Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Side 55
föstudagur 13. ágúst 2010 sport 55
11. sunderland
Sunderland er með ágætis lið til að gera góða hluti en það mun
velta mikið á frammistöðu Darren Bent. Sunderland endaði í
þrettánda sæti í vor þó Darren Bent hefði verið með markahæstu
mönnum deildarinnar með 24 mörk. Sunderland skoraði 48 mörk
og því átti Bent helming þeirra marka. Breytingar á leikmanna-
hópnum hafa ekki verið miklar í sumar og hefur Sunderland haldið
sínum bestu mönnum. Albanski tæklarinn Lorik Cana sem kom
fyrir síðasta tímabil átti erfitt með aðlagast lífinu í Englandi og fór
til Galatasaray í sumar. Cana átti góða leiki með Sunderland og var
fljótlega gerður að fyrirliða liðsins. Nái aðrir framherjar en Darren
Bent sér ekki á strik verður Sunderland um miðja deild. Liðið hefur
þó mannskapinn í að gera mun betur. Niðurstaðan verður ellefta
sætið.
LykiLmaður: Darren Bent
FyLgstu með: Andy Reid
12. stoke City
Stoke City er á góðri leið með að festa sig í sessi sem ágætis
úrvalsdeildarlið. Það sást að minnsta kosti á síðasta tímabili að liðið
getur gert fína hluti gegn hvaða liði sem er. Stoke endaði í ellefta
sæti. Styrkleiki liðsins er tvímælalaust varnarleikurinn með þá
Ryan Shawcross og Robert Huth fremsta í flokki. Liðið var í miklum
vandræðum með að skora mörk og náði Ricardo Fuller sér engan
veginn á strik, skoraði einungis 3 mörk í 34 leikjum. Það er engin
ástæða til að ætla annað en Stoke verði í miðjumoði í vetur. Liðið
er ágætlega mannað en skortir meira skapandi leikmenn fram á
við. Rory Delap mun líklega halda uppteknum hætti og leggja upp
mörk úr innköstum.
LykiLmaður: Ryan Shawcross
FyLgstu með: Tuncay Sanli
10. Birmingham
Birmingham var hálfgert spútniklið í ensku deildinni á síðasta
tímabili og var framan af tímabili í baráttu um sæti í Meistaradeild-
inni. Niðurstaðan varð hins vegar níunda sætið sem var frábær
árangur miðað við að liðið var nýkomið upp úr Coca Cola-deildinni.
Liðið mun aftur á móti sakna markvarðarins Joes Hart sem er
farinn aftur til Manchester City. Í hans stað er kominn Ben Foster
sem var mistækur milli stanganna hjá Manchester United. Þá
verður spennandi að sjá hvort Serbinn hávaxni Nikola Zigic nái sér
á strik en hann kom í sumar frá Valencia. Markaskortur var helsti
höfuðverkur liðsins á síðasta tímabili. Niðurstaðan í vor veltur því
mikið á framherjum liðsins því vörnin er nokkuð þétt fyrir.
LykiLmaður: Barry Ferguson
FyLgstu með: Nikola Zigic
13. Newcastle
Newcastle komst aftur í deild þeirra bestu í vor eftir eins árs
fjarveru. Newcastle á auðvitað hvergi annars staðar heima en í
úrvalsdeildinni og verður spennandi að sjá hvort liðið nái að fylgja
eftir frábæru tímabili í Coca Cola-deildinni í fyrra. Leikmannahópur-
inn er spennandi þó þar sé auðvitað enginn í sama gæðaflokki og
Alan Shearer var. Andy Carrol er aðalframherji liðsins og er honum
spáð bjartri framtíð enda einungis 21 árs gamall. Aðaláhersla stjór-
ans Chris Hughton verður væntanlega að halda liðinu í deildinni
og mun það örugglega takast. Í hópnum eru reynsluboltar á borð
við Alan Smith, Sol Campbell, Joey Barton og Kevin Nolan. DV spáir
Newcastle þrettánda sæti deildarinnar.
LykiLmaður: Kevin Nolan
FyLgstu með: Steven Taylor
15. Bolton
Owen Coyle mun leitast við að draga Bolton upp töfluna eftir
að hafa endað í fjórtánda sæti í fyrra. DV spáir því hins vegar að
Bolton endi enn neðar, eða í fimmtánda sæti. Leikmannahópurinn
er einfaldlega ekki sterkari. Koma Martin Petrov mun væntanlega
hjálpa Bolton að skora fleiri mörk en þessi öflugi Búlgari sýndi oft á
tíðum lipra takta hjá Manchester City. Það verður forvitnilegt að sjá
hvernig Ivan Klasnic stendur sig en hann þótti standa sig vel með
Bolton á síðasta tímabili og skoraði átta mörk í deildinni. Tímabilið
verður engu að síður erfitt hjá Bolton en þeir munu þó ná að halda
sér í deildinni nokkuð örugglega.
LykiLmaður: Gary Cahill
FyLgstu með: Tamir Cohen
16. Blackburn
Ljótur en árangursríkur fótbolti. Það eru einkunnarorð Sams
Allardyce, eða Stóra Sams, eins og hann er oft kallaður. Blackburn
átti ágætis tímabil í fyrra og endaði í tíunda sæti, þrátt fyrir að
vera ekkert með allt of stóran eða góðan leikmannahóp. Liðið
skoraði aðeins 41 mark, færri en Burnley sem féll, og það er því
deginum ljósara að félagið þarf að fá alvöru framherja sem skorar
fullt af mörkum. Mame Biram Diouf er kominn í liðið, að láni frá
Manchester United, en afar ólíklegt er að hann muni raða inn
mörkum. Blackburn verður í basli í vetur og nær að bjarga sér frá
falli með góðum lokaspretti.
LykiLmaður: David Dunn
FyLgstu með: Jason Roberts
17. Wigan
Wigan virðist geta unnið hvaða lið sem er en síðan steinlegið fyrir
sama liðinu helgina á eftir. Sú varð allavega raunin á síðustu leiktíð.
Þeir unnu Chelsea í fyrri umferðinni en töpuðu síðan 8:0 í seinni
umferðinni. Svo tapaði liðið 9:1 fyrir Tottenham. Já, það er stöðug-
leikinn sem er helsta áhyggjuefni Wigan. Leikmannahópurinn er
tiltölulega lítill en liðsheildin á köflum afar sterk. Charles N‘Zogbia
getur tætt upp varnir andstæðinganna þegar hann vill og Hugo
Rodallega er öflugur í framlínunni. Titus Bramble er horfinn á braut
og þó hann sé ekki besti varnarmaður í heimi reyndist hann Wigan
vel. Tímabilið verður erfitt og liðið verður í mikilli fallbaráttu.
LykiLmaður: Charles N‘Zogbia
FyLgstu með: Mauro Boselli
18. West Bromwich
West Bromwich kemur á nýjan leik í deild þeirra bestu en liðið hef-
ur flakkað milli deilda undanfarin ár. Eftir fína frammistöðu í Coca
Cola-deildinni í fyrra þar sem félagið komst upp með sannfærandi
hætti bíða stuðningsmennirnir spenntir eftir að liðið hefji leik
að nýju. Leikmannahópurinn er stærri og virðist mun sterkari en
þegar liðið lék síðast í efstu deild. Jójó-draugurinn virðist ofsækja
West Bromwich og spáir DV því að liðið verði í átjánda sæti og falli.
Liðið skortir alvöru markaskorara og mun það reynast dýrtkeypt í
vetur.
LykiLmaður: Graham Dorrans
FyLgstu með: Gonzalo Jara
19. Wolves
Það voru blóðþyrstir Úlfar sem komu upp í úrvalsdeildina í fyrra
undir stjórn Micks McCarthy. Þeir náðu að blása á allar hrakfaraspár
og enda í fimmtánda sæti. Dæmin sanna það hins vegar að annað
tímabilið er alltaf erfiðara en það fyrsta og þessi gamli draugur
mun heimsækja Úlfana í vetur. Mick McCarthy hefur gert allt
sem hann getur til að styrkja leikmannahópinn í sumar og hefur
honum tekist vel upp. Stephen Fletcher sem var lykilmaður hjá
fallliði Burnley er kominn auk Stephens Hunts sem lék vel með Hull
síðasta vetur. Það mun hins vegar duga skammt og spáir DV því að
Úlfarnir verði í næstneðsta sæti í vor.
LykiLmaður: Kevin Doyle
FyLgstu með: Stephen Hunt
20. Blackpool
Blackpool komst afar óvænt í deild þeirra bestu eftir að hafa endað
í sjötta sæti Coca Cola-deildarinnar í fyrra. Afar fáir leikmenn liðsins
hafa reynslu úr úrvalsdeildinni og er Blackpool nánast eins og
óskrifað blað. Lítið hefur gengið að fá leikmenn og hefur liðið ekki
styrkt sig að neinu viti. Ekki bætir úr skák að leikmannahópurinn
er afar lítill. Það er nánast sjálfgefið að Blackpool falli úr deildinni
með stæl.
LykiLLeikmaður: Jason Euell
FyLgstu með: Charlie Adam
14. West Ham
Avram Grant er nýr stjóri West Ham og verður komandi tímabil
erfitt fyrir Hamranna eins og þeir eru gjarnan kallaðir. Liðið var
í mikilli fallbaráttu á síðustu leiktíð og endaði í sautjánda sæti,
aðeins fimm stigum frá falli. Þrátt fyrir takmarkað fjármagn hefur
Avram Grant náð að styrka leikmannahópinn í sumar, þar af eru
tveir af hans fyrrverandi leikmönnum hjá Portsmouth, þeir Tal Ben
Haim og Frederic Piquionne. Liðið fékk tæplega tvö mörk á sig að
meðaltali í leik í fyrra og ætli West Ham að losna við falldrauginn
í vetur verður varnarleikurinn að lagast. Carlton Cole er helsta
stjarnan og mun hann örugglega reynast drjúgur upp við mark
andstæðinganna. Eins mun liðið njóta góðs af Luis Boa Morte sem
var meiddur nánast allt síðasta tímabil.
LykiLmaður: Carlton Cole
FyLgstu með: Mark Noble
titilliNN aftur á
Old TraffOrd