Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Page 23
föstudagur 13. ágúst 2010 viðtal 23
HEIMSBYGGÐIN
HORFIR HINGAÐ
Schmitt og bætir við: „Og að ekki allt
þróist til verri vegar. Ég er svo viss um
þetta. Þið gætuð orðið fyrirmynd og
allur heimurinn myndi bera virðingu
fyrir því.“ Hann segist fá viðbrögð við
Immi hvaðanæva úr heiminum enda
hafi mjög margir heyrt um þessi fjöl-
miðlalög sem nú eru í undirbúningi
og verða væntanlega lögð fyrir Al-
þingi í vetur. Schmitt dregur ekkert
úr og segir að eftir að Immi hafi verið
samþykkt verði hægt að flytja gagn-
rýnar og sannar fréttir en síðast en
ekki síst kaldar staðreyndir um það
sem sé að gerast. Þetta muni laða til
landsins alls kyns fyrirtæki sem vinni
með upplýsingar, reka gagnabanka,
fjölmiðla og önnur fyrirtæki.
Schmitt blæs á efasemdir sumra
um að Ísland sé of lítið til þess að
verða eins konar fríríki og fjölmiðla-
paradís vegna smæðar landsins og
segist engar áhyggjur hafa:
„Ég skil hvað þú átt við en ég
held ekki að það verði vandamál.
Enginn í heiminum býst við því að
þjóðríki brjóti lögin sín. Þið verðið
að standa með ykkar eigin lögum.
Meira að segja Bandaríkin eiga eftir
að skilja það,“ segir Schmitt sem þarf
að rjúka í burtu þar sem fjölskyldan
bíður hans. „Mér líður meira eins
og manneskju en Þjóðverja,“ segir
Schmitt og vitnar þannig í orð kabar-
ettleikarans þegar hann gengur út af
kaffihúsinu.
Fyrsta fríið í tíu ár Daniel Schmitt, talsmaður Wikileaks, hefur ekki tekið
sér frí frá vinnu í tíu ár en eyðir nú sumarfríinu sínu á Íslandi. Hann segir
íslensku Immi-löggjöfina vera það besta sem nú eigi sér stað í heiminum.