Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Qupperneq 2
Úthýst Úr MagMa-nefnd
n Sveinn Margeirsson, doktor í iðnaðarverkfræði, fær ekki að taka sæti í
nefnd um Magma-málið. Hann hefur gagnrýnt
forystu Samfylkingarinnar á opnum
fundum og var meðal þeirra sem tóku
sér stöðu fyrir utan heimili Steinunn-
ar Valdísar Óskarsdóttur í tengslum
við umræðuna um framboðsstyrki
útrásarvíkinga til stjórnmálamanna.
Hann fær ekki að taka sæti sitt í Magma-
nefndinni vegna meints vanhæfis.
Sveinn er einn þeirra fimm einstaklinga sem
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra skip-
aði í nefnd í byrjun mánaðarins til þess að
meta lögmæti kaupa Magma Energy á eign-
arhlutum í HS Orku. Nefndinni var jafnframt
falið að rannsaka einkavæðingu orkufyrir-
tækja og varpa ljósi á starfsumhverfi þeirra og var Sveini ætlað að
stýra þeirri rannsókn. Eftir skipan Sveins í Magma-nefndina brá svo við að
Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu, kallaði
Svein á sinn fund þann 4. ágúst og tilkynnti honum að Jóhanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra myndi ekki undirrita skipunarbréf hans.
fékk fyrirtæki á silfurfati
n DV fjallaði um það á mánudaginn að flest benti til þess að Landsbank-
inn og Vestia, dótturfélag bankans, hafi
afskrifað á annan milljarð króna þeg-
ar það seldi fyrirtækið Parlogis í lok
júlí. Kaupandinn var Lyfjaþjónustan
ehf., sem er að fullu í eigu Kristjáns
Jóhannssonar, lektors við Háskóla
Íslands. Samkvæmt skrá yfir álagða skatta og
gjöld er Kristján tekjuhæsti háskólamaður
landsins með um 2,2 milljónir króna á mánuði.
Kaupverð Parlogis var 250 milljónir króna og
var kaupverðið greitt í einu lagi. Margt bendir til
þess að Landsbankinn hafi lánað kaupandan-
um fyrir kaupunum.
Parlogis er lyfjadreifingarfyrirtæki með aðsetur
á Krókhálsi í Reykjavík og hjá fyrirtækinu vinna
um 50 manns. Fyrirtækið er með nærri þriðjungs hlutdeild í lyfjadreifingu
í landinu. Formlegt söluferli hófst snemma í maí, en Vestia, dótturfélag
Landsbankans, átti 80 prósenta hlut í því og Atorka 20 prósent.
kirkjan leynir bréfi biskups-
dóttur
n Á miðvikudaginn sagði DV frá
því að Guðrún Ebba Ólafsdóttir,
dóttir Ólafs Skúlasonar biskups
Íslands, hefur óskað eftir áheyrn
kirkjuráðs, æðsta framkvæmda-
valdi þjóðkirkjunnar. Samkvæmt heimild-
um DV sat Guðrún Ebba fund með Karli
Sigurbjörnssyni biskupi Íslands snemma
árs 2009. Á vormánuðum 2009 sendi hún
svo bréf sem var stílað á biskup þar sem
hún óskaði eftir fundi. Erindinu var enn
ósvarað ári síðar, þegar hún ítrekaði beiðn-
ina og sendi þá bréf á kirkjuráð, þann 27.
maí 2010.
Kirkjuráð setti erindið strax á dagskrá næsta fundar ráðsins sem var hald-
inn dagana 23. og 24. júní, en séra Kristján Björnsson, sem situr í ráðinu,
segir að vegna fjölda mála á dagskrá hafi ráðið ekki komist yfir erindi Guð-
rúnar Ebbu og því frestað afgreiðslu þess fram til næsta fundar, sem hald-
inn verður í næstu viku.
2
3
1
úthýst
EFtIR
Sveinn MargeirSSon doktor í verkfræði:
mánudagur og þriðjudagur 9. – 10. ÁgÚST 2010 dagblaðið vísir 90. tbl.
100. árg. – verð kr. 395
n Forystumenn launþega með
margFöld laun umbjóðenda
n átti að rannsaka magma
n jóhanna vildi ekki svein
n hann haFði mótmælt við
heimili þingmanns
n Forsætisráðherra ber við
vanhæFi verkFræðingsins
n,,skrítið og undarlegt mál“
MÓtMÆLI
JÓhanna sIguRðaRdÓttIR
Hafnaði Sveini
stEInunn VaLdís
ÓskaRsdÓttIR
Sveinn var á meðal mótmælenda.
VERkaLýðsFORIngJaR
taka séR súpERLaun 1.439.390
1.015.291
1.317.214
973.442
1.022.368
912.239
VELdu bEsta
FaRsíMann
geisla-
virkum
svínum
Fjölgar
n dómsmálaráðherra
kreppir hneFana
LöggJöF
gEgn VítIs-
EngLuM
hLutaFéLag yFIRLÆknIs
InnhEIMtI bakVaktIR
n þorsteinn jóhannesson yFirlæknir á ísaFirði hækkaði í launum um 7 milljónir
kíló
Fuku15
n Fyrirsætan erna g. komst
ekki á milli ljósastaura
Fréttir
neytendur
erlent
DÓTTIR ÓLAFS SKÚLASONAR SKRIFAÐI BISKUPI BRÉF:
miðvikudagur og fimmtudagur 11. – 12. ÁgÚST 2010 dagblaðið vísir 91. tbl.
100. árg. – verð kr. 395
15
n Sakaður um að Stinga af frá reikningum
n „Hefur farið á mörg önnur Hótel“
LEYNDARMÁL
ANGELINU
AFHJÚPUÐ
DÓTTIR
BISKUPS
KREFST
UPPGJÖRS
n guðrÚn eBBa vill að kirkJan
HOrfiSt Í augu við kYnferðiSBrOt
n fJórar kOnur Sökuðu föður
Hennar um kYnferðiSBrOt
Hótel
kÆra
arOn
Pál a
SPAUGSTOFAN
SKORIN NIÐUR!
n tveggJa áratuga grÍn á enda
eXiSta-
StJóri
til lÚX
fréttir
fréttir
YFIRLÆKNIR
SKOÐAÐUR
VEGNA LAUNA
fréttir
NORÐUR-KÓREA:
fréttir
erlent
SviðSlJóS
BÝður
ginSeng
uPP Í
Skuld
Þessar fréttir bar hæst í vikunni
þetta helst Vegna túlkunarbreytingar hjá yfirvöldum eru nú lagðir sömu tollar á innflutt gjafasæði manna og sæði til kyn-
bótaræktunar hjá nautum. Gjafasæði hefur verið tollfrjálst í
tugi ára en nú hefur orðið breyting þar á.
hitt málið
2 fréttir 13. ágúst 2010 föstudagur
Fjölþrepa
bakbrettið
• Eykur sveigjanleika
• Linar bakverki
• Bætir líkamsstöðu
• Auðvelt í notkun
• Má nota hvar sem er
Opið virka daga frá kl. 9 -18
Verð: 7.950 kr.
Sími 569 3100 • Stórhöfða 25 • www.eirberg.is
Fyrirvaralaust í ársbyrjun byrjuðu
yfirvöld hérlendis að innheimta að-
flutningsgjöld af gjafasæði sem flutt
er inn til frjósemismeðferðar og það
sett í sama flokk og sæði til kynbóta-
ræktunar hjá nautum. Gjafasæði var
áður tollfrjálst. Tæknifrjóvgunarstof-
an Art Medica hefur kært þessa túlk-
unarbreytingu hjá tollstjóraembætt-
inu sem hætti að skilgreina gjafasæði
sem lífsýni og breytti því í landbún-
aðarvöru. Guðmundur Arason,
kvensjúkdóma- og fæðingalæknir á
Art Medica, segir að þar hafi menn
miklar áhyggjur af þessari breytingu
þar sem hún feli í sér aukinn kostnað
fyrir einstaklinga og pör sem neyð-
ast til að leita sér sérfræðiaðstoðar til
að eignast börn. Slíkar aðgerðir eru
nógu dýrar fyrir auk þess sem breyt-
ingin skapar vandræði við innflutn-
ing á þessari viðkvæmu vöru þar sem
tíminn skiptir sköpum.
Í sama flokki og nautasæði
„Staðreyndir málsins eru að sæði
hefur verið flutt til landsins í ein
þrjátíu ár og verið notað hér hjá
okkur og Landspítalnum og hing-
að til hefur aldrei verið neinn skatt-
ur eða tollur af því,“ segir Guðmund-
ur. „Þetta flokkast undir lífsýni en
núna í byrjun þessa árs virðist hafa
orðið einhver túlkunarbreyting á
þessu hjá yfirvöldum því nú þarf að
greiða virðisaukaskatt af þessu. Þetta
er því komið í sama flokk og sýni
til kynbótaræktunar hjá nautum. Í
raun skilgreint sem landbúnaðar-
vara, ekki lífsýni,“ segir Guðmundur
sem kveðst ekki vita betur en gjafa-
sæði og hornhimnur séu einu lífsýn-
in sem flutt séu inn til landsins og
eftir því sem hann komist næst séu
ekki greidd aðflutningsgjöld af horn-
himnum til augnaðgerða. Art Medi-
ca unir ekki þessum breytingum og
segir Guðmundur að ákvörðunin
hafi verið kærð til tollstjóra og er sú
kæra nú í vinnslu.
Getur skemmst í tollinum
Samhliða þessari nýju skilgrein-
ingu skapast vanda-
mál við innflutn-
ing á gjafasæði að
sögn Guðmund-
ar. Það strandi nú
í tollinum vegna
þeirra gjalda sem allt
í einu þarf að greiða
af þeim. Til viðbótar
því að Art Medica sé að
kaupa og flytja inn gjafasæði er það
þannig að einstaklingar geta gert
það sjálfir í gegnum netið. Vinsælt
er að kaupa í gegnum gjafasæðis-
fyrirtæki í Danmörku. Slík fyrirtæki
senda þó ekki vöruna nema til viður-
kenndra stofnana eins og Art Medi-
ca sem hefur tekið að sér að geyma
sýnin fyrir einstaklinga þegar þau
berast til landsins. „Það verður að
afgreiða þetta með hraði og það var
aldrei neitt vesen vegna þessa áður
fyrr því þetta kom til okkar samdæg-
urs og við settum þetta í geymslu,“
segir Guðmundur. Eftir reglubreyt-
inguna stranda sendingar hins veg-
ar í tollinum vegna gjaldtökunnar.
Og þar sem Art Medica er skráð sem
móttakandi hefur tollurinn krafið þá
um greiðslu gjalda á sendingum sem
stofan á ekkert í og eru til einstakl-
inga sem hyggjast nýta sér geymslu-
þjónustu Art Medica. „Þetta er að
valda miklum ruglingi. Nú eru sýn-
in stöðvuð í tolli þar til einhver leys-
ir þau út. Við höfum miklar áhyggj-
ur af þessu, því þetta er svo viðkvæm
vara og getur hreinlega skemmst
hjá þeim.“ Guðmundur bendir á að
í Evrópu sé gjafasæði ekki virðis-
aukaskattskyld vara heldur fari hún
óhindruð á milli landa.
Hjá tollstjóraembættinu fengust
þau svör að vinnsla kærunnar væri í
gangi og því gæti embættið ekki tjáð
sig um einstaka mál.
siGurður mikael jónsson
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
Þetta er því kom-ið í sama flokk
og sýni til kynbótarækt-
unar hjá nautum. Í raun
skilgreint sem landbún-
aðarvara, ekki lífsýni.
Ríkið legguR
skatt á sæði
Í sama flokki og nautasæði Tollstjóraembættiðbreyttiíársbyrjunskilgreiningusinniágjafasæðisvonúfellurþaðísamaflokk
ogsæðisemflutterinntilkynbótaræktunarhjánautum.mynd: reuters
MánUDAGUR 9. ágúst 2010
fréttir 7
Flest bendir til þess að Landsbankinn
og Vestia, dótturfélag bankans, hafi
afskrifað á annan milljarð króna þeg-
ar það seldi fyrirtækið Parlogis í lok
júlí. Kaupandinn var Lyfjaþjónust-
an ehf., sem er að fullu í eigu Kristj-
áns Jóhannssonar lektors við Háskóla
Íslands. Samkvæmt skrá yfir álagða
skatta og gjöld er Kristján tekjuhæsti
háskólamaður landsins með um 2,2
milljónir króna á mánuði.
Kaupverð Parlogis var 250 milljón-
ir króna og var kaupverðið greitt í einu
lagi. Margt bendir til þess að Lands-
bankinn hafi lánað kaupandanum
fyrir kaupunum.
Parlogis er lyfjadreifingarfyrirtæki
með aðsetur á Krókhálsi í Reykja-
vík og hjá fyrirtækinu vinna um 50
manns. Fyrirtækið er með nærri
þriðjungs hlutdeild í lyfjadreifingu
í landinu. Formlegt söluferli hófst
snemma í maí, en Vestia, dótturfélag
Landsbankans átti 80 prósenta hlut í
því og Atorka 20 prósent.
Á brauðfótum um langt skeið
Í raun hefur rekstur Parlogis verið í
gjörgæslu síðan Landsbankinn seldi
félagið í skuldsettri yfirtöku árið 2007.
Landsbankinn hefur tvívegis lánað
mikið fé vegna eigendaskipta á fé-
laginu síðan þá, fyrst mönnum sem
stóðu á bak við Dreifingarmiðstöðina
ehf. (DM). Samkvæmt ársreikningi
Parlogis árið 2008 greiddu eigend-
ur sér um 160 milljóna króna arð og
er varla að sjá að það hafi samrýmst
hagsmunum Landsbankans og var
félaginu lýst sem fjárvana fyrirtæki á
þeim tíma í Viðskiptablaðinu 8. okt-
óber 2009. Eftir að DM var lýst gjald-
þrota í fyrra tók Landsbankinn við
rekstri Parlogis.
Rekstrartap Parlogis árið 2008
nam nærri 1.260 milljónum króna og
var eigið fé þess neikvætt um nánast
sömu upphæð. Skuldir námu um 2,4
milljörðum króna.
Í ársreikningi Parlogis fyrir árið
2009 kemur fram að hlutafé félagsins
hafi verið aukið um 1.253 milljónir
króna með skuldbreytingu lána fyrir
síðustu áramót.
Samkvæmt sölugögnum Fyrir-
tækjaráðgjafar Landsbankans eru yfir
70 prósent tekna Parlogis til komnar
vegna sölu og dreifingar á vörum frá
Icepharma sem einnig var í meiri-
hlutaeign Kristjáns Jóhannssonar. Í
gögnunum kemur fram að Parlog-
is beri mikla áhættu, meðal annars
gengisáhættu vegna vöruinnflutn-
ings, í samningum sínum við Icep-
harma. Jafnframt kemur fram að sölu-
samningar Parlogis og Icepharma
gilda til loka næsta árs. Af þessu leiðir
að þeir sem höfðu á annað borð hug á
að kaupa Parlogis af Landsbankanum
/ Vestia urðu að gera tilboð með fyr-
irvara um endurskoðun og framleng-
ingu samninga við Icepharma. Að
öðrum kosti mætti líta svo á að Par-
logis væri nánast ósöluhæft.
Lánaði bankinn
fyrir kaupunum?
Af framangreindum ástæðum voru
Icepharma og Kristján Jóhannsson í
yfirburða stöðu til þess að kaupa Par-
logis þar sem hann hélt í alla enda.
Með öðrum orðum voru Kristján
og Icepharma nánast í lykilstöðu til
þess að losa Landsbankann við Par-
logis. Þess má geta að Landsbank-
inn er einnig viðskiptabanki Icep-
harma. Heimildarmenn DV telja að
þar af leiðandi hafi söluferlið á veg-
um Landsbankans og Vestia verið
hálfgert sjónarspil. Salan var aðeins
opin svokölluðum fagfjárfestum sem
hindraði áhuga á kaupum á lyfjadreif-
ingarfyrirtækinu.
Í tilkynningu segir að 12 aðilar
hefðu fengið kynningargögn en ekk-
ert gefið upp um hversu margir hefðu
lagt fram skuldbindandi tilboð.
Í tilkynningunni frá Vestia um sölu
Parlogis kemur ekki fram hverjir eig-
endur Lyfjaþjónustunnar ehf. eru, en
það fyrirtæki staðgreiddi 250 milljónir
króna fyrir Parlogis. Samkvæmt hluta-
félagaskrá er Kristján Jóhannsson
lektor eini eigandi félagsins. Kristján
er jafnframt stjórnarformaður og að-
aleigandi Icepharma í gegn um eign-
arhaldsfélögin Akurey ehf. og Lyng
ehf. Kristján á helmingshlut í Akur-
ey á móti Ingu Rósu Guðmundsdótt-
ur. Akurey er aftur meirihlutaeigandi
í Lyngi ehf. sem á Icepharma að öllu
leyti.
Akurey var stofnað árið 2007 í
tengslum við skuldsetta yfirtöku á Ic-
epharma. Inga Rósa er lyfjafræðingur
og eftir því sem DV kemst næst er hún
starfsmaður Lyfjastofnunar Íslands
sem gæti valdið hagsmunaárekstrum
gagnvart eignarhaldi hennar í lyfja-
dreifingu.
Fréttablaðið greindi frá því þann
10. júní síðastliðinn að Akurey ehf.
hefði aldrei frá upphafi skilað árs-
reikningum. Kristján var þá nýskip-
aður fulltrúi Bankasýslunnar (ríkis-
ins) í stjórn Arionbanka. Kristján kom
af fjöllum og taldi að um handvömm
hefði verið að ræða.
Ársreikningum Akureyjar hefur nú
verið skilað. Þar kemur fram að eigið
fé félagsins var neikvætt um nærri 1,3
milljarð króna í árslok 2008. Á sama
tíma var eigið fé Lyngs ehf. neikvætt
um nánast jafn háa upphæð eða 1,1
milljarð króna.
Bankinn á þremur
stöðum við borðið
Varla er um það að ræða að Akurey,
Lyng eða Icepharma hafi getað lagt
fram fé til kaupanna á Parlogis nú.
Þannig er því ósvarað hvernig Lyfja-
þjónustan ehf., sem er algerlega í eigu
Kristjáns, hafi getað staðgreitt 250
milljónir króna við kaupin á Parlogis
fyrir skemmstu. DV tókst ekki að afla
upplýsinga um það við vinnslu frétta-
rinnar hvort Landsbankinn hefði lán-
að Kristjáni fyrir kaupverðinu.
Miðað við skuldir Parlogis og
stöðu félagsins áætla heimildarmenn
DV að Landsbankinn hafi afskrifað 1
til 1,5 milljarð króna um leið og Par-
logis var selt.
Landsbankinn tengist Kristjáni
með margvíslegum hætti í viðskipt-
um með áðurgreind félög. Bankinn
er viðskiptabanki Icepharma sem
Kristján á meirihluta í. Landsbank-
inn er því í senn eigandi, seljandi
og viðskiptabanki Kristjáns, sem
virðist alla tíð hafa gegnt lykilstöðu
sem mögulegur kaupandi Parlogis.
Heimildir eru og fyrir því að Lands-
bankinn hafi fyrirfram talið sig hafa
mestan hag af því að Icepharma
kæmist yfir Parlogis til þess að styrkja
rekstur fyrirtækisins. Þetta styður
grunsemdir um að söluferlið hafi í
rauninni verið einhvers konar leik-
þáttur og aðrir bjóðendur hafi ekki
átt raunhæfa möguleika til að kom-
ast yfir fyrirtækið.
Allt bendir til þess að Landsbankinn hafi afskrifað 1 til 1,5 milljarð
króna þegar hann seldi fyrirtæki í eigu Kristjáns Jóhannssonar
lektors lyfjadreifingarfyrirtækið Parlogis ehf. fyrir skemmstu.
Ýmsir þeir sem fengu gögn um söluna og sýndu áhuga á kaupum
telja að salan hafi verið nánast fyrirfram ákveðin og að sett hafi
verið upp leiksýning af hálfu bankans til að fullnægja formsat-
riðum um opið söluferli.
FÉKK FYRIRTÆKI
Á SILFURFATI
er því í senn eigandi, seljandi og við-
skiptabanki Kristjáns, sem
virðist alla tíð hafa gegnt
lykilstöðu sem mögulegur
kaupandi Parlogis.
EIgnARhALdSFÉLAgIð AKUREY EhF.
Kristján Jóhannsson - 50 prósent
Inga Rósa Guðmundsdóttir - 50
prósent
EIgnARhALdSFÉLAgIð LYng EhF.
Akurey ehf. - 61 prósent
Margrét Guðmundsd. - 18 prósent
Karl Þór Sigurðson - 12 prósent
Aðrir - 9 prósent
IcEphARmA EhF.
Lyng ehf. - 100 prósent
LYFjAþjónUSTAn EhF.
Kristján Jóhannsson lektor - 100
prósent
pARLogIS EhF.
Lyfjaþjónustan ehf. - 100 prósent
Jóhann hauKsson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Þriðjungur
lyfjadreifingar-
innar. Áætlað er
að Landsbankinn
hafi afskrifað 1
til 1,5 milljarð
króna þegar hann
seldi á dögunum
lyfjadreifingarfyr-
irtækið Parlogis
sömu aðilum og
reka Icepharma.
Launahæsti
háskólamaðurinn
Kristján Jóhannsson
staðgreiddi 250
milljónir króna
þegar Lyfjaþjónust-
an ehf. í hans eigu
keypti Parlogis af
Landsbankanum.
Ríkisbankinn. Landsbankinn er í eigu ríkisins. Efasemdir eru um trúverðugleika
söluferlis bankans á lyfjadreifingarfyrirtækinu Parlogis.