Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2010, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2010, Qupperneq 16
16 erlent 7. júlí 2010 miðvikudagur Breska lögreglan sagði í gær að hringurinn væri farinn að þrengj- ast um Raoul Moat sem grunað- ur er um að hafa orðið manni að bana, sært Samönthu Stobbart, fyrr- verandi kærustu sína, og lögreglu- mann. Á mánudagskvöld komu fram upplýsingar um bréf, dagsett 4. júlí, sem Moat skrifaði til lögreglunnar og var afhent henni af einum vina Moats. Moat lýsir í bréfinu stríði á hendur lögreglunni í Norðymbr- alandi og, samkvæmt breska blað- inu Sun, segir í bréfinu: „Almenn- ingur þarf ekki að óttast mig, en það ætti lögreglan að gera því ég mun ekki láta staðar numið fyrr en ég er liðið lík. Þeir sviptu mig öllu, börnum, frelsi, húsi, og síðan Sam [Samönthu] og Chanel [19 mán- aða dóttur Moats og Samönthu]. Hvert átti ég að snúa mér? Ég glími augljóslega við vandamál, en mér var ögrað. Ég lagði aldrei hendur á börnin mín.“ Lögregluna grunaði að Raoul Moat hefðist við í grennd við Roth- bury, í um 50 kílómetra fjarlægð frá Northcastle, og var íbúum í Roth- bury sagt að halda sig innan dyra. Að sögn hálfsystur Samönthu, Kelly, hafði Raoul Moat uppfært stöðu sína á Facebook og þar væri að finna lista yfir skotmörk. „Ég er á honum, sem og fjölskyldumeðlimir. Hann sagðist drepa hvern þann lög- reglumann sem yrði fyrir honum,“ sagði Kelly. Sim Sue, settur yfirlögreglustjóri, upplýsti um það að starfsmenn í Durham-fangelsi, þar sem Moat af- plánaði stuttan dóm, hefðu varað við því að Moat „kynni að valda kær- ustu sinni skaða“. Lögreglan hefur ekki upplýst um hvort viðvöruninni hefði verið komið á framfæri við Sa- mönthu Stobbart. Grunaður morðingi sagði bresku lögreglunni stríð á hendur: Almenningur ekki skotmark Farþegavélum neit- að um eldsneyti Íranar saka Bretland, Þýskaland og Sameinuðu arabísku furstadæmin um að neita að útvega írönskum far- þegavélum eldsneyti. Ásakanir Írana koma í kjölfar einhliða ákvörðunar Bandaríkjamanna um nýjar refsiað- gerðir gegn Íran, þar sem erlendum fyrirtækjum sem skipta við Íran er hótað viðskiptaþvingunum. Bresk og þýsk stjórnvöld sögðu að þeim væri ekki kunnugt um að írönskum farþegavélum hefði verið neitað um eldsneyti. En fréttastofa AFP vitnaði í heimildarmann „inn- an vébanda fluggeirans í Samein- uðu arabísku furstadæmunum“ sem sagði þjónustuaðila sem útvegar eldsneyti á flugvöllum víða um heim hafa neitað írönskum flugvélum um eldsneyti. Pólitískum föngum hefur fækkað Pólitískum föngum á Kúbu hefur fækkað úr 201 niður í 167 síðan í ársbyrjun, samkvæmt upplýsingum frá hinni óopinberu mannréttinda- nefnd landsins. Fjöldinn nú nemur nánast helm- ingi þess fjölda pólitískra fanga sem gisti fangelsi landsins þegar Fidel Castro lét bróður sínum Raúl eftir stjórnartaumana fyrir fjórum árum. Yfirmaður mannréttindanefndar- innar, Elizardo Sanchez, telur að fækkunin endurspegli nýjar aðferðir yfirvalda til að mæta andstöðu og sagði að í stað langra fangelsisdóma sættu andstæðingar stjórnvalda nú ofsóknum og hótunum. Berst gegn framsali Fyrrverandi forseti Bosníu, Ejup Ganic, berst fyrir breskum dómstól- um gegn framsali sínu til Serbíu þar sem hann er ákærður fyrir stríðs- glæpi sem raktir eru til ársins 1992. Ganic er ákærður fyrir að hafa fyrir- skipað árás á sjúkralest og herspít- ala og einnig á hermenn sem voru að hörfa frá múslímskum hverfum í Sarajevo. Ejup Ganic hefur neitað sök, sagðist hafa verið hreinsaður af sök við tvenn réttarhöld og að hann fengi ekki sanngjörn réttarhöld í Serbíu. Serbnesk stjórnvöld telja að Ganic, sem var starfandi forseti á þeim tíma, hafi fyrirskipað árásirnar, en Serbar gáfu út handtökuskipun á hendur honum, ásamt átján öðrum, í nóvember. Morðingja leitað á Englandi Raoul Moat hefur verið á flótta í fimm daga. Mynd Afp Frönsk stjórnvöld hafa fengið sig fullsödd á því að punga út fé vegna franskra ferðamanna sem lenda í vandræðum á erlendri grund eftir að hafa tekið óþarfa áhættu. Því er svo komið að ferðamenn kynnu að þurfa að greiða sjálfir þann kostnað sem hlýst af björgun þeirra og heimsend- ingu, en lagafrumvarp þar að lútandi er nú til umræðu hjá frönskum þing- mönnum. Ef frumvarpið verður að lögum verður hinu opinbera gert kleift að krefjast endurgreiðslu „að öllu leyti eða að hluta til ... vegna björgunar- aðgerða erlendis“ ef það verður met- ið svo að ferðamenn hafi vitandi vits og án „réttmæts tilgangs“ ferðast til áhættusamra svæða. Samkvæmt upplýsingum frá ut- anríkisráðuneyti Frakklands eru lög- in hugsuð sem tilraun til að hvetja franska ferðamenn til að tileinka sér „ábyrgðartilfinningu“ á tímum tíðra mannrána, rána og óstöðugleika víða um lönd. fjárhagsleg ábyrgð Utanríkisráðuneytið vonast til þess að fólk hugsi sig tvisvar um áður en það ferðast til svæða sem úrskurðuð hafa verið hættuleg ef það sér fram á að þurfa sjálft að greiða fyrir, til dæm- is, neyðarflug heim. Litla furðu vekur að lausnargjöld munu ekki teljast til kostnaðar enda fullyrða Frakkar að þeir greiði engin slík. Kveikjuna að umræðunni um hver eigi að axla kostnað af fríi sem farið hefur í hundana má rekja til nokkurra tilfella sem átt hafa sér stað undanfarin ár. Í fyrra var nokkrum frönskum snekkjum rænt af sjóræn- ingjum undan strönd Sómalíu og í einu tilfellanna kostuðu björgunar- aðgerðirnar einn Frakka lífið. Franskir embættismenn lýstu gremju sinni vegna þess að frönsku sæfararnir höfðu ítrekað verið varað- ir við þeirri hættu sem fylgdi sigling- um á svæðinu, en sigldu samt. Um- rædd lög eiga að taka til „fólks sem vísvitandi“ kemur sér í aðstæður sem fylgir áhætta sem þeim ætti að vera kunnugt um. Áhöld eru um hvort lögin hefðu haft áhrif á þær björg- unaraðgerðir sem gripið var til í fyrr- nefndum tilfellum. Afsala sér ekki ábyrgð Gagnrýnendur lagafrumvarpsins segja það gefa til kynna að frönsk stjórnvöld hyggist afsala sér sín- um hluta ábyrgðarinnar, en Bern- Borga Brúsann sjálFir Frumvarp til laga sem heimila frönskum yfirvöldum að krefjast endurgreiðslu af Frökkum sem bjargað er úr vandræðum á erlendri grund er til umræðu hjá þarlend- um þingmönnum. Forsenda endurgreiðslu- kröfunnar er að ferðalangarnir hafi vitandi vits farið til áhættusamra svæða. kolbEinn þorstEinsson blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Enginn hefur verið hundsað- ur; enginn verður það. Við munum ávallt sker- ast í leikinn til að hjálpa samlöndum okkar í fjar- lægum heimshornum,“ sagði Kouchner. sæfarinn Abby sunderland Kostnaður við björgun hennar nam tugum milljóna króna. Mynd Afp

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.