Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Side 28
Hafið þið heyrt um nýjasta barna-vagninn? Hann kallast Tilfinninga-vagninn, eða það er að minnsta kosti nafnið sem að ég hef gefið honum. Tilfinningavagninn er sem sagt sú tegund af barnavagni eða sá barna- vagn sem þunguð kona tekur ástfóstri við á meðgöngunni. Ekki laðast allar þungaðar konur að tilfinningavagn- inum en það hefur kærasta mín svo sannarlega gert. Biddu fyrir þér maður. Þessi ólétta elska sem gengur nú með fyrsta barn okkar hefur nefni-lega tekið slíku ástfóstri við tegund af barnavagni sem kallast Emmaljunga að öll rök- hugsun og almenn skynsemi hreinlega gilda ekki. Enda fara sterkar til- finningar sjaldan saman við rökhugsun og skynsemi. Þetta samband kær- ustu minnar við Tilfinningavagninn hófst mjög snemma á meðgöngunni. Skiljanlega fór áhugasöm verðandi móðir að skoða vagna og annan nauð- synlegan barnavarning á internetinu góða. Það var svo sirka tveimur vik- um eftir að við höfðum fengið staðfest að hún bæri barn undir belti sem ég fékk tilfinningaþrungið símtal um að ég þyrfti að fara taka mig á í fjár- málunum og hvort að ég væri byrjaður að safna. Safna fyrir hverju spurði ég hissa og þá svaraði hún reið: „Barnavagninum!“ Því þessar græjur fást nefnilega ekki gefins. Ó nei. Vagn af þessari teg-und kostar hátt í 200.000 krón-ur. Ég bað mína heitt elskuðu um að róa sig niður því það væru jú rúmlega sjö mánuðir í að erfinginn kæmi í heiminn og að óþarfa áhyggj- ur af barnavagni væri nú ekki tímabær- ar. Hún róaðist um stund, að ég hélt, og nefndi vagninn góða ekki í nokkrar vikur. Dag einn í sumar fórum við svo sam- an að skoða þess vagna og skömmu seinna komumst við (lesist: ég) að því að það væri nú betri kostur að kaupa notaðan vagn fyrir helmingi minni pening. Eftir nokkrar tilfinningasveiflur var konan kom-in á þá skoðun líka. Hún hafði svo fundið glæsilegan Tilfinninga-vagn af hárréttri tegund sem var lítið notaður og kostaði „aðeins“ 85.000 krónur. Um svipað leyti bauðst okkur að fá lánaðan fínan vagn en það var alveg ómögulegt þar sem hann var ekki af réttri tegund. Ég sagði við mína heitt elskuðu að hún ætti frekar að kaupa sér skartgripi og föt fyrir peninginn og fá hinn vagninn að láni. Sú ábending hafði lítið að segja og þá fyrst áttaði ég mig á alvarleika málsins. Þrátt fyrir allt ákvað þessi elska að stökkva á endanum á notaðan vagn sem við fundum á Barnalandi. Fínasti vagn á góðu verði. Hún var tvístígandi en lét þó verða af kaupunum. Við vorum ekki fyrr komin út í bíl en að ég sá eftirsjána í augum hennar. Draumurinn var brostinn. Í staðinn fyrir nýjan, glansandi og vel lyktandi vagn var bara einn vel með farinn og notaður í skottinu. Ég áttaði mig á því að verðandi barnsmóðir mín þurfti á nýjum vagni að halda. Svo sterkar voru þessar tilfinningar. Ég sannfærði hana um að við myndum bara selja þann notaða aftur og festa kaup á draumavagninum. Eftir nokkur tár tókst að selja þann notaða á skotstundu og nú er verið að undirbúa kaup á hinum fullkomna Tilfinn- ingavagni. Síðan þá hefur þessi elska brosað sínu breiðasta og er öll önn- ur. Sem er auvðitað númer eitt, tvö og þrjú. Ég ætla ekki að láta sem ég skilji þetta rótsterka samband hennar við vagninn en ég skil þó að ég get ekki með nokkru móti áttað mig á því hvernig er að vera óléttur. Þangað til ég næ því er það bara já og amen. Tilfinninga- vagninn Ásgeir Jónsson skrifar helgarpistill 28 umræða 13. ágúst 2010 föstudagur Noregur er í Borgarfirði. Hann er nánar tiltekið við þjóðveginn á leið- inni upp í Norðurárdal. Ég held að flestir sem aka þessa leið í norður- átt hljóti að átta sig á því hvenær þeir eru allt í einu komnir til Noregs, eins og fyrir galdra. Maður brunar upp og niður ása og leiti, um kjarri vaxnar hlíðar og hrjóstrug holt, og þá blas- ir allt í einu við stór grenilundur. Maður ekur meðfram honum dá- góða stund, hann er á hægri hönd sé maður á norðurleið, og grenitrén eru margra metra há innan vand aðrar girðingar. Þessi gróskumikli greni- reitur hefur mér alltaf þótt vera bút- ur af Noregi. Þetta er líklega ein ein- faldasta og ódýrasta utanlandsferðin sem völ er á; skyndilega er maður hrifinn burt úr íslensku umhverfi og ekur þarna spölkorn um Þrændalög, eða Hörðaland, eða gott ef ekki sjálfa Finnmörku. Svo er maður skyndilega kominn framhjá og aftur lentur á Íslandi þar sem klettarnir gægjast gegnum lág- vaxið birkikjarrið. ÓÞJÓÐLEGT LANDSLAG? Landslag ætti auðvitað að vera óþjóðlegt með öllu. Og auðvitað er svo, þegar öllu er á botninn hvolft. En samt tengir maður landslag og náttúru óhjákvæmilega við ákveðna heimshluta, ákveðin ríki, jafnvel ákveðnar þjóðir. Í ljóðabókinni Að- flutt landslag lýsti fornvinur minn Sveinn Yngvi Egilsson því til dæmis skemmtilega þegar hann rakst allt í einu á íslenskt fjall á ferðum sínum um Skotland. Í ljóðinu hans Sveins Yngva er fundur hans og íslenska fjallsins í Skotlandi jákvæður atburður, ef ég man rétt, og mér fannst líka gaman að því þegar ég rakst einmitt á slíkt íslenskt fjall þegar ég var einu sinni að keyra um skosku hálöndin. En hitt verð ég að viðurkenna að þessi bútur af Noregi uppi í Borgarfirði finnst mér einhvern veginn eins og aðskotahlutur, alveg út úr kú, eins og það heitir. Eitthvað óviðkunnan- legt við hann, þó þetta sé bara ósköp meinlaus grenilundur. Af því hann er á vitlausum stað. Undanfarið hefur svo vaxið með mér sú tilfinning að ýmsir staðir á Íslandi séu á kolvitlausu róli, og séu jafnvel komnir beina leið að utan – og eigi varla heima hér á landi. Ég er að tala um alaskaöspina, sem nú sprettur sem aldrei fyrr úr íslenskri mold. Öspin er greinilega frábær- lega duglegt tré, harðgert og nán- ast ódrepandi, og ég skammast mín hálfpartinn fyrir að amast við henni. Í mörg ár hef ég verið að setja nið- ur rammíslenskt birki í spildu ná- lægt Heklu og þar sýnist mér að ég megi kallast góður ef birkið vex ör- fáa sentímetra á sumri. Á sama tíma virðist öspin þjóta upp nánast sama hvar hún er sett niður. Ég sé ekki bet- ur en öspin geti náð tíu tólf metra hæð, jafnvel meira, á örfáum árum. SJÓNDEILDARHRINGURINN HORFINN Og það er mergurinn málsins. Út um allar koppagrundir á Suður- landsundirlendinu, þar sem ég hef verið að þvælast síðustu dagana, þar eru aspirnar farnar að teygja sig til himins af miklum dugnaði – en ég get ekki varist þeirri tilfinn- ingu að mér finnist þær vera í öðru landi en á Íslandi. Snyrtilegar raðir af þráðbeinum öspum verða hvar- vetna fyrir sjónum manns. Þær hafa augljóslega oftast verið gróðursett- ar til að búa til skjól fyrir vindum, og vissulega ekki vanþörf á slíku víða á Íslandi, en þegar aspirnar eru orðn- ar tíu metra háar eða hærri fara þær óneitanlega að skyggja ótrú- lega víða á sjóndeildarhringinn. Enda hef ég komið í tvo sumarbú- staði í sumar, þar sem dugmiklar aspir hafa sprottið svo mikið á örfá- um síðustu misserum að sjóndeild- arhringurinn hafði beðið stóran skaða af. Mér sýnist reyndar sem Íslend- ingar umgangist sjóndeildarhring- inn víða af helsti lítilli virðingu. Þeir reisa sér sumarbústaði sína á falleg- um stöðum, þar sem oftar en ekki er vítt til veggja og frjálst í fjallasal, en virðast síðan ekki í rónni fyrr en þeir eru búnir að fela sjóndeildarhring- inn bak við sem allra mest af trjám. Nú veit ég ósköp vel að trjáræktin er fyrst og fremst hugsuð til þess að veita skjól þeim sem í bústöðunum dveljast, en fyrr má nú oft vera – því sumir bústaðir hverfa gjörsamlega inn í trjágróðurinn svo þar er varla neitt að sjá nema trjágróðurinn. Og þar eru aspirnar dugmestar. EITTHVAÐ ÓEÐLILEGT Ég verð að viðurkenna að mér finnst eitthvað stórlega óeðlilegt við að sjá aspir í íslenskri náttúru. Þessi þráðbeinu hávöxnu tré virka eins og aðskotadýr í moldinni hér; mér finnst í fúlustu alvöru að ís- lensk tré eigi að vera svolítið kræk- lótt, eins og þau hafi lagað sig að næðingnum – og ekki of há, svo við sjáum í kringum okkur fyrir þeim, en þau loki okkur ekki inni. Meira að segja finnst mér þessi fölgræni litur á blöðum asparinnar helsti gervilegur fyrir íslenska náttúru. Þegar maður viðrar þá skoðun að manni finnist einhverjar tiltekn- ar jurtir ekki „eiga heima“ í íslenskri náttúru, þá eru andmælin stund- um af þeim toga að helst er jafn- andi við andmæli gegn rasisma. Er ég ekki bara að amast við „útlend- ingum“ þegar ég vil ekki sjá þessi „ó-íslensku“ tré, eins og aspirnar? En þetta er náttúrlega bara vitleysa – tré eru ekki fólk, og ég legg þrátt fyrir allt ekki að jöfnu jurtir og fólk. Ég vil helst fá að horfa á náttúruna í kringum mig tiltölulega „óspillta“ af áhrifum mannsins (það er að segja öspinni, og já, grenitrjánum líka) en með mestu gleði skal ég svo njóta þeirrar náttúru með fólki sem upprunnið er úr öllum heims- hornum! UNDARLEGAR RAÐIR AF ÞRÁÐBEINUM ÖSPUM Vandamálið er bara að hinar undar- legu reglulegu raðir af hinum þráð- beinu öspum sem svo undarlega víða eru farnar að teygja sig til him- ins í íslenskum sveitum, virðast mér alls ekki vera á Íslandi. En ég veit reyndar ekki í hvaða landi þessar snyrtilegu raðir eiga heima. Litla trú hef ég á að svona sé þetta í Alaska. Það er kannski einna helst að Íslend- ingar virðist með þessum aspagöng- um vera að reyna að búa til trjágöng eins og tíðkast meðfram vegum eða kringum hús í Hollandi eða Belgíu eða einhvers staðar. Og er ætlað að loka úti sérhvern gust. En heldur skal ég þola svolítinn næðing hér á mínu Íslandi ef ég fæ að halda sjóndeildarhringnum. trésmiðja illuga Þessi þráðbeinu hávöxnu tré virka eins og aðskotadýr í íslenskri mold Illuga Jökulssyni finnst aspir ekki eiga heima í íslenskri náttúru: viRÐingin fYRiR SJÓnDEilDaR- HRingnUM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.