Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Blaðsíða 54
54 sport umsjón: tómas þór þórðarson tomas@dv.is 13. ágúst 2010 föstudagur 1. Manchester united DV spáir manchester united Englandsmeistaratitlinum á næsta tímabili. Þó að Alex Ferguson hafi ekki styrkt liðið mikið í sumar er united með langmestu breiddina af þeim liðum sem koma til með að blanda sér í toppbaráttuna. Það mun reynast liðinu vel þegar fætur leikmanna fara að þyngjast seinni part vetrar. javier „Chicarito“ Hernandez og Chris smalling eru einu leikmennirnir sem Alex hefur fengið í sumar og munu þeir reynast united-liðinu vel. Velgengni united mun velta mikið á leikformi Waynes Rooney eins og á síðasta tímabili. Rooney þarf að sýna sig og sanna á nýjan leik eftir vonbrigðin á Hm. stuðningsmenn united þurfa þó ekki að hafa áhyggjur af Rooney svo lengi sem hann helst heill. sir Alex er með góða blöndu af ungum og reynslumiklum leikmönnum. Komandi tímabil verður væntanlega það síðasta hjá Ryan Giggs, Paul scholes og Edwin van der sar og kemur væntanlega ekki annað til greina af þeirra hálfu en að kveðja með titli. LykiLmaður: Wayne Rooney FyLgstu með: javier Hernandez 2. Chelsea Þó að Chelsea hafi unnið deildina á síðasta tímabili með aðeins einu stigi var sigurinn mun öruggari en lokataflan gaf til kynna. Chelsea skoraði 103 mörk, vann báða leikina gegn manchester united og slátraði andstæðingum sínum nokkrum sinnum – og það án michael Essien sem var meiddur nánast allt tímabilið. Líkt og manchester united hafa forráðamenn Chelsea verið rólegir á félagaskiptamarkaðnum og gert ein þokkaleg kaup – Yossi Benayoun kom frá Liverpool. Á sama tíma hefur Chelsea misst marga góða leikmenn; michael Ballack fór til Þýskalands, Deco og Belletti til Brasilíu, joe Cole til Liverpool og Carvalho er á leið til Real madrid. Chelsea hefur ávallt státað af frábæru ellefu manna byrjunarliði en breiddin í hópnum hefur oft verið meiri. Þá er liðið að eldast og lykilmenn á borð við Frank Lampard, Didier Drogba og john Terry allir komnir yfir þrítugt. Komist Chelsea í gegnum tímabilið án þess að fyrrnefndir lykilmenn meiðist er liðið til alls líklegt. DV spáir Chelsea engu að síður öðru sætinu í vor. LykiLmaður: Frank Lampard FyLgstu með: michael Essien 3. arsenal Það er alveg sama hversu marga stjörnuleikmenn Arsene Wenger missir fyrir hvert tímabil, hann nær alltaf að koma til baka með ógnarsterkt lið. Arsenal mun njóta góðs af því að Robin van Persie hefur náð sér eftir erfið meiðsli sem héldu honum frá stærstan hluta síðasta tímabils. Þá hefur Wenger fengið framherjann marouane Chamakh og ættu þessir tveir leikmenn að tryggja að Arsenal skori nóg af mörkum í vetur. Cesc Fabregas verður áfram hjá liðinu og lítur komandi tímabil ágætlega út fyrir Wenger og hans menn. Vörnin og markvarslan eru hins vegar spurningamerki. mikael silvestre, William Gallas, Philippe senderos og sol Campbell eru allir farnir. Wenger er þó búinn að stoppa í gatið að hluta til með því að fá Frakkann Laurent Koscielny. Ekkert hefur hins vegar gengið í leitinni að nýjum markverði. manuel Almunia og Lukasz Fabianki eru mistækir og munu að líkindum kosta Arsenal nokkur stig í vetur ef fram fer sem horfir. Arsenal er þó með frábært sóknarlið sem vegur upp á móti götóttri vörninni. niðurstaðan verður 3. sætið í vor. LykiLmaður: Cesc Fabregas FyLgstu með: marouane Chamakh 4. Manchester City manchester City er líklega það lið sem stuðningsmenn annarra liða í toppbaráttunni óttast hvað mest. ótakmarkað fjármagn eig- endanna hefur gert liðinu kleift að fá margar stórstjörnur til sín og hefur City nú þegar eytt um 80 milljónum punda í nýja leikmenn. City missti naumlega af sæti í meistaradeildinni á síðasta tímabili en það gerist ekki í vor. David silva, Yaya Toure, Alexandar Kolarov og jerome Boateng eru allir komnir til liðsins og búist er við að james milner komi á næstu dögum. mikil endurnýjun hefur verið í liðinu síðan nýir eigendur tóku yfir og því má búast við að það taki liðið nokkurn tíma að stilla saman strengi sína. Þeir leikmenn sem léku með liðinu á síðasta tímabili eru allir orðnir reynslunni ríkari og því spáir DV því að City nái fjórða sætinu. með þann leikmannahóp sem City hefur yfir að ráða ætti liðið auðveldlega að geta blandað sér í baráttuna um titilinn. Tíðar breytingar á leikmannahópnum munu hins vegar gera það að verkum að liðið mun skorta stöðugleika í vetur. LykiLmaður: Cesc Fabregas FyLgstu með: marouane Chamakh 5. Liverpool Liverpool olli gríðarlegum vonbrigðum á síðasta tímabili eftir að hafa veitt manchester united harða keppni um enska titilinn tímabilið á undan. Breytingarnir á leikmannahópnum í sumar hafa ekki verið svo miklar. Enginn lykilleikmaður hefur horfið á braut þó Yossi Benayoun hafi farið til Chelsea. joe Cole hefur hins vegar bæst í hópinn og sýndi hann það í leik Liverpool gegn Rabotnicki í síðustu viku að hann er frábær þegar svo ber undir. Fernando Torres er meiddur og sást það berlega á Hm í sumar að hann er langt frá sínu besta. Ætli Liverpool að blanda sér í toppbaráttuna þarf liðið að fá Torres strax í gang. Liverpool getur vel blandað sér í titilbaráttuna en miðað við hvernig síðasta tímabil fór, og þá staðreynd að Fernando Torres er fjarri sínu besta, nær liðið ekki að enda ofar en í fimmta sæti. Það mun hins vegar koma liðinu til góða að það er ekki í meistaradeildinni og getur því einbeitt sér betur að deildinni. LykiLmaður: steven Gerrard FyLgstu með: joe Cole 6. tottenham Tottenham tókst loksins að rjúfa einokun þeirra fjögurra stóru á síðasta tímabili og tryggja sér þátttökurétt í meistaradeild Evrópu. Leikmannahópurinn er svipaður og í fyrra en Brasilíumaðurinn sandro hefur bæst í hópinn. Tottenham er gríðarlega vel mannað lið og með mann eins og Harry Redknapp við stjórnvölinn er liðið til alls líklegt. Liðið mun leika í meistaradeildinni í vetur og spáir DV því að það muni gera það að verkum að ómeðvitað verði minni áhersla lögð á ensku úrvalsdeildina en áður. Liðið skortir stöðugleika í vörninni og mun það koma Harry Redknapp í koll í vetur. Ledley King spilar annan hvern leik vegna þrálátra meiðsla, jonathan Woodgate og michael Dawson eru einnig oft meiddir þó sá síðarnefndi hafi verið eins og kóngur í ríki sínu á löngum köflum síðasta vetur. niðurstaðan í vor verður sjötta sætið. LykiLmaður: jermaine Defoe FyLgstu með: Gareth Bale 7. Everton David moyes fær ekki mikið fjármagn til ráðstöfunar en skynsemi hans í leikmannamálum hefur fest Everton í sessi meðal bestu liða deildarinnar. Liðið endaði í áttunda sæti í fyrra og liðið verður á svipuðum slóðum í vor. Leikmannahópurinn er ekki stór en í liðinu eru margir frábærir leikmenn, ber þar helst að nefna mikel Arteta, steven Pienaar og Tim Cahill. Everton hefur hins vegar átt í ákveðnum vandræðum með vörnina hjá sér og skortir stöðugleika þar. Það verður til þess að Everton endar í sjöunda sæti. LykiLmaður: Tim Cahill FyLgstu með: jack Rodwell og jermaine Beckford 8. aston Villa Það er í raun bjartsýni að spá Aston Villa áttunda sætinu miðað við allt sem gengið hefur á í herbúðum liðsins að undanförnu. martin O‘neill hætti með hvelli í vikunni og langbesti maður liðsins í fyrra, james milner, er líklega á förum til manchester City. Á sama tíma eru engir peningar á bankareikningnum til að kaupa nýja leikmenn. Aston Villa virðist vera í miklum mótbyr þessa dagana. Það mun reynast liðinu dýrkeypt að missa martin O‘neill og ef milner fer þá mun liðið aldrei enda ofar en í áttunda sæti. Villa er þó með ágætlega breiðan leikmannahóp og unga stráka sem munu fá aukna ábyrgð í vetur. Þá eru reynsluboltar í vörninni og í markinu stendur Brad Friedel. Það er engin ástæða fyrir stuðningsmenn Aston Villa að örvænta en þeir ættu ekki að láta það koma sér á óvart ef Villa verður í basli framan af tímabilinu. LykiLmaður: james milner FyLgstu með: Gabriel Agbonlahor 9. fulham Fulham kom allra liða mest á óvart á síðasta tímabili þegar það fór alla leið í úrslit Evrópudeildarinnar. Það kostaði hins vegar sitt því liðið endaði í tólfta sæti ensku deildarinnar. DV spáir því að Fulham verði ofar í vetur þar sem liðið getur einbeitt sér almennilega að deildinni. Þó í liðinu séu kannski ekki bestu knattspyrnumenn í heimi þá er Fulham-liðið gríðarlega öflug liðsheild og leikmenn vinna vel saman. Ekki skemmir að í framlínunni er Bobby Zamora og fyrir aftan hann er Clint Dempsey. Þessir tveir leikmenn verða lykilmenn í vetur og ef Eiður smári bætist í hópinn gætu þeir myndað öflugt þríeyki. Brotthvarf Roys Hodgson gæti haft neikvæð áhrif á Fulham-liðið í vetur en ætti ekki að hafa úrslitaáhrif. Fulham endar í níunda sæti. LykiLmaður: Bobby Zamora FyLgstu með: jonathan Greening titiLLinn aftur á Old TraffOrd Bið knattspyrnuunnenda um allan heim tekur enda um helgina þegar fyrsta umferðin í ensku úrvalsdeild- inni í knattspyrnu fer fram. Nær Manchester City að komast í Meistaradeildina og gera jafnvel betur? Nær Arsenal loks titlinum eða verður þetta einvígi á milli Chelsea og Manchester United eins og svo oft áður? DV spáir í spilin fyrir komandi tímabil.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.