Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2010, Blaðsíða 53
flottir
föstudagur 25. júní 2010 53
Riðlakeppni HM lýkur í dag, föstu-
dag, en þá hafa verið spilaðir 48 leikir
á fimmtán dögum. Í þessum leikjum
hafa nokkrir leikmenn óvænt staðið
sig alveg frábærlega og gætu þeirra
beðið stærri hlutir eftir mótið. Aftur
á móti eru nokkrir á mótinu sem
búist var við að yrðu frábærir búnir
að gera sama og ekki neitt.
og floppin
f ottir
Vincent enyeama nígería
Aldur: 27 ára. Staða: Markvörður. Félagslið: Hapoel Tel Aviv.
n Þessi ágæti markvörður hefur ekki farið framhjá neinum sem fylgst hefur
með HM í Suður-Afríku. Það verður þó að minnast tveggja mistaka hans sem
kostuðu mark en það getur komið fyrir á bestu bæjum, hvað þá með þennan
sundbolta sem notaður er á mótinu. Enyeama gjörsamlega hélt villtu liði
Nígeríu á floti og hefði ekki verið fyrir hann hefði liðið jafnvel þurft að sæta
skammarlegu tapi gegn Argentínu í fyrsta leik. Enyeama er töluvert rólegri
og öruggari en flestir afrískir markverðir og það þyrfti ekki að koma neinum
á óvart ef ísraelska liðið Hapoel Tel Aviv væri að skoða tilboð sem borist hafa í
markvörðinn knáa.
Daniel tshabalala suður-afríka
Aldur: 33 ára. Staða: Miðjumaður. Félagslið: Platinum Stars.
n Á meðan besti leikmaður Suður-Afríku, Steven Pienaar, floppaði algjörlega
stigu menn eins og Daniel Tshabalala upp og léku eins og kóngar fyrir þjóð
sína. Hann skoraði fyrsta mark HM 2010 með stórkostlegu þrumuskoti eftir
flotta skyndisókn liðsins. Tshabalala hefur sýnt að hann er fljótur og áræðinn
og alls ekkert hræddur við að skjóta. Hann er vissulega orðinn 33 ára gamall
þannig að það er kannski hæpið að eitthvert lið fari að sækja hann til Suður-
Afríku þar sem hann unir sér vel með Platínustjörnunum. Tshabalala virðist þó
í frábæru líkamlegu formi og væri því ekkert vitlaust fyrir eitthvert lið kannski
í Championship að gera við hann tveggja ára samning.
chu-young Park suður-kórea
Aldur: 24 ára. Staða: Framherji. Félagslið: AS Monaco.
n Við Íslendingar höfðum aðeins séð til þessa harðduglega
framherja.Hann leikur með AS Monaco og spilaði því nokkra
leiki með Eiði Smára Guðjohnsen í vetur. Þar fór ekki á milli mála
að þarna væri flottur leikmaður á ferð. Á HM hefur hann aftur á
móti blómstrað og sýnt að hann er tilbúinn í stærri deildir en þá
frönsku og stærri lið en Monaco. Park er gríðarlega duglegur eins
og flestir leikmenn Suður-Kóreu en auk þess er hann virkilega
sterkur á boltanum, skynsamur og eitraður í föstum leikatriðum,
bæði að spyrna boltanum og vera sjálfur inni í teig. Draumur
hans er að leika í ensku úrvalsdeildinni og sá draumur gæti vel
ræst. Jafnvel í júlí.
alexis sanchez Chile
Aldur: 21 árs. Staða: Framherji. Félagslið: Udinese.
n Einn af fáum ungum leikmönnum sem virkilega stóðu undir
talinu að gætu góða hluti á HM. Sanchez er ótrúlega öflugur
framherji með frábæra líkamsbyggingu og er nokkuð víst að
hann gæti hlaupið í gegnum vegg. Hann er týpískur framherji
sem stefnir alltaf á markið og hatar ekkert að skjóta á það.
Sanchez leikur með Udinese á Ítalíu þar sem hann hefur að vísu
ekki verið að raða mörkunum inn. Hann er reyndar notaður
mikið sem vængmaður en hann vill spila frammi og Marcelo
Bielsa, þjálfari Chile, er alveg tilbúinn að leyfa honum það. Það
þarf engan að undra ef Sanchez verður nafn á allra manna vörum
innan skamms.
steVen Pienaar suður-afríka
Aldur: 28 ára. Staða: Miðjumaður. Félagslið: Everton.
n Langbesti leikmaður Suður-Afríku einfaldlega brást þjóð
sinni. Það hvíldi mikil ábyrgð á herðum Steven Pienaar fyrir
HM en hann átti frábært tímabil með Everton í ár. Pienaar átti
að vera leikmaðurinn sem jafnvel myndi vera lykillinn að því
að Suður-Afríka kæmist lengra en í riðlakeppnina. Hann gat
því miður ekki neitt og var eftir fyrsta leik farinn að tala um
hversu þreyttur hann væri eftir tímabilið á Englandi. Á meðan
hinir og þessir menn sem enginn þekkir í suður-afríska liðinu
stigu upp hvarf Pienaar og varð um leið einn af þeim mönnum
sem floppuðu algjörlega á þessu heimsmeistaramóti.
luis suarez ÚrÚgvæ
Aldur: 23 ára. Staða: Framherji. Félagslið: Ajax.
n Einn af þeim sem áttu að vera algjörar vonarstjörnur
mótsins. Suarez hefur skorað að vild með Ajax í Hollandi en
tölfræði hans í hollensku deildinni frá því hann kom þangað
frá Nacional fyrir fjórum árum er ógnvænleg. En það er eins og
með svo marga, það er ekki alltaf samasemmerki á milli þess að
skora í Hollandi og geta eitthvað í erfiðari bolta. Suarez skoraði
vissulega ágætis skallamark gegn Mexíkó í leik sem skipti að-
eins máli upp á hvort liðið endaði í fyrsta sæti riðilsins. Suarez
hefur einfaldlega valdið vonbrigðum það sem af er en hann
fær tækifæri til þess að bæta upp fyrir þau gegn Suður-Kóreu.
simon kjær danmörk
Aldur: 21 árs. Staða: Miðvörður. Félagslið: Palermo.
n Ljóshærði miðvörðurinn hefur verið að gera það gott á
Sikiley og er endalaust orðaður við stórliðin, sérstaklega hefur
þótt líklegt að hann gangi í raðir Manchester United. Það verð-
ur þó að teljast afar hæpið að Sir Alex Ferguson kaupi Danann
enda hefur hann verið skelfing á HM. Eitt almesta ofmatið
miðað við það sem búist var við af honum fyrir keppnina. Kjær
hefur virkað óöruggur á boltanum, hægur og les oft leikinn
fáránlega illa. Vissulega hefur fólk lítið séð af honum á Ítalíu
þar sem sagt er að hann sé alveg frábær en í þessum leikjum á
HM hefur hann verið skelfing.
Franck ribery frakkland
Aldur: 27 ára. Staða: Miðjumaður. Félagslið: FC Bayern.
n Ribery átti enga stórkostlega leiktíð með FC Bayern, þar sem
hann féll í skuggann af Arjen Robben. Hann átti líka við meiðsli
að stríða og spilaði aðeins nítján leiki í þýsku deildinni. Samt
sem áður hafa stórlið Evrópu keppst um þennan leikmann
í nokkur ár en hann ákvað að skrifa undir nýjan glæsilegan
samning við FC Bayern. Stórlið á borð við Real Madrid og
Manchester United verða ánægð að hafa ekki klófest Ribery
því hann hefur gjörsamlega ekkert getað á mótinu, ekki frekar
en undir lok leiktíðar með Bayern. Eitt er að vera slakur í þessu
andlausa franska liði en vá, rólegur Ribery.