Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2010, Qupperneq 6
6 fréttir 7. júlí 2010 miðvikudagur
Ferðamönnum
fækkar
Brottfarir erlendra gesta um Leifs-
stöð í júní voru 53.500, eða eitt þús-
und færri en í júní í fyrra. Nemur
fækkunin tveimur prósentum milli
ára. Samkvæmt nýjum tölum frá
Ferðamálastofu hafa 170.400 erlend-
ir gestir farið frá landinu frá áramót-
um, eða 8.500 færri en árinu áður.
Nemur fækkunin tæpum fimm pró-
sentum milli ára.
Veruleg fjölgun hefur orðið í
komum ferðamanna frá Norður-Am-
eríku, eða rúm 21 prósent, á meðan
fækkun er frá öðrum mörkuðum.
Sparkaði í
lögregluþjón
Nítján ára karlmaður var á þriðju-
dag dæmdur í þriggja mánaða skil-
orðsbundið fangelsi í Héraðsdómi
Reykjavíkur fyrir að ráðast á lög-
reglumann í lögreglubíl í október í
fyrra. Maðurinn játaði að hafa spark-
að í bringu, vinstra læri og vinstri
framhandlegg lögreglumanns og
í kjölfarið hótað honum lífláti. Þá
dæmdi Héraðsdómur Reykjavíkur
í gær mann til að greiða 50 þúsund
krónur í sekt fyrir að hafa haft tæpt
gramm af amfetamíni í vörslu sinni.
Umferð dregst
mikið saman
Umferð á sextán völdum talningar-
stöðum Vegagerðarinnar dróst mikið
saman í júní miðað við sama mánuð
fyrir ári. Þannig er nærri níu prósenta
minni umferð núna í júni en fyrir ári
og nemur samdrátturinn í umferð-
inni þennan fyrri árshelming 4,6 pró-
sentum. Útlit er því fyrir að umferðin
í ár verði töluvert minni en í fyrra og
svipuð eða jafnvel minni en hún var
árið 2006.
Samdrátturinn á Suðurlandi er
það mikill að það jaðrar við að kallast
hrun, að því er fram kemur í tilkynn-
ingu frá Vegagerðinni, þar sem um er
að ræða 21,3 prósent minni umferð.
Ungur maður
játar innbrot
Ungur maður hefur viðurkennt inn-
brot í Gesthús og Kaffi krús á Selfossi
um helgina. Lögreglumönnum sem
áttu samskipti við manninn á sunnu-
dag fannst útlit mannsins svipa til lýs-
ingar sem vitni gaf af manni sem sást
við Gesthús á laugardagsmorgun. Á
heimili mannsins fannst áfengi sem
hann gat ekki gert grein fyrir. Við hús-
leit fundust einnig fjórar kannabis-
plöntur í ræktun.
Þá var brotist inn í verkstæðisskúr
verktakafyrirtækisins Ístaks í Engidal
á Hengilssvæðinu um helgina og það-
an stolið ýmsum munum. Leitar lög-
reglan að vitnum vegna málsins.
„Maður veit aldrei nákvæmlega
hvað maður fær í hendurnar, hvort
lyfin séu gömul eða hvort um rétt
lyf sé að ræða,“ segir Matthías Hall-
dórsson aðstoðarlandlæknir.
Þann 2. júní síðastliðinn aug-
lýsti notandi vefsins er.is eft-
ir þunglyndislyfinu Cipralex. Var
ástæðan sú að stúlka, sem hann
sagðist þekkja, var í fráhvörfum og
auglýsti hann eftir einhverjum sem
ætti lyfið og væri tilbúinn að selja
eða gefa það. Auk þess væri stúlkan
að bíða eftir lyfjakorti.
Af umræðum á síðunni að
dæma virðist einhver hafa sett sig
í samband við auglýsandann og
látið hann hafa lyfið. „Takk fyrir
svörin, nokkrar góðhjartaðar eru
tilbúnar að bjarga frænku,“ segir í
svari frá auglýsandanum á síðunni.
Í samtali við DV segist Matthías
furða sig á auglýsingunni. Í raun sé
engin fyrirstaða fyrir því að fá lyf-
ið og hægt sé að fá það hjá lækni
eða í apóteki. „Apótek hlaupa und-
ir bagga með fólki sem hefur verið
með lyfjakort og afgreiða þá lyfseð-
ilinn. Fólk er ekki látið líða fyrir að
lyfjakort er ókomið, heldur er því
afgreitt hóflegt magn af töflunum,“
segir Matthías. Aðspurður hvort
fólk reyni heldur að auglýsa eftir
lyfjum á netinu í stað þess að kaupa
þau, oft á tíðum dýrum dómum, í
apótekum segir Matthías að ein-
hver dæmi séu um það. Í þessu til-
viki sé hins vegar ekki um mjög dýrt
lyf að ræða; mánaðarskammtur af
Cipralex er á fjögur þúsund krónur
ef viðkomandi er með lyfjakort en
annars á átta þúsund krónur.
Cipralex telst til nýju þunglynd-
islyfjanna og er svokallað SRNI-
lyf. Matthías segir að sumir fái
slæmar aukaverkanir ef þeir hætta
snögglega. „Hins vegar er lyfið ekki
ávanabindandi og fólk er að jafn-
aði ekki að sækjast í svona lyf,“ seg-
ir Matthías sem varar fólk við því
að kaupa lyfseðilsskyld lyf á net-
inu. „Það er ólöglegt að láta fólki í
té lyfseðilsskyld lyf án þess að hafa
til þess leyfi,“ bætir Matthías við.
einar@dv.is
Aðstoðarlandlæknir segir varasamt að kaupa lyf af ókunnugum á netinu:
Auglýst eftir lyfjum á netinu
Varasamt Matthías segir að það sé vara-
samt að kaupa lyfseðilsskyld lyf á netinu.
Síminn býður nokkrum völdum við-
skiptavinum í laxveiði í Langá á Mýr-
um í Borgarfirðinum í næstu viku.
Þetta segir Pétur Þ. Óskarsson, fram-
kvæmdastjóri samskiptasviðs Skipta,
móðurfélags Símans, spurður um
málið. Allur kostnaður við laxveiði-
ferðina er greiddur af Símanum, að
sögn Péturs, en þar er um að ræða
veiðileyfi í Langá og mat. „Síminn
er að bjóða viðskiptavinum á fyrir-
tækjasviði í laxveiði... Þetta er lax-
veiði og matur,“ segir Pétur en Langá
er ein af betri laxveiðiám landsins
og veiddust nærri 2.300 laxar í ánni
í fyrra.
Það er fyrirtækjasvið Símans sem
býður viðskiptavinunum í laxveiði-
ferðina. Pétur segir að um sé að ræða
tveggja daga ferð og í hana fari starfs-
menn Símans á fyrirtækjasviði og
viðskiptavinirnir. Hann segir að við-
skiptavinirnir verði við veiðar í ánni
í einn dag en fyrirtækjasviðið í sam-
tals tvo daga. „Þetta eru samtals tveir
dagar en viðskiptavinum er boðið í
einn dag.“
Gefur ekki upp nöfnin
Síminn er eitt af flaggskipum eignar-
haldsfélagsins Exista sem var eitt það
stærsta og öflugasta sinnar tegund-
ar hér á landi á árunum fyrir hrun.
Bræðurnir Lýður og Ágúst Guð-
mundssynir áttu félagið en kröfuhaf-
ar þess hafa nú tekið það yfir. Bræð-
urnir eru hættir í stjórn félagsins.
Þegar lánabók Kaupþings lak á netið
árið 2008 vakti athygli að bræðurnir
skulduðu Kaupþingi enn þá mest-
allt kaupverð Símans, en þeir keyptu
hann af íslenska ríkinu árið 2008. Af-
skiptum þeirra bræðra af Símanum
er hins vegar lokið og stendur nú yfir
fjárhagsleg endurskipulagning á Ex-
ista.
Aðspurður vill Pétur ekki greina
frá því hvaða viðskiptavinir fari í lax-
veiðiferðina en hann segir að alls
sé um að ræða 25 til 30 viðskipta-
vini. „Þetta eru stórir viðskiptavin-
ir á fyrirtækjasviði. Ég fer ekkert út í
að nefna nein nöfn í því samhengi,“
segir Pétur en spurningin er sú hvort
það sé heppilegt að félagið eyði pen-
ingum í slíkar laxveiðiferðir í ljósi
stöðu Exista en mikill styr hefur stað-
ið um félagið frá bankahruninu 2008.
Kostnaðurinn ekki gefinn upp
Pétur vill ekki gefa upp hversu mik-
ið laxveiðiferðin kostar. „Eðlilega
mun ég ekki gefa upp hversu mikið
þetta kostar,“ segir Pétur. Aðspurður
hvort Síminn muni bjóða viðskipta-
vinunum upp á eitthvað meira en
bara laxveiðina og matinn, til dæm-
is skemmtiatriði, segir Pétur að svo
sé ekki.
Dagurinn í Langá kostar hins veg-
ar 70 þúsund krónur og er veitt á 12
stangir. Ætla má að Síminn verði
með allar stangirnar í ánni þar sem
um er að ræða 25 til 30 viðskiptavini.
Því má ætla að ekki sé ósennilegt að
kostnaðurinn við veiði viðskiptavin-
anna þennan eina dag verði á þriðju
milljón króna. Vel kann líka að vera
að Síminn fái einhvern afslátt af
veiðinni. Svo á eftir að reikna matar-
kostnaðinn inn í dæmið.
Pétur segir að Síminn hafi áður
boðið viðskiptavinum sínum í lax-
veiði en að það hafi ekki verið gert
í fyrra, svo dæmi sé tekið. „Þetta er
einn liður í markaðssetningu okkar á
fyrirtækjasviði,“ segir Pétur.
Að lokum skal þess getið að með-
al þess sem Langá er þekkt fyrir
er að sjónvarpsmaðurinn Ingvi
Hrafn Jónsson var lengi með ána
á leigu - þar til 2007. Ingvi Hrafn
opnaði sig um laxveiðiferðir ís-
lensku bankanna í Langá í við-
tölum við Veiðimanninn og DV í
fyrra. Í samtali við DV sagði Ingvi
Hrafn meðal annars: „Þetta var sum-
arið 2006 og 2007, aðallega 2007.
Fólk var bara galið. Ruglið hjá Glitn-
isfólkinu skaraði einfaldlega fram úr
öllu. Það sem einkenndi starfsfólk-
ið í kringum þetta var ómerki-
legheit og lygar og annað í
þeim dúr. Þetta var nokk-
uð sem maður hefur ekki
séð fyrr eða síðar. Í Glitn-
isboðsferðunum var tryll-
ingurinn mestur. Þar fór
allt úr böndunum.“
Líklegt má telja að
meiri hófsemi muni ein-
kenna þessa laxveiði-
ferð Símans í næstu viku
enda breyttir tímar.
Síminn býður stórum viðskiptavinum á fyrirtækjasviði í laxveiði í Langá á Mýrum í
næstu viku. Upplýsingafulltrúi Símans segir að nöfn viðskiptavinanna verði ekki gef-
in upp og heldur ekki kostnaðurinn við ferðina. Síminn tilheyrir eignarhaldsfélaginu
Exista sem mikið hefur verið í umræðunni frá bankahruninu.
SÍMINN BÝÐUR Í
LAXVEIÐI Í LANGÁ
inGi f. Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
70 þúsund krónur dagurinn
Dagurinn í Langá kostar um 70
þúsund krónur. Ekki liggur
fyrir hversu margar
stangir Síminn kaupir
fyrir viðskiptavini sína.
Viðskiptavinirnir
munu veiða í boði
Símans í einn dag.
Hér er mynd af
einum veiðistaðnum
í Langá. Sævar Freyr
Þráinsson er forstjóri
Símans.
Þetta eru samtals tveir dagar en viðskiptavinum er boðið í einn dag.