Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2010, Síða 62
Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur
sem Ingó Veuðurguð, er í ítarlegu
viðtali í nýjasta tölublaði Mannlífs.
Þar greinir hann meðal annars frá
því að hann sé orðin þreyttur á því
að vera einhleypur og sé meira að
segja með eina dömu í huga.
„Ég held það fari nú að koma að
því, ég er orðinn svo gamall, 24 ára.
Ég held ég fari alveg að detta inn
fyrir hliðið. Ég er með
eina í huga. Aðeins að
velta þessu fyrir mér,“
segir Ingó og bætir við: „Það borgar
sig ekkert að tala of mikið um það
en maður er alla vega að reyna að
fara í þann lífsstíl, hollari lífsstíl en
að vera alltaf að leita.“
Ingó hefur átt miklum vinsæld-
um að fagna allt frá því að hann sló í
gegn í Idol um árið. Ekki eru þó allir
jafn hrifnir af honum og segir Ingó
það allt í góðu. „Ég held að það sé
miklu betra að fólk hati þig eða elski
heldur en að því sé alveg sama, alla
vega í mínu starfi.“
Ingó segist vera svo mikill popp-
ari að hann verði í raun pönkari
því honum sé svo sama hvað öðr-
um finnst. „Það er náttúrlega ekki
í tísku að vera „sellout“. Mér finnst
ég fara alla leið í að vera „sellout“ og
þar með er ég orðinn meiri pönkari
en hinir sem hlæja að því að ég skuli
vera „sellout“.“
asgeir@dv.is
Með eina í huga
Ingó Veðurguð leIður á pIparsVeInalífInu
62 fólkið 25. júní 2010 föstudagur
logi geirs
Ingó Veðurguð Er í forsíðuviðtali
við Mannlíf.
seMja uM
barnsburð
Kastljósstjörnur
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir
bíður spennt eftir því að eignast
sitt fyrsta barn. Kastljósstjarnan
er kasólétt og er orðinn nokkuð
óþreyjufull í biðinni eftir fyrsta
erfingjanum. Á Facebook gerir
hún Helga Seljan vini sínum úr
Kastljósinu samningstilboð þar
sem hún segir að um leið og hann
fari að fiska að viti þá ætli hún að
eignast þetta barn en Helgi er á
sínum árlega sjótúr um þessar
mundir. Hann var ekki lengi að
bregðast við og sendi nokkrum
dögum seinna til hennar að hann
væri búinn að standa við sitt en
nú væri komið að henni. Ragn-
hildur svarar um hæl að hún ætli
að láta reyna
á það um
helgina. Það
verður því
spennandi
að sjá hvort
Ragnhildur
standi við sinn
hluta samn-
ingsins um
helgina.
silfurdrengurinn Logi Geirs-
son eignaðist son í vikunni með
unnustu sinni Ingibjörgu Elvu
Vilbergsdóttur. parið trúlofaði
sig fyrr í mánuðinum og þá voru
þau einnig að útskrifast saman
úr einkaþjálfaranámi íaK. logi
vinnur nú að því að jafna sig af
meiðslum fyrir næsta tímabil.
Það er nóg um að vera hjá silfurdrengnum Loga Geirssyni. Hann var að eignast sitt fyrsta barn með unnustu sinni Ingibjörgu Elvu Vilbergs- dóttur. Ekki nóg með það heldur var parið að trú-
lofa sig fyrir örfáum dögum. Þá var parið að útskrifast saman
út einkaþjálfaranámi Íþróttaakademíu Keilis í Keflavík.
Logi og Ingibjörg eignuðust lítinn strák en sá stutti kom
í heiminn á þriðjudaginn. Hamingjuóskum hefur rignt inn
á Facebook-síðu landsliðshetjunnar, sem þakkaði fyrir
sig, „Kominn af fæðingardeildinni. Lítill gutti kom í heim-
inn í gær kl.11.41, 50 cm og ca 3 KG... Hrikalega er ég stolt-
ur af konunni minni og þessum ljósmæðrum. Takk fyrir
allar kveðjurnar, allir hérna megin með hesta heilsu. kv
Pabbinn,“skrifaði Logi kampakátur.
Logi og Ingibjörg kynntust í upphafi árs 2009 en þau
trúlofuðust fyrir skemmstu. Hlutirnir hafa því gengið hratt
fyrir sig hjá parinu en þau voru einnig að útskrifast saman úr einkaþjálfara-
námi ÍAK. Tæplega 180 nemendur útskrifuðust með Loga úr hinum ýmsu
deildum Keilis en Logi hélt ræðu fyrir hönd félaga sinni í einkaþjálfaranum.
Þó að mikil gleði hafi verið í lífi Loga undanfarnar vikur hefur hann þurft
að glíma við mikla erfiðleika sem handknattleiksmaður. Logi hefur verið
meira og minna meiddur í eitt og hálft ár, sem varð til þess að hann lék lítið
sem ekkert með liði sínu Lemgo í þýsku úrvaldsdeildinni þann tíma, sem og
með íslenska landsliðinu.
Logi samdi við sitt uppeldisfélag sitt FH fyrir næstu leiktíð en hann vinnur
þessa dagana hörðum höndum að því að ná sér af meiðslunum fyrir átökin
í vetur.
Ekki náðist í Loga við gerð fréttarinnar.
BarnsBurður,
trúlofun og útskrift
Logi Geirsson Það
er eintóm hamingja
hjá silfurdrengnum
þessa dagana.
Logi og Ingibjörg Eignuðust strák á þriðjudag.
eiga 4 ára
Eitt heitasta par landsins, glamúr-
fyrirsætan Ásdís Rán Gunnars-
dóttir og knattspyrnumaðurinn
Garðar Gunnlaugsson, hélt upp
á fjögurra ára brúðkaupsafmæli
í vikunni. Stjörnuparið lýsti yfir
ást sinni í kjölfarið á Facebook.
Þar skrifar Garðar: „Á 4 ára brúð-
kaupsafmæli með fallegustu
konu í heiminum!!! Elska þig dar-
ling:*“ Eiginkonan var ekki lengi
að taka við sér og senda til baka:
„Awwwww.. love u 2 :*“ Garðar er
fjórum árum yngri en eiginkonan
en eins og hann sagði í viðtali við
DV í fyrra er aldur afstæður. „Ásdís
er eins og gott vín. Hún verður allt-
af fallegri og fallegri og mér finnst
hún miklu fallegri í dag en þegar
við kynntumst, þótt hún hafi verið
stórglæsileg þá,“ sagði kappinn
um sína.
brúðkaups-
afMæli