átt börn, þó þau séu
orðin fullorðin, og svo auðvitað þá
sem eiga lítil börn. Fólk sem á börn á
eftir að hlæja sig máttlaust.“
Enska Sellófón
Leikritið var mjög vinsælt þegar það
var sýnt hér á landi fyrir nokkrum
árum. Núna verður það hins veg-
ar sýnt með öðru sniði því það er
leikið á ensku eins og áður sagði.
Til var ensk þýðing á verkinu eftir
Neil Haigh en Björk og Þórunn hafa
krukkað í handritinu til að færa það
nær nútímanum enda nokkur ár síð-
an það var þýtt. Auk þess leikstýrir
Björk verkinu.
„Ég leik þetta á ensku sem er
mitt annað tungumál,“ segir Þórunn
og bætir við: „Ég lærði í London og
lagði mikla áherslu á það þegar ég
var í námi að ná vel enska tungu-
málinu.“ Ástæðan fyrir því að ákveð-
ið var að snara verkinu yfir á enska
tungu er sú að Björk var boðið að
fara með verkið á stóra leiklistar-
hátíð í Edinborg í ágúst. „Á svipuð-
um tíma komu að máli við hana eig-
endur Reykjavík by day and night
og voru að leita að einhverri kvöld-
skemmtun fyrir ferðamenn,“ seg-
ir Þórunn. Þótti því tilvalið að setja
upp leikritið til sýninga.
Ekki bara fyrir útlendinga
Sellófón verður sýnt í Iðnó tvisv-
ar í viku í sumar, á sunnudögum og
fimmtudögum. Þórunn segir þó að
verkið sé ekki einungis ætlað erlend-
um ferðamönnum. „Íslendingar eru
velkomnir þó að þetta sé á ensku.
Ég veit að það eru einhverjir Íslend-
ingar sem vilja sjá þetta með ensku
tali og svo eru aðrir sem misstu af
þessu síðast þegar það var sett upp.
Fólk virðist ekki setja það fyrir sig að
þetta sé á ensku. Það voru einhverj-
ir Íslendingar á generalprufunni og
þeir hlógu mjög mikið. Við erum líka
öll með þennan breska kaldhæðna
húmor sem við reynum að endur-
spegla í sýningunni.“
Hún segir líka tilvalið fyrir Íslend-
inga að koma og sjá verkið á ensku
Ólöf í NorræNa húsiNu Ólöf Arnalds heldur tónleika í
Norræna húsinu á þriðjudag, þá fyrstu sem hún hefur haldið hér á landi í þó
nokkurn tíma. Ný plata Ólafar, Innundir skinni, kemur út á vegum One Little
Indian útgáfunnar í september. Tónleikarnir marka útgáfu fyrstu smáskífu
plötunnnar, samnefndrar henni, en smáskífan inniheldur einnig lagið Close
My Eyes eftir bandaríska tónlistarmanninn Arthur Russell. Á tónleikunum
verður jafnframt frumflutt myndbandsverk sem listamaðurinn Ásdís Sif
Gunnarsóttir hefur gert við lagið Innundir skinni. Tónleikarnir hefjast klukkan
21 en húsið er opnað 20. Um upphitun sér Adda og er miðaverð 1.500 krónur.
stÓri NobilidaguriNN Stóri
Nobilidagurinn verður haldinn með glæsibrag í
Langholtskirkju á sunnudag. Þar mun stúlknakór-
inn Graduale Nobili standa fyrir fjölskylduhátíð
með mikilli tónlist, leikjum, kaffiveitingum, grilli,
fatamarkaði og fleira skemmtilegu. Hátíðin er
opin öllum og er aðgangur ókeypis. Dagurinn
er skipulagður sem fjáröflun fyrir stúlkurnar sem
munu halda í keppnisferðalag til Wales í byrjun júlí.
Gaddakylfan, glæpasmásagnakeppni Mannlífs og Hins íslenska glæpafélags:
sigurvegarinn einnig í 3. sæti
Halldór E. Högurður hlaut fyrstu
verðlaun í Gaddakylfunni 2010,
glæpasagnasamkeppni Mannlífs og
Hins íslenska glæpafélags, fyrir sög-
una Innan fjölskyldunnar. Verðlauna-
afhending fór fram á Ölstofu Kormáks
og Skjaldar á miðvikudaginn þar sem
Ragna Árnadóttir, dóms- og mann-
réttindaráðherra, afhenti sigurvegar-
anum Gaddakylfuna, verðlaunagrip
úr smiðju listakonunnar Koggu, auk
peningaverðlauna.
Venjan er að höfundar þriggja
bestu sagnanna séu verðlaunaðir
sérstaklega en að þessu sinni deildu
tvær sögur þriðja sætinu. Þá bar
einnig svo við að Halldór E. fékk ekki
eingöngu fyrstu verðlaun heldur
varð saga hans, Einkastæði, í þriðja
sæti ásamt sögunni Fjórða nóttin eft-
ir Steingrím Teague. Valur Grettis-
son fékk önnur verðlaun fyrir söguna
Æskuástin. Þetta er í fyrsta sinn sem
sami maður hreppir tvenn verðlaun
sama árið. Þetta er einnig í fyrsta
sinn sem tveir höfundar deila verð-
launum fyrir ákveðið sæti.
Gaddakylfan var nú veitt í sjö-
unda sinn og bárust um fimmtíu sög-
ur í keppnina að þessu sinni.
kristjanh@dv.is
30 fókus 25. júní 2010 föstudagur
flosi krufiNN
Erindin undir heitinu Njála með síð-
degiskaffinu halda áfram næstkom-
andi laugardag og fram eftir sumri í
Ásgarði á Hvolsvelli. Í erindinu núna
á laugardaginn verður Flosi Þórð-
arson krufinn til mergjar. Var hann
höfðingi eða brennuvargur? Tal-
hlýðin persóna eða staðfastur í sínu
veldi? Þessum spurningum og fleir-
um mun Bjarni E. Sigurðsson leitast
við að svara ásamt með gestum er-
indisins. Bjarni stendur fyrir erind-
unum í samvinnu við Gistiheimilið
Ásgarð á Hvolsvelli. Þau fara fram í
gamla skólanum þar sem jafnframt
er boðið upp á vöfflur úr eðalhráefni
úr héraði. Á sama tíma og erindin
fara fram stendur yfir sýning á teikn-
ingum Þórhildar Jónsdóttur á per-
sónum Njálu sem Bjarni og Þórhild-
ur hafa unnið að í vetur.
daNsverk á
JÓNsvöku
Ragnheiður Bjarnarson sýnir tvö
frumsamin íslensk dansverk á
listahátíðinni Jónsvöku í Reykja-
vík um helgina. Í Nýlistasafn-
inu á laugardaginn klukkan 18
sýnir hún verkið Þráðarhaft en á
sunnudaginn klukkan 14 er það
Kyrrja. Frítt inn. Nánari upplýs-
ingar á jonsvaka.is eða á fésbók-
arprófíl Jónsvöku.
stÓNs í MosÓ
Rolling Stones „heiðrunarsveit“
Íslands, Stóns, heldur heljarinn-
ar tónleika til heiðurs einni stærstu
hljómsveit sögunnar í Hlégarði í
Mosfellsbæ á föstudaginn. Flutt
verða öll helstu lög Rolling Stones
frá yfir 40 ára starfsferli sveitarinnar.
Hljómsveitina skipa Björn Stefáns-
son (Mick Jagger), Bjarni Sigurðs-
son (Keith Richards), Jakob Smári
Magnússon (Bill Wyman), Birgir
Ísleifur Gunnarsson (Brian Jones),
Frosti Runólfsson (Charlie Watts)
og Krummi Björgvinsson (Jimmy
Miller). Sérstakir gestir verða Jens
Hansson (Bobby Keyes) úr Sálinni
hans Jóns míns, Snorri Helgason úr
Sprengjuhöllinni og fleiri. Miðaverð
2000 krónur, miðasala á midi.is.
Gaddakylfan 2010 Verðlaunahafar í Gaddakylfunni 2010 ásamt Rögnu Árnadóttur,
dóms- og mannréttindaráðherra, sem afhenti verðlaunin. MYND INGólFur JúlíuSSoN
Handhafar Gaddakylfunnar frá
upphafi.
2004 Jón Hallur Stefánsson
2005 Gunnar Theodór Eggertsson
2006 Sigurlín Bjarney Gísladóttir
2007 Salka Guðmundsdóttir
2008 Lilja Magnúsdóttir
2009 Ingvi Þór Kormáksson
2010 Halldór E. Högurður
gaddakylfan
í söMu aðstæðuM
og aðalpersÓNaN
Einleikurinn Sellófón var frumsýndur í Iðnó í gær. Þórunn lár-
usdóttir leikur aðal- og eina hlutverkið í verkinu sem er flutt á
ensku með erlenda ferðamenn í huga. Leikritið var valið til að
fara á stóra leiklistarhátíð í Edinborg í ágúst. Þórunn segir leik-
ritið vera stútfullt af húmor og að margir geti speglað sig í því.
lítIð Mál að lEIka á ENSku
Þórunn segir ensku sitt annað tungumál.
MYND HÖrður SVEINSSoN