Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Blaðsíða 14
14 fréttir 13. ágúst 2010 föstudagur „ÞÚ SNERTIR EKKI TÆKIГ Starfsmenn verktakafyrirtækisins Kraftlindar tóku það ekki í mál þegar vörslusviptingarmenn ætluðu að taka bíl fyrirtækisins. Þeir sneru því vörn í sókn og eltu vörslusviptingarmennina uppi til að krefja þá skýringa. Vörslusviptingarmenn lentu í æsi- legri eftirför á höfuðborgarsvæð- inu á fimmtudag þegar starfsmenn Kraftlindar ehf. sneru vörn í sókn gegn þeim. Tveir menn frá Vörslu- sviptingu ehf. fóru inn á vinnusvæði í Mosfellsbæ þar sem Kraftlind starf- ar fyrir Íslenska aðalverktaka við tvö- földun Vesturlandsvegar við Álafoss. Þegar vörslusviptingarmenn ætluðu sér að taka vörubíl af starfsmanni Kraftlindar tók hann það ekki í mál. Úr varð æsileg atburðarás þar sem starfsmenn fyrirtækisins eltu vörslu- sviptingarmennina uppi og króuðu þá af. Reynir Vikar er vörubílstjóri hjá Kraftlind ehf. en hann segir vörslu- sviptingarmennina hafa króað sig af þar sem hann var við störf. Reynir ætlaði sér að sturta fínum mulningi úr vörubíl sínum þegar vörslusvipt- ingarmennirnir stöðvuðu bílinn svo nálægt honum að hann gat ekki sturtað hlassinu af bílnum. Annar af vörslusviptingarmönnunum var Lárus Viggósson, eigandi Vörslu- sviptingar ehf., sem DV var með til umfjöllunar fyrr í sumar. „Þeir stoppuðu mig á miðju vinnusvæði. Hann kom til mín og sagðist vera að vörslusvipta bílinn. Ég sagði að ég gæti ekkert afhent bílinn því ég ætti hann ekki,“ seg- ir Reynir. Þeir fengu því númerið hjá Berki Ólafssyni, verkefnisstjóra Kraftlindar. „Svo færðu þeir bílinn og ég spurði þá hvort dómur hefði fall- ið í þessu máli þannig að vitað væri hver skuldaði hverjum pening, lán- takinn eða fjármögnunarfyrirtækið? Þá sagði hann mér að þetta væri allt annað, þessi bíll væri í eignaleigu,“ segir Reynir. Á lokuðu vinnusvæði Börkur Ólafsson segir þetta vissu- lega vera rétt hjá vörslusvipting- armönnunum en það sé hins veg- ar ekki búið að úrskurða um það í hæstarétti hvaða vextir eiga að gilda um gengistryggð lán. „Við afhend- um ekkert nema með úrskurði. Það eru bara alveg hreinar línur,“ segir Börkur. „Og að Lárus frá Vörslusvipt- ingu geti komið og tafið fyrir honum. Þeir koma þarna og stoppa hann af þar sem hann er að fara að sturta og dreifa örþunnum mulningi fyrir hef- il,“ segir Börkur en hann segir vörslu- sviptingarmennina ekki hafa leyfi til að fara inn þetta lokaða vinnusvæði. „Hann veður bara inn á vinnu- svæði sem er rækilega merkt. Það má enginn fara inn á þetta svæði nema með hjálm og í öryggisskóm,“ segir Börkur en hann segir vörslu- sviptingarmennina hafa niðurlægt fyrirtækið fyrir framan stærsta við- skiptavin sinn sem eru Íslenskir að- alverktakar. Börkur segist hafa sagt Reyni að sitja sem fastast í bílnum og ákvað Reynir því að læsa sig inni í bílnum þannig að vörslusviptingarmenn- irnir kæmust ekki inn í hann. Börkur segist þá hafa hringt í Lárus vörslu- sviptingarmann. „Þú snertir ekki tækið,“ segist Börkur hafa sagt við Lárus. „Ef við erum í órétti þá skilum við þessum tækjum. En meðan eng- inn dómsúrskurður liggur fyrir skil- um við þeim ekki.“ Eftirförin hefst Börkur og Reynir voru í talstöðvar- sambandi meðan á þessu stóð. Þeg- ar vörslusviptingarmennirnir ætl- uðu að hafa sig á brott bað Börkur Reyni um að elta þá. Þeir króuðu vörslusviptingarmennina af uppi á Höfða í Reykjavík. „Ég hafði þá hringt í syni mína og bað þá um að elta þá líka. Við ætluðum alls ekki að láta þá taka tækin nema með dóms- úrskurði en ekki einhverju lögfræði- áliti.“ Börkur keyrði trukkinn vel fram fyrir þá og saman króuðu þeir vörslusviptingarmennina af. Vörslu- sviptingarmennirnir báðu þá um að hitta sig niðri á Kirkjusandi eftir að þeir höfðu rætt saman en Börkur sagði þeim að hitta sig hjá verkstæð- inu sínu við Smiðshöfða þar sem Kraftlindir eru með verkstæði. „Þeir samþykktu það og fóru þangað. Við bara ösnuðumst ekki til að króa þá af hérna því þeir læddust í burtu og við náðum þeim ekki aftur. Þeir hurfu niður í bæ.“ Vildu skila Börkur segir fyrirtækið vera í eigu Maríu Karlsdóttur en um síðustu áramót bauðst fyrirtækið til að skila tækjunum. Sáu þeir þá fram á verk- efnaskort og að þeir gætu ekki hald- ið þeim. Þá hafi þeir fengið þau svör að best væri að bíða fram á vorið til að sjá hvort ekki rættist úr verkefna- stöðunni og fyrirtækið því haldið tækjunum. Nú í sumar horfi öðruvísi við loksins þegar fyrirtækið sé komið með einhver verkefni, að sögn Barkar. birgir olgEirsson blaðamaður skrifar: birgir@dv.is Þeir samþykktu það og fóru þangað. Við bara ösnuð- umst ekki til að króa þá af hérna því þeir lædd- ust í burtu og við náð- um þeim ekki aftur. Þeir hurfu niður í bæ. sneru vörn í sókn BörkurÓlafsson, verkefnisstjóriKraftlindar,ogReynirVikar, vörubílstjóriKraftlindar,tókuþaðekkiímál aðlátavörslusviptabílfyrirtækisins. Mynd/sigtryggur Ari JóhAnnsson Tölvupóstur gekk milli ráðuneytis og Seðlabanka um ólögmæti gengistryggðra lána: Hefðigetaðbreyttuppgjöribanka Sigríður Logadóttir, aðallögfræðing- ur Seðlabanka Íslands, sendi Sigríði Rafnar Pétursdóttur, lögfræðingi í viðskiptaráðuneytinu, tölvuskeyti þann 12. júní 2009. Þar greindi sú fyrrnefnda nöfnu sinni í viðskipta- ráðuneytinu frá lögfræðiáliti sem hún hafði unnið vegna gengis- tryggðra lána. Þremur dögum áður hafði Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra skipað hóp til að ræða við skilanefndir föllnu bankanna um uppgjör þeirra. Hefðu lögfræðiálitin verið kunn í samningaferlinu er óljóst hvaða áhrif þau hefðu haft á það. Ekki fengust svör frá fjármálaráðuneytinu í gær um hvort því hefði verið kynnt lög- fræðiálitin eða hvort vitneskja um þau hefði legið fyrir í samningaferl- inu. Aðallögfræðingur Seðlabanka Ís- lands sendi Sigríði Rafnar minnis- blað lögfræðistofunnar LEX, sem hafði verið unnið fyrir bankann í maí í fyrra. Þar var komist að þeirri niður- stöðu að lánin væru ólögmæt. Í kjöl- farið gerðu þær nöfnur báðar úttekt á lánunum. Sigríður í Seðlabankanum sendi síðan nöfnu sinni í ráðuneyt- inu sínar niðurstöður um að lánin væru ólögmæt. Sigríður Rafnar hafði þá komist að því sama. Gylfa Magn- ússyni, viðskiptaráðherra, var síðan kynnt minnisblað hennar. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, seg- ir að uppgjör bankanna hefði líklega orðið kostnaðarsamara fyrir íslenska ríkið hefðu dómar um ólögmæti lán- anna legið fyrir. Óvíst sé hvort nýir eigendur séu tilbúnir til að leggja bönkunum til aukið fé. Í samninga- viðræðunum hafi verið reynt að lág- marka eignarhlut ríkisins í bönkun- um eins og kostur væri og þar með kostnað ríkisins. Lilja Mósesdóttir, formaður við- skiptanefndar Alþingis, segir ótal spurningar vakna um eignasafn bankanna, sérstaklega þar sem rík- ið hafi þá nýverið reist fjármálakerf- ið við ef upp kæmi sú staða að semja þyrfti um eignasafnið á ný. Við- skiptanefnd þurfi að fara yfir hvaða áhrif það hefði haft á uppgjörið hefðu álitin legið fyrir. rhb@dv.is gylfi Magnússon Lögfræðingur viðskiptaráðuneytisinsfékklögfræðiálit aðallögfræðingsSeðlabankansvegna gengistryggðralánummittár2009.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.