Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Qupperneq 30
Duttlungar ÞránDar Laugardaginn 14. ágúst verður opnuð málverkasýning Þrándar Þórarinssonar á Laugavegi 26. Sýningin er fjórða einkasýning Þrándar og ber heitið Duttlungar. Hún samanstendur af olíumálverkum sem flest eru óður til Reykjavíkur og sýna borgina eins og Þrándur vill hafa hana. Í verkunum varpar Þrándur meðal annars ljósi á Ingólfsstræti, Lækjargötu, Hljómskálagarðinn, Hverfisgötu og Pósthússtræti, auk þess sem hann hefur málað útifund á Austurvelli og garðinn við listasafn Einars Jónssonar. Sýning ber merki „capriccio“-stefnunnar sem iðkuð var á Ítalíu á 18. öld. Heima í árbæjarsafni Sigríður Ásgeirsdóttir opnar sýningu sína Heima í Listmunahorni Árbæjarsafns laugardaginn 14. ágúst kl. 14.00 og stendur sýningin til 31.ágúst. Á sýningunni veltir Sigríður fyrir sér sambandi húss og manns. Hús eru reist í margvíslegum tilgangi, en eiga öll sameiginlegt að afmarka rúm og veita skjól, helst til langs tíma og á tíðum mun lengri tíma en mannsævin spannar. Húsið Sólbakki á Stokkseyri var reist sem íbúðarhús á árunum 1899-1901 og hefur gegnt því hlutverki síðan. Í gegnum tíðina hafa íbúar komið og farið og eigendur sömuleiðis og geymir húsið í þögn sinni aldarlanga sögu sem einungis þeim er kunn sem sköpuðu hana í rás tímans. Leikárið byrjar snemma hjá Þjóðleikhúsinu: nígeríusvindlarar til bjargar „Við erum að kanna svindl í raun- inni. Ég veit í raun ekki hvað ég má gefa mikið upp um sýning- una,“ segir Ylfa Ösp Ásgeirsdóttir, meðlimur sviðslistahópsins 16 elskendur sem frumsýnir verkið Nígeríusvindlið í Kassanum í Þjóð- leikhúsinu hinn 20. ágúst. „Verk- ið fjallar um það sem við getum lært og nýtt okkur af þessari fjár- magnshliðrunartækni sem Afríku- menn eru svo flinkir í,“ bætir Ylfa við. Meðal þess sem gerist á svið- inu er að haft verður samband við ósvikna Nígeríusvindlara í beinni. Svindlararnir sjálfir taka þannig óafvitandi virkan þátt í sýning- unni. Velt verður upp spurning- um um réttlæti í víðu samhengi og hvort skáldskapurinn sé í raun helsti drifkrafturinn í samskiptum manna. 16 elskendur eru sjálfstætt starfandi atvinnuleikhópur sem samanstendur af sviðs-, tón- og myndlistarmönnum og er sýning- in þannig hvarfpunktur aðskildra listgreina. Nígeríusvindlið er unn- ið í samstarfi við Þjóðleikhúsið og fjármagnað með styrk frá Leiklist- arráði Íslands. Í fyrra hlaut sýn- ingin jafnframt þróunarstyrk úr Prologus, leikritunarsjóði Þjóð- leikhússins, og var í kjölfarið sýnd stutt sýning, sem var þá í vinnslu, þar sem fram komu meðal ann- arra Helgi Björnsson, Páll Rósin- kranz, Högni í Hjaltalín og Fabian Watters. Það skal þó tekið fram að þeir eru fjarri góðu gamni að þessu sinni. Nú eru það svindlararnir sjálfir sem verða aðalstjörnurnar. dori@dv.is 30 fókus 13. ágúst 2010 föstudagur múgsefjun í sókn Hljómsveitin Múgsefjun hefur sent frá sér nýtt lag sem ber nafnið Þórð- argleði. Þetta er annað lagið sem heyrist af væntanlegri plötu Múg- sefjunnar sem kemur út næsta vetur, en lagið er þegar farið að hljóma reglulega á Rás 2. Þórðargleði má nú nálgast á tonlist.is, á myspace.com/ mugsefjun eða á Facebook-síðu sveitarinnar. Af þessu tilefni mun Múgsefjun halda í stutta tónleikaferð og spila á tvennum tónleikum á Norðurlandi. Sveitin mun koma fram á tónlistar- hátíðinni Gærunni föstudagskvöld- ið 13. ágúst. Því næst mun Múg- sefjun halda tónleika á Gamla bauk á Húsavík laugardagskvöldið 14. ágúst. Tónleikarnir hefjast kl. 23.00 og er aðgangseyrir 1.500 kr. Þessari stuttu tónleikatörn Múgsefjunar lýk- ur svo á nýja tónleikastaðnum Fakt- orý við Smiðjustíg í Reykjavík. ný íslensk kvik- mynDasíða Búið er að opna heimasíðuna whosemoose.com sem er ný vef- síða, unnin af íslenskum sprot- um. Whosemoose er „online entertainment library“, eins og segir á heimasíðunni og þar geta notendur haldið utan umkvik- myndasafnið sitt með því að skrá sig á síðuna. Whosemoose er tengd við IMDb-kvikmyndasíð- una þar sem þú getur fundið allar helstu kvikmyndir ásamt gagn- rýni, plakötum og öðrum fróð- leik. Vinir þínir geta einnig skráð sig og þá færð þú gott yfirlit yfir myndir þeirra, getur fengið þær lánaðar og annað í þeim dúr. Enn sem komið er, er heimasíðan ein- göngu fyrir kvikmyndir en hug- myndin er að færa út kvíarnar svo notendur geti einnig fengið yfirlit yfir bækur og tölvuleiki. artfart um Helgina Föstudagur sarah Hopfinger - small is beautiful Norðurpóllinn kl. 19 - 19.50 dans á rósum - Mario Bros Norðurpóllinn kl. 21 - 21.45 Bottlefed Ensemble - Pure Pleasure seekers Útgerðin kl. 21 - 22 Laugardagur anna asplind dancewalks Hugmyndahús háskólanna kl. 14 Homo Ludens - Fjöltengi BSÍ kl. 17 - 17.50 sara Hopfinger - small is beautiful Norðurpóllinn kl. 19 - 19.50 P.a.r.t.s in Pieces - P.a.r.t.s in Pieces Norðurpóllinn kl. 20 - 20.45 Fimbulvetur - Interjections Norðurpóllinn kl. 20 - 20.30 16 elskendur Frumsýna Nígeríusvindlið 20. ágúst. Lengri gluggi af þessu tagi virðist henta bæði íslenskum og erlendum djassunnend- um betur,“ segir Pétur Grétarsson, einn færasti slagverksleikari lands- ins og framkvæmdastjóri Jazzhátíð- ar í Reykjavík sem stendur yfir í 15 daga að þessu sinni. Þetta er í 21. skipti sem hátíðin er haldin en að þessu sinni verða yfir 80 atriði af öll- um stærðum og gerðum á dagskrá dagana 14. til 29. ágúst. Þetta er fjórða hátíðin sem Pétur stýrir en hann tók við stjórnartaum- unum árið 2007. „Mitt fyrsta verk var að færa hana á þennan tíma og það hefur gefist vel. Hátíðin hefur verið á svolitlu reiki og meðal annars ver- ið haldin að vori, hausti og vetri. Þá hefur hún bara vanalega verið löng helgi eða í kringum fimm dagar. Það var svo í fyrra sem við lengdum hana upp í 20 daga,“ segir Pétur, en í fyrra var tuttugu ára afmæli hátíðar- innar. „Það fyrirkomulag skilaði sér mjög vel þannig að þessu sinni verð- ur hún svipuð að lengd. Við náum því þremur helgum þarna inn,“ segir Pétur, en það var mál manna að há- tíðin í fyrra hefði tekist frábærlega og var hún meðal annars tilnefnd til Menningarverðlauna DV fyrir árið 2009. Pétur segir það hafa verið mark- miðið að hafa dagskrá hátíðarinn- ar gisnari fyrir vikið en sú hafi ekki orðið raunin frekar en í fyrra. „Mað- ur ætlar að alltaf að láta lofta aðeins um hana en svo endar þetta í þétt- setinni dagskrá. En það er bara já- kvætt og til marks um gróskuna í ís- lensku tónlistarlífi. Bæði í djass sem og í annari tónlist.“ 80 atriði á dagskrá Þau 80 atriði sem eru á dagskrá eru af ýmsum stærðum og gerðum en sem fyrr eru það þó íslenskir djass- tónlistarmenn sem eru uppistaða hátíðarinnar. „Ég geri ráð fyrir því að um sirka 70 prósent af dag- skránni sé innlend. Reyndar eru mörg af innlendu atriðunum með nokkuð alþjóðleg þar sem marg- ir íslenskir tónlistarmenn eiga í samstarfi við erlenda starfsbræð- ur sína. Það er greinilegt að djasssen- an á Íslandi er í miklum blóma en þrátt fyrir það en hún ekki fyrir- ferðarmikil í umfjöllun fjölmiðla né í spilun útvarpsstöðva hér á landi. „Við furðum okkur líka oft á því. Þessi sena er býsna sterk og þeir sem spila djass eru oftar en ekki þeir sem eru komnir langt í sinni tónlist. Enda bera margir þeirra hljóðfæraleikara sem fram koma á hátíðinni uppi aðrar senur hér á landi.“ Mikil breyting Grétar segir mikið hafa breyst í tónlist á Íslandi síðastliðna ára- tugi og sömu sögu sé að segja um djassinn. „Um miðja eða fyrir miðja síðustu öld var djass dægur- lagatónlist en hefur þróast mikið síðan. Hún er svo fjölbreytt. Hún getur verið allt frá mjúkri dægur- lagatónlist yfir í harðkjarna spuna. En eins og með alla aðra tónlist þá lengri jazzHátíð Lengra snið á Jazzhátíð í Reykjavík er komið til að vera en það var fyrst reynt á 20 ára afmælishátíð á síðasta ári. Pétur grétarsson framkvæmdastjóri hátíðar- innar segir þetta fyrirkomulag hafa hent- að vel en hátíðin stendur yfir í 15 daga að þessu sinni. Alls verða 80 atriði á dagskrá á þeim dögum en stærstu nöfnin að þessu sinni eru meðal annars django Bates, Jon Hassell og don randi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.