Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2010, Blaðsíða 15
miðvikudagur 7. júlí 2010 neytendur 15
Bestu útsölurnar
að fá skó þar á góðu verði. Verðlagið
hjá þeim er mjög viðráðanlegt og föt-
in klæðileg fyrir stærri konur. Úrval-
ið í Vero Moda var líka mjög gott. Þó
betra og meira í Smáralind heldur en
Kringlunni. Þar var hægt að fá vörur
með 30 prósenta og allt upp í 70 pró-
senta afslætti. Margir kjólar geta nýst
sem sparikjólar í haust, þó að þeir séu
úr sumarlínu. Það sama gildir um boli,
leggings og annað sem er á fínu verði.
Útsalan í Dorothy Perkins í Smára-
lind var líka mjög góð. Þar voru kjól-
ar frá 3.000 krónum og upp úr. Í Tops-
hop var líka hægt að gera ágætiskaup.
Þar voru útsöluvörur með 40 til 60
prósenta afslætti en útsalan var þó
öllu betri og meira úrval í Topshop í
Kringlunni heldur en í Smáralind. Út-
salan í Zöru var ágæt en þó töluvert
dýrari en hún hefur verið undanfar-
in ár. Líklega skýrist það af hækkandi
verðlagi. Þó var hægt að gera mjög góð
kaup inn á milli og búast má við því
að það verði enn betra þegar líða fer
á útsöluna. Til dæmis fundum við kjól
sem áður hafði verið á 8.995 krónur og
var nú kominn á 3.995 krónur. Galla-
buxur voru svo á góðum afslætti í Vila
í Smáralind. Í miðbænum er mjög
góð útsala í Rokki og Rósum þar sem
allt í búðinni er með 50% afslætti auk
sérstakra tilboða. Til dæmis eru allar
gallaskyrtur á 1.000 krónur.
Skór
Skóútsölurnar voru flestar nokk-
uð góðar. Skóverð virðist hafa hækk-
að mikið síðan kreppan skall á og því
mjög gott að fjárfesta í skóm á útsölu.
Í skóbúðinni GS skóm var gott úrval
á útsölunni. Um helmingur vöruúrv-
als í búðinni var með 30 til 40 pró-
senta afslætti og svo var meiri afslátt-
ur af sérstaklega völdum skópörum.
Þar var hægt að fá skó á allt niður í
3.990 krónur. Í Bianco voru tvö skópör
á verði eins eða 30 prósenta afsláttur
af einu pari. Úrvalið þar var þó ekk-
ert sérstakt en hægt að finna flott pör
inni á milli. Í Bossanova var 30 til 60
prósenta afsláttur og nokkuð gott úr-
val af spariskóm. Í skóbúðinni Kron á
Laugavegi er hægt að gera mjög góð
kaup um þessar mundir. Þar eru all-
ir skór með 30 til 50 prósenta afslætti.
Þar eru góð merki seld og duga yfirleitt
vel. Í Herragarðinum var líka gott úr-
val af herraskóm á 40 prósenta afslætti
og gott úrval af íþróttaskóm var í Úti-
líf. Í Steinari Waage voru útsöluvör-
ur á 30 prósenta afslætti en úrvalið af
útsöluvörum hefði mátt vera meira.
Kaupfélagið var með 30 prósenta af-
slátt af flestum útsöluvörum, stund-
um meira. Úrvalið af útsöluvörunum
þar var gott.
Barnaföt og skóladót
Sniðugt er að kaupa barnaföt á útsöl-
um. Þau eru yfirleitt frekar tímalaus og
því oft hægt að gera góð kaup. Í Name
it var góð útsala á barnafötum. Flest í
búðinni var með 30 til 40 prósenta af-
slætti. Hægt var að fá nærföt og sam-
fellur á góðu verði. Í barnafatabúðinni
Adams var einnig góð útsala. Þar er
30 til 70 prósenta afsláttur af miklum
hluta vara búðarinnar. Þó voru ekki
grunnföt eins og nærföt, sokkabuxur,
sokkar og fleira slíkt á útsölu. Sama er
að segja um búðina Zink sem selur föt
fyrir börn og unglinga á aldrinum 8
til16 ára. Í BabySam var ekki mikil út-
sala en þó var hægt að fá kerru á góðu
tilboði, gamla verðið var 12.990 kr. en
á útsölunni var hún á 7.794 kr. Í Útilíf
var hægt að gera góð kaup á íþrótta-
fötum fyrir börn. Bæði íþróttagallar og
sundföt eru á 30 til 50 prósenta afslætti
og einnig er tilboð á íþróttatöskum .
Eitt besta tilboðið fyrir börn var
í Office1 en þar var hægt að fá skóla-
töskur á mjög góðu verði. Þær voru
á 50 til 67 prósenta afslætti og kosta
núna 1.500 til 2.500 krónur. Þar var
líka hægt að fá pennaveski og möpp-
ur á miklum afslætti. Það munar um
minna fyrir efnalítið fólk sem á börn
sem hefja nám í haust. Hagkaup stát-
ar líka af góðri útsölu á barnafötum en
þar eru allar útsöluvörur á 250 til 3.000
krónur og hægt að finna mjög góða
hluti inn á milli.
Vöruverð lækkar þegar líður á
Gott er að vera vel vakandi þegar mað-
ur fer á útsölur og láta ekki glepjast og
kaupa eitthvað „bara af því að það er
svo ódýrt“. Það er nefnilega ekkert svo
ódýrt ef það liggur óhreyft inni í skáp.
Útsölurnar í ár eru þess virði að kíkja
á þær og hafa ber í hug að því lengra
sem líður á útsöluna því meira minnk-
ar úrvalið en á sama tíma lækkar verð-
ið. Búðir lækka nefnilega flestar verð
á útsöluvörum töluvert í enda útsöl-
unnar en þá er oft ekki mikið eftir af
almennilegum vörum.
n Íþrótta- og útiViStarVörur
útilíf, glæsibæ, Holtagörðum,
Kringlunni og Smáralind
Mikill meirihluti af vörum búðarinnar
er á útsölu og hægt að gera góð kaup
á merkjavöru. Íþróttaföt, útivistarföt,
sundföt og margt fleira á góðu verði.
n SKór á miKlum afSlætti
Kron, laugavegi 48
Allt í búðinni á 30 til 50 prósenta afslætti.
Gaman að koma inn í búð þar sem allt er á útsölu, ekki bara lítill hluti. Þannig eru
bestu útsölurnar.
n góð Herraföt
Herragarðurinn, Kringlunni og Smáralind
Allt í búðinni á 40 prósenta afslætti. Merkjavörur á góðu verði.
n Vörur á ótrúlegum
afSlætti
Hagkaup
Mætti vera meira á útsölunni en það
sem er á henni er á mjög góðu verði. Allt
á 250 til 3.000 krónur. Barna- dömu-, og
herraföt. Einnig búsáhöld og fleira.
n Barnaföt á góðu Verði
name it
Flott barnaföt á 30 til 40 prósenta afslætti. Samfellur, sokkar og nærföt á börn á
góðu verði.
fimm Góðar útsölur
Kerra BabySam:
Verð áður 12.990 kr.
Verð nú 7.794 kr.
Skór Bianco, 2 fyrir1
annað parið 26.990
hitt parið 24.990 = 26.990.
Borgar bara fyrir annað parið.