Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2010, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2010, Side 7
miðvikudagur 7. júlí 2010 fréttir 7 Hljómsveitin Hjaltalín fékk fjórtán fjölmiðlamenn til að koma hingað til lands þann 16. júní til að vera við- staddir tónleika sveitarinnar og Sin- fóníuhljómsveitar Íslands. Hjalta- lín fékk styrk til þess frá Inspired by Iceland verkefninu. Blaðamennirn- ir voru frá sex Evrópulöndum. Með- al annars var þar að finna fjölmiðla- menn frá Danmarks Radio, Politiken og Sunday Times. Fjölmiðlafólkið dvaldi í þrjá daga hérlendis. Steinþór Helgi Arnsteinsson, um- boðsmaður Hjaltalín, segir blaða- mennina hafa verið í umsjón Hjalta- lín þennan tíma. „Við rúntuðum með þá og tókum þá út á lífið. Fór- um með þá í sveitina, í sund og svo framvegis. Þetta skilar sér margfalt til baka. Við hendum þessu beint inn í hagkerfið. Þeir kaupa flug hjá Icelandair eða Iceland Express og síðan hótelgistingu. Á móti fáum við risagreinar í tímaritum og blöðum eins og Sunday Times,“ segir Stein- þór. Tengslanet í útlöndum Steinþór segir að þessar vikurnar sé Hjaltalín að kynna plötuna Terminal sem hljómsveitin sé að gefa út í Evr- ópu. Þar þurfi að leggjast í alls kyns markaðsstarf. Hljómsveitin hafi viðrað hugmyndina um að fá blaða- mennina til landsins við Útón sem hafði síðan milligöngu um styrkinn. Hjaltalín hafi síðan fengið styrk til Hljómsveitin Hjaltalín fékk styrk úr In- spired by Iceland verkefninu til þess að fá fjórtán fjölmiðlamenn til landsins. Fjöl- miðlafólkið var viðstatt tónleika Hjaltalín og Sinfóníuhljómsveitar Íslands 16. júní. Frá upphafi verkefnisins hafa hund rað og tuttugu blaðamenn komið til landsins í tengslum það. Talið er að þeir verði tvö hundruð þegar verkefninu lýkur. Fjölmiðlamenn Fluttir inn til landsins Þetta er liður í því að bæta við prófíl sveitarinnar og að byggja við hann erlendis. RóbeRT HlynuR balduRsson blaðamaður skrifar: rhb@dv.is Kynnir nýja plötu SteinþórHelgi Arnsteinsson,umboðsmaðurHjaltalín, segirverkefniðopnatækifærifyrir Hjaltalínátónleikumáútlöndum. einar Karl Haraldsson, formaður framkvæmdanefndar Inspired by Iceland: Segirverkefniðstandastáætlun Einar Karl Haraldsson, formaður framkvæmdanefndar um Inspired by Iceland, segir verkefnið að mestu hafa staðist þá kostnaðaráætlun sem lagt var upp með í upphafi og að meg- inþorra sjóðsins hafi verið ráðstaf- að. Bróðurparti hans hefur verið eða verður varið til auglýsingagerðar og birtingar þeirra, eða 593 milljónum króna. Þar hafa til að mynda verið birtar auglýsingar á fjölförnum lestar- stöðvum í Bretlandi og Hollandi. Verkefnið hefur verið gagnrýnt fyrir að hafa ekki útboð framleiðslu- hluta verkefnisins opið, sem var 114 milljónir króna. Íslenska auglýsinga- stofan og Fíton fengu þann hluta. Einar segir að vegna þess að verkefn- ið var unnið í flýti hafi framkvæmda- aðilar nýtt sér heimild í lögum um útboð til að víkja frá reglunum í neyð- artilvikum. Þetta hafi verið gert í sam- ráði við Ríkiskaup. Fimm auglýsinga- stofur hafi getað gert tilboð í verkið í upphafi. „Síðan bárust ábendingar innan úr stjórnkerfinu um að ann- aðhvort þyrfti útboðsferlið að vera fullkomið eða að það yrði ekkert út- boð. Þá hefðum við farið af stað með annað verkefni, ef fylgt væri öllum ströngustu reglum. Þá væri það fyrst að koma til framkvæmda núna. Nið- urstaðan var að fyrirtækin tóku að sér framleiðsluhlutann á kynningarefn- inu,“ segir hann. Þegar Einar er spurður hvern- ig hægt sé að meta árangur verk- efnisins, segir Einar markaðsfræð- in bjóða upp á margar aðferðir til þess. Þær séu hins vegar ekki óum- deilanlegar. „Það er engin spurning að þetta aktívítet hefur vakið mikla athygli. Það er síðan spurning hvort athyglin framkallist í því að menn bóki ferðir til Íslands. Það getur ver- ið að menn lesi út fylgni milli þess að menn komist í tæri við þetta átak og bóki síðan,“ segir hann. Einar segir margar kannanir hafa verið gerðar á áhuga ferðamanna á Íslandi. Þar á meðal hafi Iceland Natur ally í Bandaríkjunum gert kannanir í áraraðir, þar sem hafi komið í ljós að Ísland skori hærra ár frá ári sem áhugaverður áfangastað- ur fólks á aldrinum 25 til 34 ára. „Ef maður hugsar um langtímaáhrifin er þetta mjög gott því æskan eldist mjög fljótt af fólki,“ segir Einar. Tvær auglýsingastofur valdar EinarKarlHaraldssonsegirhafaverið nauðsynlegtaðvíkjahjálögumum útboðviðframleiðsluauglýsinga. að greiða hluta kostnaðarins við að fá blaðamennina til landsins. Hann nam einhverjum hundruðum þús- unda króna. Auk þess hafi hljóm- sveitin fengið þrjú hundruð þúsund krónur úr tónlistarsjóði mennta- málaráðuneytisins. Hljómsveitin hafi síðan greitt þá upphæð sem út af stóð. Nú þegar hafa nokkrar þess- ara greina birst í erlendum fjölmiðl- um, þar á meðal plötudómur í Mojo, auk þess sem diskurinn var valinn plata vikunnar hjá Sunday Times. Steinþór segir starfið skila sér til baka í tækifærum fyrir hljómsveit- ina á tónleikum í útlöndum. Stein- þór segir hljómsveitina munu fara á tónleikaferðalag um Evrópu í sept- ember og að hún verði þá meira og minna á þeytingi um Evrópu út árið. „Við erum komin með tengslanet og í fyrra vorum við meira úti en heima. Við erum þegar komin með batterí fyrir utan Ísland og vinnum með mörgum fagaðilum í útlöndum, eins og almannatenglum. Þetta er liður í því að bæta við prófíl sveitarinnar og byggja við hann erlendis,“ segir Steinþór. Greitt fyrir uppihald Um hundrað og tuttugu blaðamenn hafa komið til landsins á vegum verkefnisins Inspired by Iceland. Til stendur að þeir verði um tvö hund- ruð þegar verkefninu lýkur með haustinu. Dæmi eru um að þeir fái greitt flugfar, hótel og eina máltíð á dag auk útsýnisferðar sem kostuð er af einhverjum ferðaþjónustuaðila. Jón Gunnar Borgþórsson, for- stöðumaður markaðs- og samskipta- sviðs Ferðamálastofu, segir misjafnt hversu mikið Inspired by Iceland verkefnið taki þátt í ferðakostnaði blaðamannanna. Þá sé ekki algilt að hún sé einhver, því stórir fjölmiðlar vilji oft frekar að starfsmaður þeirra komi til landsins á eigin vegum. Jón segir að oftast hafi Ferða- málastofa haft milligöngu að fyrra bragði um að fjölmiðlamennirnir kæmu til landsins. Stofan hafi not- að tengsl sín hjá almannatengsla- stofum og söluskrifstofum erlend- is til þess. Markmiðið með þessari milligöngu hafi verið að þeir kæmu til landsins til þess að fjalla um Ís- land eftir gosið í Eyjafjallajökli. Þetta hafi verið gert til að sýna fram á að hérlendis væri allt í stakasta lagi eftir gosið á stærstum hluta landsins. Milliganga um fjölmiðlafólk Jón segir tónleika Hjaltalíns að- eins vera eitt dæmi um það að blaðamenn séu styrktir til þess að koma til landsins og fjalla um ís- lenska tónlist. Þá hafi þó nokkr- ir fjölmiðlamenn komið til lands- ins í tengslum við sérhópa, eins og golf- og veiðiblaðamenn. „Það hafa ekki allir þeirra náð gosstöðvunum, en þó mjög stór hluti. Það er mik- ilvægt að sýna þeim hvernig Ísland er að öðru leyti. Það er smá svæði í kringum stöðvarnar sjálfar sem varð verst úti en það er mikil þörf á því að vekja athygli á að allt sé í lagi þess utan. Hingað til hefur umfjöll- unin verið mjög jákvæð og áhuga- verð. Ástralska sjónvarpið hefur fjallað um þetta og líka það rúss- neska og kínverska. Tilgangur verk- efnisins var að ýta undir jákvæða mynd af landinu og leiðrétta rang- an fréttaflutning sem fyrst,“ segir hann. Jón segir það hafa tíðkast í fleiri ár að Ferðamálastofa hafi milli- göngu um komu fjölmiðlafólks til landsins. „Það má ekki vanmeta þátt ferðaþjónustunnar í að kosta þessar ferðir. Við stílum ekki á há- annatíma svo ferðaþjónustufyrir- tækin verði ekki af tekjum, heldur yfirleitt vorin eða haustin. Ferða- þjónustuaðilar bjóða oft blaða- mönnum í ferðir til Íslands. Oft er þetta samstarf milli Ferðamála- stofu og ferðaþjónustunnar. Þetta er ekki bara peningur frá hinu op- inbera,“ segir Jón.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.