Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2010, Qupperneq 50
50 úttekt 25. júní 2010 föstudagur
HeH! Hermaur!
Sjálfstæðismaðurinn Eyþór ArnAlds er landsmönnum kunnastur fyrir að spila
með hljómsveitinni Todmobile sem gerði það gott á Íslandi um árabil. Eyþór var
þekktur fyrir sítt hár sitt og lék á selló af mikilli snilld. Hver man ekki eftir honum
syngja: „Heh, hermaur!“ í pöddulaginu svokallaða. Sveitin var stofnuð árið 1998 og
gaf út 13 plötur á ferli sínum. Þá síðastu í fyrra en það var
safnplata með bestu lögum hennar.
Söngvari með
nefrennSli
Sjálfur borgarstjórinn í Reykjavík, Jón GnArr
Kristinsson eins og nafn hans var ritað á atkvæða-
seðilinn, á sér tónlistarbakgrunn. Jón er auðvitað
langþekktastur fyrir afrek sín á grínsviðinu, en færri
vita að hann var söngvari með pönkhljómsveitinni
Nefrennsli upp úr 1980. Hljómsveitin átti engum
sérstökum vinsældum að fagna eftir því sem DV
kemst næst.
Harmonikkan
SterkaSta vopnið
Guðmundur stEinGrímsson, þingmaður Framsóknar og sonur Steingríms
heitins Hermannssonar forsætisráðherra, er meðlimur í hljómsveitinni Ske sem
hefur sent frá sér þrjár plötur. Þær heita Life, Death, Happiness and Stuff, Feelings
are great og Love for you all. Guðmundur spilar á hin ýmsu hljóðfæri en fyrst og
fremst á harmonikkuna. Ágústa Eva Erlendsdóttir sem er frægust fyrir hlutverk sitt
sem Silvía Nótt hefur sungið mikið með sveitinni.
tryggvi
takkakarl
tryGGvi þór HErbErtsson tók
virkan þátt í tónlistarlífinu á sínum tíma og
sérstaklega þegar pönkið var að hasla sér
völl hér á landi. Tryggvi var í hinum ýmsu
bílskúrsböndum en lét aðallega til sín taka
á tökkunum, eins og hann segir sjálfur,
sem upptökustjóri. Hann stofnaði Stúdíó
Mjöt með Magnúsi Guðmundssyni á sínum
tíma og tók upp lög með sveitum eins og
Greifunum, Skriðjöklum, Grafík og mörgum
pönksveitum. Tryggvi ferðaðist mikið með
Greifunum, Grafík og Das Kapital en hann
tók upp fyrstu útgáfu hinnar sívinsælu
plötu Konu með Bubba Morthens.
PoPP og Pönk
í pólitík
ÞjóðHátíðar-
gleðigoSinn
Árni JoHnsEn, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, hefur verið viðloðandi tónlist
lengi en helst er hann þekktur fyrir að
stýra brekkusöngnum fræga á Þjóðhátíð
í Eyjum. Svo vinsæll er hann á meðal
gesta hátíðarinnar að það varð uppi fótur
og fit þegar hann gat ekki spilað þar sem
hann sat í fangelsi vegna dóms sem
hann hlaut. Það er sama hvað Árni
hefur sagt eða gert í gegnum
tíðina, honum er allt
fyrirgefið um leið
og hann grípur
í gítarinn í
brekkunni
góðu.
trauStur
vinur varð
ráðHerra
Framsóknarmannsins mAGnúsAr
stEfÁnssonAr verður ekki minnst fyrir
mikil afrek á pólitíska sviðinu þrátt fyrir
að hafa náð að hlamma sér á ráðherrastól
á síðustu metrum ríkisstjórnarsamstarfs
Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Það
sem Magnúsar verður helst minnst fyrir
þegar fram líða stundir er framlag hans
til íslenskrar dægurtónlistar með því að
hafa sungið hið vinsæla lag Upplyftingar
Traustur vinur inn á plötu fyrir nokkrum
áratugum.