Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2010, Qupperneq 44
NafN og aldur?
„Hildur Eir Bolladóttir, 32 ára.“
atviNNa?
„Prestur við Akureyrarkirkju.“
Hjúskaparstaða?
„Vel gift í áratug.“
fjöldi barNa?
„Tveir synir. Jónatan Hugi og Haraldur Bolli.“
Hefur þú átt gæludýr?
„Við áttum íslenskan fjárhund sem hét Plokkson.“
Hvaða tóNleika fórst þú á síðast?
„Ég fór á tónleika hja Gerði systur minni, hún söng
Suðurríkjasálma.“
Hefur þú komist í kast við lögiN?
„Nei, en fjöldi stöðumælasekta gæti hæglega leitt til
þess.“
Hver er uppáHaldsflíkiN þíN og af Hverju?
„Það er nýi kjóllinn sem ég fékk í 10 ára brúðkaups-
afmælisgjöf frá eiginmanninum, sérvalinn, hvorki
of lítill né of stór, sem segir mér að hann sér mig í
nokkuð réttu ljósi.“
Hefur þú farið í megruN?
„Já, oft og mörgum sinnum, mér finnst voða gott að
borða og þarf stöðugt að vera að aga sjálfa mig í þeim
efnum, ég er líka mjög ginkeypt fyrir ýmsum skyndi-
lausnum eins og allir alvöru nautnaseggir.“
Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmælum?
„Já, á Austurvelli 2009.“
trúir þú á framHaldslíf?
„Ég trúi á lífið og að það sé eilífur valkostur, þökk sé
Jesú Kristi.“
Hvaða lag skammast þú þíN mest fyrir að Hafa
Haldið upp á?
„Ég verð oft dálítið svag fyrir dönsku júróvisjón-
lögunum, þar er alltaf eitthvað ligeglad í gangi en
samt ótrúlega hallærislegt.“
Hvaða lag kveikir í þér?
„Man in the Mirror með Michael Jackson, hlusta
alltaf á það þegar ég hleyp.“
til Hvers Hlakkar þú NúNa?
„Verslunarmannahelgarinnar (grín), nei, ég hlakka til
allra verkefna sem liggja fyrir á nýjum vinnustað, með
nýjum verkefnum öðlast maður aukinn þroska, það
er svo magnað.“
Hvaða myNd getur þú Horft á aftur og aftur?
„Þegar ég var tólf ára horfði ég á Grease og Top Gun
aftur og aftur en núna horfi ég helst á sömu teikni-
myndirnar aftur og aftur en þar er enginn Tom Cruise
né John Travolta.“
afrek vikuNNar?
„Að flytja norður í land, koma sér fyrir í nýrri íbúð
og taka við nýju embætti og eiga 10 ára brúðkaups-
afmæli.“
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Nei.“
spilar þú á Hljóðfæri?
„Ég lærði einu sinni á fiðlu, systkini mín þurftu að
leita sér áfallahjálpar eftir það.“
viltu að íslaNd gaNgi í evrópusambaNdið?
„Ég veit það ekki, mig vantar meiri upplýsingar til að
leggja mat á það.“
Hvað er mikilvægast í lífiNu?
„Að vera góð manneskja og eiga alvöru tengsl við
fólk.“
Hvaða ísleNska ráðamaNN muNdir þú vilja
Hella fullaN og fara á trúNó með?
„Jón Gnarr, hann hefur svo mikið næmi fyrir mann-
legum tilfinningum, þess vegna er hann líka svona
fyndinn.“
Hvaða fræga eiNstakliNg myNdir þú Helst vilja
Hitta og af Hverju?
„Ég spái aldrei í slíkt, mér finnst bara gaman að
hitta hvern þann sem hefur húmor og kann að segja
sögur.“
Hefur þú ort ljóð?
„Já, ég geri reyndar talsvert af því.“
Nýlegt prakkarastrik?
„Ég hef mjög gaman af því að hrella manninn minn,
sumt er ekki birtingarhæft, en ég hef t.d. hellt yfir
hann köldu vatni þegar mér hefur fundist tuðið ná
hámarki.“
Hvaða fræga eiNstakliNgi líkist þú mest?
„Örugglega Opruh af því að ég er alltaf að fitna og
grennast á víxl.“
ertu með eiNHverja leyNda Hæfileika?
„Ekki leynda, ég leyni aldrei hæfileikum mínum,
reyni frekar að breiða snyrtilega yfir vankunnáttu, það
gengur misvel.“
á að leyfa öNNur vímuefNi eN áfeNgi?
„Nei, áfengi er nógu mikið verkefni fyrir öll samfélög.“
Hver er uppáHaldsstaðuriNN þiNN?
„Laufás, þar sem ég er fædd og uppalin, eini staður-
inn þar sem ég gæti kropið og kysst jörðina.“
Hildur Eir Bolladóttir, nýr prestur í Akureyrarkirkju, hefur
gaman af því að hrella eiginmann sinn en þau hjónin héldu
nýlega upp á tíu ára brúðkaupsafmæli sitt. Hildur fer oft í
megrun og tók þátt í mótmælunum á Austurvelli 2009. Hún
vildi helst fara á trúnó með Jóni Gnarr.
líkist mest opruH
44 hin hliðin 25. júní 2010 föstudagur
m
yn
d
ir
B
Ja
rn
i E
ir
ík
ss
o
n
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
OXYTARM
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama OXYTARM
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
DETOX
30days&
Betri apótekin og Maður lifandi www.sologheilsa.is.
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því að
nota náttúrulyfin Oxytarm og
30 days saman -120 töflu skammtur -
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
Vesturvör 30c
Sími 575-1500
Já eða ba
ra hækka
í útvarpin
u!
Ferð á Kársnesið borgar sig!
www.kvikkfix.issko
ðaðu!