Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Qupperneq 8
Með 233 þúsund á dag n Hinn nýi íslenski aðall er samsettur af fólki sem situr í skilanefndum og slitastjórnum. Algjörlega eftirlitslaus sjálftaka á sér stað hjá þeim sem leiða umræddar stjórnir. Þannig var upplýst á visir.is að Stein- unn Guðbjarts- dóttir, formað- ur slitastjórnar Glitnis, hafi verið með rétt tæpar sjö milljónir á mánuði fyrstu þrjá mánuði ársins. Þetta þýðir að Steinunn tekur til sín 233 þúsund krónur á dag. Það þýðir að hún er með rétt tæpar 10 þúsund krónur á tím- ann, allan sólarhringinn og alla daga. Líka þegar hún sefur. LúxusLíf LögManna n Alls er kostnaðurinn við skilanefnd og slitastjórn Glitnis um 103 milljónir króna fyrstu þrjá mánuðina. Auk for- mannsins, Stein- unnar Guðbjarts- dóttur, situr Páll Eiríksson hér- aðsdómslögmað- ur í slitastjórn á ofurlaunum. Skilanefnd Glitn- is skipa svo Árni Tómasson, Heim- ir Haraldsson og Þórdís Bjarnadótt- ir. Allt þetta fólk er með tekjur sem nema margföldum launum forsæt- isráðherra. Það lifir því nú lúxuslífi á kostnað banka í stað útrásarvíking- anna áður. Barnastjarna í póker n Barnastjarnan og skemmtikraftur- inn Sverrir Þór Sverrisson eða Sveppi segir frá því í viðtali við Monitor að hann hafi fórnað skólagöngu sinni til að vinna í Hagkaupum. „Ég hætti í skóla af því ég fékk tilboð frá Hagkaup sem ég gat ekki hafnað. Ég vann frá átta til þrjú eina vikuna og frí um helgina og svo alla hina vik- una og um helgina frá þrjú til níu og fékk 115 þúsund krónur á mánuði,“ segir Sveppi. Í dag lítur hann ekki við neinum smáaurum og þénar formúu. Áhugamál hans eru í samræmi við það því Sveppi er einn af öflugustu pókerspilurum landsins. fLokksgæðingar skjáLfa n Uggur er einhvers staðar vegna rannsóknarinnar á einkavæðingu Hitaveitu Suðurnesja. Þykir afar lík- legt að þar eigi eftir að koma upp á borðið ýmislegt sem illa þolir dagsins ljós. Hermt er að pólitískir gæðingar undir forystu Árna Sigfússonar, bæj- arstjóra í Reykjanesbæ, séu skjálfandi og hafi af þessu áhyggjur. Þá mun vera léttur hrollur í Vinstri græn- um í Árborg sem tóku fullan þátt í einkavæðingunni forðum þótt forysta flokksins sverji aðildina af sér. sandkorn 8 fréttir 13. ágúst 2010 föstudagur Chevrolet - Tangarhöfða 8-12 - Rvk.- 590 2000 - www.chevrolet.is / Spesbílar - Njarðarbraut 9 - Reykjanesbæ - 420 3300 / Bílasalan Ós - Óseyri 5 - Akureyri - 462 1430 Stofnað 1975 SPARK- AKSTUR Chevrolet SPARK er ekki bara massíft öruggur í akstri hann er líka skemmtilega skynsamlegur í rekstri: Eldsneytisnotkun: 4,2 L/100 km í blönduðum akstri. Spark L kr. 1.990 þús. Bíll á mynd: Spark LS kr. 2.290 þús. Chevrol et er me st seldi bíl linn á Íslandi í júlí. BB 1 1. 08 .2 01 0 - A lla r u pp lý si ng ar e ru b irt ar m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r o g m yn da ví xl . KIRKJURÁÐ HAFNAR MILLJARÐAKIRKJU Framkvæmdir á menningarhúsi og kirkju í Mosfellsbæ eru ekki hafnar en áætlaður kostnaður byggingarinnar eru 2,5 milljarðar króna. Hlutur Lágafellssóknar í bygg- ingunni var áætlaður 1,2 milljarður króna en kirkjuráð hafnar alfarið hugmyndum Lágafellssóknar um svo kostnaðarsama kirkjubyggingu í Mosfellsbæ. „Það er allt í biðstöðu og engar framkvæmdir hafnar,“ segir Hilm- ar Sigurðsson, formaður sóknar- nefndar Lágafellskirkju um fyrir- hugaða byggingu nýrrar kirkju í Lágafellssókn í Mosfellsbæ. Sókn- arnefndin hyggst byggja þessa kirkju í samstarfi við sveitarfélagið þannig að úr verði kirkja og menn- ingarhús sem myndi þjóna ýmsum tilgangi fyrir Mosfellsbæ. Kirkjuráð hefur hins vegar hafnað afdráttar- laust hugmyndum Lágafellssókn- ar um kirkjubyggingu í Mosfellsbæ og telur ekki koma til álita að ráð- ist sé í svo kostnaðarsama fram- kvæmd. Ríkið hefur áætlanir um að skera framlög sín til þjóðkirkjunnar niður um níu prósent árið 2011 en þjóðkirkjan hefur neitað að mæta þeim kröfum. Sóknarnefndin áætl- ar að byggingin kosti um 2,5 millj- arða króna og er þá miðað við að stærð byggingarinnar sé 5.926 fer- metrar. Þá er áætlaður hlutur Lága- fellssóknar um 1,2 milljarður króna samkvæmt sóknarnefndinni. Hugmyndasamkeppni haldin Aðspurður hvort erfiðlega gangi að fá fjármagn fyrir framkvæmd- unum segir Hilmar að ekki sé far- ið að reyna á slíkt. „Við erum ekki einu sinni komnir svo langt. Það hefur í rauninni ekkert annað ver- ið gert nema að hafa hugmynda- samkeppni sem öllum er kunnugt um,“ segir Hilmar en þar á hann við keppni sem var haldin í fyrra en þá valdi dómnefnd hugmynd Arki- tektur.is besta og fékk fyrirtækið að launum fjórar milljónir króna fyr- ir bestu hugmyndina að menning- ar- og kirkjuhúsi. ASK Arkitektar ehf. fengu 2,5 milljónir króna fyrir að vera með næst bestu hugmynd- ina en 3. og 4. verðlaun deildust á Arkþing ehf. og PK Arkitekta og fékk hvort fyrirtækið 750 þúsund krónur fyrir. „Svo hefur ekkert gerst meira en það,“ segir Hilmar. Óefnilegt ástand Ástæðan fyrir því að framkvæmdir eru ekki hafnar segir Hilmar að sé óefnilegt ástand í byggingarmálum. „Lágafellssókn hefur engan áhuga á því að hefja stórframkvæmdir fyrr en hægt er að tryggja að hægt sé að ljúka framkvæmdunum. Þannig að það eru engar framkvæmdir farn- ar í gang og ekkert ákveðið í þeim efnum.“ Hilmar segist ekki vilja gefa upp hversu miklu fjármagni hafi verið veitt í fyrirhugaður framkvæmdir. „Það er ekki til að tala um núna.“ Hann segir ekkert ákveðið hvort framkvæmdin verði minnkuð vegna ástandsins. „Það byggir eng- inn söfnuður kirkjubyggingu upp á sitt eindæmi. Það er alltaf reynt að leita til þeirra aðila sem veita fé í slíkt. Það er meðal annars söfnun- arsjóður kirkjunnar sem þar er inni og er undir forystu kirkjuráðs.“ Kirkjan til vandræða Kirkjan í Lágafellssókn tekur áttatíu manns í sæti og hefur verið kvart- að undan plássleysi á þeim dög- um þegar útfarir og fermingar fara fram. Kirkjan er 120 ára gömul að sögn Hilmars. Íbúar í Lágafells- sókn voru þá innan við 150 manns en núna eru um 8.500 íbúar í Lága- fellssókn. „Það er ekkert nýtt af nál- inni að það sé verið að velta fyrir sér kirkjubyggingu. Staðið hefur ver- ið að forkönnunum í yfir tíu ár, en þetta er bara ekki komið lengra en raun ber vitni. Við viljum stíga var- lega til jarðar.“ BirGir olGEirSSon blaðamaður skrifar: birgir@dv.is Við viljum stíga varlega til jarðar. Verðlaunahugmynd TeikningArkitektur.is afnýjumenningar-ogkirkjuhúsiíMosfells- bæ.Framkvæmdireruíalgjörrióvissuvegna efnahagsástandsinsídag.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.