Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2010, Side 11
miðvikudagur 7. júlí 2010 fréttir 11
aðfararbeiðni hjá sýslumanni.
L: Við getum ekki lagt inn aðfarar-
beiðni.
A: Af hverju ekki?
L: Af því að ef að, ef að við værum,
ef að þú værir eigandi að bílnum og
ert með veð í bílnum þá myndum við
vera með aðfararbeiðni.
A: Það að taka bílinn er líka aðför.
L: Nei.
A: Jú.
L: Nei, af því að þú ert ekki skráður
eigandi að honum.
A: Það breytir engu. Um samninginn
er ákveðinn eignarhlutur. Ég á eign-
arhlut í þessum bíl. Bíllinn er virði
einhvers penings.
L: Þú mátt ekki, þótt það snúi eitt-
hvað að þér, þá máttu ekki snúa því
á hvolf gagnvart þér og þá tala um
þetta af einhverri sanngirni. Hvað
ætlarðu að gera, þú getur ekki breytt
bara lögunum? Það er ekki til brenni-
vín í dag, þá er allt í lagi, orðið löglegt
að brugga landa, af því að það er ekki
til einhver sort af brennivíni. Þetta er
nákvæmlega það sama sem þú ert að
segja. Lögin eru bara svona. Þú ert
ekki skráður, eða konan, eigandi að
viðkomandi tæki. Þú ert leigutaki á
tækinu.
A: Þið verðið þá, hvernig sem á það er
litið, þá verðið þið bara að kæra mig
fyrir stuld á bílnum eða eitthvað. Þið
fáið ekki bílinn nema með aðkomu
dómstóla eða opinberra aðila. Ég af-
hendi ykkur ekki bílinn og Lýsingu
ekki heldur.
L: Hlustaðu á. Eina sem við gerum í
dag, þá förum við í svokallaðar inn-
setningaraðgerðir sem að heitir það.
Guðmundur Andri, Gandri þarna,
sem hefur verið að skrifa sem mest
um þetta. Hann óskaði eftir að þetta
yrði farið í innsetningu og hann tap-
aði málinu þannig að hann varð
að borga 120 þúsund krónur í það
að láta dómara skrifa upp á það að
samningurinn væri eins og hann
átti að vera. Ekki málið. Í framhaldi
af því var leitað að bílnum, þá vænt-
anlega var litið á þetta þannig eins
og hann væri bara að stela því. Ef að
það er það sem þú ert að biðja um í
rauninni, og það stoppar ekki mál-
ið á þeim tíma sem það er að fara í
gegn, að þá leitum við að bílnum.
Eina sem hann hafði út úr því var
að hann þurfti að veita viðkomandi
fjármögnunarfyrirtæki 120 þúsund
krónur í málskostnað við að koma
málinu í gegn.
A: Sko, málið snýst ekkert um pen-
inga af minni hálfu. Þetta snýst um
prinsippatriði. Ég er alveg borgunar-
maður.
L: Fyrst þetta er prinsippatriði, þá ert
þú kominn í eitthvað bull sem að,
sko, af hverju ertu ekki frekar að slást
við skattinn?
A: Af hverju?
L: Já.
A: Hvað hefur skatturinn gert mér?
L: Ég er að spyrja, af hverju ertu ekki
frekar að slást við hann? Er hann ekki
að hækka hjá þér, skatturinn?
A: Jú, jú, en það er bara annað mál.
Ég er í þessu máli núna.
L: Nei, ég er að segja sko, af hverju
ertu ekki, menn verða að tala um
þetta af einhverju viti. Það er það
sem ég er að reyna að segja við þig.
Það er eitt ef þú ert að gaspra og
gaspra á götuhornum.
„Þá kem ég Þangað
á trukk og næ í hann“
L: Þú ætlar ekki að afhenda bílinn?
A: Ég ætla ekki að afhenda bílinn og
þið takið hann ekki nema að hafa
lögreglu með.
L: Þú segir okkur ekkert hvernig við
vinnum. Ég vinn bara eins og ég ætla
að vinna. Þannig að um það snýst
málið.
A: Ég bíð líka bara eftir ykkur þegar
þið mætið heim.
L: Já, bara flottur. Vertu bara eins
flottur á þessu eins og mögulegt er.
Ég nenni ekki að standa í þessu.
[…]
L: Næsta skref hjá okkur. Við förum
í innsetningu. Jafnframt ætla ég að
hirða bílinn hvar sem ég finn hann.
Ég ætla að leggja mikið á mig að
finna hann. Og ef þetta er heima hjá
þér, þá kem ég þangað á trukk og næ
í hann. Vertu blessaður.
A: Flott er, á ég að hella upp á fyrir
þig?
L: Ha? Nei, ég kem ekki í kaffi til
manna sem láta svona eins og bján-
ar. Ég get talað um þetta af fullri
skynsemi, af fullri, að hjálpa með þig,
hætt að hjálpa þér, en það síðasta
sem ég geri er það að láta hóta mér.
A: Ég hótaði ykkur aldrei.
[…]
L: Enn þá ætla ég að bjóða þér það,
ég ætla að segja það enn þá líka, að
skynsamlegasta leiðin hjá þér til þess
að ná málinu inn, til þess að geta far-
ið að taka á því er bæði að skila þess-
um bíl og þá hinum, þá er hægt að
taka á báðum málunum í einu. Það
er skynsamlegasta leiðin.
A: Það er þitt mat.
L: Það kostar þig bæði peninga,
vandræði og eitthvað … sem þú skil-
ur ekki, eða vilt ekki skilja.
A: Ég á alveg peninga fyrir þessu
þannig að það er ekki vandamálið.
L: Hvað er þá vandamálið?
A: Vandamálið er það að krafan hef-
ur hækkað ólöglega.
L: Það er ekki málið. Þú ert hættur að
borga.
A: Ég er búinn að borga umfram
upphaflegu kröfuna.
L: Ef þú hefðir bara borgað 28 þús-
und krónur á mánuði áfram að þá
værum við í allt öðru máli.
A: Nei. Ég væri í nákvæmlega sama
máli. Ég væri samt í vanskilum mið-
að við…
L: Þú ert ekki búinn að borga helm-
ing lánstímans og lánin hafa ekki
hækkað um hundrað prósent.
[…]
L: Ég myndi ráðleggja þér og ég er
bara að segja þér það, svo ekki tala
um það meira. Ég er bara að segja
þér það. Ef þú vilt slást þá áttu að hjá
ríkinu, þú átt að slást í dómssölum.
Að halda bílnum, það er mesta fá-
sinna sem þú gerir nema þú borgir
af honum.
A: Það er þitt mat.
[…]
A: Hvenær má ég þá eiga von á ykk-
ur heima?
L: Ég hérna, ef þú ætlar að afhenda
bílinn þá er það ekkert mál, þá kem
ég bara sjálfur og sæki bílinn hjá þér.
A: Ég afhendi hann ekki neitt. Þið
verðið þá bara að kreista hann úr lúk-
unum á mér.
L: Mér er alveg sama hvernig ég geri
það … þetta veltur allt á þér, ég er að
reyna að segja þér það.
A: Ekki ef krafan er ólögleg. Þá ert þú
að gera ólöglegan gjörning.
L: Þá áttu bæði skaðabótakröfu á við-
komandi fjármögnunarfélag, ha?
A: Já.
L: Þú átt hana. Fjármögnunarfélög fá
ekki að starfa hér á landi nema þau
hafi … hún er til, þannig að þú átt þá
kröfuna áfram. Jafnframt því, að ef
þú lendir í málaferlum við viðkom-
andi hérna. Ja, segjum svo að þú far-
ir í málið sem ég er að benda þér á
að gera sem er skynsamlegasta leið-
in. Þú ert ósáttur. Er það ekki rétt hjá
mér?
A: Jú, jú.
L: Hvernig áttu að berjast þá sem
ósáttur?
A: Hvernig?
L: Já, eins og í dag?
A: Já.
L: Nei, við hvern ertu að berjast?
A: Við Lýsingu og kröfuna þeirra.
L: Nei, þú ert að berjast við vindmyll-
ur. Það er það sem ég er að reyna að
segja. Þú ert bara eins og Don Kíkóti
að berjast við vindmyllur. Til þess að
fá hlutina, af því að þú kemst aldrei
að manninum sem þú ert að slást
við. Það sem þú ert að slást við er það
að skila bílnum inn, þá ertu kominn
með málið. Þá sérðu kröfuna þeirra,
sem þeir eru að gera á þig. Þeg-
ar þeir eru búnir að taka af þér bíl-
inn, skilurðu, þá ertu kominn með
heildarpakkann upp. Ókei, þeir gera
kannski milljón króna kröfu á þig eða
hvað þetta er. Segjum það. Þá ertu
kominn út í þennan bardaga sem þú
ert að tala um sjálfur. Fattarðu? Sem
þú segist vera í núna. Þú ert kominn í
hann þegar þú ert kominn þar.
A: Ef ég gef frá mér bílinn þarf ég að
verða mér úti um annan bíl. Þannig
að ég gæti allt eins verið áfram að
borga af þessum eins og að finna mér
einhvern annan.
L: Já, það er það sem ég er að reyna
að segja þér. Borgaðu bara málið í
skil.
[…]
L: Þá neitarðu bara að afhenda bíl-
inn. Þannig að við þar situr bara. Þá
gerum við þetta bara eins og þú vilt.
Þá verðum við að gera það.
A: Já.
L: Ég set þetta þá í innsetningu á þig
þannig að þú vitir það þá. Þú ert þá
að tapa einhverjum hundrað þús-
und kalli ef þú ferð með þetta alla
leið. Ekki eins og það skipti ein-
hverju máli hvort eð er. Það er ekkert
mál. Þá er ekki verið að taka á láninu
sjálfu heldur gerðinni sem slíkri.
A: Já.
L: Heyrðu, segjum það.
A: Já.
L: Bless.
A: Bless.
*A: Arnar Geir Kárason – L: Lárus
Viggósson. Þeir tveir ræddust við
tvisvar vikuna fyrir dóm Hæstaréttar.
Arnar segir Lárus ekki hafa haft sam-
band við hann aftur eftir að seinna
samtali þeirra lauk.
„Hirði bílinn Hvar
sem ég finn Hann“
brot úr
seinna
samtalinu
Vildi ekki ræða við DV Eigandi Vörslusviptingar sagði ekki þjóna neinum tilgangi að tala við DV.