Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Blaðsíða 27
„Engan veginn.“
Halldór E. Högurður
39 ára dagskrárgErðarmaður
(Óstöðvandi hrossahlátur.)
Hörður Torfason
65 ára söngvaskáld
„Já, ekki spurning.“
ÁsgEir líndal
27 ára hugbúnaðarsérfræðingur
„nei, það er ekki hennar hlutverk.“
Bjarnþór sigmarsson
44 ára listamaður
„stöð 2 á bara að sjá sóma sinn í að
bjóða landsmönnum upp á það.“
ÁgúsT jónaTansson
57 ára skrifstofumaður
Á rÁðherra að þvinga 365 til að sýna hM í handbolta í opinni dagskrÁ?
BErglind andrésdóTTir
er ein af sjö útskriftarnemum
ljósmyndaskólans í ár. lokasýning
útskriftarhópsins verður opin frá 14. til
29. ágúst í húsnæði skólans að
hólmaslóð 6. sýningin á að gefa góða
mynd af því hvert nemendur stefna í
framtíðinni. berglind er tveggja barna
móðir en námið í ljósmyndaskólanum
tekur tvö og hálft ár.
ReyniR að veRa ljúf
við mömmu sína
Hjáleið yfirlæknis
„Mig langar til að giftast ríkum kalli,“
sagði danska kennslukonan. „Ég get
gefið honum börn og hann getur
gefið mér frelsi.“ Í augnablik fannst
mér ég breytast í teiknimyndaper-
sónu, þar sem heilinn sprettur upp
úr kúpunni og það rýkur úr eyrun-
um.
Það sem kemur mér á óvart er
ekki það að konan vilji giftast rík-
um kalli. Ríkir kallar eru vinsælir
af kvenþjóðinni báðum megin við
kvenfrelsisbaráttu, og ef þeir kom-
ust um stund úr tísku á hippatíman-
um hafa þeir svo sannarlega hlotið
uppreisn æru undanfarna áratugi.
Ekki aðeins var góðærið tileinkað
þeim, heldur voru þættirnir Sex and
the City einn allsherjar ástaróður til
stéttarinnar. Carrie fann ástina með
mógúlnum Mr. Big, þó aldrei kæmi
í raun í ljós hvað hann starfaði við,
enda skiptir slíkt varla máli á með-
an ástin er annarsvegar og allir hafa
nóga peninga á milli handa. Jafnvel
þegar hún fór að slömma og kynnt-
ist djasstónlistarmanni í Greenwich
Village átti sá hinn sami tvo vinsæla
klúbba. Neðar en þetta fer hún ekki
í þjóðfélagsstiganum.
frelsi til vinnu, frelsi frá vinnu
Það sem á hinn bóginn kemur mér
á óvart er að kennslukonan skuli
jafna því við frelsi að vera heima-
vinnandi húsmóðir. Snérist ekki öll
kvenréttindabaráttan einmitt um
jafnan rétt til vinnu og launa, og að
frelsi kvenna fælist í því að vera eng-
um fjárhagslega háður? Samkvæmt
þessari ágætu manneskju snýst
frelsi hinsvegar ekki um réttinn til
þess að vinna, heldur réttinn til þess
að gera það ekki. Þannig er frelsið
orðið frelsi frá vinnu.
Líklega eru fá hugtök jafn sveigj-
anleg og frelsið. Eiginlega getur það
táknað hvað sem hverjum hentar
hverju sinni. Fyrir hippunum var
það meðal annars rétturinn til kyn-
lífs, hassreykinga og þess að þurfa
ekki að gegna herskyldu. Seinna
meir, þegar þeir voru farnir að vinna
í heildsölunni hjá pabba, var frelsið
farið að snúast um réttinn til þess að
verða eins ríkur og hugsanlegt var,
án allra þjóðfélagslegra skyldna.
Carrie Bradshaw og Bella
Nú veit ég ekki hvort endurskil-
greining kennslukonunnar á hug-
takinu sé að öðlast almenna út-
breiðslu. Á hinn bóginn eru ýmis
teikn á lofti um það í poppmenn-
ingunni að rétturinn til vinnu sé
ekki það sem er ungum konum
mest hugleikið. Sú kynslóð sem ólst
upp við Sex and the City leit á frelsi
sem réttinn til að maxa út kredit-
kortið hjá kærastanum, svo vitnað
sé í viðtal við unga konu sem seinna
hlaut frama í blaðamennsku.
En hvernig ætli Twilight-kyn-
slóðin líti á málin? Á meðan Carrie
og vinkonur voru hnyttnar og klárar
á sinn hátt, eyðir kvenkynssögu-
hetja Twilight-seríunnar, Bella,
fjórum bókum og brátt fimm bíó-
myndum í að gera mest lítið. Strák-
arnir berjast um hana, á milli þess
sem þeir verja hana fyrir utanað-
komandi hættum. Það eina sem
hún gerir er að vera sæt og velja á
milli. Carrie endurskilgreindi frels-
ið ef til vill, en Bella kastar því fyr-
ir róða.
rauðsokkur og draumaprinsar
Það er líklega táknrænt að ástmað-
ur Bellu er einmitt frá 19. öldinni,
frá Viktoríutímanum þegar kyn-
líf þótti ónáttúrulegt og skyldi ekki
stundað nema í barneignaskyni.
Líklega hafa þó aldrei verið fleiri
vændishús í London en einmitt þá,
sem hlýtur að vera afleiðing hræsn-
innar. Þetta var einnig tímabilið fyr-
ir kvenréttindabaráttuna, áður en
súffragettur fóru að kasta sér fyr-
ir hesta til að fá fram kosningarétti
fyrir konur.
Hvers vegna er það þetta tímabil,
þessi andi, sem heillar ungar konur
svona mikið þessa dagana? Er það
vegna þess að á óvissutímum vill
maður helst bara hafa einhvern til að
hugsa um sig? Er það vegna þess að
eyðni hefur aftur gert kynlíf hættu-
legt, og því er það best stundað innan
hjónabands eða þá ekki yfirhöfuð?
Eða er það ef til vill bara vegna þess
að hver ný kynslóð vill eitthvað ann-
að en sú sem kom á undan. Rétt eins
og rauðir sokkar hneyksluðu ömm-
urnar, þá streitast ungar konur í dag
móti handleiðslu mæðra sinna með
því að svífa á vit ævintýra um vernd-
andi prinsa. Tíminn mun leiða í ljós
hvað verður, en líklega munu slíkar
fantasíur þó enda með vonbrigðum.
Femínistar og vampýrur
myndin
Hver er konan?
„berglind andrésdóttir útskriftarnemi
ljósmyndaskólans.“
Hvað drífur þig áfram í lífinu?
„börnin mín og auðvitað allt hressa fólkið
sem ég hef safnað að mér í gegnum
árin.“
Hver er fyrirmyndin?
„fyrirmyndir breytast frá ári til árs, en á
maður svo ekki að reyna að standa sig
vel og vera góður við mömmu sína?“
Hvað borðar þú í morgunmat?
„bleika drullu í glasi.“
Hvar ólstu upp?
„ég kem upphaflega úr hafnarfirði en
varð fullorðin í garðabænum.“
Hver var síðasta bókin sem þú last?
„hvorki meira né minna eftir maríu
vinkonu og systur hennar.“
Hver eru áhugamálin?
„mér finnst allt gaman sem er gaman, til
dæmis er skemmtun áhugamálið mitt.“
Hvað er fram undan?
„ég ásamt nokkrum ljósmyndurum ætla
að opna vinnustúdíó og listagallerí, ég
ætla að gera eitthvað fullorðins.“
Hvernig gengur undirbúningur
sýningarinnar?
„hann gengur þokkalega. núna er ég að
telja skrúfur og stúdera hallamálið.“
Hvað er mikilvægast í lífinu?
„að vera kona dagsins í dv er sannarlega
á toppi listans en auðvitað verð ég að
segja fjölskyldan mín.“
maður dagsins
dómstóll götunnar
kjallari
föstudagur 13. ágúst 2010 umræða 27
„Jafnvel þegar hún fór
að slömma og kynntist
djasstónlistarmanni
í Greenwich Village
átti sá hinn sami
tvo vinsæla
klúbba.“
valur gunnarsson
rithöfundur skrifar
í slipp sanddæluskipið sóley er í slippnum í reykjavík. skipið var upphaflega smíðað sem flutningaskip og hét þá selbydyke en fékk nafnið norbrit Waal árið 1985. Því var svo
breytt í sanddæluskip árið 1988 og fékk nafnið sóley. mynd/róBErT rEynisson