Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Side 40
Margrét fæddist í Seglbúðum í
Landbroti og ólst þar upp. Hún
stundaði nám við Kvennaskólann
í Reykjavík og lauk þaðan prófum
1941.
Að námi loknu stundaði Margrét
skrifstofustörf í Reykjavík, lengst af
hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Eftir að Margrét gifti sig helgaði
hún krafta sína heimilinu en hún
var bakhjarl eiginmanns síns í krefj-
andi starfi þeirra beggja. Heimili
hennar og eiginmanns hennar, var
ekki einungis samastaður fjölskyld-
unnar heldur einnig áningastaður
vina, samvinnumanna og annarra
hvaðanæva af landinu, sem og er-
lendra viðskiptamanna.
Margrét og Erlendur, eiginmað-
ur hennar, bjuggu lengst af síns
búskapar í Selvogsgrunni en síðan
síðustu samveruárin á Kirkjusandi.
Margrét dvaldi síðan á Grund frá
því sl. vor.
Fjölskylda
Margrét giftist 13.4. 1946 Erlendi
Einarssyni frá Grund í Vík í Mýrdal,
f. 30.3. 1921, d. 18.3. 2002, forstjóra
Sambands íslenskra samvinnu-
félaga. Foreldrar hans voru Ein-
ar Erlendsson, f. 1.2. 1895, d. 13.3.
1987, skrifstofumaður frá Engigarði
í Mýrdal, og Þorgerður Jónsdóttir
frá Höfðabrekku í Hvammshreppi
í Vestur-Skaftafellssýslu, f. 21.1.
1897, d. 22.6. 1991, húsfreyju.
Börn Margrétar og Erlends eru
Helga Erlendsdóttir, f. 5.12. 1949,
lífeindafræðingur og klínískur próf-
essor, gift Sigurði Árnasyni, f. 10.4.
1949, lækni; Edda Erlendsdóttir, f.
31.12. 1950, píanóleikari og próf-
essor við Tónlistarskólann í Versöl-
um, gift Olivier Manoury, f. 13.7.
1953, tónlistarmanni; Einar Er-
lendsson, f. 15.5. 1954, ljósmynda-
fræðingur, kvæntur Ástu Halldórs-
dóttur, f. 6.3. 1955, fatahönnuði.
Börn Helgu og Sigurðar eru Þor-
gerður, f. 19.12. 1971, gift Svein-
birni Dagnýjarsyni, f. 15.1. 1970
og eru börn þeirra Einar Tómas, f.
14.9. 1999, Helga Ísold, f. 17.9. 2002,
og Hilma Soffía, f. 18.7. 2010; Árni,
f. 7.1. 1977, kvæntur Ínu Ólöfu Sig-
urðardóttur, f. 15.10. 1976 og eru
börn þeirra Selma Lind, f. 26.5.
2003, og Sigurður Bjarmi, f. 9.5.
2007; Margrét Ágústa, f. 16.11. 1983
en sambýlismaður hennar er Ólaf-
ur Sigurjónsson, f. 16.7. 1977; Sig-
urður Orri, f. 23.4. 1990 (stjúpson-
ur Helgu).
Sonur Eddu og Oliviers er Tóm-
as, f. 23.8. 1979, en sonur Tómasar
og Valdísar Guðmundsdóttur, f. 2.3.
1978, er Tristan, f. 11.3. 2004.
Dætur Einars og Ástu eru Mar-
grét Rós, f. 19.2. 1975, en sam-
býlismaður hennar er Aðalsteinn
Bjarnason, f. 1.10. 1978 og á hún
tvær dætur, Emblu Líf, f. 1.2. 1997,
og Apríl Mist, f. 13.2. 2000; Edda
Ýrr, f. 7.3. 1983, en sambýlismaður
hennar er Róbert Freyr Jóhanns-
son, f. 29.7. 1981, og eru börn
þeirra Kristófer Kári, f. 25.4. 2008,
og Ragnheiður Klara, f. 3.3. 2010;
Brynja, f. 15.10. 1986, en sambýlis-
maður hennar er Sigurður Marcus
Guðmundsson og er sonur þeirra
Victor Flóki, f. 12.3. 2010; Íris, f.
23.1. 1993.
Systkini Margrétar: Ólöf Helga-
dóttir, f. 21.11. 1924, d. 8.9. 1990,
hjúkrunarfræðingur, var gift Birni
Bergsteini Björnssyni, f. 2.10. 1918,
d. 26.11. 1986; Ásdís Helgadóttir,
f. 6.9. 1929, handmenntakennari,
var gift Einari Hauki Ásgrímssyni,
f. 20.10. 1928, d. 18.1. 1989; Jón
Helgason, f. 4.3. 1931, fyrrv. alþm.,
ráðherra og forseti Alþingis, kvænt-
ur Guðrúnu Þorkelsdóttur, f. 21.4.
1929.
Foreldrar Margrétar voru Helgi
Jónsson, f. 29.4. 1894, d. 22.5. 1949,
bóndi í Seglbúðum í Landbroti, og
Gyðríður Pálsdóttir frá Þykkvabæ
í Landbroti, f. 12.3. 1897, d. 15.5.
1994, húsfreyja.
Ætt
Helgi var bróðir Ólafar, móður
Kristjáns Torfasonar, fyrrv. bæjar-
fógeta í Vestmannaeyjum. Helgi
var sonur Jóns, b. í Seglbúðum Þor-
kelssonar. Móðir Jóns í Seglbúð-
um var Guðríður Magnúsdóttir, á
Kirkjubæjarklaustri, bróður Þór-
unnar, ömmu meistara Kjarvals,
og bróður Guðríðar, langömmu
Sveins á Fossi í Mýrdal, afa Sveins
Runólfssonar landgræðslustjóra
og Brynju Benediktsdóttur leik-
stjóra, móður Benedikts Erlings-
sonar, leikara, leikstjóra og leikrita-
höfundar. Magnús var sonur Jóns,
hreppstjóra á Kirkjubæjarklaustri
Magnússonar, og Guðrúnar Odds-
dóttur, systur Guðríðar, langömmu
Helga Bergs, fyrrv. forstjóra SS, föð-
ur Helga Bergs, fyrrv. bankastjóra,
en bróðir Guðrúnar var Sigurður,
langafi Guðbrands, föður Ingólfs,
ferðamála- og söngmálafrömuð-
ar, föður Þorgerðar Ingólfsdóttur
söngstjóra. Guðbrandur var einn-
ig afi Þorfinns, afa Ómars Ragnars-
sonar, fréttamanns, dagskrárgerð-
armanns og skemmtikrafts. Móðir
Guðríðar var Kristín Teitsdóttir,
systir Matthildar, langömmu Guð-
rúnar, móður Péturs Sigurgeirsson-
ar biskups, föður dr. Péturs, próf-
essors við HÍ.
Móðir Helga var Ólöf Jónsdóttir,
b. í Seglbúðum Jónssonar, b. í Segl-
búðum Jónssonar, bróður Guðlaug-
ar, ömmu Ástu sem var amma Dav-
íðs Morgunblaðsritstjóra. Bróðir
Jóns á Seglbúðum var Jón á Lamba-
felli undir Eyjafjöllum, langafi
Guðfinnu, móður Höllu Margrét-
ar Árnadóttur óperusöngkonu. Jón
var einnig langafi Hjörleifs, afa Evu
Maríu Jónsdóttur dagskrárgerðar-
manns, og langafi Mörtu í Berjanesi,
ömmu Mörtu Guðjónsdóttur, fyrrv.
formanns Varðar. Jón á Seglbúð-
um var sonur Jóns, bróður Gísla, b.
á Ytri-Ásum í Skaftártungum, föð-
ur Þórunnar, grasalæknis og ljós-
móður, langömmu Jörmundar Inga
Hansen, framkvæmdastjóra og
fyrrv. allsherjargoða.
Gyðríður var systir Guðrúnar,
móður Hjörleifs Guttormssonar,
fyrrv. alþm. og ráðherra. Gyðríður
var dóttir Páls, b. í Þykkvabæ í Land-
broti, bróður Sigríðar, ömmu Ingólfs
Guðbrandssonar, ferða- og söng-
málafrömuðar. Páll var sonur Sig-
urðar, b. í Þykkvabæ Sigurðssonar.
Móðir Páls var Guðríður, dóttir Sig-
ríðar Jónsdóttur, systur Magnúsar á
Kirkjubæjarklaustri.
Móðir Gyðríðar var Margrét El-
íasdóttir, b. á Syðri-Steinsmýri Giss-
urarsonar, og Gyðríðar Þórhalla-
dóttur, b. í Mörk Runólfssonar,
bróður Halldóru, langömmu Guð-
mundar, föður Alberts, borgarráðs-
manns, alþm. og ráðherra, föður
Inga Björns, fyrrv. alþm. Halldóra
var einnig móðir Sigurðar, langafa
Óla Kr. Sigurðssonar í Olís. Þórhalli
var sonur Runólfs, b. í Hvammi,
Gunnsteinssonar, bróður Egils,
langafa Jóhönnu Egilsdóttur, verka-
kvennaforingja, ömmu Jóhönnu
Sigurðardóttir forsætisráðherra.
andlát
Margrét Helgadóttir
húsmóðir í reykjavík
merkir íslendingar
Fædd 13.8. 1922 - Dáin 2.8. 2010
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 20 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • utfarir@utfarir.is
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 20 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • utfarir@utfarir.is
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Síðastliðin 20 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Þegar andlát ber að
www.utfarir.is - utfarir@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110
& 893 8638
40 minning 13. ágúst 2010 föstudagur
Guðrún Katrín
Þorbergsdóttir
forsetafrú
f. 14.8. 1934, d. 12.10. 1998
Guðrún Katrín fæddist í Reykjavík
árið 1934 og ólst þar upp í Vestur-
bænum, dóttir hjónanna Guðrúnar
S. Bech húsmóður og Þorbergs Þor-
bergssonar stýrimanns.
Hún útskrifaðist sem stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1955.
Hún nam þjóðfélagsfræði við
Háskóla Íslands frá 1973-75 og
fornleifafræði við Gautaborgar-
háskóla veturinn 1971-72.
Guðrún var framkvæmdastjóri
Póstmannafélags Íslands árin
1979-87 og aftur árið 1989. Hún rak
hannyrðaverslun í Reykjavík árin
1987-89 en gegndi jafnframt ýms-
um trúnaðarstörfum og var meðal
annars bæjarfulltrúi á Seltjarnar-
nesi í sextán ár samfleytt.
Guðrún Katrín var tvígift, fyrri
maður hennar var Þórarinn B. Ól-
afsson læknir og eignuðust þau
tvær dætur en seinni maður henn-
ar var Ólafur Ragnar Grímsson, nú-
verandi forseti, og eignuðust þau
einnig tvær dætur.
Guðrún Katrín stóð við hlið
manns síns er hann fór í forseta-
framboð 1996, var ávallt mjög sýni-
leg sem forsetafrú við ýmsar at-
hafnir, naut mikilla vinsælda meðal
þjóðarinnar og þótti jafnan glæsi-
legur fulltrúi lands og þjóðar. Hún
bjó yfir ríkum listrænum hæfileik-
um, var virt hannyrðakona, stund-
aði sauma- og prjónaskap frá ungl-
ingsárunum en prjónauppskriftir
eftir hana birtust í íslenskum og er-
lendum blöðum og tímaritum.
Hún greindist með bráðahvít-
blæði í september árið 1997 og lést
eftir harða baráttu við sjúkdóminn
rúmu ári síðar.
Ólafur Ketilsson
sérleyfishafi
f. 15.8. 1903, d. 9.7. 1999
Ólafur var lengst af búsettur í
Svanahlíð á Laugarvatni en síð-
ustu árin bjó hann í íbúð sinni
í Sunnuhlíð í Kópavogi. Hann
fæddist að Álfsstöðum á Skeiðum
og ólst þar upp en fór alfarinn úr
foreldrahúsum tuttugu og fimm
ára að aldri.
Ólafur var á togurum nokkr-
ar vetrarvertíðir en hann var eft-
irsóttur háseti enda þrekmaður,
rammur að afli og harðduglegur
í öllu því sem hann tók sér fyrir
hendur.
Ólafur tók bifreiðapróf árið
1928 og festi kaup á vörubifreið
það vor en hann hóf þá akstur
fyrir kaupfélagið á Minni-Borg í
Grímsnesi. Hann fékk sérleyfi fyr-
ir fólksflutninga til Laugarvatns
árið 1932 og ók milli Reykjavík-
ur og Laugarvatns í marga ára-
tugi. Hann varð með tímanum
góðkunn þjóðsagnapersóna fyrir
hnyttin tilsvör og sérlega gætileg-
an akstur.
Árið 1931 kvæntist Ólafur
Svanborgu Þórdísi Ásmundsdótt-
ur, f. 11.2. 1905, d. 4.4. 1988. For-
eldrar Svanborgar voru Ásmund-
ur Eiríksson, bóndi og oddviti á
Neðra-Apavatni í Grímsnesi í Ár-
nessýslu, og k.h., Guðrún Jóns-
dóttir frá Skógarkoti. Ólafur og
Svanborg eignuðust þrjár dætur
og einn kjörson.
Ólafur var ötull baráttumaður
fyrir umbótum í samgöngu- og
umferðarmálum og ritaði með-
al annars fjölda blaðagreina um
þessi áhugamál sín og önnur.
Árið 1988 kom út bók um Ólaf
og lífshlaup hans. Hún nefnist Á
miðjum vegi í mannsaldur – Ólafs
saga Ketilssonar, og er eftir Guð-
mund Daníelsson rithöfund.